Morgunblaðið - 12.08.2004, Síða 37

Morgunblaðið - 12.08.2004, Síða 37
DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2004 37 Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Grasagarðarnir Í LAUGARDALNUM í Reykjavík er sérstakur grasagarður með sýn- ishornum af gróðri frá mörgum löndum. Sama á við um Lystigarðinn á Akureyri. Þetta eru yndisreitir með ótrú- legri fjölbreytni. Lærdómsríkt er að skoða þennan gróður, sérstaklega ís- lensku jurtirnar. Að sumu leyti virð- ist þó magnið koma niður á gæð- unum og ekki takast að sinna nægjanlega íslensku jurtasöfnunum sem mér finnst að ættu að hafa meiri forgang. Of algengt er, í báðum görðunum, að jurtir séu ekki rétt merktar. Önn- ur hefur t.d. tekið sæti þeirrar sem merkið vísar til (svo sem vallhæra í stað fjallastarar) eða ekkert grær við merkispjaldið. Mikilvægt væri ef hægt væri að yfirfara tegundagrein- inguna oftar og viðhalda betur rétt- um tegundum. Vigfús Ingvar Ingvarsson. Smart spæjari er týndur HANN er stór, feitur þrílitur, brúnn, svartur og með hvíta bringu og fætur og með hvítan blett á bak- inu. Hann er eyrnamerktur nr. 105 og með ól (sem hann gæti reyndar hafa týnt). Þeir sem vita um Smart spæjara eru beðnir að hafa samband í síma 588 8107 og 690 0030. Páfagaukur í óskilum DÍSARPÁFAGAUKUR fannst í vesturbæ Reykjavíkur sl. þriðjudag. Upplýsingar í síma 862 0824. Morgunblaðið/Jim Smart Þrettándi hópurinn, sem er skipaðurgeðfötluðum sem hafa ákveðið aðkoma úr felum með fötlun sína og að-standendum þeirra, stendur fyrir hátíð á Ingólfstorgi í miðborg Reykjavíkur á morgun undir slagorðinu „Lykillinn að betri framtíð“. Þetta er í annað skipti sem hátíðin er haldin, með stuðningi Reykjavíkurborgar og heil- brigðis- og tryggingarmálaráðuneyti, en stefnt er að því að hafa hátíðina árlega. „Við erum fyrst og fremst að halda þessa há- tíð til að hafa gaman og vekja athygli á okkur og okkar málefni. Það gefur okkur trú á sjálf okkur að halda þessa hátíð þegar við sjáum að þetta gengur. Það gefur okkur rosalega mikið að sjá þessa hátíð verða að veruleika og sjá að við getum gert þetta þó að við séum með geð- sjúkdóma. Það er ýmislegt hægt ef maður ætl- ar sér það,“ segir Íris Björg Helgadóttir, sem er í undirbúningsnefnd. Hópurinn hvetur alla til að gera sér ferð nið- ur að Ingólfstorgi. Einkum vill hópurinn hvetja þá sem eiga við geðsjúkdóma að stríða að koma úr felum og taka þátt í baráttu geðsjúkra og velunnara þeirra, það sé lykillinn að betri fram- tíð. Íris telur að margir vilji ekki viðurkenna að þeir eigi við vandamál að stríða. „Það er oft þannig að fordómarnir eru miklir, sérstaklega hjá manni sjálfum og fólk vill ekki viðurkenna að það sé veikt. Það er fullt af fólki úti í bæ sem er kannski eitthvað veikt en vill ekki við- urkenna það og leitar sér þess vegna ekki hjálpar. Um leið og fólk fer að gera eitthvað í sínum málum og viðurkennir að það sé veikt byrjar eitthvað að gerast.“ Þetta er í annað skipti sem hópurinn stendur fyrir sumarhátíð. Í fyrra var það föstudaginn 13. júní og nú föstudaginn 13. ágúst. „Þórólfur Árnason borgarstjóri er verndari hátíðarinnar og þegar hann setti hátíðina í fyrra sagði hann að öll eigum við okkar „föstudaginn þrettánda“. Okkur fannst það svo flott að við ákváðum að halda þessari dagsetningu áfram og þaðan er nafn hópsins komið. Öll erum við einhvern tím- ann niðri, en það er ekki þar með sagt að við komum ekki sterk upp aftur,“ segir Íris Björg. 13. hópurinn er sjálfstæður hópur sem nýtur ekki stuðnings frá hinu opinbera. Allir sem koma að undirbúningi hátíðarinnar hafa unnið starf sitt í sjálfboðavinnu og gefa allir þeir listamenn og skemmtikraftar sem þar koma fram vinnu sína. Dagskráin hefst klukkan 15 með ávarpi borgarstjóra. Einnig munu m.a. Karl Ágúst Úlfsson, Reykjavík 5 og 101 koma fram, sem og Benedikt búálfur og Dídí manna- barn. Atriði úr Sumaróperunni Happy End verður sýnt og 50 aurarnir blúsa. Þá verður hoppikastali fyrir börnin. Geðfatlaðir | Sumarhátíð 13. hópsins haldin á Ingólfstorgi á morgun Hvetja fólk til að koma úr felum  Íris Björg Helgadóttir er fædd árið 1976 og uppalin í Reykjavík. Hún greindist með þunglyndi fyrir þremur árum og hefur síðan verið í iðjuþjálfun á geð- deild Landspítala Ís- lands. Þar kynntist hún 13. hópnum og hefur starfað með honum í rúmt ár. Hún situr í undirbúningsnefnd sumarhátíðarinnar „Lykill að betri framtíð“. Íris hefur skrifað mikið af ljóðum og mun lesa úr eigin verkum á hátíðinni á morgun, eins og Elísabet Jökulsdóttir. Daði Kristinsson mun flytja frumsamda tónlist. Stuttar og síðar kápur, sumarúlpur, heilsársúlpur, regnkápur, bolir, peysur, stakir jakkar og slæður Opið virka daga kl. 11-18 Lokað laugardagana 7. og 14. ágúst 10-50% afsláttur Mörkinni 6, sími 588 5518. Útsala Opnunartími: Mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-13 Hverafold 1-3 • Torgið Grafarvogi • Sími 577 4949 Skipagötu 5 • Akureyri • Sími 466 3939 Verðhrun Allra síðustu dagar útsölunnar Komið og gerið góð kaup            !"#$ % &  '( )&  ''( *+,*#-*.*+,*#-*/0#                                                                                                   !       !" "##!    ! "                              ##      ! $     $        %             $    %  "&'  ' "()**         +,  -'    & '      "                 "           RAFSÓL Skipholti 33 • 105 Reykjavík Sími: 553 5600 ENDURNÝJUN OG VIÐHALD E i n n t v e i r o g þ r í r 2 6 6 .0 0 2 lögg i l tu r ra fverk tak i Skólavörðustíg 21, Reykjavík sími 551 4050 Glæsileg brúðarrúmföt í úrvali netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111AUGLÝSINGADEILD

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.