Morgunblaðið - 09.11.2004, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
edda.is
Tröllastrákurinn Dynkur
er hræddur við dags-
ljósið. Þorir hann með
tröllamömmu út í
hábjartan daginn? Hvað
gerist ef mennirnir eru á
ferli? Falleg og frumleg
tröllasaga eftir Brian
Pilkington, besta vin
íslenskra trölla.
4. sæti
Penninn Eymundsson
og Bókabú›ir MM
27. okt. – 2. nóv.
Börn og unglingar
Engar
áætlanir
uppi
HALLDÓR Ásgrímsson forsætis-
ráðherra sagði aðspurður í fyrir-
spurnartíma á Alþingi í gær, áður
en ljóst var að kennarar hefðu
hafnað miðlunartillögu ríkissátta-
semjara, að hann hefði engar áætl-
anir í undirbúningi sem miðuðu að
lausn kjaradeilu kennara og sveit-
arfélaga, yrði miðlunartillagan felld.
„Ég held að það sé alveg augljóst
að auðvitað eru engar slíkar áætl-
anir uppi. Menn verða að sjálfsögðu
að bíða eftir þeirri niðurstöðu sem
verður og gefa launanefndum sveit-
arfélaga og kennara tækifæri til að
ræða þá stöðu,“ sagði hann eftir
fyrirspurn Björgvins G. Sigurðs-
sonar, þingmanns Samfylkingarinn-
ar. Kvaðst ráðherra þó deila
áhyggjum Björgvins af verkfalli
kennara.
Björgvin sagði að grunnskóla-
börn í landinu hefðu orðið af lög-
bundinni kennslu í sex vikur á
þessu skólaári. Sagði hann vandséð
hvernig börnunum yrði bættur sá
skaði. Spurði hann ráðherra því
næst hvort það hefði verið rætt í
ríkisstjórn að beina til sveitarfélag-
anna tillögum um samræmdar að-
gerðir til að bæta börnum landsins
skaðann. Forsætisráðherra sagði að
menntamálaráðherra hefði rætt af-
leiðingar verkfallsins í ríkisstjórn-
inni. „Það liggur fyrir að mennta-
málaráðuneytið er að fara yfir það
með hvaða hætti verður hægt að ná
upp þeirri töf sem hefur orðið á
námi – og við skulum vona að sú töf
verði ekki meiri en orðið er – þann-
ig að í því máli er unnið á vegum
menntamálaráðuneytisins í sam-
vinnu við fræðsluyfirvöld hjá sveit-
arfélögum og skólanna í landinu.“
Forsætisráðherra
STJÓRN Kennarafélags
Færeyja (Føroya Lærara-
felag) hefur ákveðið að
styrkja Kennarasamband Ís-
lands með framlagi að fjár-
hæð 100.000 þúsund danskar
krónur, jafnvirði um 1,2 millj-
óna íslenskra króna, í Vinnu-
deilusjóð, að því er fram kem-
ur á vef Kennarasambands-
ins. Jafnframt lýsir færeyska
kennarafélagið yfir eindregn-
um stuðningi sínum við bar-
áttu íslenskra grunnskóla-
kennara fyrir bættum launa-
og starfskjörum.
Framlag frá
Færeyjum í
verkfallssjóð
VERKFALL grunnskólakennara
hófst að nýju á miðnætti eftir að
fundi launanefndar sveitarfélaganna
og kennara var slitið á ellefta tím-
anum í gærkvöldi án þess að nið-
urstaða lægi fyrir. Kennarar kol-
felldu miðlunartillögu ríkis-
sáttasemjara með tæplega 93%
atkvæða.
Báðir aðilar lögðu fram hugmynd-
ir að lausn deilunnar á fundi með
ríkissáttasemjara í gærkvöldi en
það var mat hans að viðræðurnar
hefðu engu skilað og er næsti fund-
ur boðaður á morgun kl. tíu.
Útilokað að fresta verkfalli
„Við settum fram hugmyndir um
breytt launakerfi þar sem kemur
fram mat á starfsaldri á móti lífaldri
og ýmsir aðrir þættir sem við töld-
um að gætu orðið til þess að fé-
lagsmenn myndu frekar sætta sig
við þetta og kynntum það fyrir þeim
[launanefndinni] en það dugði ekki
til,“ sagði Eiríkur Jónsson, formað-
ur Kennarasambands Íslands.
Launanefndin setti fram hug-
myndir að lausn deilunnar fyrr um
kvöldið og segir Eiríkur að útilokað
hafi verið að fresta margra vikna
verkfalli á grundvelli „einhverra
hugmynda sem gætu gerst í fram-
tíðinni“.
„Við vonum að það renni upp ljós
fyrir launanefndinni og þeir sjái að
það er þetta sem þarf til,“ sagði Ei-
ríkur og vísaði í hugmyndir kenn-
ara.
Tilboð kennara óyfirstíganlegt
Að sögn Birgis Björns Sigurjóns-
sonar, formanns samninganefndar
launanefndar sveitarfélaganna, lagði
nefndin fram hugmynd að umræðu-
grundvelli sem miðaðist við að
vinnutímaákvæði samningsins og
þar með kennsluskylda yrðu endur-
skoðuð og þau færð í átt að því sem
almennt gildir um aðra háskóla-
menntaða starfsmenn sveitarfélaga,
auk þess sem unnið yrði að sam-
ræmingu á launakjörum. „Þetta
lögðum við til og héldum að þettta
yrði vænlegur grundvöllur að nýju
ferli, kennurum fannst það ekki og
höfnuðu því.“
Að sögn Birgis Björns meta kenn-
arar tilboð sitt sem 36% kostnaðar-
auka fyrir sveitarfélögin sem sé „al-
gerlega óyfirstíganlegt“ að mati
launanefndarinnar.
Næsti fundur í kennara-
deilu á miðvikudag
Eiríkur
Jónsson
Birgir Björn
Sigurjónsson
Báðir aðilar lögðu fram hugmyndir að lausn deilunnar
en mat sáttasemjara að viðræður hafi engu skilað
kvæði – vildu hafna tillögunni en 276
einstaklingar – 5,98% vildu sam-
þykkja hana. Auð og ógild atkvæði
voru 48, eða 1,04% greiddra at-
kvæða. Alls voru 4.984 á kjörskrá, og
nýttu 92,64% grunnskólakennara at-
kvæðarétt sinn, alls 4.617 manns.
Talningu atkvæða lauk seinnipart
dags í gær, og voru úrslitin tilkynnt í
húsnæði Ríkissáttasemjara um kl.
18 í gær. Fundur milli deiluaðila var
boðaður strax að úrslitin voru kynnt,
og ætlaði samninganefnd sveitarfé-
lagana að leggja fram tillögu til
lausnar á deilunni. Ásmundur Stef-
ánsson ríkissáttasemjari sagði þessa
niðurstöðu sýna skýrt afstöðu kenn-
ara, og að áherslur í miðlunartillögu
hans hefðu ekki verið réttar.
Afgerandi afstaða kennara
„Mér sýnist að þetta sé heldur
meira afgerandi en þegar verkfallið
var boðað á sínum tíma,“ sagði Ei-
ríkur Jónsson, formaður Kenn-
arasambands Íslands, þegar úrslitin
voru ljós í gær. Hann sagði atkvæða-
greiðsluna hafa farið fram án nokk-
urs þrýstings frá kennaraforystunni,
svo þarna kæmi vilji grunnskóla-
kennara skýrt fram.
„Það liggur fyrir hvaða mat stétt-
in leggur á þetta, og það eru veru-
lega skýr skilaboð um að það hafi
vantað verulega inn í þetta til þess
að samningar gætu tekist,“ sagði Ei-
ríkur. Hann sagði skort á tengingu
launa við starfsaldur hafa virkað
mjög neikvætt, auk þess sem ein-
hverjar tryggingar hefði vantað fyr-
ir samning með svo langan gild-
istíma. „En númer eitt tvö og þrjú,
KENNARAR höfnuðu með afger-
andi hætti miðlunartillögu ríkis-
sáttasemjara í atkvæðagreiðslu sem
lauk í gær. Alls 92,98% grunnskóla-
kennara höfnuðu tillögunni, en ein-
ungis 5,98% samþykktu hana.
Launanefnd sveitarfélagana sam-
þykkti miðlunartillöguna með átta
atkvæðum gegn tíu.
Samtals 4.293 grunnskólakenn-
arar – 92,98% þeirra sem greiddu at-
þá vantar hærri launaliði, það er al-
veg greinilegt,“ sagði Eiríkur.
Langt milli deiluaðila
„Kannararnir hafa tjáð sig á mjög
afgerandi hátt, en það er kannski
ekki mitt að leggja út af því hvernig
beri að túlka þetta í smáatriðum,“
sagði Gunnar Rafn Sigurbjörnsson,
formaður Launanefndar sveitarfé-
laga, þegar úrslit atkvæðagreiðslu
meðal grunnskólakennara voru ljós í
gær.
„Vissulega er langt á milli deilu-
aðila, en í öllum deilum er auðvitað
einhversstaðar einhver niðurstaða.
Ef það er svo að við höfum ekki fram
að þessu fundið rétta leið til að leiða
málið til lykta þá erum við tilbúin til
að hefja nýja leit,“ sagði Gunnar
Rafn. Hann sagði tillögu ríkis-
sáttasemjara síður en svo mistök.
„Ég held að það hafi verið mjög eðli-
legt að eftir þessa löngu deilu hafi
hann leitað ráða til þess að finna ein-
hverja lausn.“
93% kennara höfnuðu miðlunartillögu
Morgunblaðið/Árni Torfason
Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari svarar spurningum fjölmiðla eftir að
niðurstaða talningar vegna miðlunartillögu var kunngerð síðdegis í gær.
Engin lausn
í sjónmáli
„ÉG HEF í sjálfu sér ekkert um
stöðuna að segja annað en það að
það liggur ekkert það efnislega
fyrir að það sé lausn í sjónmáli,“
sagði Ásmundur Stefánsson rík-
issáttasemjari þegar ljóst varð að
fundi yrði frestað og verkfall
skylli aftur á.
„Báðir aðilar hafa lagt fram
hugmyndir af sinni hálfu í kvöld
[mánudag], en niðurstaðan er
engu að síður sú að það er ekki
nein lausn í sjónmáli þannig að
fundi er frestað.“ Spurður hvort
mikið beri í milli deilenda í þeim
tillögum sem fram komu í gær-
kvöldi segir Ásmundur ekki rétt
að hann tjái sig um það og geri
grein fyrir tillögum aðila. Að-
spurður segir Ásmundur fundinn
ekki hafa verið mikinn átaka-
fund. „Menn eru nú ekki með
hamagang hér neinn, þannig að
þeir tala saman af fyllstu kurt-
eisi.“