Morgunblaðið - 09.11.2004, Blaðsíða 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2004 37
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
KÓPAVOGSBÆR
Frá Kópavogsskóla
• Húsvörð vantar til starfa nú þegar.
Umsækjandi þarf að vera lipur í samskiptum
og lagtækur. Æskilegt er að hann hafi
einhverja tölvukunnáttu og hafi bifreið til
umráða. Umsóknum sé komið til skólastjóra
Kópavogsskóla, sem veitir allar frekari
upplýsingar um starfið, fyrir 20. þ.m. Sími:
554 0475.
Laun samkvæmt kjarasamningi Launanefndar
sveitarfélaga og SfK.
Hvetjum konur jafnt sem
karla til að sækja um
starfið.
Starfsmannastjóri
Síld og fiskur
Dalshrauni 9B, Hafarnfirði.
Bifreiðastjóri
óskast til vörudreifingar frá
söludeild okkar í Dalshrauni,
Hafnarfirði.
Uppl. gefur Sófus í síma 863 1938.
Skrifstofustarf
Félagasamtök óska eftir starfskrafti í 50% starf
fyrir hádegi.
Starfsvið:
Símsvörun, fundarboð, umsjón og viðhald
félagatals.
Viðhald heimasíðu, skjalavarsla og önnur
ritarastörf.
Upplýsingaþjónusta, -öflun og -miðlun
málefnis innan félags og utan.
Hæfniskröfur:
Góð tölvukunnátta nauðsynleg.
Vandvirkni og skipulögð vinnubrögð.
Frumkvæði í starfi.
Samskiptahæfni og góð þjónustulund.
Góð reynsla á sviði skjalavistunar.
Starfskjör eru í samræmi við kjarasamninga
við viðkomandi stéttarfélag.
Mikilvægt að viðkomandi geti hafið störf sem
allra fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 11. nóvember
2004. Öllum umsóknum verður svarað.
Umsóknir, með upplýsingum um nám og fyrri
störf, berist augldeild Mbl. eða á box@mbl.is,
merktar: „Skrifstofustarf — 16299."
Forsætisráðuneytið
auglýsir embætti
umboðsmanns barna
laust til umsóknar. Samkvæmt lögum nr. 83/
1994, um umboðsmann barna, skal hann vinna
að því að stjórnvöld, einstaklingar, félög og
önnur samtök einstaklinga og fyrirsvarsmenn
lögpersóna taki fullt tillit til réttinda, þarfa og
hagsmuna barna og setja fram ábendingar
og tillögur um úrbætur sem snerta hag barna
á öllum sviðum samfélagsins.
Umboðsmaður barna skal fullnægja almenn-
um starfsgengisskilyrðum skv. 6. gr. laga nr.
70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna
ríkisins og hafa lokið embættisprófi í lögfræði
eða öðru háskólaprófi á sviði hugvísinda.
Við mat á umsóknum verður áhersla lögð á
að viðkomandi hafi nægilega reynslu og þekk-
ingu á stjórnkerfinu, atvinnulífinu og þjóðfélag-
inu almennt til að geta stjórnað, skipulagt og
unnið sjálfstætt að úrlausn þeirra verkefna sem
embættið hefur með höndum.
Í umsókn um embættið skal greina nafn, starfs-
heiti og heimilisfang umsækjanda, veita upp-
lýsingar um menntun og starfsferil og yfirlýs-
ingu um að almenn starfsgengisskilyrði séu
uppfyllt. Forsætisráðherra skipar í embættið
frá 1. janúar 2005 til fimm ára. Um laun og önn-
ur starfskjör fer samkvæmt ákvörðun kjara-
dóms, sbr. lög nr. 120/1992, um kjaradóm og
kjaranefnd. Umboðsmanni barna er óheimilt
að hafa með höndum önnur launuð störf eða
takast á hendur verkefni sem eigi samrýmast
starfi hans. Umsóknir skulu hafa borist forsæt-
isráðuneytinu, stjórnarráðshúsinu við Lækjar-
torg, 150 Reykjavík, eigi síðar en 29. nóvember
nk.
Í forsætisráðuneytinu, 5. nóvember 2004.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FÉLAGSSTARF
Aðalfundur
Sjálfstæðisfélagsins
Njarðvíkings
verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu Hólagötu 15, Njarðvík,
11. nóvember kl. 20.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf.
2. Frummælandi: Böðvar Jónsson bæjarfulltrúi.
3. Önnur mál. Stjórnin.
HÚSNÆÐI Í BOÐI
FJÖLNIR 6004110919 I
EDDA 6004110919 III
I.O.O.F. Rb. 1 1541198- 9 III*
Lagersala
Í dag og næstu daga
seljum við leikföng með 50% afslætti meðan
birgðir endast. Einnig höfum við nokkrar
Expresso kaffivélar með 50% afslætti.
Handfæraönglar „MUSTAD“, stærðir 4/0 til
12/0, „GUMMIMAK“ á hálfvirði. Ýmsar fleiri
vörur eru á boðstólum á mjög hagstæðu verði,
t.d. herðatré, tré og plast, fjöltengi, CAMO
vöðlur, flugustangir, örfáir verkfærakassar á
kostnaðarverði og margt fleira.
Opið er frá kl. 13.00 til 17.00 alla daga nema
föstudaga, þá lokum við kl. 16.00.
Lítið við og gerið góð kaup.
I. Guðmundsson ehf.,
Skipholti 25, 105 Reykjavík.
TIL SÖLU
Alþjóðastofa á Akureyri
Verkefnisstjóri
Við Alþjóðastofu á Akureyri er frá og með
1. janúar 2005 laust starf verkefnisstjóra í mál-
efnum nýbúa og fólks af erlendum uppruna.
Alþjóðastofa er þjónustumiðstöð fyrir útlend-
inga og nýbúa á Akureyri, rekin af Akureyr-
arbæ, innan Menntasmiðjunnar á Akureyri.
Starfið felur m.a. í sér skipulagningu fræðslu,
ráðgjöf og upplýsingagjöf auk samstarfs við
margvíslega aðila og stofnanir sem að mála-
flokknum koma. Um er að ræða 50% stöðu.
Æskileg menntun er háskólapróf eða menntun
og reynsla sem nýtist í þessum málaflokki. Góð
tungumálakunnátta, færni í mannlegum sam-
skiptum og sjálfstæð vinnubrögð einnig æski-
leg. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamning-
um Kjalar (STAK) og Akureyrarbæjar.
Umsóknum skal skilað til Menntasmiðjunnar
á Akureyri, Glerárgötu 28, 600 Akureyri, fyrir
29. nóvember 2004.
Nánari upplýsingar veitir Þorbjörg Ásgeirsdóttir
forstöðufreyja í síma 462 7255, netfang: thor-
bjorg@menntasmidjan.is.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnar-
stræti 107, Akureyri, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Hafnarstræti 23b, íb. 01-0201, Akureyri (222-5904), þingl. eig. Natalja
Ólafsson og Örn Ólafsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og
Rými ehf., föstudaginn 12. nóvember 2004 kl. 10:00.
Sveinbjarnargerði II-D, gistihús, 01-0101, Svalbarðsstrandarhreppi
(216-0407), þingl. eig. Lágagerði ehf., gerðarbeiðendur sýslumaður-
inn á Akureyri og Vátryggingafélag Íslands hf., föstudaginn 12. nóv-
ember 2004 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
8. nóvember 2004.
Harpa Ævarrsdóttir, ftr.
UPPBOÐ
þér. Okkar samband var einstakt og
ég veit að á meðan ég hugsa til þín
munt þú hugsa til mín.
Elsku afi, ég kveð þig með sökn-
uði og það mun taka mig langan
tíma að jafna mig á því að þú ert
ekki hérna hjá mér lengur. Ég mun
líta eftir ömmu eins og ég lofaði þér
áður en þér fór að hraka. Elsku afi,
takk fyrir okkar frábæru stundir
saman og ég veit að þú munt vaka
yfir mér og ég mun hitta þig í
draumi.
Ragnar Baldvin Sæmundsson.
Þegar samferðafólk kveður koma
góðar minningar upp í huga þeirra
sem eftir lifa. Nú er Óli horfinn af
sviðinu og mig langar að minnast
hans með nokkrum orðum.
Við vorum í nokkur ár báðir í
starfsmannahópi Íslenska járn-
blendifélagsins, en ekki unnum við
þar að sömu verkum, né í sömu
deild. Hins vegar hittumst við nán-
ast daglega og spjölluðum, ef tími
gafst til. Utan vinnu kom það líka
fyrir að við litum inn hvor hjá öðr-
um, en allt of sjaldan var það.
Tengsl okkar voru margþætt.
Báðir vorum við vísnavinir og gamlir
sveitamenn. Við þekktum marga
sömu staðina og sama fólkið, þar
sem konan mín var af sömu slóðum
og hann og þau nokkuð skyld. Mér
fannst maðurinn fróður og skemmti-
legur og hressandi að tala við hann.
Óli vann þarna í nokkur ár, uns
hann lét af störfum vegna aldurs.
Mér er kunnugt um að hann hafi
þótt góður verkmaður og trúr. Eins
og vill verða hittumst við mun
sjaldnar eftir að hann hætti störfum.
Allir kannast við góð áform um að
halda sambandi við gamla vini, án
þess að af því verði. Fyrr en varir er
það of seint.
Ég votta Boggu og öðrum að-
standendum Óla samúð mína. Hon-
um sjálfum þakka ég innilega fyrir
liðnar samverustundir og bið guð að
blessa minningu hans.
Guðmundur Kristjánsson.
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is