Morgunblaðið - 09.11.2004, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 09.11.2004, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SKEMMTUN DÁLEIÐANDI MÁTTUR IN N & D Ý R Ð IN FULL AF FJÖRI OG SPENNU BÓK SEM MAÐUR LEGGUR EKKI FRÁ SÉR FYRR EN AÐ LESTRI LOKNUM NÝ BÓK UM STELPUNA MEÐ DÁLEIÐSLUHÆFILEIKANA - Kirkus Review . 5. sæti á metsölulista Eymundsson JÓN Júlíusson kaup- maður í Nóatúni lést á Landspítala – háskóla- sjúkrahúsi við Hring- braut aðfaranótt mánu- dags, 79 ára að aldri. Hann fæddist á Hellis- sandi 23. janúar 1925, en foreldrar hans voru þau Júlíus Alexander Þórar- insson, sjómaður og verkalýðsforingi á Hell- issandi, og Sigríður Katrín Guðmundsdóttir. Jón lauk barna- og unglingaskóla Hellis- sands 1939, Iðnskólan- um í Reykjavík og sveinsprófi í renni- smíði í Vélsmiðjunni Hamri hf. 1950, vélstjóraprófi í Vélskólanum í Reykjavík 1956 og rafmagnsdeild 1957. Hann starfaði sem vélstjóri hjá Eimskipafélagi Íslands hf. 1951–60, að undanteknum skólatíma, en vann frá því við verslun og viðskipti. Jón hætti til sjós upp úr 1960 og tók við rekstri verslunarinnar Þróttar í Sam- túni í Reykjavík. 1965 opnaði Jón verslunina Nóatún við samnefnda götu í Reykjavík. Smám saman bætt- ust við fleiri verslanir undir nafni Nóatúns og voru þær orðnar 10 tals- ins árið 2000. Það ár seldu Jón og fjölskylda sig frá öllum rekstri í matvöru, samtals 43 verslanir, auk kjöt- vinnslu, en áður hafði fyrirtæki Jóns og fjöl- skyldu, Saxhóll ehf., eignast meiri hluta í 11– 11-verslunum og matvörusviði Kaup- félags Árnesinga undir nafninu Kaupás ehf. Síðustu ár starfaði Jón með fjölskyldu sinni í fasteigna- og fjárfest- ingafélaginu Saxhól ehf. sem er í eigu þeirra. Jón var kos- inn í stjórn Sparisjóðs vélstjóra 1963 og var stjórnarformaður frá 1964 til ársins 2001. Auk þess fór Jón með for- mennsku í ýmsum öðrum ráðum og stjórnum um ævina. Hann var t.a.m. varaformaður Kaupmannasamtaka Íslands 1983–85. Jón var meðlimur í Lionsklúbbi Reykjavíkur og var for- maður hans 1994–95. Hann var dygg- ur stuðningsmaður Fylkis og var sæmdur gullmerki Fylkis árið 2001. Eiginkona Jóns var Oddný Stein- unn Sigurðardóttir, en hún lést 1997. Þau eignuðust fimm börn, Júlíus, Sig- rúnu, Rut, Einar og Jón. Andlát JÓN JÚLÍUSSON MÁLSVÖRN og minningar er heiti nýútkominnar bókar Matthíasar Jo- hannessen skálds og fyrrverandi rit- stjóra Morgunblaðsins. Það er Vaka-Helgafell sem gefur bókina út. Í kynningu forlagsins segir: „Matthías var í áratugi í eldlínu þjóðfélagsumræðunnar en horfir nú á vígvöllinn úr fjarlægð sem veitir honum færi á að greina og túlka það sem hann sér. Innlifun og eldmóður einkenna stíl Matthíasar sem fer geyst og kemur víða við.“ Matthías,var þetta stríð? „Á kaldastríðsárunum var þetta stríð, finnst mér, stundum grimmd- arlegt. Tímarnir hafa þrátt fyrir allt batnað. Þá var barist um hug- myndafræði marxismans. Nú er bar- ist um hugmyndafræði Mammons einvörðungu og svo sýnist mér að menn séu á kafi í trúarbragðastríði. Ég fjalla dálítið um þetta í bókinni en satt að segja ekki of mikið um kaldastríðið því það heyrir sögunni til og mér leiðist það heldur.“ Fjölmiðlarnir fá sinn skerf? „Í bókinni er að finna nokkra gagnrýni á fjölmiðla eins og þeir eru núna. Það er margt sem mér mis- líkar og sérstaklega sú tilhneiging að gera mikið úr litlu. Ég tek dæmi sem eru mönnum í fersku minni. Í þessari bók tala ég einnig um upp- runa minn og þar er nokkuð mikið af minningum, einnig úr blaðamennsku og ýmislegt sem ég þurfti að fást við sem ritstjóri.“ Form bókarinnar er mjög frjálst þar sem skiptast á ljóð, sendibréf, samtöl og ádrepur af ýmsu tagi. „Mér hefur fundist nauðsynlegt að taka skáldsöguna og ævisöguna nýjum tökum og sem ljóðskáldi þyk- ir mér skemmtilegast að vinna í ljóð- rænum stíl. Ég reikna með því að bæði þessi bók og skáldsagan Vatna- skil, sem kom út fyrir tveimur árum, séu mótaðar af þessu hugarflæði sem mér finnst skemmtilegt í bók- menntum. Mörkin á milli skáld- skapar og veruleika eru að verða mjög lítil í nútímabókmenntum.“ Ljóð og prósi skiptast á í text- anum. „Já, það er mikið af nýjum kvæð- um í bókinni. Það má segja að þetta form sé einhvers konar arfleifð frá okkar gamla sagnaheimi, því að fólk- ið hefur ekki í gegnum aldirnar get- að áttað sig á því hvað er satt og hvað er skáldskapur í fornum sögum okkar. Eins og við Halldór Laxness komum okkur saman um í Skegg- ræðunum eru þær ritstýrð sagn- fræði. Í bókinni er mikið af nýjum ljóð- um en ég hef haft gaman af því að hafa ljóð í mínum prósa því ég vil alltaf hafa ljóðskáldið í fylgd með mér. Ég hef verið gagnrýndur fyrir þetta en þá spyr ég á móti: munum við eftir nokkurri sögu fornri, hvort sem það eru Íslendingasaga eða konungasaga, sem er ekki ýmist vaxin úr dróttkvæðum eða sækir efni í skírskotandi vísanir í ljóðlist- ararf okkar.“ Ný bók Matthíasar Johannessen Vil alltaf hafa ljóð- skáldið í fylgd með mér „Mörkin á milli skáldskapar og veru- leika eru að verða mjög lítil í nú- tímabókmenntum,“ segir Matthías Johannessen um nýútkomna bók sína, Málsvörn og minningar. LÍKUR eru á að á félagsfundi í Vinstrihreyfingunni – grænu fram- boði (VG) í kvöld verði borin fram ályktun um að flokkurinn geti ekki stutt Þórólf Árnason áfram til starfa sem borgarstjóra í Reykjavík vegna hlutar hans í samráði olíufélaganna. Hinir flokkarnir í R-listanum, Sam- fylkingin og Framsóknarflokkurinn, eru hins vegar tilbúnir til að styðja Þórólf áfram. Flokkarnir hafa gefið til kynna að ef stuðningsmenn VG standa fast á kröfu sinni um að Þór- ólfur víki verði þeir einfaldlega að slíta R-listasamstarfinu og ganga til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn. Á fundi trúnaðarmanna Vinstri- hreyfingarinnar sl. þriðjudag var það sjónarmið ríkjandi að Þórólfur Árnason borgarstjóri ætti að segja af sér vegna þátttöku hans í samráði olíufélaganna. Það gengi ekki að maður sem hefði tekið þátt í ólöglegu athæfi sem beindist að almenningi í landinu væri fánaberi borgar- stjórnarflokksins. Borgarfulltrúum flokksins sem voru á fundinum, Björk Vilhelmsdóttur og Katrínu Jakobsdóttur, var falið að skýra Þór- ólfi og borgarfulltrúum hinna flokk- anna í R-listasamstarfinu frá þessari afstöðu. Það gerðu þær á storma- sömum fundi á miðvikudag. Á öðrum fundi borgarfulltrúanna síðar um daginn var samþykkt að gefa Þórólfi færi á að útskýra sjónarmið sín fyrir borgarbúum. Þórólfur ræddi þessi mál í umræðuþáttum í sjónvarpi og í viðtölum við dagblöðin í lok síðustu viku. Verða að ljúka þeim leik sem þeir hófu „Það hefur ekkert komið fram í málinu sem breytir fyrri afstöðu okkar,“ sagði heimildarmaður Morg- unblaðsins innan Vinstrihreyfingar- innar í Reykjavík þegar hann var spurður um stöðu málsins. Með öðr- um orðum; VG vildi að borgarstjór- inn segði af sér og það stendur. Stjórn VG í Reykjavík kemur saman til fundar í dag þar sem drög að ályktun verða rædd. Málið fer síð- an fyrir félagsfund VG í kvöld. Forystumenn Samfylkingar og Framsóknarflokks í R-listasam- starfinu hafa sagst vera tilbúnir til að styðja Þórólf áfram. Ekkert nýtt hafi komið fram um þátt hans í olíu- samráðsmálinu frá því að frum- skýrsla Samkeppnisstofnunar var kynnt á síðasta ári og þá hafi borg- arfulltrúar tekið skýringar Þórólfs góðar og gildar. Það er eðlilegt að spurt sé hvort Þórólfur verði ekki að víkja ef einn flokkur af þremur, sem réðu hann í vinnu, treystir honum ekki til áfram- haldandi starfa? Það er að heyra á samfylkingar- og framsóknarmönn- um að þessi afstaða VG þurfi ekki endilega að leiða til þess að Þórólfur hætti. Ef VG vill ekki starfa með Þórólfi verði flokkurinn einfaldlega að ganga alla leið og slíta samstarf- inu og ganga til samstarfs við Sjálf- stæðisflokkinn. Einn viðmælandi blaðsins úr her- búðum Samfylkingarinnar orðaði þetta með þessum orðum: „Þeir sem byrjuðu þennan leik verða auðvitað sjálfir að sjá hvernig þeir ætla að enda hann.“ Viðmælendur blaðsins innan raða VG segja málið ekki snúast um að slíta R-listasamstarfinu. Flokkarnir hafi gert með sér málefnasamning og hann hljóti að halda óháð því hver sitji í stól borgarstjóra. Þeir stuðningsmenn Samfylkingar og Framsóknarflokks sem vilja ganga harðast fram gagnvart VG í þessu máli trúa því fæstir að flokk- urinn gangi svo langt að slíta R-lista- samstarfinu. Á það er hins vegar bent að borgarstjóraembættið gæti komið í hlut VG ef flokkurinn gengi til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn. Árni Þór Sigurðsson yrði þá borg- arstjóri, en forsenda fyrir því að þessi atburðarás gangi eftir er að Björk Vilhelmsdóttir styðji slíkt samstarf. Þeir sem þekkja Björk fullyrða að það muni hún aldrei gera. Þrír borgarstjórar? Margar lausnir hafa verið ræddar til að höggva á hnútinn. Um tíma leit út fyrir að samstaða næðist um að Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi tæki við af Þórólfi en það gekk ekki eftir. Til umræðu hefur einnig verið til- laga um að þrír borgarstjórar stjórni borginni. Þetta er ekki ný tillaga því að hún var rædd þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hætti sem borg- arstjóri. Fyrirmyndin er m.a. sótt til Norðurlandanna og rökin fyrir henni eru að borginni sé stýrt af sam- steypustjórn þriggja flokka og því sé ekki óeðlilegt að það komi fram í yf- irstjórn hennar. Tillagan gengur út á að einn borgarstjóri fari með yfir- stjórn borgarinnar, annar stýri vel- ferðarmálum og sá þriðji fari með skipulags- og framkvæmdamál. Eins og áður segir er þetta ekki ný tillaga og hún vekur misjafna hrifningu meðal R-listafólks. Vinstrihreyfingin heldur félagsfund í kvöld um borgarmálin Afstaða VG til Þórólfs Árnasonar óbreytt Fréttaskýring | Á félagsfundi Vinstri grænna í kvöld kemur í ljós hvort flokkurinn er tilbúinn til að styðja Þórólf Árnason áfram sem borgarstjóra. Egill Ólafsson kannaði stöðu Þórólfs og framtíð R-listasamstarfsins. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Kastljós fjölmiðlanna hefur beinst að Þórólfi Árnasyni borgarstjóra síðustu daga. egol@mbl.is VERÐMÆTUM að upphæð 580.000 krónum var stolið úr bifreið sem brotist var inn í við Hraunbæ. Innbrotið var til- kynnt til lögreglunnar í Reykja- vík á sunnudagsmorgun. Rúða var brotin til að komast inn í bíl- inn. Meðal þess sem var stolið var magnari að verðmæti 180.000 krónur og 240 geisla- diskar að verðmæti um 400.000 krónur. Á föstudagsmorgun var fartölvu, tveimur mögnurum og tveimur hátölurum stolið úr bíl við Asparfell. Talsvert var um innbrot í borginni á föstudag og um helgina. Á föstudag, eða aðfara- nótt föstudags, voru stormjárn á þremur gluggum á stofnun við Bústaðaveg rifin upp, farið inn á þrjár skrifstofur og stolið far- tölvu í hverri þeirra. Brotist var inn í íbúð við Torfufell með því að spenna upp glugga. Stolið var hljómflutningstækjum, DVD-spilara, stafrænni mynda- vél og skartgripum. Á laugar- dagskvöld var tilkynnt um inn- brot í íbúð við Deildarás en þaðan hafði verið stolið staf- rænni myndavél að verðmæti um 120.000 krónur. Miklum verð- mætum stolið úr bílum LÖGREGLAN á Selfossi óskar eftir upplýsingum um innbrot í sjö bif- reiðar sem stóðu á bifreiðastæði Herjólfs í Þorlákshöfn. Tilkynnt var um innbrotin á fimmtudag. Rótað var í ökutækjunum og hljómflutn- ingstækjum stolið úr þeim. Þeir sem hafa upplýsingar um hjólastól sem stolið var úr anddyri Húsasmiðjunnar á Selfossi nýlega eru einnig beðnir um að hafa sam- band við lögreglu, sem og þeir sem hafa upplýsingar um þann sem ók utan í hægri hlið bifreiðarinnar VV 910, ljósbrúna Toyota Avensis, ár- gerð 2001, sem stóð við Austurveg 6. Brotist inn í sjö bíla í Þorlákshöfn HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær 22 ára karlmann í 18 mánaða fangelsi vegna ýmissa af- brota, þar af eru 15 mánuðir skil- orðsbundnir. Maðurinn stal m.a. hnakk, sjónvarpi og písk úr hest- húsi en það sem réð þyngd dómsins var að hann er hegningarauki við fyrri dóma sem maðurinn hefur hlotið. Fram kemur í dómnum að hann hefur átt við fíkniefnavanda að stríða og á að baki umtalsverðan sakarferill. Sveinn Sigurkarlsson kvað upp dóminn. Stal hnakk, písk og sjónvarpi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.