Morgunblaðið - 12.08.2004, Page 8

Morgunblaðið - 12.08.2004, Page 8
FRÉTTIR 8 FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ SAMIÐ hefur verið viðJarðvélar ehf. um aðtvöfalda Vesturlands- veg frá gatnamótum Víkur- vegar að Skarhólabraut og eru framkvæmdir þegar hafnar. Verkinu skal að fullu lokið í október á næsta ári en þá verður rúmlega áratugur liðinn frá því Skipulag rík- isins auglýsti tillögu að tvö- földun vegarins frá bæjar- mörkum Reykjavíkur að Þingvallarvegi. Lokið var við tvöföldun vegarins frá Suðurlandsvegi að Víkurvegi árið 1999. Þegar Gunnar Gunnars- son aðstoðarvegamálastjóri var spurður um hvers vegna fram- kvæmdir hefðu ekki hafist fyrr sagði hann að það yrði að spyrja aðra en embættismenn að því. Þetta yrði að ræða við alþingis- menn því þeir ákvæðu hvaða fjár- magn færi til vegaframkvæmda. „Þeir hafa bara ekki komið þessu inn í framkvæmdaröðina fyrr. Það er ekki flóknara en það held ég,“ sagði hann. Aðspurður sagði Gunnar að umhverfismat eða formkröfur hefðu ekki tafið verkið, ef slíkt gengi ekki smurt fyrir sig gæti það valdið nokkurra mánaða töfum. Það hefði hins vegar ekki verið ráðist í slíkt af fullum krafti fyrr en ljóst varð að nægt fjár- magn fengist til framkvæmda. Fréttir af því að tvísýnt væri um fjármögnun bárust síðast í vor. Í apríl sagði Sturla Böðvarsson sam- gönguráðherra á Alþingi að kostn- aður við framkvæmdir yrði meiri en áður hafi verið gert ráð fyrir eða um 900 milljónir. Samkvæmt gild- andi vegaáætlun væri hins vegar aðeins gert ráð fyrir 520 milljónum í verkið og ekki væri hægt að bjóða það út fyrr en nægt fjármagn feng- ist. Ráðherra bætti við að farið yrði yfir málið og reynt að nota ónýttar fjárveitingar í öðrum verkum inn- an sama kjördæmis. Gunnar I. Birgisson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, kvaddi sér þá hljóðs og sagði: „Málið hefur dreg- ist úr hömlu, þ.e. hönnun verkefn- isins, mat á umhverfisáhrifum og ferillinn allur.“ Á endanum tókst að útvega nægt fé og í júní var verkið loks boðið út. Áætlaður verkkostnaður nam 730 milljónum króna. Tilboð Jarðvéla var lægst, rúmlega 589 milljónir og var gengið að því. Mikil slysatíðni Hver sem ástæðan er fyrir því að áratugur líður frá því tillaga um tvöföldun var auglýst og þangað til verkið verður klárað er ljóst að þörfin er brýn. Skiptir þar ekki máli hvort litið er til umferðar- þunga eða öryggis vegfarenda. Könnun sem Vegagerðin gerði á umferðaröryggi á Vesturlands- vegi, Suðurlandsvegi og Reykja- nesbraut á tímabilinu 1992–1998 leiddi í ljós að Vesturlandsvegur kom verst út hvað umferðaröryggi varðar en Reykjanesbraut best. Gerður var samanburður á óhap- patíðni en með því er átt við fjölda óhappa á milljón ekna kílómetra. Óhappatíðnin var hæst á Vest- urlandsvegi öll árin, að árinu 1993 undanskildu þegar tíðnin var hæst á Reykjanesbraut. Þegar meðaltal óhappatíðni var skoðað kom í ljós að hún var langhæst á Vestur- landsvegi eða 1,05 á hverja milljón ekna kílómetra en lægst á Reykja- nesbraut eða 0,6. Óhappatíðni á Suðurlandsvegi var 0,73. Meðal- óhappatíðni á öllum þjóðvegum landsins var 1,0. Samkvæmt skýrslu Vegagerð- arinnar var tíðni óhappa með mikl- um meiðslum á fólki hæst á Vest- urlandsvegi. Þá kemur fram að á umræddu tímabili urðu þrjú banaslys á Suð- urlandsvegi, eitt á Vesturlandsvegi og eitt á Reykjanesbraut. Annars staðar á þjóðvegum landsins urðu 78 banaslys. Þessar tölur eiga við Vestur- landsveg frá Úlfarsfellsvegi að Hafravatnsvegi, Suðurlandsveg frá Þorlákshafnarvegi að Hafra- vatnsvegi og Reykjanesbraut frá Krýsuvíkurvegi að Víknavegi. Litlar tafir á þessu ári Umferð um Vesturlandsveg er gríðarleg og aðeins á Reykjanes- braut milli Kaplakrika og Lækjar- götu í Hafnarfirði er meiri umferð- arþungi á íslenskum vegi sem hefur aðeins eina akrein í hvora átt. Eðli þeirrar umferðar sem fer um Reykjanesbraut og Vestur- landsveg er þó talsvert ólíkt. Vest- urlandsvegur liggur til og frá höf- uðborgarsvæðinu og er umferðin því mest síðdegis á föstudögum og á sunnudögum. Myndast þá miklar bílaraðir eins og höfuðborgarbúar og fleiri kannast við. Í samantekt um tvöföldun veg- arins frá árinu 1995 kemur fram að hámarksumferð um veginn á sunnudagseftirmiðdegi að sumri til nemi 1.300 bílum á klukkustund en eðlileg flutningsgeta á tveggja akreina þjóðvegi í aðra átt sé 1.000 bílar. Síðan þá hefur bílunum fjölg- að og í fyrra var hámarksumferðin ríflega 1.600 bílar. Jarðvélar hófust handa við framkvæmdir á laugardag. Hilmir Sigurðsson verkstjóri sagði að engar umferðartafir hlytust af verkinu fyrr en um mánaðamótin október/nóvember en þær yrðu þó litlar. Næsta sumar mætti hins vegar búast við talsverðum töfum. Fréttaskýring | Skipulag ríkisins auglýsti til- lögu að tvöföldun Vesturlandsvegar árið 1995 Áratug að tvö- falda 3,5 km Verkið kostar 589 milljónir og því skal lokið fyrir 15. október 2005                                          Margir verða fegnir þegar verkinu lýkur. Meiri umferð en á Reykja- nesbraut og tíðari slys  Framkvæmdir eru hafnar við að tvöfalda Vesturlandsveg milli Víkurvegar og Skarhólabrautar en þetta er um 3,5 kílómetra langur vegarkafli. Umferð um veginn er gríðarleg, t.d er hún tvöfalt meiri en um Strandaheiði á Reykjanesbraut, og um helgar myndast þar gríðarlangar bíla- raðir. Slys eru einnig tíð en í rannsókn frá 2001 kom vegurinn verr út en bæði Reykjanesbraut og Suðurlandsvegur. runarp@mbl.is VALBJÖRN Þorláksson, hinn gamalkunni frjálsíþróttakappi úr Ármanni og KR, var leystur út með gjöfum þegar hann hætti vinnu á Laugardalsvellinum í vik- unni. Valbjörn, sem er einn fjöl- hæfasti frjálsíþróttamaður lands- ins, hafði starfað á vellinum áratugum saman og þess má geta að grasvöllurinn við hliðina á Laugardalsvellinum, Valbjarn- arvöllur, er nefndur eftir honum – það var gert eftir að hann varð heimsmeistari í flokki öldunga í tugþraut um árið. Valbjörn tók á móti gjöf frá Laugardalsvellinum – gasgrilli. Þeir þrír vallarstjórar sem hafa starfað við völlinn frá upphafi voru viðstaddir kveðjustundina – Baldur Jónsson (1957–1985), Jó- hannes Óli Garðarsson og núver- andi vallarstjóri, Jóhann G. Krist- insson, sem tók til starfa 1. janúar 1997. Valbjörn er hér við grillið góða ásamt Sigríði Sigurðardóttir, vallarstarfsmanni og fyrrverandi fyrirliða landsliðsins í handknatt- leik kvenna, og Jóhanni G. Þess má geta að Valbjörn og Sigríður hafa bæði verið útnefnd Íþrótta- menn ársins – Sigríður fyrst kvenna. Valbjörn kvaddur í Laugardal Morgunblaðið/Árni Torfason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.