Morgunblaðið - 09.11.2004, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.11.2004, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 306. TBL. 92. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Vagga félags- miðstöðva Fellahellir fagnar 30 ára afmæli í dag Minn staður 21 Skapandi Skotar Andy Dunlop í Travis segir frá nýjum safndiski | Menning 49 Íþróttir í dag Óviss framtíð hjá Veigari Jol tekinn við Tottenham ÍS-stúlkur unnu Grinda- vík Árni Gautur markvörður ársins HIMINNINN yfir írösku borginni Fallujah logaði í gær er ráðist var gegn henni á láði og úr lofti. Tóku 12.000 bandarískir og íraskir hermenn þátt í árásinni en talið var, að um 2.000 uppreisnarmenn væru til varnar. Sheikh Hazem Shaalan, varnarmálaráð- herra írösku bráðabirgðastjórnarinnar, sagði í gær, að búið væri að umkringja Fall- ujah en meginárásin á hana yrði í dag. Þar bjuggu um 300.000 manns en sagt er, að 90% borgarbúa séu flúin. Ef það er rétt, þá eru þar enn allt að 30.000 óbreyttra borgara. Richard Myers, formaður bandaríska her- ráðsins, sagði í gær, að árásin á Fallujah yrði ekki síðasta meiriháttar árásin á uppreisn- armenn í Írak. „Það verða önnur tilefni til þótt ekki verði í jafnstórum stíl og Fallujah,“ sagði Myers. Stórárás á Fallujah Fallujah. AP, AFP.  Blæs til/16 Bandarískir hermenn í útjaðri Fallujah. FRANSKIR hermenn á brynvörð- um bílum tóku sér í gær stöðu ná- lægt aðsetri Laurents Gbagbos, for- seta Fílabeinsstrandarinnar, í Abidjan, höfuðborg landsins, og stugguðu um leið við æstum múg, sem sakaði Frakka um að ætla að steypa forsetanum. Mjög ófriðlegt hefur verið á Fíla- beinsströndinni síðan stjórnarher- inn rauf næstum tveggja ára gaml- an vopnahléssamning við uppreisn- armenn og einkum eftir, að herflugvélar stjórnarhersins gerðu árás á stöðvar Frakka síðastliðinn laugardag. Féllu þá níu franskir hermenn og einn bandarískur borg- ari. Frakkar svöruðu árásinni með því að eyðileggja herflugvélar stjórnar- innar og fór þá æstur múgur ráns- hendi um verslanir í Abidjan og rændi og skemmdi eigur franskra borgara. Eru þeir um 14.000 í borg- inni. Mamadou Koulibaly, forseti þingsins, hótaði Frökkum í fyrradag eins konar „Víetnamstríði“ og sagði, að franskir borgarar ættu á hættu að verða drepnir af æstum „föð- urlandsvinum“. Í gær virtist þó mesti móðurinn runninn af honum og hét hann þá að vinna að því með Frökkum að koma á kyrrð í landinu. Ekki er vitað hve margir hafa fallið í óöldinni í landinu en tals- maður Rauða krossins sagði í gær, að meira en 500 manns hefðu særst en stuðningsmenn stjórnvalda kæmu í veg fyrir, að unnt væri að sinna þeim. Fyrir öryggisráði SÞ lá í gær til- laga um refsiaðgerðir gegn stjórn- völdum á Fílabeinsströndinni. Heldur dregur úr átökum á Fílabeinsströndinni Æstir stuðningsmenn stjórnvalda komu í veg fyrir aðstoð við særða Abidjan. AP, AFP. FUNDI launanefndar sveitarfélag- anna og kennara var slitið á ellefta tímanum í gærkvöldi án þess að nið- urstaða lægi fyrir. Báðir aðilar lögðu fram hugmyndir að lausn deil- unnar en mat ríkissáttasemjara var að þær viðræður hefðu engu skilað. Næsti fundur deilenda hefur verið boðaður hjá sáttasemjara á morgun klukkan tíu. Kennarar höfnuðu með afgerandi hætti miðlunartillögu ríkissátta- semjara í atkvæðagreiðslu sem lauk í gær en alls greiddu 92,98% at- kvæði gegn tillögunni. Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út í verkfalls- miðstöð grunnskólakennara í Reykjavík þegar niðurstaðan varð ljós. „Mér sýnist að þetta sé heldur meira afgerandi en þegar verkfallið var boðað á sínum tíma,“ sagði Ei- ríkur Jónsson, formaður KÍ, þegar úrslitin lágu fyrir. Atkvæðagreiðsl- an hefði farið fram án nokkurs þrýstings frá kennaraforystunni. Undanþágur gilda áfram Gunnar Rafn Sigurbjörnsson, formaður launanefndar sveitarfé- laganna, sagði þetta um úrslit at- kvæðagreiðslunnar: „Ef það er svo að við höfum ekki fram að þessu fundið rétta leið til að leiða málið til lykta þá erum við tilbúin til að hefja nýja leit.“ Miðlunartillaga ríkis- sáttasemjara væri síður en svo mis- tök. Kennarasamband Íslands hef- ur leitað eftir lögfræðiáliti á því hvort úrskurðir verkfallsstjórnar og fulltrúa KÍ í undanþágunefnd sem gefnir voru út áður en verkfalli var frestað skuli gilda áfram og er það niðurstaða álitsins að þeir séu í gildi. Forsætisráðherra vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað fyrr en að loknum ríkisstjórnar- fundi í dag. Verkfall grunnskóla- kennara hafið að nýju Morgunblaðið/Golli Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út í verkfallsmiðstöð kennara í Reykjavík þegar úrslitin voru ljós. Sáttafundi slitið „VIÐ vonum að það renni upp ljósið fyrir launanefndinni og þeir sjái að það er þetta sem þarf til,“ sagði Eiríkur Jónsson, formaður KÍ, um hug- myndir sem kennarar lögðu fram til lausnar deilunni í gærkvöldi. Að sögn Birgis Björns Sigurjónssonar hjá launanefndinni eru hugmyndir kennara, sem fela í sér 36% kostnaðarauka, algerlega óyfirstíganlegar. Kennaraverkfallið/4, 27 Fundur boðaður á miðvikudag Morgunblaðið/Golli „VINKONA mín hringdi í mig áðan [í gærkvöldi] og sagði við mig „gleðilegt verkfall“,“ sagði Erla María Mark- úsdóttir, nem- andi í 10. bekk í Langholts- skóla, eftir að ljóst var að verkfall hæfist á ný í grunnskólum í dag. Henni finnst stressandi að hugsa til þess hve stutt sé í samræmd próf og að verkfall megi ekki standa lengur en viku, eigi allt að ganga upp hjá sér í sam- bandi við prófin. Blendnar tilfinningar Hún segist þó hafa blendnar tilfinningar til þess að verkfall sé hafið að nýju. „Eins og síð- ustu sex vikur voru þá var frek- ar þægilegt að vakna á hádegi, kannski læra eitthvað smá og gera þetta bara eins og manni sýndist. En svo fer maður að hugsa að það sé líka þægilegt að gera þetta bara í skólanum, vakna á skikkanlegum tíma og svona.“ Erlu finnst tilhugsunin um samræmdu prófin í vor mjög stressandi. „Ég var að heyra í dag [í gær] að það væru bara einhverjir 75 dagar í sam- ræmdu prófin og ég er ekki einu sinni búin að ákveða hvaða próf ég ætla að taka,“ segir Erla. Hún segir að verkfallið megi varla standa meira en eina viku í viðbót til að allt gangi upp fyrir prófin. „Gleðilegt verkfall“ Erla María Markúsdóttir KENNARAR í Arkansas í Bandaríkj- unum eru aftur teknir til við að gauka að börnunum sælgæti þegar þau standa sig vel. Var það bannað um stund en síðan leyft aftur. Skólayfirvöld í Pulaski-sýslu skip- uðu svo fyrir í síðasta mánuði, að kennarar mættu ekki gefa börnunum sælgæti og ís þótt þau ynnu heima- vinnuna sína og töldu sig þá vera að fara eftir nýjum lögum, sem eiga að vinna gegn offitu meðal barna. Skólayfirvöld í ríkinu hafa nú leið- rétt þennan misskilning. Segja þau, að lögin segi bara, að fylgst skuli með holdafari barnanna. Kennurum sé hins vegar ekki bannað að fóðra þau á sælgæti. Áfram með sælgætið Little Rock. AP.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.