Morgunblaðið - 09.11.2004, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2004 43
DAGBÓK
KRISTJÁN Guðmundsson er lif-
andi goðsögn í íslenskri myndlist-
arsögu. Hann er frumkvöðull í hug-
myndarlist (Conceptual art) og
naumhyggju (minimal art) á Íslandi
og er dæmi um listamann sem á
sínu blómaskeiði hafði alla burði,
listrænt séð, til að skapa sér nafn á
alþjóðlegum vettvangi en leið fyrir
þá einangrun sem íslensk myndlist
hefur búið við. En vonandi horfum
við fram á breytta tíma hvað varðar
útrás íslenskra myndlistarmanna,
enda kominn vísir að gallerístarf-
semi þar sem galleríistar eru ekki
bara leigusalar, heldur umboðs-
menn sem sækja laun sín með sölu á
listaverkum og þurfa þar með að
róa á alþjóðleg mið. Kristján
Guðmundsson er einn af listamönn-
unum á snærum Gallerís i8 og opn-
aði þar nýverið sýningu undir yf-
irskriftinni „Arkitektúr“. En orðið
er grískt að uppruna og þýðir æðri
konstrúktsjón eða bygging.
Á gólfi gallerísins liggja 5 ál-
skúlptúrar sem formrænt vísa til
hleðslugrunneininga hleðslutorfs en
eru útfærðir sem mínimal skúlptúr.
Togstreita efnis og forms virkar þá
sem myndlíking fyrir togstreitu á
milli samtíma og hefðar. Þ.e. að ál
er efni samtímans og hefur að auki
skipað veigamikinn sess í þjóð-
félagsumræðunni síðustu misserin.
Hleðslugrunneiningar hleðslutorfs
eru hins vegar partur af sögu okkar
og bændamenningu sem á sinn hátt
hefur mótað þjóðfélagið gegn um
tíðina. Ganga torfskúlptúrarnir
þrælvel upp. Skapa hvort tveggja
samtal á milli forms og rýmis og
forms og efnis.
Á veggjum gallerísins hanga 9
myndir af torfbæjum sem séra Jón
M. Guðjónsson heitinn, fyrrum
sóknarprestur á Akranesi og list-
unnandi mikill, teiknaði á árunum
1958–1960 eftir lýsingum fólks. Ætl-
un séra Jóns með teikningunum var
að varðveita söguna en ekki að
skapa listaverk. Það eru þó mörg
fordæmi fyrir því að listamenn
bendi á verk eftir áhugamenn og
segi þau vera list. Lee Friedlander
benti t.d. á ljósmyndir E.J. Bell-
ocqs, Pablo Picasso benti á málverk
Henris Roussous, Ben Nicholson
benti á málverk Alfreds Wallis og
ritaði rússneski listamaðurinn
Naum Gabo í minningargrein um
Wallis að hann hafi verið listamaður
án þess að vita af því. Hefur Krist-
ján kosið að benda á teikningar séra
Jóns og jafnframt nýta sér þær. En
eins og hann greinir frá í sýning-
arskránni, „þá þarf listamaðurinn
nærri því ekkert að gera, annað en
að smella fingrum – og segja: Þetta
er list.“
Þessa yfirlýsingu Kristjáns má
rekja til Dada-stefnunnar í upphafi
síðustu aldar. En athyglisvert er að
skoða hana út frá stöðu myndlistar í
dag þar sem galleríistar, í þessu til-
felli Edda Jónsdóttir, geta allt eins
sýnt slíkar myndir upp á eigin spýt-
ur og þannig gert þær að listaverki.
Það eru nefnilega ekki lengur bara
listamenn sem smella fingrum og
vilja margir meina að listamenn hafi
í raun gefið það vald frá sér til gall-
eríista, sýningastjóra og safnstjóra
sem í dag segja okkur hvað sé list
og hvað ekki. Allavega breytir
Kristján Guðmundsson ekki teikn-
ingum séra Jóns í listaverk með ein-
um fingursmelli, þrátt fyrir yfirlýs-
inguna. Hann lætur skanna
myndirnar í tölvu, prenta á striga
og strekkja á blindramma eins og
málverk og færir þær þannig í allt
annað form en séra Jón lét frá sér.
Kristján hugsar teikningarnar
sem viðhengi við torfskúlptúrana
eða sem byggingafræðilega teng-
ingu. Ég er sammála að skúlptúr-
arnir 5 njóti góðs af viðhengi, þótt
þeir standi traustir hver fyrir sig.
Torfbæja-teikningarnar þykja mér
þó ekki vel útfærðar hjá listamann-
inum. Virka sem ódýr viðbygging
reist á veikum hugmyndalegum
grunni.
Ódýr viðbygging á veikum grunni
Jón B.K. Ransu
MYNDLIST
Gallerí i8
Opið miðvikudaga til föstudaga
frá 11–17 og laugardaga frá 13–17.
Sýningu lýkur 18. desember.
Tölvuprent og skúlptúr –
Kristján Guðmundsson
Morgunblaðið/ÞÖK
„Kristján Guðmundsson breytir ekki teikningum séra Jóns M. Guðjónssonar í listaverk.“
FYRSTU tónleikar utan helgi-
halds á nýhöfnum Tónlistardögum
dómkirkjunnar voru við fjölmenni
undir undirfyrirsögninni Kirkju-
vígslutónleikar. Mun þar skv. nán-
ari eftirgrennslan vísað til afmæl-
isdags Dómkirkjunnar.
Tónleikarnir hófust með Toccata
jubiloso, orgelsnertlu eftir
Tryggva M. Baldvinsson er frum-
flutt var á Tónlistardögum í fyrra;
glæsilegt verk og á köflum dul-
úðugt, er kom fallega út í öruggri
meðferð Marteins Friðrikssonar
dómorganista.
Aðalsegull dagsins var pönt-
unarverkið Advent Antiphons eða
Aðventu-svarvers (andsöngur) frá
Salisbury eða Sarum, fyrrum höf-
uðkirkju Engilsaxa, fyrir tvíkór
við latneskan texta eftir brezka
tónskáldið Robert Chilcott, er
frumflutt var undir
stjórn höfundar. Chil-
cott þykir afburðagóð-
ur kórstjóri, og sem
tenór sextettsins The
King’s Singers þekkir
hann kórmiðilinn í
þaula. Enda brást
honum ekki boga-
listin. Verkið var hið
hljómfegursta; mel-
ódískt vel en samt
ekki gamaldags, enda
m.a. bryddað upp á
klasahljómferli og
áhrifamikilli slembi-
skörun. Dómkórinn
náði þrátt fyrir þurra
ómvist merkilega góðri fyllingu í
þessu fallega 12 mín. verki, og þó
að rithátturinn lægi stundum frek-
ar hátt fyrir kórsópran, er virtist
hemja hann í byrjun, náði hann
sér fljótt á strik. Skýrleiki kórsins
í textaframburði var sömuleiðis
eftirtektarverður, og gátu lat-
ínugránar auðveldlega fylgt fram-
vindu út frá íslenzkun Þórðar
Arnar Sigurðssonar, jafnvel þótt
frumtextann vantaði í tónleika-
skrá.
Af síðustu atriðum voru fyrst
sex þættir úr 5. fiðlusónötubók
Arcangelo (hér rang-
nefndur „Antonio“;
e.t.v. samsláttur frá
Vivaldi) Corelli í um-
ritun fyrir flautu, er
Pamela De Sensi blés
við samleik Stein-
gríms Þórhallssonar
Neskirkjuorganista á
sembal. Það er ekki
einleikið hvað þessi
mikli rómverski mel-
ódisti hefur orkað á
seinni tónhöfunda,
enda heyrðust í
a.m.k. 3 tilfellum stef
er virtust vísa á
Händel, Bach og Es-
dúr píanókonsert Mozarts. Stykk-
in voru fallega flutt, þó að nokkur
námsbragur virtist enn yfir flautu-
leiknum.
Loks var tekið Laudamus te úr
c-moll messu Mozarts, er Guðrún
Jóhanna Ólafsdóttir söng með
mikilli hljómfyllingu og markverðu
öryggi í kólóratúrnum við létt-
góma en þó ekki með öllu örðu-
lausan orgelleik Marteins í stað
hljómsveitar. Lauk tónleikunum
með endurflutningi svarversa
Chilcotts.
Ríkarður Ö. Pálsson
TÓNLIST
Dómkirkjan
Chilcott: Advent Antiphons (frumfl.),
auk verka eftir Corelli og Mozart. Guðrún
Jóhanna Ólafsdóttir sópran, Pamela De
Sensi flauta, Steingrímur Þórhallsson
semball og Marteinn H. Friðriksson
orgel. Dómkórinn u. stj. Bobs Chilcotts.
Laugardaginn 30. október kl. 17.
Tónlistardagar Dómkirkjunnar
Bob Chilcott
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handavinna
kl. 9–16.30, leikfimi kl. 9, boccia kl.
9.45, smíði og útskurður kl. 13–16.30,
línudans kl. 20.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, böðun, vefnaður, leikfimi, sund,
boccia, fótaaðgerð.
Dalbraut 18 – 20 | Kl. 9–11 kaffi og
blöðin, kl. 9–14 baðþjónusta, kl. 9–
16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 10–11
samverustund, kl. 11.15–12.15 matur, kl.
14 félagsvist, kl. 15–15.45 kaffi.
Félag eldri borgara Kópavogi | Opið
hús fyrir félagsmenn FEBK og gesti
þeirra kl. 14 í Félagsmiðstöðinni Gull-
smára laugardaginn 13. nóv. Dagskrá:
Píanóleikur Elsa Fanney Jónsdóttir.
Leiftur frá liðnum árum. Kaffi og með-
læti. Sigríður Norðkvist stjórnar
fjöldasöng.Brids í Gjábakka í kvöld kl.
19.
Félag eldri borgara Reykjavík | Staf-
ganga kl. 11, gengið frá Ásgarði, skák
kl. 13. Miðvikudagur: Göngu-Hrólfar
ganga frá Ásgarði kl. 10.
Félagsstarf aldraðra Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 9.10, málun kl. 9.30,
leshringur bókasafns kl. 10.30, karla-
leikfimi og bútasaumur kl. 13, spilað í
safnaðarheimilinu á vegum kirkjunnar
kl. 13 og kóræfing FEBG kl. 17.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, m.a. glerskurður.
Kl.10.30 ganga um Elliðaárdalinn. Frá
hádegi spilasalur opinn og boccia. All-
ar upplýsingar á staðnum, s.
575 7720 og www.gerduberg.is.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa,
kl. 9–13, boccia kl. 9.30– 10.30, helgi-
stund kl. 13.30 í umsjón séra Ólafs Jó-
hannssonar. Böðun virka daga fyrir
hádegi. Fótaaðgerðir, hársnyrting.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun,
miðvikudag, bingó í Fjölnissal kl. 13.30.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Söng og
harmonikustund með Þorvaldi Björns-
syni kl. 15.
Norðurbrún 1 | Kl. 9–16.30 opin vinnu-
stofa, kl. 9 opin fótaaðgerðastofa, kl.
14 félagsvist, kaffi, verðlaun.
Vesturgata 7 | Kl 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl. 9.15–15.30 handa-
vinna, kl 9.15–16 postulínsmálun, kl
10.15–11.45 enska, kl 13–16 bútasaum-
ur, kl 13–16 frjáls spil, kl 13. 14.30 les-
hringur, fræðsla og fjöltefli kl. 13,
kl.15.30 leikur Tryggvi Ragnarsson
einleik á píanó, kór Fjölmenntar syng-
ur undir stjórn Laufeyjar Geirlaugs-
dóttur.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45, bókband kl. 9, morgunstund kl.
9.30, handmennt kl. 9 til 16, leikfimi kl.
10 félagsvist kl. 14.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Morgunsöngur
klukkan 9 þriðjudag. – Ferming-
arfræðsla klukkan 15 (hópur 1).
Áskirkja | Opið hús milli kl. 10 og 14 í
dag. Kaffi og spjall. Bænastund kl. 12.
Boðið upp á léttan hádegisverð.
Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjónusta
alla þriðjudaga kl. 18:30. Bænarefnum
má koma á framfæri við presta í síma
587–1500.
Bústaðakirkja | T.T.T Töff Töfrandi og
Taktfast í Bústaðakirkju T.T.T er fé-
lagskapur fyrir tíu til tólf ára krakka.
T.T.T. Fundirnir eru á þriðjudögum kl. 17
í safnaðarheimilinu, upplýsingar eru á
heimasíðu Bústaðakirkju www.kirkja-
.is.
Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl 11, kl
12 léttur málsverður, helgistund, sam-
vera og kaffi. KFUM&KFUK, 10–12 ára
börn kl 17–18.15, Opið frá 16.30. Alfa
námskeið kl 19. Fræðsla: Halldór Kon-
ráðsson. www.digraneskirkja.is.
Garðasókn | Opið hús í Kirkjuhvoli,
Vídalínskirkju á þriðjudögum kl. 13 til
16. Spilað lomber, vist og bridge. Kaffi
og meðlæti kl. 14.30. Helgistund í
kirkjunni kl. 16. Akstur fyrir þá sem
vilja, upplýs.sími: 895–0169.
Grafarvogskirkja | Opið hús fyrir eldri
borgara, kl. 13.30–16. Helgistund,
handavinna, spil og spjall. Kaffiveit-
ingar. Kirkjukrakkar fyrir 7–9 ára í
Rimaskóla kl. 17.30–18.30 Æsku-
lýðsfélag Grafarvogskirkju kl. 19.30,
fyrir 8. bekk. kl. 20.30, fyrir 9. og 10.
bekk.
Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðsþjón-
usta alla þriðjudaga kl. 10.30. Beðið
fyrir sjúkum. Kl. 10.30–11. Starf með
öldruðum þriðjudaga og föstudaga kl.
11. Súpa, leikfimi, kaffi og spjall.
Hjallakirkja | Bæna- og kyrrðarstund í
Hjallakirkju kl. 18. Prédikunarklúbbur
presta í Hjallakirkju kl. 9.15–11 í umsjá
sr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar, hér-
aðsprests.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Grunn-
fræðsla kl. 18.30 fyrir þá sem hafa ný-
lega tekið á móti Jesú sem frelsara
sínum. Allir velkomnir. Alfa 1 kl. 19.
KFUM og KFUK | Ad KFUK kl. 20 á
Holtavegi 28. „Leiklist – tæki í boðun
kristinnar trúar“ Árný Jóhannsdóttir,
þáttagerðarkona á útvarpstöðinni
Lindinni. Allar konur velkomnar.
Laugarneskirkja | Kl. 19.45 Trú-
fræðsla. Samfélag um trú. Gengið inn
um litlar dyr á austurgafli kirkjunnar.
Kl. 20.30 Kvöldsöngur í kirkjunni.
Gengið inn um aðaldyr. Kl. 21 Fyr-
irbænaþjónusta og kaffispjall í safn-
aðarheimilinu.
Neskirkja | Barnakór kl. 15. 7–8 ára.
stúlknakór kl. 16. 9–10 ára. Stjórnandi
Steingrímur Þórhallsson. Uppl. í
896 8192. Litli kórinn, kór eldri borg-
ara kl. 16.30. Stjórnandi Inga Back-
man. Uppl. í 552 2032. Nedó ung-
lingaklúbbur. 8. bekk kl. 17. 9. bekk og
eldri kl. 19.30. Alfa kl. 19. Sr. Örn Bárð-
ur Jónsson.
ÁHUGAHÓPUR um verndun
Þjórsárvera, í samstarfi við Land-
vernd og Náttúruverndarsamtök
Íslands, stendur fyrir fundi í Nor-
ræna húsinu í dag kl. 16.30–18.30.
Á fundinum verða m.a. sýndar ný-
legar myndir Jóhanns Ísbergs
ljósmyndara úr Þjórsárverum.
Þá mun Óskar Bergsson, for-
maður samvinnunefndar miðhá-
lendis kynna tillögur að breyt-
ingum á svæðisskipulagi mið-
hálendisins fyrir svæðið sunnan
Hofsjökuls, sem nú eru til umfjöll-
unar. Einnig verður sagt frá ný-
legum skýrslum hinna erlendu sér-
fræðinga Jack D. Ives og Roger
Crofts, um náttúruverndargildi
Þjórsárvera, en þeir hafa báðir
víðtæka alþjóðlega reynslu af nátt-
úruverndarmálum og hafa kannað
náttúruverndargildi Þjórsárvera.
Framkvæmdastjóri Land-
verndar, Tryggvi Felixson, stýrir
fundi og umræðum, en fundurinn
er öllum opin og aðgangur ókeyp-
is.
Morgunblaðið/RAX
Opinn fundur
um Þjórsárver
Nálgast má skýrslur Crofts og Ives
á heimasíðu Landverndar
www.landvernd.is/flokk-
ar.asp?flokkur=772
Þá er hægt að nálgast upplýsingar
um tillögu að breytingum á svæð-
isskipulagi miðhálendisins á
www.halendi.is.
MENNING