Morgunblaðið - 09.11.2004, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 09.11.2004, Blaðsíða 39
ÚT ERU komin jólakort Félags eldri borgara í Reykjavík. Myndin er eftir myndlistarkon- una Jónínu Magnúsdóttur (Ninný) og heitir Helgi jólanna. Í hverjum pakka eru 5 jólakort. Jóla- kortin eru aðal fjáröflunarleið fé- lagsins og eru send til félagsmanna og annara velunnara félagsins. Einnig er hægt að panta kort á skrifstofu félagsins Faxafeni 12, 108 Reykjavík, sími 5882111, eða með tölvupósti á dagmar@feb.is. Jólakort Félags eldri borgara í Reykjavík MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2004 39 FRÉTTIR ÓÁNÆGJURADDIR hafa heyrst vegna þess íslenska landsliðið í opn- um flokki lenti í 47. sæti á Ólympíu- skákmótinu í Calviu á Mallorca en fyrirfram hefði mátt búast við að það endaði í 42. sæti. Eins og svo oft áður er þeirrar tíðar minnst með söknuði þegar fjórmenningaklíkan svokallaða var upp á sitt besta en hún samanstóð af Helga Ólafssyni, Jóhanni Hjartarsyni, Jóni L. Árna- syni og Margeiri Péturssyni. Þeir tefldu fyrir íslenska liðið þegar það náði fimmta sæti á Ólympíumótinu í Dubai 1986 og einnig þegar það lenti í sjötta sæti í Manila árið 1992. Deila má um hvor árangurinn hafi verið betri. Fyrir mótið í Dubai var liðið álitið það sjötta sterkasta en á mótinu í Manila var í fyrsta skipti teflt á Ólympíumóti eftir fall járn- tjaldsins. Allir vita hvaða gríðarlegu áhrif það hafði á skákheiminn en fyrir þessi mót komu 15 öflug lið í stað eins stórveldisins, Sovétríkj- anna. Frá huglægu sjónarhóli var því árangurinn í Manila betri en í Dubai. Síðan frá Manila hafa fleiri ríki í A-Evrópu liðast í sundur þann- ig að í stað landanna Tékkóslóvakíu og Júgóslavíu urðu til sex öflugar skákþjóðir. Nokkur atriði mætti benda á sem útskýra hvers vegna sú tíð er liðin að Ísland sé fremst á meðal keppn- isþjóða á Ólympíuskákmótum. Í fyrsta lagi er og verður erfitt að fá marga einstaklinga til að hafa skák sem atvinnu. Það stafar af þeirri einföldu ástæðu að samkeppnin í skákheiminum er afar hörð og tekjur lágar. Til samanburðar má nefna það að á níunda áratug síð- ustu aldar gat alþjóðlegur meistari með 2.400 stig á Vesturlöndum haft trausta fjárhagslega afkomu bara með því að tefla skák en í dag er það nánast útilokað. Í öðru lagi hafa margar stórar þjóðir tekið stórstíg- um framförum í skák á meðan fá- mennið á Íslandi hefur átt í erfið- leikum að fylla skarð þeirra atvinnumanna sem hafa hætt. Ástæða framfara margra stórþjóða er sú að margir skákþjálfarar úr austurvegi hafa flust búferlum þangað. Þannig hefur Frakklandi tekist á 15 árum að eignast tugi sterkra stórmeistara ásamt Ind- verjum, Víetnömum, Þjóðverjum og svo mætti lengi telja. Fjölmennið í þessum löndum er erfitt fyrir litla Ísland að keppa við. Í þriðja lagi hafa skákmenn frá A-Evrópu flust til nýs lands og teflt fyrir það. Þetta síðastnefnda atriði er áhugavert að kanna nánar með hliðsjón af þeim liðum sem tóku þátt á síðasta Ólympíuskákmóti. Þrjú efstu liðin á mótinu, Úkraína, Rússland og Arm- enía, höfðu innanborðs eingöngu innfædda skákmenn. Bandaríkin, sem lentu í fjórða sæti, höfðu hins vegar eingöngu skákmenn í sínu liði sem eitt sinn höfðu verið ríkisborg- arar Sovétríkjanna! Alexander On- iscuk tefldi á fyrsta borði en hann er upprunalega frá Úkraínu og það sama má segja um fyrsta vara- manninn, Igor Novikov. Hinir í lið- inu voru upprunalega Rússar og einn Letti. Ísrael kom næst á eftir Bandaríkjamönnum í fimmta sæti en lið þeirra var einnig eingöngu skipað skákmönnum frá fyrrver- andi Sovétríkjunum. Boris Gelfand tefldi á fyrsta borði fyrir Ísrael en hann hefur einnig teflt fyrir Sovét- ríkin og Hvíta-Rússland á Ólympíu- skákmótum. Hann sýndi vígtennur sínar og reiknihæfileika gegn búlg- arska stórmeistaranum Kiril Georgiev. Hvítt: Boris Gelfand (2693) Svart: Kiril Georgiev (2625) 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. g3 Bb4+ 4. Bd2 Be7 5. Bg2 d5 6. Rf3 0-0 7. 0-0 c6 8. Bf4 Rbd7 9. Rc3 dxc4 10. e4 a5 Kramnik lék 10. – b5 gegn Viktori Kortsnoj árið 1996 en lenti í vand- ræðum eftir 11. d5. 11. He1 He8 12. d5 cxd5 13. exd5 Rc5 14. Re5! exd5 15. Rxd5 Rxd5 Hugmynd svarts er að svara 16. Bxd5 með 16. – Be6 en þá stæði hann prýðilega að vígi. Boris hefur hins vegar séð lengra og hefur mikla flugeldasýningu. Sjá stöðumynd 1. 16. Rxf7! Kxf7 17. Bxd5+ Kg6 Ekki hefði gengið upp að leika 17. – Kf8 vegna 18. Dh5 Be6 19. Hxe6 og hvítur vinnur. Svartur vonar að kóngurinn lifi hólkið af en svo reyn- ist ekki vera. 18. He5! Bf5 Hvítur hefði unnið einnig eftir 18. – h6 19. Dc2+ Rd3 20. Bxc4. Sjá stöðumynd 2. 19. Hxf5! Glæsilega teflt – svarti kóngurinn á sér ekki viðreisnar von og þarf að fara á enn frekara flakk. 19. – Kxf5 20. Dh5+ Bg5 21. Dxh7+ Kf6 22. Bxg5+ Kxg5 Oft á tíðum geta glæsilegar flétt- ur spillst vegna ónákvæmni í fram- haldinu. Gelfand lýkur hins vegar skákinni með stæl. Sjá stöðumynd 3. 23. Bf7! Dd6 23. – Df6 hefði ekki gengið upp vegna 24. Dh5#. 24. Dxg7+ Kf5 25. Bxe8 og svart- ur gafst upp þar sem fátt er það sem gleður augað eftir 25. – Hxe8 26. Df7+. Holland hefur í gegnum tíðina átt að skipa öflugu landsliði enda landið þekkt fyrir sín sterku skákmót og skákmenn. Engu að síður þá hafa stórmeistarar á borð við Jeroen Pik- et og Paul Van Der Sterren hætt at- vinnumennsku. Bosníumaðurinn Iv- an Sokolov og Rússinn Sergei Tivjakov hafa fyllt skörð þeirra. Þó að Ivan hafi komið seint til leiks í ár þá dugði það til að liðið lenti í átt- unda sæti en fyrir komu hans hafði liðið verið í basli. Spánverjar, sem lentu í tíunda sæti, hafa á sínum snærum ofurstórmeistarann Alexei Shirov sem tefldi áður fyrir Lett- land. Pólverjar, sem lentu í 12. sæti, hafa mikinn liðsstyrk í Mikhail Krasenkov en hann var áður rúss- neskur ríkisborgari. Sviss hefur átt því láni að fagna í marga áratugi að hafa í sínum röðum einn mesta skákjöfur sem sögur fara af, Viktor Kortsnoj. Að þessu sinni lenti liðið í þrettánda sæti en eftir komu Vikt- ors til landsins hafa sprottið upp nokkrir sterkir stórmeistarar eins Yannick Pelletier. Þýskaland nýtur góðs af liðsinni fyrrverandi Úsbek- ans Alexanders Graf en hann leiddi sveit sína til sextánda sætis. Það sama má segja um sveit Slóvena en fyrir nokkrum árum fengu þeir mik- inn happafeng í stórmeisturunum og félögunum Alexander Beljavsky og Adrian Mikhailscin. Frakkar fengu á sínum tíma fyrrverandi heimsmeistara, Boris Spassky, en hins vegar hefur fyrrverandi þjálf- ari Kasparovs, Josif Dorfman, lagt mun meira af mörkum til skáklífs Frakka en heimsmeistarinn fyrr- verandi. Hann tefldi einnig fyrir þá að þessu sinni en liðið lenti í 23. sæti. Svíar hafa einnig notið góðs af veru Evgeny Agrest í landi sínu en fyrir utan að vera öflugur stórmeistari hefur hann lagt mikla vinnu í skák- þjálfun barna og unglinga. Svíar fengu jafnmarga vinninga og Ís- lendingar að þessu sinni á mótinu og lentu í 45. sæti. Það virðist sammerkt skáklífi í flestum þeirra landa þar sem skák- menn frá A-Evrópu hafa sest að, að árangur landsliða og þjálfun hefur tekið stóran kipp fram á við. Ís- lenskt skáklíf hefur hingað til ekki fengið slíka gesti til langdvalar en án efa mun vera hinnar tékknesk- ættuðu Lenku Ptácníkovu vera til þess fallin að auka og bæta skák- menningu kvenna hér á landi. Spurningin er bara sú hvort nauð- synlegt sé að gera það sama fyrir karlpeninginn? SKÁK Calvia, Mallorca Staða Íslenska landsliðsins í harðnandi skákheimi Október 2004 Stöðumynd 1. Stöðumynd 2. Stöðumynd 3. Um innfædda og innflutta skákmenn Helgi Áss Grétarsson JÓLAKORT Soroptimista- klúbbs Graf- arvogs eru komin í sölu. Myndin Móðir í flæðarmáli – eggtempera á tré eftir Kristínu Gunnlaugsdóttur – prýðir kortin í ár. Þá orti Erla Stef- ánsdóttir ljóðið Móðirin við myndina og er það prentað í kortin. Kortin er hægt að fá bæði með og án texta og kostar kortið með um- slagi 100 kr. en kortin eru seld tíu saman í pakka. Söluaðilar eru: versl- unin Móðurást Kópavogi, Efnalaug Grafarvogs Hverafold, Hjörtur Niel- sen í Smáralind og Kristall og Postu- lín, Bæjarlind í Kópavogi. Nánari uppl. veita Ólöf Kristín Ólafsdóttir, sími 861 4149 og Sigrún Árnadóttir, sími 892 2619. Jólakort Soropt- imistaklúbbs Grafarvogs Kirstín Katrín Í frétt um 100 ára afmæli Kristni- boðsfélags kvenna, sem birt var sl. laugardag, var rangt farið með nafn Kirstínar Katrínar Péturs- dóttur Guðjohn- sen (skírð Kirst- en Katrine). Á meðfylgjandi mynd, sem tekin var árið 1903, eru: Kirstín, f. 1850, d. 1940, dóttir hennar Guðrún Lárusdóttir, f. 1880, d. 1938, og dótt- ursonur, Lárus Sigurbjörnsson, f. 1903, d. 1974, síðar skjala- og minja- vörður Reykjavíkurborgar. Myndir víxluðust Þau leiðu mistök áttu sér stað, er verið var að útbúa aðsendar síður Morgunblaðsins, að á bls. 23 víxluð- ust myndir af tveimur konum, sem fjölluðu um búsetumál geðfatlaðra. Undir mynd af Björgu Karlsdóttur stóð nafn stöllu hennar Sveinbjargar Júlíu Svavarsdóttur og öfugt. Beðizt er afsökunar á þessum mistökum. Pönkið og Fræbbblar Í kvikmyndagagnrýni um mynd- ina Pönkið og Fræbbblar var rangt farið með stjörnubirtingu. Rétt er að gagnrýnandi gefur myndinni þrjár stjörnur af fimm mögulegum. LEIÐRÉTT Sveinbjörg Júlía Svavarsdóttir Björg Karlsdóttir Lionsklúbburinn Kaldá, Hafn- arfirði, er að hefja jólakorta- sölu eins og und- anfarin ár og mun allur ágóði renna til líkn- armála. Sólveig Stefánsson mynd- listarkona hefur teiknað kortið. Hægt er að fá kortin brotin eða óbrotin og með eða án texta. Allar upplýsingar um kortasölu veitir Guðrún Júlíusdóttir í síma 848 2537. Jólakort Lionsklúbbsins Kaldár SÍÐUSTU frímerkin sem Íslands- póstur gefur út á þessu ári komu út fimmtudaginn 4. nóvember. Frí- merkjaútgáfurnar eru tvær að þessu sinni og myndefni þeirra eru íslensk- ir fuglar og jólin. Jafnframt gefur Ís- landspóstur út ársmöppu með heild- stæðu safni allra frímerkja sem komu út á árinu 2004. Auk þess verða öll jólasveinafrímerkin sem komið hafa út síðan 1999, alls 17 frímerki, gefin út í sérstakri gjafamöppu. Sendlingar og lóuþrælar eru við- fangsefnið í frímerkjaröðinni um ís- lenska fugla. Verðgildin eru 55 og 75 kr. Ragnheiður I. Ágústsdóttir á aug- lýsingastofunni EnnEmm hannaði frímerkin en Jón Baldur Hlíðberg teiknaði fuglamyndirnar. Að venju koma út tvö jólafrímerki sérstaklega ætluð fyrir jólapóstinn. Verðgildin eru 45 og 65 kr. Mynd- efnin eru rjúpa og hreindýr – tákn vetrarins og jólahátíðarinnar. Auk þess gefur Íslandspóstur út sérstakt frímerkjahefti með tíu 45 kr. frímerkjum fyrir bréf og kort innan- lands. Hany Hadaya hannaði jólafrí- merkin í ár. Íslenskir fuglar og jól á frímerkjum JÓLAKORT og merki- spjöld sem Soroptimista- klúbbur Kópavogs gefur út í ár eru hönnuð af Jón- ínu Magnúsdóttir (Ninný) en hún er klúbbfélagi. Kortin eru afgreidd í stykkjatali og kosta 100 kr., einnig eru 5 stk. saman í pakka og kosta 500 kr. Jólapakkaspjöldin kosta 100 kr. pakkinn og eru 5 stk. í pakka. Fyrirtæki og aðrir sem þurfa mikinn fjölda af kortum geta sent pöntun í tölvupósti á hildurh@if.is. Jólakortin hafa verið aðaluppistaða í tekjuöflun klúbbs- ins, sem hefur frá upphafi stutt bygg- ingu hjúkr- unarheimilisins Sunnuhlíðar í Kópa- vogi með beinum fjárframlögum og jafnframt með ýmsum tækjagjöfum. Klúbburinn styður einnig ýmis önn- ur mannúðarmál. Jólakort Soroptimistaklúbbs Kópavogs Í ÁR er jólakort Blindrafélagsins myndskreytt með myndinni Jólabörn eftir myndlistarkon- una Línu Rut Wilberg. Kortin eru seld átta saman í pakka ásamt umslögum á 1.000 kr. Einnig eru seld átta merkispjöld á jóla- pakka með sömu mynd á 200 kr. Hægt er að nálgast kortin og merkispjöldin hjá Blindrafélaginu, Hamrahlíð 17, Reykjavík, eða senda tölvupóst á blind@blind.is. Sölumenn frá Blindrafélaginu munu ganga í hús í nóvember og bjóða kortin til sölu. Aðstoð þeirra sem vilja gerast sölumenn fyrir fé- lagið er vel þegin. Upplýsingar í síma 525 0000. Jólakort Blindra- félagsins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.