Morgunblaðið - 17.10.2004, Síða 39

Morgunblaðið - 17.10.2004, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNDAY 17. OCTOBER 2004 39 MINNINGAR Marie kom fyrst til Íslands 1978 á vegum Nýja hjúkrunarskól- ans til þess setja á laggirnar 2ja ára sér- nám í geðhjúkrun og vorum við nemendur hennar þar. Hafði hún verið skólastjóri fyrsta geðhjúkrun- arskólans á Norðurlöndum sem staðsettur var á Bygdö í Oslófirði, en nýkomin á eftirlaun þegar hún kom hingað. Marie stýrði námi okk- ar af miklum eldmóð og áhuga. Hún var frábær kennari og hafði af mik- illi reynslu að miðla. Hún skipulagði 12 daga námsferð fyrir okkar hóp til þriggja landa. Fengum við því- líkar móttökur á öllum stöðum sem sýndi okkur vel hversu mikils metin hún var. Eitt skipti í ferðinni reynd- um við koma henni í svefn seint að kveldi og skáluðum við hana stíft í „Sherry.“ Ekki tókst betur til en svo, að þegar við ætluðum út á lífið var hún fyrsta manneskjan sem við hittum á stoppistöðinni og sagði brosandi „Hvor skal vi hen?“ Hún var mikill mannþekkjari og hlý manneskja og kenndi okkur að ekki væri nóg að nota bara viskuna í hjúkruninni, heldur hafa kærleik- MARIE LYSNES ✝ Marie Lysnes,geðhjúkrunar- fræðingur og fyrr- verandi skólastjóri, fæddist í Tromsö 12. október 1906. Hún lést í Osló 17. septem- ber síðastliðinn. Útför Marie var gerð frá Kampen- kirkju 30. september. ann að leiðarljósi. Marie hafði mikinn metnað fyrir hönd hjúkrunarfræðinga til að afla sér meiri menntunnar. Hún var ákaflega stolt f.h. ís- lenskra hjúkrunar- fræðinga þegar þeir fyrstir af Norður- landaþjóðunum færðu hjúkrunarnámið á há- skólastig. Marie fylgdist vel með sögu og þróun hjúkrunar um allan heim og sótti hún ráð- stefnur og fræðslu þegar tækifæri buðust, langt fram á tíræðisaldur. Fyrir störf sín í þágu hjúkrunar og mannúðar hlaut Marie margar heið- ursnafnbætur m.a. frá Félagi ís- lenskra hjúkrunarfræðinga. Hún skrifaði mikið og gaf út bækur og sendi greinar í fagtímarit og blöð, auk þess fylgdist hún vel með þróun hjúkrunar og lét í sér heyra ef hún var ekki sammála, og fékk stundum á baukinn fyrir það. Til marks um áhugann og viljann fékk hún sér tölvu og tileinkaði sér nýjustu tækni komin á tíræðisaldur og sagði það vera til framtíðar. Kvaðst hún ekki ætla með alla sína vitneskju í gröf- ina og hvatti okkur til að skrifa nið- ur allt sem við gerðum í hjúkr- unarstarfinu. Marie þótti afskaplega vænt um Ísland og hér eignaðist hún marga góða vini. Hún kom oft í heimsókn, bæði til dvalar og lækninga, og hafði orð á því hversu góð hjúkrun væri hér á landi og öll heilbrigð- isþjónusta. Við hugsum til hennar með virð- ingu, hlýju og þakklæti. Hennar leiðsögn og kennsla hefur orðið okkur ómetanlegt og gott veganesti í lífi og starfi. Hvíl í friði, kæra Marie Lysnes. Blessuð sé minning þín. Eitt bros – getur dimmu í dagsljós breytt, sem dropi breytir veig heillar skálar. Þel getur snúist við atorð eitt. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. (Einar Benediktsson.) Fyrir hönd nemenda í geðhjúkr- un sem útskrifuðust frá Nýja hjúkr- unarskólanum 15. desember 1979. Arndís, Bergþóra og Erla. Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför BENJAMÍNS MAGNÚSAR SIGURÐSSONAR frá Eyjum, Strandasýslu, Engihjalla 11, Kópavogi. Lára Loftsdóttir, Pálfríður Benjamínsdóttir, Hákon Örn Halldórsson, Sóley B. Frederiksen, Jörgen Pétursson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför hjartkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR BENEDIKTSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðis- stofnunar Þingeyinga og Hvamms fyrir frá- bæra umönnun. Haukur Harðarson, Sigrún Steinsdóttir, Tryggvi Harðarson, Elín Baldvinsdóttir, Steinunn Harðardóttir, Daníel Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem veittu okkur ómetanlegan styrk og samúð við andlát og útför okkar ástkæra GUNNARS KARLS GUNNARSSONAR. Sérstakar þakkir færum við sr. Agli Hallgríms- syni, Skálholtskór og Kvenfélagi Biskups- tungna. Guð blessi ykkur öll. Ragnheiður Sigurþórsdóttir, Gunnar Sigurþórsson, Kristrún Harpa Gunnarsdóttir, Sigrún Kristín Gunnarsdóttir, Kristrún Stefánsdóttir, Guðrún Karlsdóttir, Áslaug Bachmann. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur stuðning, samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, ÓLAFAR KRISTÍNAR ÞORGEIRSDÓTTUR, Hverfisgötu 59, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Hjúkr- unarheimilinu Sóltúni, 3. hæð C. Einar Bergmann Gústafsson, Anna Björnsdóttir, Kristín Erla Gústafsdóttir, Þorgrímur H. Ísaksen, barnabörn og barnabarnabörn. Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Sími 551 7080 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. Ólafur Örn útfararstjóri, s. 896 6544 Inger Rós útfararþj, s. 691 0919 Vönduð og persónuleg þjónusta Elsku tengdapabbi er fallinn frá langt fyr- ir aldur fram. Minn- ingarnar sitja eftir og langar mig að deila hluta þeirra með ykkur. Hann var hreinskilinn og afar lífsglöð og hjartagóð mann- eskja. Hann var blessunarlega laus við alla væmni og óþarfa kurteis- ishjal og ætlum við að hafa þessi örfáu minningarorð í þeim anda enda skrifuð honum til heiðurs. Leiðir okkar tengdapabba lágu saman þegar ég kynntist elsta syni hans fyrir tæpum 20 árum. Ég kom inn í fjölskylduna með lítið barn sem var frá fyrsta degi hjartanlega velkomið, bæði hjá honum og tengdamömmu. Ég gleymi heldur ekki að það var sama hvað var, hann stóð alltaf þétt við bakið á mér og reyndist mér og mínum svo vel alla tíð. Tengdafaðir minn kynntist sínum lífsförunauti fyrir meira en 40 árum og var það mikið gæfuspor fyrir þau bæði, tengda- mamma stóð þétt við bakið á hon- um, eins og fjölskyldan öll, þegar þann skelfilega vágest bar að garði sem kallast krabbamein. Ó, hvað ég hata þennan sjúkdóm, hann gerir ekki boð á undan sér og kemur þegar síst skyldi. Tengdapabbi vann allt sitt líf af miklum dugnaði og elju og missti varla dag frá vinnu vegna veikinda eða af öðrum ástæðum. Því finnst manni óréttlátt þegar öðrum aðil- anum er kippt burt þegar fólk sem hefur unnið allt sitt líf ætlar svo að njóta erfiðisins. Tengdaforeldrum mínum fannst GUNNAR SIGURÐSSON ✝ Gunnar Sigurðs-son fæddist í Reykjavík 15. janúar 1938. Hann lést á líknardeild Land- spítalans í Kópavogi aðfaranótt mánu- dagsins 4. október síðastliðinn og var útför hans gerð í kyrrþey að ósk hins látna. frábært að ferðast, ut- an sem innanlands og síðasta sumar var far- ið í enn eina ferðina, fellihýsunum skellt aftan í jeppana og stórfjölskyldan lagði af stað. Því miður reyndist þetta síðasta ferðin okkar saman, en minningarnar frá þessu sumri og þess- ari ferð, sem og öðr- um, sitja eftir í hjört- um okkar. Draumaferðina fóru þau hjónin þegar tengdamamma varð sextug fyrir tveimur árum, sigling á Eyjahafi í viku og vika á Krít. Þetta var alveg frábær ferð sem við upplifðum með þeim aftur og aftur. Síðustu utan- landsferðina náðu þau að fara í núna síðustu páska með góðum vinahjónum sínum ofan af Skaga og var haldið til Spánar. Þetta var yndisleg ferð fyrir þau öll og náði tengdapabbi að slappa vel af og njóta lífsins. Tengdapabbi var alltaf til staðar fyrir börnin sín og þegar þrjú elstu systkinin og við makarnir byggðum húsin okkar, tvö þeirra á sama árinu og við árinu seinna, þá var auðvitað fyrstur á staðinn hann tengdapabbi, lærður pípari og „altmuligmand“. Það var nú ekki ónýtt að fá hans ráðleggingar og hans handverk alveg ómetanlegt. Barnabörnin elskaði hann út af lífinu og það sem hann gat dundað með þeim og talað við þau, já, nafna sínum kenndi hann að reima áður en haldið var í sex ára bekk fyrir þremur árum því það varð að kunna að reima áður en skóli hæf- ist. Hann kom stundum og bað um að fá eitthvert barnið „lánað“. Þá var kannski farið niður að Tjörn, niður á höfn, í sund, já, eða bara farið eitthvað í bíltúr. Við gætum sagt svo miklu meira um hann tengdapabba en það yrði allt of langt en okkur langar svo að koma með ljóðabrot sem ég fékk að láni og fann einhvers staðar og er einhvern veginn alveg í hans anda og hljómar svona: Harmið mig ekki með tárum þótt ég sé lát- inn. Hugsið ekki um dauðann með harmi eða ótta. Ég er svo nærri, að hvert eitt tár ykkar snertir mig og kvelur, en þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug, lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég tek þátt í gleði ykkar. (Kahlil Gibran.) Elsku Hulda mín þú sem hefur staðið þig svo vel í öllu þessu mót- læti, við Sigurður, Victor Þór, Gunnar Patrik og Gísli Martin hugsum til þín sem og til fjölskyld- unnar allrar. Pabba, tengdapabba og afa verður sárt saknað og við kveðjum hann með djúpum söknuði og þökkum fyrir allt og allt. Hvíl í friði. Þín tengdadóttir Inga. Elsku pabbi, tengdapabbi og afi. Okkur langar að kveðja þig og þakka þér fyrir allt. Það er erfitt að trúa því að maður eigi aldrei eftir að fá að sjá þig, tala við þig og hlusta á þig. Þú sem vissir svo margt. Það var sárt þegar við gát- um ekki talað lengur saman vegna veikindanna en þú reyndir samt að tjá þig á annan hátt. Mikið þótti mér vænt um þegar ég sat hjá þér og þú straukst mér um vangann, þótt þú gætir varla lyft hendinni, eða kreistir höndina mína. Öll þessi litlu atriði skipta svo miklu máli. Thelma samdi þetta ljóð til þín, pabbi: Elskulegi afi minn, þú alltaf góður varst. Galdra kenndir þú mér. Við fengum okkur ís með jarðarberjasultu, umm. Ég mun aldrei gleyma þér. (Thelma Ýr.) Elsku pabbi, tengdapabbi og afi, við munum aldrei gleyma þér. Elínbjörg, Guðjón, Thelma Ýr, Georg og Tumi. Elsku Birta, litla frænka okkar. Guð hefur trúlega vantað lítinn engil og því kallað á þig til sín. Takk fyrir þennan allt of stutta tíma sem við fengum að eiga með þér. Við trúum því að nú sért þú komin á góðan stað þar sem englarnir og al- BIRTA SÆVARSDÓTTIR ✝ Birta Sævars-dóttir fæddist í Reykjavík 13. októ- ber 2003. Hún lést á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri 10. október síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Akureyrar- kirkju 15. október. mættið umvefja þig og leiða þig á nýjar braut- ir. Elsku Birta, við biðj- um góðan guð að styrkja foreldra þína, Sonju stóru systur, ömmur þínar og afa í að takast á við þennan mikla söknuð. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Þú munt alltaf eiga stað í hjörtum okkar. Þínar frænkur Gréta og Karítas Rún.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.