Morgunblaðið - 12.08.2004, Side 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
www.icelandair.is/florida
Sólskinsríkið Florida nýtur sífellt
meiri vinsælda hjá Íslendingum. Við
höfum nú ákveðið að mæta þessum
vinsældum og fjölga ferðum til
Florida. Frá næsta hausti verður
flogið fjórum sinnum í viku til
Orlando. Núna geta allir komist í
sólina, sæluna og áhyggjuleysið.
VR orlofsávísun
Munið ferða-
ávísunina
*Best Western Plaza á mann í
herbergi m.v. 2 fullorðna og 2
börn. 30. nóv.-7. des., 11.-18. jan.,
24.-31. jan. Innifalið: Flug, gisting í
7 nætur, flugvallarskattar,
þjónustugjald og eldsneytisgjald.
5000 Ferðapunktar
upp í pakkaferð
Fyrir handhafa Vildarkorts VISA
og Icelandair. Jafnvirði 5000 kr.
Gildir til 1. september.
Verð frá 47.888 kr.*
Fjórum sinnum
í viku til Orlando
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
25
37
0
0
7/
20
03
HESTAFERÐINNI yfir lengstu mögulegu leiðina
þvert yfir landið lauk á Reykjanestá í gærkvöldi. Hóp-
urinn, 20 knapar og 58 hestar, lagði af stað frá Fonti á
Langanesi 25. júlí sl. og fór um 780 kílómetra leið yfir
hálendið á 18 dögum, nánast í beinni línu að Reykja-
nestá.
„Þetta gekk ótrúlega vel og allt fór samkvæmt áætl-
un. Knapar og hestar eru í góðu ásigkomulagi,“ sagði
Finnur Ingólfsson, forstjóri VÍS og hestamaður, þegar
á leiðarenda var komið en með í för voru vinir hans og
ættingjar úr fjórum fjölskyldum, allt vant hestafólk.
Að meðaltali lagði hópurinn að baki um 48 kílómetra
á dag. „Við fengum meiriháttar veður allan tímann,
stundum alltof heitt og stundum fengum við sandbyl
og ryk. Ætli hafi ekki rignt á okkur samanlagt í um 10
mínútur,“ sagði Finnur.
Spurður um erfiðasta kafla leiðarinnar sagði hann
farartálmann hafa verið milli Ingólfsskála, norðan
Hofsjökuls, og Svartárbotna á Kjalvegi. Hópurinn
hefði lent í Blöndu straummikilli og hestarnir lent í
djúpu vatni. Sundið hefði þó gengið slysalaust fyrir
sig.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Finnur Ingólfsson og ferðafélagar hans nálgast leiðarenda hestaferðarinnar á Reykjanesi í gærkvöldi.
Langri hestaferð lokið
„ÞAÐ er komið nýtt skipulag á
reitnum sem gerir ráð fyrir því að
ekki verði leyft að rífa Austurbæj-
arbíó,“ segir Steinunn Valdís Ósk-
arsdóttir, formaður skipulags- og
byggingarnefndar Reykjavíkur og
borgarfulltrúi R-listans. Nýja
skipulagið hefði verið samþykkt
samhljóða á fundi nefndarinnar í
gær.
Meðfram Njálsgötu verður sam-
kvæmt skipulagstillögunni tveggja
hæða sambyggð húsalengja með
allt að 30 íbúðum. Tekið verði mið
af húsum í nágrenninu um leið og
byggðin sé þétt. „Síðan verður
haldið í svæðið sem er austast á
reitnum, næst Rauðarárstígnum, og
það gert að grænu útivistar- og
leiksvæði,“ segir Steinunn Valdís.
Tillagan fer svo í hefðbundið kynn-
ingarferli eftir afgreiðslu í borg-
arráði á þriðjudag.
Árni Jóhannesson, framkvæmda-
stjóri ÁHÁ verktaka, sem eiga
Austurbæ, sagðist ekki vera sáttur
við þessa ákvörðun. Hann mætti á
fund skipulagsnefndar í gærmorg-
un en vildi ekki úttala sig um þetta
mál í gær. Það bíði betri tíma.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, odd-
viti Sjálfstæðisflokksins í borgar-
stjórn, segir þetta engin ný tíðindi
og hafi verið ljóst þegar borgar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokks og
Vinstri-grænna vildu ekki sam-
þykkja niðurrif Austurbæjarbíós.
Þá var málið fallið og Framsókn-
arflokkurinn og Samfylkingin
þurftu að bakka.
„Þetta eru góð tíðindi,“ svaraði
hann aðspurður og leggur áherslu á
að nú fari fram umræða um framtíð
Austurbæjarbíós. Að þeirri umræðu
eigi borgin að koma þó án nokkurra
skuldbindinga um að leggja til fé í
rekstur eða annað sem tengist hús-
inu.
Á móti niðurrifi frá upphafi
Sveinn Aðalsteinsson, varafulltrúi
F-listans í skipulagsnefnd, lagði
fram bókun og sagði ákvörðunina
fagnaðarefni. F-listinn leggi áherslu
á að borgaryfirvöld leggi sitt af
mörkum til að menningarstarfsemi
nái að blómstra á ný í Austurbæj-
arbíói. Uppbyggingu á lóðinni þurfi
að fylgja fjölgun bílastæða sem
dugi íbúum og starfsemi tengdri
bíóinu. Er minnt á að F-listinn sé
eina aflið í borgarstjórn sem hafi
staðið gegn hugmyndum um nið-
urrif frá upphafi.
Steinunn Valdís, sem hefur talað
fyrir niðurrifi bíósins í borgar-
stjórn, segir þessa niðurstöðu alls
engin vonbrigði. „Við sendum hluti
í kynningu til að fá viðbrögð og vit-
um ekki fyrirfram hvaða viðbrögð
við fáum. Þarna var þetta einfald-
lega þannig að það voru mjög há-
vær mótmæli við því að húsið færi,“
segir hún. „Mér fannst engin
ástæða til þess að halda því til
streitu miðað við öll þessi mótmæli
og eftir að hafa vegið og metið rök-
in þá gerði ég þessa tillögu.“
Nýtt skipulag á reit
Austurbæjarbíós
ÞAÐ voru ótrúlega margir sem
tóku á móti 15 manna hópi úr
Sundfélagi Akraness í gær er
hópurinn lauk við árlegt Faxa-
flóasund sitt við Langasand á
Akranesi. Hópurinn lagði af stað
úr Reykjavík um 9:30 í gær og
lauk boðsundinu rétt fyrir kl. 15,
en afreksfólkið skiptist á um að
standa vaktina í sjónum sem var
spegilsléttur alla leiðina frá
Reykjavík en vegalengdin er um
18 km.
Elsti þátttakandinn var tvítugur
en þeir yngstu eru á ferming-
araldri og er sundið liður í fjár-
öflun félagsins vegna æfinga-
ferðar sem farin er á tveggja ára
fresti á erlenda grund.
Gunnar Smári Jónbjörnsson hóf
sundið í gær með því að synda
samfleytt í 40 mínútur og sögðu
fylgdarmenn hans að hraðinn
hefði verið 3 sjómílur á klukku-
stund en allir sundmennirnir voru
íklæddir blautbúning sem hélt á
þeim hita í 10–11 gráðu heitum
sjónum auk þess voru sundfit not-
uð sem flýttu för sundfólksins.
Hinrik Örn Guðbjartsson tók
rispu sem stóð yfir í eina klukku-
stund samfleytt en hann hélt 2,7
mílna hraða að meðaltali. Gunnar
Smári lét ekki þar við sitja og tók
aðra 40 mínútna skorpu en þeir
sem yngri voru syntu í 15–20 mín-
útur samfellt.
„Ég hef aldrei áður synt í eins
góðu veðri í Faxaflóasundinu,
sjórinn var spegilsléttur og það
var gríðarlegur hiti á dekkinu á
bátnum sem við vorum í þegar við
vorum ekki á sundi. Og það hafa
aldrei áður jafnmargir tekið á
móti okkur en ég geri ráð fyrir
að allt þetta fólk hafi verið að
bíða eftir okkur,“ sagði Gunnar
Smári er hann leit yfir mannfjöld-
ann á Langasandi í gær og brosti
breitt.
Morgunblaðið/Sigurður Elvar
Gunnar Smári Jónbjörnsson ræðir við móttökunefndina á Langasandi í gær
eftir að hafa gengið fyrstur á land eftir sundið frá Reykjavík yfir Faxaflóa.
Heitt að bíða á dekkinu
Syntu frá Reykjavík til Akraness
ALGENGUSTU slysin sem landsmenn verða fyrir eru
heima- og frítímaslys, eða 43,5% allra slysa sem urðu í
fyrra. Rúmlega 29 þúsund slys voru skráð í Slysaskrá Ís-
lands á síðasta ári. Næst á eftir koma umferðaróhöpp,
sem eru 17,3% skráðra slysa og vinnuslys, 16,6%. Þetta
er í annað skipti sem slys eru skráð sérstaklega, en
Slysaskrá Íslands byggist á gögnum frá Landspítala –
háskólasjúkrahúsi, Tryggingamiðstöðinni, Vinnueftirliti
ríkisins, Ríkislögreglustjóranum og Heilbrigðisstofnun
Austurlands.
„Karlmenn slasa sig áberandi miklu meira. Það er eig-
inlega sama hvers konar slys er um að ræða,“ segir Hild-
ur Björk Sigbjörnsdóttir, verkefnastjóri hjá Landlækn-
isembættinu. Hún segir það engin ný sannindi að karlar
lendi oftar í slysum en konur, hver sem ástæðan fyrir því
sé. Munurinn er einkum áberandi hvað vinnuslys varðar,
3.376 slys voru skráð hjá körlum, en 955 hjá konum.
Fimm konur lentu í sjóslysum en 94 karlar. Þá voru
skráð 2.013 íþróttaslys hjá körlum, en 911 hjá konum.
Umferðaróhöpp voru þó algengari hjá konum, 1.222 slys
voru skráð hjá konum, en 1.074 hjá körlum.
„Þetta er allt frá litlum skrámum sem koma á slysa-
deildina upp í alvarleg slys,“ segir Hildur. Hún segir að
ekki liggi fyrir nánari upplýsingar í Slysaskrá um hvers
eðlis slysin hafi verið, né hversu alvarleg þau voru.
Þá vekur einnig athygli að vinnuslys voru áberandi
fleiri í júlí, en í mánuðunum á undan og eftir. Þá virðast
heima- og frítímaslys algengari yfir sumarmánuðina og
færri slys verða á sjó þegar veðrið er hvað best í júní til
september.
Tæpur helmingur slysa verður á heimilum eða í frítíma
Karlar slasast
áberandi meira
!
!"#
"
$%
"
!&&
'#
()
*!
)
)
#
+#
,
,"#