Morgunblaðið - 17.10.2004, Síða 6
6 SUNDAY 17. OCTOBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Alexander mikli er einn
frægasti einstaklingur
veraldarsögunnar.
Hér segir af hernaðarsnilld
Alexanders og ótrúlegri
kænsku, togstreitunni við
harðan föður, samskiptun-
um við hinn fræga heim-
speking Aristóteles,
kvennamálum og sorginni.
Ævi Alexanders hefur
nú verið kvikmynduð af
Oliver Stone. Alexander
mikli er ævisaga eins og
þær gerast bestar.
þjálfað starfsfólk til að veita svona
djúpa ráðgjöf í þessum minnstu
útibúum. En það er hægt að gera það
í þessum millistóru, og með því að
sameina þessi tvö útibú erum við
komin með þá stærðargráðu í þetta
útibú í Vesturbæjarútibúi sem getur
haft þá sérhæfingu sem er æskileg.
Þar af leiðandi batnar þjónustan
verulega,“ segir Guðmundur Ingi.
Spurður hvort bankinn óttist ekki
að missa viðskiptavini sem ekki vilji
fara í nýtt útibú langt frá gamla úti-
búinu segir Guðmundur Ingi að allar
breytingar komi einhverju róti á við-
skiptavini, en hann vonast til að þeir
sem gefi sér tíma til að kynna sér
nýja útibúið verði sáttir við breyt-
inguna.
EKKERT útibú Landsbanka Íslands
verður á Seltjarnarnesi frá og með
mánudeginum. Á föstudag var síðasti
starfsdagur í útibúinu við Austur-
strönd, og hefur starfsfólk annað-
hvort verið fært yfir í Vesturbæj-
arútibú í Háskólabíói eða í aðalútibú
bankans.
Breytingarnar eru til komnar
vegna breytts umhverfis í banka-
starfsemi þar sem fólk leitar í sífellt
auknum mæli til bankaútibúa til að fá
sérhæfða ráðgjöf í stað þess að fá
fremur einfaldar afgreiðslur. Þetta
segir Guðmundur Ingi Hauksson, úti-
bússtjóri í aðalbanka Landsbankans,
kalla á sérhæfðara starfsfólk sem
valdi minni útibúum erfiðleikum.
„Það er mjög erfitt að hafa sér-
Ekkert útibú
Landsbankans á
Seltjarnarnesi
MEIRIHLUTI þeirra 600 ein-
staklinga sem afstöðu tóku í könn-
un á vefnum www.gluggi.net vill að
hringvegurinn – þjóðvegur eitt –
liggi um Fáskrúðsfjarðargöng.
Þrír valmöguleikar voru í boði
fyrir gesti síðunnar; Fáskrúðsfjarð-
argöng, Öxi og Breiðdalsheiði. Frá
því segir á vefnum www.austur-
byggd.is að talsverðar sveiflur hafi
verið í svörum þátttakenda. Fram-
an af var Öxi með örugga forustu,
en niðurstaðan varð engu að síður
sú að Fáskrúðsfjarðargöng enduðu
í fyrsta sæti með 63% greiddra at-
kvæða en Öxi var með 36%. Leiðin
um Breiðdalsheiði var aldrei inni í
myndinni og endaði með stuðning
1% þátttakenda.
Vilja hringveginn
um göngin
LÖGREGLAN í Bolungarvík hefur
upplýst innbrotin í Félagsmiðstöð-
ina Tópas og golfskálann í Bolung-
arvík. Brotist var inn á báðum stöð-
um aðfaranótt 20. september sl. og
ýmsum verðmætum stolið.
Ábendingar frá almenningi
leiddu lögreglu á rétta slóð og í
kjölfarið beindist grunur að tveim-
ur Bolvíkingum. Við frekari rann-
sókn málsins viðurkenndu þeir að
hafa verið að verki og eru málin
þar með upplýst.
Fundu inn-
brotsþjófana
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
féllst á föstudag á gæsluvarðhald
yfir áttunda manninum, karlmanni
á fimmtugsaldri, vegna rannsókn-
ar á umfangsmiklu fíkniefna-
smygli. Nú sitja sex í gæsluvarð-
haldi hér á landi en tveimur hefur
verið sleppt. Fleiri hafa verið yf-
irheyrðir og a.m.k. einn til við-
bótar handtekinn vegna málsins.
Málið snýst um smygl á um ell-
efu kílóum af amfetamíni, um
2.000 skömmtum af LSD og tals-
verðu magni af kókaíni.
Ekki ber á öðru en að góður
gangur sé á rannsókn fíkniefna-
deildar lögreglunnar í Reykjavík.
Frá því fyrsti sakborningarnir
voru handteknir um miðjan síðasta
mánuð, fyrst í Vestmannaeyjum en
síðan í Reykjavík og Rotterdam,
hefur lögregla með allreglulegu
millibili handtekið fleiri aðila hér á
landi.
Þá hefur Héraðsdómur Reykja-
víkur fallist á allar gæsluvarð-
haldskröfur lögreglunnar og stað-
festi Hæstiréttur einn slíkan
úrskurð á föstudag. Hann varðar
karlmann sem rökstuddur grunur
er um að hafi staðið að innflutningi
á hálfu kílói af amfetamíni og taldi
héraðsdómur að gögn málsins
sýndu fram á það.
Fyrir skemmstu var gæsluvarð-
hald yfir einum sakborninganna
framlengt um sex vikur. Lengd
varðhaldsins bendir til þess að
héraðsdómur telji sönnunargögn
lögreglu býsna afdráttarlaus. Þátt-
ur hans í smyglinu hlýtur einnig
að vera nokkuð stór, þ.e.a.s. eigi
grunur lögreglu við rök að styðj-
ast.
Rannsókn lögreglu hefur staðið
frá því í mars þegar lagt var hald
á um þrjú kíló af amfetamíni sem
komu með vörusendingu. Miðað
við hversu rannsóknin hefur staðið
lengi má búast við að lögreglu hafi
tekist að safna að sér miklum
gögnum. Má hér nefna að síma-
hlerunum er jafnan beitt í rann-
sóknum umfangsmikilla fíkniefna-
mála og er líklegt að lögregla hafi
fylgst með samskiptum hinna
meintu smyglara um langt skeið.
Ásgeir Karlsson, yfirmaður
fíkniefnadeildarinnar, vill þó ekk-
ert segja um hvaða rannsóknarað-
ferðum hafi verið beitt. Hann stað-
festi þó að rannsóknin gengi vel og
að hún myndi standa í nokkrar
vikur til viðbótar.
Enn einn í haldi
vegna fíkni-
efnasmygls
GAMALT járnklætt timburhús við
Garðarsbraut á Húsvík skemmdist
talsvert í eldsvoða á föstudagskvöld.
Talið er að eldurinn hafi kviknað í
eða við ruslatunnu, samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglunni á Húsavík.
Í húsinu var starfrækt hár-
greiðslustofa en eldurinn kom upp í
þeim hluta hússins sem áður hýsti
myndbandaleigu. Tilkynnt var um
eldinn um klukkan 22. Slökkvilið
Húsavíkur kom fljótlega á vettvang
og að sögn lögreglu gekk greiðlega
að slökkva eldinn. Fólk var ekki hús-
inu þegar eldur kviknaði og ekki
leikur grunur á íkveikju.
Eldur í gömlu
timburhúsi á
Húsavík
HREYFING er undirstaða heilbrigðs lífernis og
ómissandi þáttur í baráttunni við aukakílóin. Með
nýju forriti sem 19 ára Ísfirðingur hefur smíðað
er fólki gert auðveldara að fylgjast með hversu
mikið það hreyfir sig og jafnframt skrá ýmsar
upplýsingar sem lúta að heilsu- og holdafari.
Forritið heitir Heilsufélaginn og verður að-
gengilegt án endurgjalds á vef Íþróttasambands
Íslands, www.isisport.is. Jón Kristjánsson heil-
brigðisráðherra opnaði Heilsufélagann formlega
á heilsu- og hvatningardögum Íslands á iði sem
hófust í Smáralind í gær og lýkur í dag.
Höfundur og hugmyndasmiður er Tómas Árni
Jónasson, 19 ára nemandi í Menntaskólanum á
Ísafirði. Hann segir að hugmyndin hafi kviknað
þegar heilsudagar voru haldnir í ungmennahús-
inu Gamla Apótekinu á Ísafirði í desember 2002.
Þá hafi verið stungið upp á því að búa til lítið yf-
irlitsforrit fyrir þátttakendur þannig að þeir
gætu fylgst með framförum sínum. Tómas Árni
tók verkefnið að sér. „Síðan stækkaði hugmyndin
og stækkaði þangað til við kynntum þetta fyrir
ÍSÍ,“ segir hann. Það var gert í fyrra og síðan
hefur hann í sameiningu við ÍSÍ og Gamla Apó-
tekið unnið að frekari þróun forritsins auk þess
sem hann hefur fengið ábendingar frá ýmsum að-
ilum.
Heilsufélaginn er dagbók á vefnum þar sem
hægt er að skrá upplýsingar um hreyfingu, púls,
ummál, þyngd og fituhlutfall. Forritinu er fyrst
og fremst ætlað að styðja við og hvetja fólk til að
hreyfa sig a.m.k. í hálftíma á hverjum degi og er
mikil áhersla lögð á að fólk geti fylgst með því
hversu margar mínútur það hreyfir sig á viku,
mánuði eða ári. Fólk er hvatt til að hreyfa sig í
lágmark 30 mínútur á dag og raunar mælir Lýð-
heilsustöð með enn meiri hreyfingu.
Upplýsingar um hreyfingu, þyngd og holdafar
hljóta að vera flokkaðar sem viðkvæmar persónu-
pplýsingar, a.m.k. af sumum. Tómas Árni segir
að tryggt sé að enginn óviðkomandi komist yfir
þessar upplýsingar, persónuvernd sé tryggð.
„Það fer enginn að fikta neitt í þessu,“ segir
hann.
19 ára Ísfirðingur smíðar netforrit sem á að hvetja fólk til hreyfingar
Fylgjast með fram-
vindunni á Netinu
Morgunblaðið/Sverrir
Tómas Árni Jónasson segir að forritið gagnist
þeim sem vilja hreyfa sig og huga að heilsufari.
KOSIÐ var til sveitarstjórnar í
sameinuðu sveitarfélagi Austur-
Héraðs, Fellahrepps og Norður-
Héraðs í gær, og voru fyrstu kjós-
endurnir komnir á kjörstað rétt um
kl. 9 um morguninn. Alls eru 2.124
einstaklingar á kjörskrá.
Helgi Gíslason var árrisull og
greiddi atkvæði undir vökulu auga
undirkjörstjórnarinnar. Hana skipa
(f.v.) Sóley Garðarsdóttir, Jarþrúð-
ur Ólafsdóttir og Þorvaldur P.
Hjarðar.
Auk þess að kjósa um lista til
sveitarstjórnar kusu íbúarnir milli
hugmynda um nýtt nafn á sveitar-
félagið, en kosningarnar eru ekki
bindandi heldur velur sveitarstjórn
nafnið. Þeir möguleikar sem valið
var á milli voru Fljótsdalshérað,
Egilsstaðabyggð og Sveitarfélagið
Hérað.
Kosið til sveitar-
stjórnar á Héraði
Morgunblaðið/Steinunn
KOSTNAÐUR við endurbætur á
Gljúfrasteini – húsi skáldsins Hall-
dórs Laxness – nam tæplega 60
milljónum króna, en húsið, sem
byggt var árið 1945, var í mun verra
ásigkomulagi en talið var í upphafi.
Vegna framtíðarhlutverks hússins
var talið nauðsynlegt að standa
þannig að viðgerðum að þær væru
varanlegar og að öryggi hússins
verði sem best tryggt, að því er fram
kemur í tilkynningu frá forsæt-
isráðuneytinu. Framkvæmdar voru
umfangsmiklar viðgerðir á húsinu
að utan, gert var við steypuskemmd-
ir, húsið hraunklætt á nýjan leik og
endurnýjað þakefni. Gert var við
steypuskemmdir á sundlaug og gert
við lagnir.
Skipt var um aðkomulögn og inn-
tak fyrir hitaveitu og gengið frá
heitavatnskerfi, auk þess sem raf-
lagnir og rafmagnstöflur voru end-
urnýjaðar. Aðkoma að húsinu var
endurgerð, komið upp búnaði til úti-
lýsingar og gengið frá stígum og lóð.
Loks var sett upp hreinlætishús
ásamt tilheyrandi lögnum og frá-
gangi.
Kostnaðurinn við viðgerðir og
endurbætur á Gljúfrasteini var að
stærstum hluta fjármagnaður með
fjárheimildum í fjárlögum 2003 og
2004. Í frumvarpi til fjáraukalaga
2004 er farið fram á 20 milljóna
króna viðbótarfjárheimild til að ná
endum saman. Í fjárlagafrumvarpi
2005 er gert ráð fyrir 23 milljónum
króna í rekstur Gljúfrasteins á árinu
2005 og 12,5 milljónum til viðhalds
og viðgerða innanhúss.
Kostnaður við
Gljúfrastein um
60 milljónir