Morgunblaðið - 09.11.2004, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 09.11.2004, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2004 33 MINNINGAR ✝ Kristján BjörnGuðmundsson fæddist á Folafæti 2. okt. 1924. Hann lést á Vífilsstöðum 24. októ- ber síðastliðinn. For- eldrar hans voru Guðmundur Salóm- onsson, f. á Kolbeins- eyri í Súðavíkur- hreppi 3.8. 1894, 9.4. 1963, og Guðrún Sig- urðardóttir, f. á Markeyri í Skötufirði 16.5. 1901, d. 21.6. 1999. Systkini Krist- jáns voru: Ásgeir, Þórður, Sigurður Borgar og Árni, þau eru látin. Eftirlifandi systkini eru Jónína Helga, Elías Hólmgeir, Jón Valgeir, Sigurður Þórberg og Sigríður Sigurborg. Nokkurra mánaða fór Kristján í fóstur til hjónanna Sigurbjargar og Ólafs Kristjánssonar á Fæti í Súðavíkurhreppi. Börn þeirra voru: Kristján Björn, Júlíana, Guð- rún og Auður, öll látin, en eftirlif- andi er Lára fóstursystir hans, sem einnig kom til þeirra hjóna í fóstur. Kristján kvæntist 30. sept. 1950 Gíselu Kutscher, f. 22. apríl 1932, d. 17. júlí 1971. Foreldrar hennar voru Georg og Elli Kutscher. Gísela og Kristján eignuðust fimm börn, þau eru: 1) Ólafur Georg, f. 11.1. 1951, maki Svanborg Eyþórs- dóttir. Hann á tvö börn og tvö barnabörn. 2) Sigurbjörn Ernst, f. 4.10. 1954, kvæntur Erlu Kjartans- dóttur. Þau eiga eina dóttur og þrjú barnabörn. 3) Rolf Kurt Tony, f. 13. nóvember 1958. Hann á tvö börn. 4) Ellý Anna, f. 6. nóv. 1959, hún á tvö börn. 5) Kristjana Jósefa, f. 6. febrúar 1967, maki Snorri Kristinsson. Þau eiga tvö börn. Seinni kona Krist- jáns var Rósa Páls- dóttir, f. 19. jan. 1922, d. 26. okt. 2001. Gísela og Kristján stofnuðu sitt fyrsta heimili í Hnífsdal en bjuggu síðan á Ísa- firði til ársins 1968 er þau fluttu til Þýskalands. Á Ísa- firði var sjómennskan hans aðal- starf og var hann lengst af á bát- unum Gunnhildi og Guðbjarti Kristjáni. Eftir að Kristján flytur aftur til Íslands 1977 fer hann vest- ur í Bolungarvík og var þar um tíma og vann þar við beitningar og var um tíma á Heiðrúnu ÍS. Hann kynntist Rósu, seinni konu sinni, 1980. Þau bjuggu lengst af á Selja- braut 22 en fyrir fjórum árum fluttu þau á Grandaveg 47, þar sem þau Rósa náðu að eiga eitt ár saman. Kristján bjó á Grandaveg- inum þar til í mars sl. er hann flutt- ist að Vífilsstöðum vegna veikinda sinna. Þegar Kristján flutti suður 1980 fékk hann skipspláss á togar- anum Vigra og var þar í tólf ár þar til hann hætti sjómennsku, þá 68 ára. Útför Kristjáns fer fram frá Neskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Ég er þreyttur, ég er þreyttur, og ég þrái svefnsins fró. – Kom, draumanótt, með fangið fullt af friði og ró. Syngdu mig í svefninn, ljúfi blær. Sorgmæddu hjarta er hvíldin jafnan vær. Draumgyðjan ljúfa, ljá mér vinarhönd, og leið mig um þín töfraglæstu friðarlönd. (Jón frá Ljárskógum.) Elsku vinur, mér finnst þessar ljóðlínur segja svo mikið, því þú varst búinn að þrá að fá friðinn, ekki þinn karakter að þurfa að vera háður öðr- um. Upp í hugann kemur brúðkaups- dagurinn okkar Bjössa fyrir 26 árum. Það var stór stund þegar ég gekk inn kirkjugólfið með pabba minn mér við hlið og þið feðgarnir stóðuð svo tign- arlegir og glæsilegir. En það sem gerði þennan dag enn bjartari var að amma hans Bjössa eða Oma eins og við sögðum alltaf var komin frá Þýskalandi til að vera með okkur. Á þessum tíma vorum við að kynnast og þú að flytja aftur hingað til Íslands. Það var þín gæfa að fá ljúfmennsk- una í vöggugjöf. Þú áttir alltaf góða lund. Hún hjálpaði þér mikið þegar erfiðleikar sóttu að. Þú gast nú líka verið svolítið þrjóskur. En er það ekki bara gott líka að komast áfram á henni? Þó svo að líkaminn væri búinn að kröftum, skein þitt bjarta bros og hláturinn fyllti tilveruna í kringum þig. Síðustu 7 mánuði varstu búinn að vera á Vífilsstöðum. Við fundum að þú varst sáttur og þér leið vel með allt þetta góða starfsfólk þér við hlið. Það sýndi sig að þú með þinni ljúf- mennsku og glaðværð hafðir fram- kallað hlýju og góðvild. Mikið var það fallegt þegar starfsstúlkurnar komu og kvöddu þig. Það var vitað hvert stefndi og þær vildu kveðja þig á sinn hátt, því þær voru að fara í vaktafrí. Þú máttir reyna margt. Það hafa ver- ið þung spor að sjá á eftir Gíselu kon- unni þinni, þá 39 ára, frá börnunum ykkar fimm á 4., 12., 13., 17. og 20. aldursári. Þú fórst nokkurra mánaða í fóstur til sæmdarhjónanna Sigurbjargar og Ólafs frá Folafæti. Þar leið þér vel, enda gafstu þeim það að launum að skíra tvo elstu syni þína nöfnunum þeirra. 16 ára fórstu í Vigur í vinnu- mennsku. Þar var oft glatt á hjalla. Á piltaloftinu var oft fjör með Þórarni frænda þínum og vinunum Kjartani og Dista. Og fleiri komu þar við sögu. Vigurfólkið hélt alltaf tryggð við þig og það þótti þér vænt um. Það var í Vigur, sem ástin milli ykkar Gíselu kviknaði. Þangað kom hún frá Þýska- landi eftir stríð, hafði þá 17 ára gömul fengið vinnu í Vigur. Þið giftuð ykkur 30. september 1950 og stofnuðuð ykkar fyrsta heimili í Hnífsdal. En lengst af bjugguð þið á Ísafirði. Þá var sjómennskan þitt starf. Ég man þig segja sögur frá því þegar Bjössi þinn smápatti fór að fara með þér á sjóinn. Þá varstu á Guðbjarti Krist- jáni með Herði vini þínum, Grétari Þórðar og fleirum góðum Vestfirð- ingum. Þér fannst gott að vera í Vík- inni, en þangað fórstu um tíma. Þar reyndust Geiri bróðir þinn, Rúna, Ingimar og Gunna uppáhaldsfrænk- an þín, þér vel eins og þú sagðir svo oft. Þú varst nú alsæll að vera með frændum þínum Jóni Eggerti sem lést langt fyrir aldur fram og Þórarni Gests á Heiðrúnu. Síðustu árin þegar ég sá ykkur Þórarin hittast, fann maður að vináttustrengurinn milli ykkar hafði ekkert slitnað. Þið frændurnir beinlínis ljómuðuð. Ald- ursmunurinn vafðist ekki fyrir ykk- ur, þó að hátt í 40 ár væru á milli ykk- ar. Þú hafðir gaman af lestri góðra bóka. Eitt skipti lánaði Bjössi þér bók. Hann sagði að þér þætti nú örugglega gaman að skoða hana. Hún hét Frá línuveiðum til togveiða þætt- ir úr sögu útgerðar á Ísafirði. Þegar þú svo skilaðir henni sagðir þú við mig: Erla, þetta er besta bók sem ég hef lesið. Ég sagðist nú alveg skilja það. Þetta væri örugglega eina bókin sem mynd af þér er í. Þá hló hann. Við fjölskyldan glöddumst með þér þegar þú kynntist Rósu. Þið voruð bæði búin að vera ein og þið fylltuð upp í tómarúmið hjá ykkur báðum. Þið bjugguð ykkur fallegt heimili nú síðast á Grandaveginum. Þú áttir góð ár til sjós á Vigra en á „gamla“ Vigra varstu í mörg ár. Það var alveg sama hvar þú vannst þá eignaðist þú fljótlega vináttu í vinnu- félögunum . Vinir þínir á Vigra voru í miklu uppáhaldi hjá þér, enda héldu margir tryggð við þig þó 12 ár séu frá því þú komst í land. Við áttum margt sameiginlegt varðandi sönginn og dansinn, enda höfum við mörg sporin tekið saman. Þú varst svo söngvinn og músíkalskur . Þú varst glaður með harmonikkuna þína og munnharpan var alltaf tiltæk. Á sólarkaffinu nut- um við Bjössi þess að fara með þér. En mér flóastelpunni fannst nú ekki veitingarnar vera upp á marga fiska. En þið voruð ánægðir með sólar- pönnukökurnar. Við vorum líka alltaf jafnánægð með þorrablótin hjá Bol- víkingum. Sigga systir þín og Oddur hafa séð til þess að þið systkinin og við Bjössi komum saman fyrir blótin og hituðum upp með hlátri og söng. Ég tala nú ekki um allar vísurnar hans Ella Hólms. Mig langar að þakka Kjartani vini þínum fyrir alla þá tryggð sem hann hefur sýnt þér frá því þið voruð unglingar í Vigur. Sömuleiðis Snorra Jóns frænda þín- um fyrir vestan fyrir alla þá artar- semi sem hann sýndi þér. Nú er kom- ið að kveðjustundinni. Ég vil þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem við höfum átt saman. Þín verður sárt saknað en góðar minningar munu lifa og lýsa í hjörtum okkar. Ég ætla að kveðja þig með orðunum, sem þú sagðir við mig í lokin: Takk fyrir allt og Guð geymi þig. Þín tengdadóttir Erla. Þú kvaddir þegar blómin fóru að falla og fölva haustsins sló á sumarskraut. Þú hafðir gengið götu þína alla og gæfu notið hér á lífsins braut. Það syrtir að og söknuðurinn svíður, hann svíður þó að dulin séu tár en ævin okkar eins og lækur líður til lífsins bak við jarðnesk æviár. Og tregablandin hinsta kveðjan hljómar svo hrygg við erum því við söknum þín, í hugum okkar stjarna lífs þíns ljómar, sem ljós á vegi í brjóstum okkar skín. Við biðjum að þér ljóssins englar lýsi og leiði þig hin kærleiksríka hönd í nýjum heimi æ þér vörður vísi, sem vitar inn í himnesk sólarlönd. Þér sendum bænir upp í hærri heima og hjartans þakkir öll við færum þér. Við sálu þína biðjum guð að geyma, þín göfga minning okkur heilög er (Guðrún Elísabet Vormsdóttir.) Elsku afi minn. Núna ertu farinn frá okkur eftir erfið veikindi, en ég veit að þér líður betur núna því þú varst svo tilbúinn. Ég vissi þegar ég fluttist til Danmerkur að þetta yrði í seinasta sinn sem ég mundi sjá þig. Það var sárt að kveðja þig. Ég veit að þér þótti vænt um símtalið frá mér. Þú heyrðir í mér og ég gat sagt þér hvað okkur þætti vænt um þig. Við hugsuðum til þín og þó ég hafi ekkert heyrt í þér nema grátinn veit ég að þér þótti vænt um símtalið. Hafðu það gott, elsku afi minn. Hún Gísela amma og Rósa amma eiga eftir að taka vel á móti þér. Takk fyrir allt og allt. Þín Maren Dröfn. KRISTJÁN BJÖRN GUÐMUNDSSON Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Sverrir Olsen, útfararstjóri. Sverrir Einarsson, útfararstjóri. Bryndís Valbjarnardóttir, útfararstjóri. Baldur Frederiksen, útfararstjóri. Guðmundur Þór Gíslason, útfararstjóri. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Eiginmaður minn, GUÐMUNDUR SIGFÚSSON, Kolbeinsá, Hrútafirði, andaðist á sjúkrahúsinu Hvammstanga föstu- daginn 5. nóvember. Útförin fer fram frá Prestbakkakirkju í Hrútafriði laugardaginn 13. nóvember kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á sjúkrahúsið Hvammstanga. Fyrir hönd aðstandenda, Hanna Guðný Hannesdóttir. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN JÚLÍUSSON kaupmaður, Skúlagötu 40a, lést á Landspítalanum við Hringbraut aðfara- nótt mánudagsins 8. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Júlíus Þór Jónsson, Agnes Viggósdóttir, Sigrún Alda Jónsdóttir, Gunnar Þór Guðmannsson, Rut Jónsdóttir, Árni M. Heiðberg, Einar Örn Jónsson, Guðný Magnúsdóttir, Jón Þorsteinn Jónsson, Sigrún Karlsdóttir og barnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS S. GUÐMUNDSSON, Frumskógum 5, Hveragerði, lést á sjúkrahúsinu á Selfossi sunnudaginn 7. nóvember. Útförin fer fram frá Akraneskirkju mánudaginn 15. nóvember kl. 14.00. Börn, tengdabörn, afabörn og langafabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR BJARNASON, áður til heimilis í Hvassaleiti 14, Reykjavík, lést á Sólvöllum, Eyrarbakka, sunnudaginn 7. nóvember. Helga Ólafsdóttir, Pétur Jónsson, Jón Finnur Ólafsson, Þóranna Ingólfsdóttir, Ólafur Ólafsson, Kristín Guðrún Ólafsdóttir, Guðni Birgir Svavarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elsku faðir okkar og tengdafaðir, MAGNÚS SIGURÐSSON frá Hvammi í Fáskrúðsfirði, lést á dvalarheimilinu Uppsölum, Fáskrúðsfirði, að morgni mánudagsins 8. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar. Sigþór Magnússon, Ragna Pálmadóttir, Garðar Magnússon, Unnar Magnússon, Þorgerður Guðmundsdóttir, Sigríður Magnúsdóttir, Einar Stefánsson, Elísabet Magnúsdóttir. Minningarkort Hjartaverndar 535 1825 Gíró- og greiðslukortaþjónusta Í PERLUNNI Erfidrykkjur Upplýsingar og pantanir í síma 562 0200 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. Aðeins 1.250 kr. á mann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.