Morgunblaðið - 17.10.2004, Page 50

Morgunblaðið - 17.10.2004, Page 50
50 SUNDAY 17. OCTOBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Miðasala opnar kl. 15.30 EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS NOTEBOOK VINCE VAUGHN BEN STILLER DodgeBall Óvæntasti grínsmellur ársins Fór beint á toppinn í USA Þú missir þig af hlátri... punginn á þér!  Ó.Ö.H. DV Klárlega fyndnasta mynd ársins! Mjáumst í bíó! Mjáumst í bíó! Kr. 450  S.V. Mbl. Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal. „Ég anda, ég sef, ég míg ... Tónlist“ Bubbi Morthens Til heljar og til baka með atómbombunni Bubba Morthens VINCE VAUGHN BEN STILLER DodgeBall Óvæntasti grínsmellur ársins Fór beint á toppinn í USA Þú missir þig af hlátri... punginn á þér!  Ó.Ö.H. DV Klárlega fyndnasta mynd ársins!  S.V. Mbl. VINCE VAUGHN BEN STILLER Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.15. kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16 ára. Snargeggjuð gamanmynd frá hinum steikta Scary Movie hóp Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.15 V.G. DVS.V. Mbl. Sýnd kl. 1.40, 3 og 4.20. Ísl. tal. „Ég anda, ég sef, ég míg ... Tónlist“ Bubbi Morthens Til heljar og til baka með atómbombunni Bubba Morthens V.G. DV S.V. Mbl. Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 8. ÞÆR ERU MÆTTAR AFTUR... ENN BLÓÐÞYRSTARI! KYNGIMAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR SEM FÆR HÁRIN TIL AÐ RÍSA. ÞÆR ERU MÆTTAR AFTUR... ENN BLÓÐÞYRSTARI! KYNGIMAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR SEM FÆR HÁRIN TIL AÐ RÍSA. Snargeggjuð gamanmynd frá hinum steikta Scary Movie hóp Sýnd kl. 6 og 10. Sýnd kl. 4.30. Ísl. tal. Sýnd kl. 2, 4. Ísl. tal.kl. 2 og 3.15. Ísl. tal. Sýnd kl. 6. Vonandi hefur það ekki fariðframhjá neinum að Air-waves-tónlistarhátíðin erframundan, hefst næst- komandi miðvikudag og lýkur sunnu- daginn 24. október. Smám saman hef- ur hátíðin verið að mótast og breytast en mér sýnist hún nú komin í nokkuð fastar skorður, af- lagt að hafa fjöl- menna tónleika í Höllinni, og lítil eftirsjá að því, en að þessu sinni hefst hátíðin að vísu einum degi fyrr eins og getið er, því það verður einskonar forskot á sæluna í Nasa á miðvikudagskvöld. Airwaves hefur þann tilgang helst- an að koma íslenskum hljómsveitum á framfæri, að laða að erlenda tónlist- arspekúlanta og -frömuði, en einnig hefur hátíðin nýst vel til að gefa nasa- sjón af því sem ferskast er á seyði er- lendis. Fyrir áhugamenn um íslenska tónlist er þetta vitanlega fyrst og fremst íslensk tónlistarveisla, því há- tíð sem þessi gefur hljómsveitum markmið að keppa að og við sem vilj- um helst heyra íslenska tónlist njót- um þess svo sannarlega. Þegar litið er yfir Airwaves- dagskrána sést strax að ógerningur er að sjá allt það sem maður helst hefði viljað sjá. Gott er að Listasafn Reykjavíkur sé nýtt svo vel því það sparar hlaup upp úr miðbænum, en ef veðrið er gott er lítið mál að rölta upp í bæ til að fara í Þjóðleikhúskjall- arann eða á Grand rokk. Í samantektinni sem fer hér á eftir er aðeins verið að velja þær hljóm- sveitir sem ég tel forvitnilegt að sjá, en ekki verið að velja bestu eða verstu sveitirnar. MIÐVIKUDAGUR Nasa kl. 21:00 Airwaves byrjar óvenjusnemma núna, en vonandi vísir að því sem koma skal; ekki myndi ég sýta að fá færi á að sjá fleiri hljóm- sveitir. Geir Harðarson á fyrsta orðið í Nasa á miðvikudagskvöld, kynnir nýútkomna plötu geri ég ráð fyrir, en ég bendi sérstaklega á Þóri sem spil- ar á eftir honum, byrjar kl. 22:00. Þórir hefur fengist við ýmsar gerðir tónlistar, bæði harðar og mjúkar, en varla nokkuð svo mjúkt sem verður á boðstólum að þessu sinni. Hann send- ir frá sér afskaplega fína plötu á næstunni. Lokaorðið á svo KK sem tekur sér frí frá upptökum til að spila á Airwaves. Hann spilar vonandi ný lög í bland við gamalt. FIMMTUDAGUR Listasafn Reykjavíkur kl. 19:00 Nú vandast málið og mikið um árekstra þetta kvöld. Domino heldur sérstaka kynningu í Listasafninu á nokkrum af sínum skemmtilegustu hljómsveitum, To Rococo Rot, Adem, Hood og Four Tet. Slowblow leikur líka. Allar eru þessar sveitir skemmtilegar, sérstaklega þó fróð- legt að sjá Hood sem sendi síðast frá sér skífuna frábæru Cold House fyrir þremur árum. Það verður líka gaman að sjá þá Fridge-félaga Adem Ilhan og Kieran Hebden (Four Tet) spila sama kvöldið. Helst að hægt sé að skreppa út þegar Slowblow spilar og fá sér smá hiphop. Gaukur á Stöng kl. 20:30 Það er ekki síður erfitt að velja og hafna þegar kemur að Kronik-kvöldinu á Gauknum. Það koma fram gengi frá Grænum fingrum, T.M.C., Cell 7, sem sumir þekkja kannski sem Rögnu í Subta, en ekkert hefur heyrst í henni lengi hér á landi, svo NBC-gengið sem er að senda frá sér plötu á næstunni, O.N.E. og Antlew/ Maximum, sem einnig eru í þá mund að senda frá sér plötu. Lokaorðið er svo hart og hávært hiphop með Non Phixion, kannski ekki það frumleg- asta en mikil skemmtun engu að síð- ur. Erfitt að gera upp á milli Lista- safnsins og Gauksins. Grand rokk kl. 23:30 Það er ekki bara danstónlist og hiphop í boði því menn hyggjast rokka á Grand rokk. Takið eftir I Adapt sem sendi frá sér plötu fyrir stuttu og svo birtist Klink aftur á sviði eftir langt hlé. Þjóðleikhúskjallarinn kl. 23:15 Í keppninni um skemmilegasta kynn- ingardiskinn á síðustu Airwaves- hátíð rúllaði Funk Harmony Park öll- um upp. Lítið hefur heyrst frá sveit- inni síðan og gaman að heyra hvort eitthvað sé að gerast. Það ætti líka enginn að missa af Steintryggi og allra síst af Einari Erni og Bibba í Ghostigital. Þeir eru víst að spá í nýja plötu, kannski koma sýnishorn. FÖSTUDAGUR Listasafn Reykjavíkur kl. 20:15 Föstudagurinn er ekki eins snúinn og fimmtudagurinn. Gott er að byrja á Eivöru, sjá megnið af Bang Gang og fara síðan á Nasa. Nasa kl. 22:00 Skytturnar áttu eina skemmtilegustu tónleika síðustu Airwaves-hátíðar og ekki ástæða til að búast við minna stuði að þessu sinni. Strax á eftir koma svo For- gotten Lores, besta íslenska hiphop- sveitin. Kid Koala sýnir plötuspil- aragaldra, ekki missa af honum, og svo fáum við Hjálmareggí. Þjóðleikhúskjallarinn kl. 22:45 Helsti árekstur á föstudagskvöldið er að Skakkamannage, Siggi Ármann og Indigo eru á sama tíma og hiphopið á Nasa. Grand rokk kl. 1:00 Pornopop er ein af þessum hljómsveitum sem virð- ast varla eða ekki vera til á milli Airwaves-hátíða. Sveitin var á sínum tíma ein efnilegasta hljómsveit lands- ins, frumleg og skemmtileg rokk- sveit, og um að gera að taka stöðuna á henni. Gaukur á Stöng kl. 0:30 Það verð- ur fullt af rokki á Gauknum en ég læt nægja að benda á tónleika Mínuss, fínt að hrista aðeins upp í sálinni áður en haldið er í Þjóðleikhúskjallarann að sjá Kimono. Þjóðleikhúskjallarinn kl. 2:30 Þessi tónleikar eru nú svo seint að það eru áhöld um hve margir verða vakandi eða með nægri rænu til að hlusta. Hvað sem því líður þá ætti enginn að sleppa úr Kimono- tónleikum. LAUGARDAGUR Listasafn Reykjavíkur kl. 20:25 Þórunn Antonía kynnir nýja hljóm- sveit sína, Honeymoon. Ágætt að byrja á því og fara svo á Ske. Nasa kl. 20:45 Ske átti skemmti- lega tónleika á Airwaves á síðasta ári en framlínan fullsundurlaus. Skilst að þar sé allt með öðrum brag og ný plata væntanleg. Mugison fylgir á eft- ir og hann er líka að senda frá sér nýja plötu sem er sérdeilis góð. Mugi- mama verður vonandi með. Prikið kl. 21:00 Það er smáspölur að ganga upp á Prik, en gæti verið gaman því Úlpa er með órafmagnaða tónleika. Veit þó ekki hvort þeir byrja á mínútunni kl. 21:00. Gaukur á Stöng kl. 22:45 Þegar Mugison er búinn er hægt að ganga í rólegheitunum yfir á Gaukinn að sjá Singapore Sling vel heita eftir Banda- ríkjaför. Til að vera viss um að sjá og heyra má þola Stills því Shins koma svo. Grand rokk kl. 22:45 Ólán að Lokbrá er að spila á sama tíma og Singapore Sling, hugsanlega tekur maður þá fram yfir. Grand rokk kl. 1:45 Nine Elevens er skipuð ísfirskum æringjum. Ég hef fyrir því öruggar heimildir að þeir ætli að ganga svo fram af tónleika- gestum að menn verði lengi að jafna sig. Þjóðleikhúskjallarinn kl. 2:30 Þeir sem ná áttum eftir Nine Elevens ættu að rölta yfir í kjallarann og heyra lokatóna Airwaves frá 200.000 naglbítum sem lenda alltaf á sér- kennilegum tíma. Íslensk tónlistarveisla Á tónlistarhátíð eins og Iceland Airwaves verður alltaf að velja og hafna. The Shins spila á Gauknum á laugardegi og bíða margir eftir þeim viðburði. Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.