Morgunblaðið - 05.09.2004, Blaðsíða 27
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2004 27
Stjórnandi: Árný Helgadóttir, hjúkrunarfræðingur og íþróttaþjálfari.
Skráning og upplýsingar í síma 899 8199 eða 561 8199 mánudaginn 6. september frá kl. 9–12
og þriðjudaginn 7. september frá kl. 9–12. www.kraftganga.is
• Frískt loft eykur ferskleika
• Útivera eykur þol
Boðið verður upp á þrenns konar tíma:
A — tími fyrir byrjendur og lítt þjálfaða.
B — tími fyrir þá sem komnir eru af stað í þjálfun.
C — tími fyrir þá sem vanir eru líkamsþjálfun.
KRAFTGANGA Í ÖSKJUHLÍÐ
Alhliða líkamsþjálfun jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna
GERT er ráð fyrir að farinn verði
einn leiðangur enn að flaki breskr-
ar sprengjuflugvélar af gerðinni
Fairey Battle nú síðar í haust, að
sögn Harðar Geirssonar sem fann
flakið fyrir fimm árum eftir um 20
ára leit. Flugvélin fórst 26. maí
1941 en um borð voru fjórir menn,
þrír Bretar og einn Nýsjálend-
ingur. Vélin fór frá Kaldaðarnes-
velli við Selfoss að morgni dags,
flogið var norður og lent á Mel-
gerðismelum í Eyjafirði til að sækja
tvo menn sem legið höfðu á spít-
alaskipi á Pollinum við Akureyri.
Vélin fórst á jökli á hálendinu milli
Eyjafjarðar og Öxnadals.
Í síðustu viku fór 15 manna leið-
angur að flakinu, þar af voru 6 liðs-
menn fjallabjörgunarsveitar breska
flughersins. Í leiðangrinum fundust
ýmsir munir og líkamsleifar sem
jökullinn hefur geymt í yfir 60 ár.
Að sögn Harðar hefur bráðnun
verið mikil í jöklinum í hlýindum
síðastliðna daga og megi því gera
ráð fyrir að eitthvað nýtt finnist í
leiðangri sem farinn verður síðar í
þessum mánuði. „Við ætlum að
draga það eins lengi og við getum
að fara, þá er meiri von til að eitt-
hvað nýtt finnist á svæðinu,“ sagði
Hörður.
Meðal þess sem fannst í leiðangr-
inum í liðinni viku var hreyfill flug-
vélarinnar, en fundur hans markar
nokkur tímamót því í kjölfarið var
hægt að setja saman kenningu um
brotlendingarstefnu hennar sem
var þvert á flug vélarinnar. Hreyf-
illinn var mikið brotinn sem þýðir
að brotlendingin hefur verið harka-
leg.
Flugvél af gerðinni Fairey Battle. Þessar vélar voru mikið notaðar til
sprengjuárása í síðari heimsstyrjöldinni, einkanlega upp úr 1940.
Áforma
enn einn
leiðangur
á jökulinn
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur sam-
þykkt aukna fjárveitingu til fræðslu-
mála á árinu 2004 að upphæð þrjár
milljónir króna, til að standa straum
af kostnaði vegna fjölgunar nem-
enda í grunnskólum bæjarins um-
fram það sem áætlanir gerðu ráð
fyrir.
Á síðasta fundi skólanefndar voru
tekin fyrir erindi frá skólastjórum
Brekkuskóla, Lundarskóla og Gilja-
skóla með ósk um viðbótarúthlutun
kennslustunda vegna fjölgunar nem-
enda í skólunum frá því áætlanir
lágu fyrir í vor. Skólanefnd sam-
þykkti að úthluta Brekkuskóla 28
kennslustundum, Giljaskóla 14
kennslustundum og Lundarskóla 24
kennslustundum og koma þessar
stundir til viðbótar úthlutun frá því í
vor. Samþykkt þessi var gerð með
fyrirvara um samþykki bæjarráðs og
óskað er eftir aukafjárveitingu að
upphæð 3 milljónir króna til að
standa undir kostnaði á þessu fjár-
hagsári.
Aukafjárveit-
ing vegna
fjölda nema