Morgunblaðið - 09.11.2004, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 09.11.2004, Blaðsíða 52
Skaði barnanna þegar óbætanlegur Morgunblaðið/RAX „ÞETTA er óþolandi ástand og við viljum að stjórnvöld fari að axla sína ábyrgð. Við teljum ótækt að stjórnvöld skuli ekki hafa sýnt meiri lit í þessu máli og nú þurfi menn að fara að sýna meiri ábyrgð,“ sagði María Kristín Gylfadóttir, formaður stjórnar Heimilis og skóla, þegar ljóst varð að kenn- arar kolfelldu miðlunartillögu sáttasemjara í gær. Afstaða kennara er mjög skýr eins og hún endurspeglast í atkvæðagreiðslu þeirra um verkfall að mati Maríu og boltinn því hjá launanefnd sveitarfélaganna. Hún segir skaða barna þegar orðinn óbætanlegan og lengra verkfall geri málið enn verra fyrir börnin. María segir ekki forsvaranlegt að setja lög á verkfallið, enda verkfallsréttur kenn- ara lögvarinn. Hún segir að Heimili og skóli séu farin að íhuga aðgerðir með foreldrum og að kalla samninganefndir til borgara- fundar til að ræða hvað þurfi til að ná samningum. Skólastjórar hvattir til að senda börnin heim með bækurnar Heimili og skóli sendu öllum skólastjórum grunnskóla tölvupóst í gærmorgun þar sem þeir voru hvattir til að senda nemendur heim úr skólanum með skólabækur og námsáætlun. María segir að talsvert hafi verið um að það hafi verið gert, en þó hafi margir foreldrar hringt í samtökin og kvartað yfir því að börn þeirra fengju ekki að fara með skólabækurnar heim. Þessir krakkar fóru heim úr skólanum í gærdag, óviss um hvort skóli yrði í dag. Nú er ljóst að verkfall er hafið að nýju. Sumir nemendur fengu ekki að fara með skólabækurnar heim úr skólanum Uppgötvun ÍE á forsíðu Nature Genetics FORSÍÐA nóvemberheftis bandaríska vísindatímaritsins Nature Genetics er helguð grein eftir vísindamenn Íslenskr- ar erfðagreiningar um tengsl endurröð- unar í erfðamengi mannsins og frjósemi. Endurröðun nefnist uppstokkun á erfða- efni sem veldur því að ný samsetning verður til á erfðavísunum og stuðlar að fjölbreytileika mannkyns. Vísindamenn ÍE komust að því að tíðni slíkrar endurröðunar er meiri í erfða- mengi barna eftir því sem mæður þeirra eru eldri. Að sögn Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, er um grundvallaruppgötvun að ræða. /11 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. OLÍUFÉLAGIÐ og Olís gengu nýlega frá sameig- inlegum innkaupum á eldsneyti vegna ársins 2005, eins og hefur verið undanfarin ár. Hjörleifur Jak- obsson, forstjóri Olíufélagsins, segir að staðið verði við þá samninga sem gerðir hafi verið við birgja úti í heimi en innkaupasamstarfinu við Olís verði hætt við fyrsta tækifæri. Olíufélagið hf. harmaði í gær þátt fyrirtækisins í samráði olíufélaganna og baðst afsökunar á því. Fyrirtækið segist munu axla fulla ábyrgð gjörða sinna. Áður höfðu Skeljungur og Olíuverslun Ís- lands beðist afsökunar. Olíufélagið hefur jafnframt bannað starfsmönnum sínum að eiga samskipti við starfsmenn annarra olíufélaga og í því skyni segja fulltrúar félagsins sig úr öllum stjórnum félaga þar sem fulltrúar annarra olíufélaga eiga sæti. Gunnar Karl Guðmundsson, forstjóri Skeljungs, segist jákvæður gagnvart þessum breytingum hjá Olíufélaginu. Hann segist fagna því að Skeljungur losni nú út úr samstarfi olíufélaganna enda hafi það verið hamlandi fyrir alla aðila. Sameiginleg innkaup elds- neytis fyrir 2005  Esso/13 RÚMLEGA 1.000 golfmót af ýmsum gerðum voru á dagskrá aðildarfélaga Golfsambands Ís- lands í sumar og var um þriðj- ungur þeirra opin mót sem fé- lagsbundnir kylfingar gátu tekið þátt í. Í úttekt Morg- unblaðsins á golfmótum sum- arsins kemur í ljós að kylfingar sækja mótin stíft og tekjur þeirra af golfmótum eru allt að 20% af heildarvelt- unni. Gera má ráð fyrir að kylfingar hafi greitt vel yfir 100 millj. kr. í keppnisgjöld á golfmótum sum- arsins og tæplega 22.000 skráningar voru á opnu golfmótin á vertíðinni sem stóð óvenju lengi yfir að þessu sinni, frá miðjum apríl og fram til loka október. Golfklúbbur Reykjavíkur fékk rúmlega 4.300 kylfinga á 36 mót sem voru á vegum klúbbs- ins í sumar en fjölmennasta mótið sem fram fór á einum degi var haldið á Hellu hinn 1. maí. /B2 Góð aðsókn á golfmót sumarsins ÞORMÓÐUR Þormóðsson, rannsóknarstjóri rannsóknarnefndar flugslysa, segir að rannsókn flugatviks Atlantaþotu, sem fór út af braut á flug- vellinum í Sharjah í Sameinuðu arabísku fursta- dæmunum síðdegis á sunnudag, sé komin í fullan gang. Þormóður tekur þátt í rannsókninni fyrir hönd RNF en forræði hennar er hjá flugmálayfir- völdum í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Hann segir langt í að unnt verði að segja nokkuð um orsakirnar. Hætt var við flugtak af öryggis- ástæðum þegar vélin var komin á allmikla ferð. Þormóður sagði í samtali við Morgunblaðið að fulltrúar Atlanta hefðu fylgst með rannsókninni frá fyrstu stundu eftir að þeir hefðu hlúð að áhöfn- inni og komið henni í læknisskoðun og flugmála- yfirvöld og lögregla tryggt öryggi á vettvangi. Þor- móður sagði fulltrúa Atlanta hafa strax hafist handa við að safna saman umbeðnum gögnum. Þormóður fór strax á vettvang eftir komuna hingað í gærmorgun og sat eftir það fund með rannsóknarnefndinni í Dubai þar sem áhöfnin var einnig og Einar Óskarsson, flugöryggisfulltrúi Atl- anta, en formlegur aðgangur Atlanta að rannsókn- inni er fyrir milligöngu RNF. Þormóður segir að eftir skýrslutökur verði haldið áfram að safna gögnum og muni það standa næstu daga. Farið verður með flugrita vélarinnar á næstunni til Eng- lands þar sem lesið verður af gögnum þeirra. Byrjað var í gærmorgun að losa frakt úr vélinni. Hætt við flug- tak af öryggis- ástæðum  Viðbúnaður/2 BANDARÍSKT flugverkstæði sinnti ekki óskum Landhelgis- gæslunnar um að gera við lend- ingarbúnað og nefhjól Fokker- flugvélar Landhelgisgæslunnar en lét nægja að mála það og senda það til baka. Fokkerinn hefur verið óflughæfur frá því at- vikið í Færeyjum henti 1. októ- ber og vegna reglubundinnar stórskoðunar. Er nú beðið eftir hjólabúnaði vélarinnar úr skoðun í Bretlandi. Þrettán farþegar auk tveggja manna áhafnar voru um borð þegar hluti nefhjólsins brotnaði í lendingu en engan sak- aði. Eftir óhappið í Færeyjum fékkst leyfi Flugmálastjórnar til að ferjufljúga vélinni til Íslands strax daginn eftir og er hún nú í flugskýli. Stykkið sem brotnaði hafði verið sett undir vélina í júlí og fór í rannsókn af hálfu RNF eftir óhappið en Gæslan sendi aðra hluta lendingarbúnaðarins í við- gerð til Bandaríkjanna. Þegar hlutarnir komu til baka uppgötv- aðist að viðgerð hafði alls ekki farið fram eins og til var ætlast heldur höfðu þeir einungis verið málaðir og sendir Gæslunni í því ástandi samkvæmt upplýsingum tæknistjóra. Um var að ræða annan aðallendingarbúnað Fokk- ersins og nefhjólsbúnað. Í sam- ráði við Loftferðaeftirlitið voru hlutarnir sendir til framleiðand- ans í Bretlandi sem beðinn var að meta þá og er skýrslu að vænta. Voðinn vís ef lendingar- búnaður bregst Að sögn Odds Garðarssonar, tæknistjóra hjá Gæslunni, er það nú til athugunar hvernig það geti gerst að stunduð séu önnur eins vinnubrögð á sviði flugviðgerða og raun ber vitni. „Það er alltaf alvarlegt þegar ónothæfir varahlutir komast í umferð, sérstaklega í flugi,“ segir Oddur. „Ef lendingarbúnaður bregst á viðkvæmu augnabliki er voðinn vís.“ Hann segir að grunur leiki á að bandaríska flugverkstæðið hafi reynt vísvitandi að koma fölskum varahlutum í umferð. Um er að ræða verkstæði með gæðavottun bæði af hálfu bandaríska og evr- ópska loftferðaeftirlitsins. Bandarískt flugverkstæði sinnti ekki óskum Gæslunnar um viðgerð Málaði nefhjólið og sendi óviðgert til baka FLUGÓHAPPIÐ í Færeyjum 1. október þegar hlutur í nefhjóli Fokker-flugvélar Landhelgis- gæslunnar brotnaði í lendingu jafngilti „gula spjaldinu“ varðandi takmarkað fjárhagslegt svigrúm sem Gæslan hefur til viðhalds og varahlutakaupa, að mati fyrrver- andi flugöryggisfulltrúa Gæsl- unnar. Hann sagði af sér hálfum mánuði eftir atvikið og sagði þetta hafa verið kornið sem fyllti mæl- inn hjá honum eftir að hafa oft varað við fjárskorti Gæslunnar. „Menn eru að leita eftir ódýr- ustu leiðum í viðhaldi og gera það í góðri trú, en á móti kemur að gæði varahluta og viðgerða eru e.t.v. ekki eins og best verður á kosið,“ segir Jakob Ólafsson, fyrrverandi flugöryggisfulltrúi. „Menn hafa fengið gult spjald og sem betur fer var það ekki rauða spjaldið.“ Hafsteinn Hafsteinsson, for- stjóri Landhelgisæslunnar, kann- ast ekki við að sparnaður hjá Gæslunni hafi haft áhrif á flug- öryggi og segir það vera markmið Gæslunnar að stefna að mesta flugöryggi sem hægt er. „Við höf- um gert það hingað til og munum halda því áfram,“ segir hann. Ný- lega sendi flugöryggisnefnd FÍA Gæslunni bréf þar sem varað var við fjárskorti sem bitnaði á flug- öryggi. Hafsteinn hefur kallað eftir frekari rökstuðningi FÍA að þessu leyti. „Það er alltaf lögð rík áhersla á að gæta fyllsta öryggis og annað hefur aldrei komið til mála. Það hefur aldrei verið reynt að spara á kostnað öryggis,“ segir Haf- steinn. Hafsteinn Hafsteinsson Jakob Ólafsson Varar við fjárskorti ♦♦♦ ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.