Morgunblaðið - 09.11.2004, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 09.11.2004, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2004 31 UMRÆÐAN BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið, Kringlunni 1, 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is ÁRATUGUM saman hafa menn mátt horfa upp á fólksflóttann úr sveitum landsins sem enn heldur áfram. Því miður hefur þessi flótti alla tíð verið gjörsamlega skipu- lagslaus og kylfa ráðið kasti um eyðingu byggðanna. Það virðist kominn tími til að koma einhverri skipan á téðan flótta t.d. með því að ákveða hvaða byggðum og hvaða jörðum skuli helst reyna að forða frá því að falla í eyði. Í því sambandi má eflaust búa til einhverja hvata eða jafnvel setja lög sem að gagni kæmu. Maður kemst ekki hjá því að sjá að nýtt afl er tilkomið í sambandi við þróun byggða í sveitum landsins. Það er svo kom- ið að ef jarðir eru til sölu eru það ekki ungir menn sem hyggja á búskap sem þær kaupa heldur undantekningarlítið auðmenn af höfuðborgarsvæðinu. Við þá geta engir vanalegir menn keppt. Margar þær jarðir sem þessir menn kaupa leggja þeir svo í eyði eftir eigin geðþótta með því að selja af þeim fullvirðisréttinn eða færa hann milli landshluta þar sem leiguliðar þeirra annast framleiðsluna. Laxveiðijarðir eru í sérstakri umsát hjá þessum pen- ingamönnum og sveima þeir yfir þeim hvort sem þær eru til sölu eða ekki. Það virðist því nokkuð ljóst hvert þær lenda. Ekki ætla ég að dæma um það hvort þessum mönnum þyki vænna um krónurnar sínar eða byggðir landsins. Það læt ég öðr- um eftir, en ekki vil ég sjá áhrif þeirra á þróun byggða í sveit- unum eins mikla og orðið er, hvað þá meiri. Sveitarfélögin fá ekki rönd við reist þar sem þeirra eina vopn hefur verið frá þeim tekið þ.e. forkaupsrétturinn á jörð- unum. Mér finnst mönnum nokk- uð laus gefinn taumurinn ef þeir geta leyft sér að höggva skörð í byggðir landsins hvar og hvenær sem er, eins og þeim býður við að horfa. Verði ekki reynt að stemma stigu við þessari þróun býður mér í grun að þessir menn eigi eftir að breyta ásýnd margra sveitarfé- laga. Auk þess er óséð hvernig þeir muni hugsa um eyðibýlin sín. Það fylgja því nokkrar skyldur að eiga jörð þótt í eyði sé. Mér finnst reyndar ekki óeðli- legt að sá sem kaupir vel setta og góða jörð í fullum rekstri sé skyldaður til að halda henni í byggð um visst árabil og væri svo hygg ég að draga myndi úr þess- ari óheillaþróun. Að sjálfsögðu tel ég það í verkahring ráðamanna í landbúnaði og sjálfs Alþingis að taka á þessu máli. VIGFÚS B. JÓNSSON, Laxamýri. Eiga auðmenn að ráða byggða- þróun í sveitum landsins? Frá Vigfúsi B. Jónssyni: EINS OG flestir vita þá hefur verið verkfall hjá kennurum og mjög svo líklegt að það muni halda áfram. Þessi miðlunartillaga er kjaftæði … núverandi árslaun 26 ára umsjón- arkennara (með 3 pottflokka) eru 2,1 milljón, og samkvæmt miðl- unartillögunni þá verða árslaun 26 ára umsjónarkennara (með 3 pott- flokka) árið 2008 eitthvað um 2,6 milljónir (að meðaltali) … ég bið ykk- ur á að átta ykkur á því að þeir eru háskólamenntaðir og hafa margir minna menntaðir 3,3 milljónir í árs- laun, er það sanngjarnt? Meina, er það ekki rétt að því meira sem fólk er menntað því hærri ættu launin að vera? Ekki lægri eða er þetta bara misskilningur í mér!?! Og hvað mun ske? Ég býst við því, og aðrir líka, að kennarar samþykki ekki tillöguna og fari aftur í verkfall, og hvað svo? Sveitarfélögum fannst tillagan of há og kennurum of lág? Svo það myndi ekkert vera samið. Þá yrðu sett lög á kennara, kennarar myndu þá segja upp og ekki láta bjóða sér þetta. Uppsagnarfrestur er 3 mánuðir svo það yrði kennt í 3 mán. og svo myndu allir hætta … og já … hvað svo … Ísland án kennara? Eig- um við að fá einhverja innflytjendur úr fiskvinnslunni til að kenna krökkunum? Nei, kannski ekki … Pælið í einu, kennarastarfið er eitt mikilvægasta starf sem til er … mik- ilvægara en forsetaembættið myndi ég halda … hver kenndi Ólafi forseta að reikna? Kennarar! En að lesa? Kennarar! Svo … ef kennararnir segðu allir upp og krakkarnir kæm- ust ekki í skóla, hvað skeði þá? Fram- tíðin væri beina leið niður til helv… Engir læknar, engir lögfræðingar, ekkert fólk á kössunum í Bónus þar sem enginn væri til að kenna neinum neitt … Svo hvar enda krakkarnir … á meðan þetta verkfall stendur? Krakkarnir hafa ekkert að gera því allir neita að semja, svo þeir hanga heima … horfa á sjónvarpið, kíkja niður í bæ að fá sér í glas eða hanga heima úti í bílskúr að reykja hass! Voðalega spennandi eitthvað … Og fólk vill kenna kennurum um? Meina, af hverju að kenna þeim um? Af hverju ekki sveitarfélögunum, þau vilja ekki semja … Ég skil kennara vel, háskólamenntaðir kennarar bún- ir að eyða mörgum árum í skóla á meðan aðrir skreppa rétt svo í iðn- skólann og fá svo helmingi hærri laun … er það réttlátt? Fólk! Ekki kenna kennurum um! Þeir eru fólk líka sem á fjölskyldur sem þarf að sjá fyrir. Meina, af hverju fóru kennararnir bara ekki í bifvélavirkjun og slepptu því að kenna? Jú, miklu þægilegra og kannski meiri laun en … næsta kyn- slóð myndi þá ekki kunna neitt … við færum aftur á byrjunarreit í öllu … gætum alveg eins farið aftur á land- námsöld. Þá þurfti fólk ekki að lesa eða reikna dæmi eins og gert er í skólum núna. Ekki þurfti að fá raf- virkja til að gera við rafmagn því það var ekkert rafmagn. Til að komast áfram í lífinu þurfum við að kunna nauðsynlega hluti sem KENNARAR kenna okkur. Svo eiga þeir ekki skilið á fá nógu góð laun til að kenna venju- legan vinnutíma og geta séð fyrir fjölskyldunum! Ég styð kennara og vona að aðrir geri það líka. Vona að þeir semji sem fyrst og það verði þá öllum í hag. Ég styð einnig annað fólk til að láta í sér heyra og standa með kennurum. Reynið að átta ykkur á því hve mik- ilvægt starf kennarar vinna. Vona að þið sýnið smáskilning á þessu. ANNA ÞORSTEINSDÓTTIR, Lyngrima 5, 112 Reykjavík. Líf án kennara? Frá Önnu Þorsteinsdóttur, nemanda í 10. bekk í grunnskóla í Reykjavík: KÆRU Siv Friðleifsdóttir og Val- gerður Sverrisdóttir. Fimmtudaginn hinn 14. október 2004 birti Morgunblaðið mjög at- hyglisverða grein eftir Guðrúnu Lilju Hólmfríðardóttur. Í þessari grein ber höfundur ákveðinn geðlækni, stjórnendur Ríkisútvarpsins og nýskipaðan hæstaréttardómara þungum sök- um. Fyrir okkur flest er það ger- samlega ómögulegt að gera sér grein fyrir sannleiksgildi þessara ásakana. Það er okkur jafnframt óskiljanlegt hvernig þeir sem sök- unum eru bornir geta starfað áfram í þágu almennings án þess að þær verði rannsakaðar og af- sannaðar. Ég fluttist frá Íslandi 1984 og hef síðan verið búsettur í Þýska- landi, Danmörku, Svíþjóð og á Englandi. Ég er ekki í nokkrum vafa um að ef slíkar ásakanir kæmu fram í virtum fjölmiðli ein- hverra þessara landa yrðu þær teknar mjög alvarlega og taf- arlaust rannsakaðar til þess að komast að sannleiksgildi þeirra. Það er mín skoðun að það sé skylda íslenskra stjórnvalda að sjá til þess að skipuð verði opinber rannsóknarnefnd sem fái það hlut- verk að komast að því hvort ásak- anir Guðrúnar Lilju séu sannar eða ósannar. Eruð þið sammála þessari skoð- un minni? Bestu kveðjur. PS. Til þess að koma í veg fyrir misskilning vil ég taka fram að ég þekki engan sem tengist þessu sérstaka máli og hef þess vegna engra hagsmuna að gæta annarra en þeirra að mér er umhugað um að Íslendingar geti í framtíðinni talist til siðmenntaðra þjóða. SIGMUNDUR GUÐMUNDSSON, Nöbbelövs kyrkoväg 105, 226 53, Lundi, Svíþjóð. Opinber rann- sókn – opið bréf til Sivjar Friðleifsdótt- ur og Val- gerðar Sverr- isdóttur Frá Sigmundi Guðmundssyni stærðfræðingi: ákveðnu siðferðilegu gildismati í hávegum, sýna það í verki og vera reiðubúnir til að hlúa að því og treysta. Í þessu samhengi má nefna hugtakið stjórnun sem byggist á gildismati. Fyrirtæki hafa komið á form- legu skipulagi og kerfum til að tryggja siðferðiskennd starfs- manna. Meðal leiða til þess er að setja á stofn siðanefnd stjórnenda eða ráða siðferðilegan umboðs- mann, sem heldur á lofti siða- reglum og lætur sig varða siðferði- leg álitamál innan fyrirtækisins. Rannsókn sem Center for Bus- iness Ethics gerði nýlega leiddi í ljós að 90% af 500 stærstu fyr- irtækjum Bandaríkjanna og um helmingur annarra fyrirtækja hafa mótað skriflegar siðareglur. Slíkar reglur kveða yfirleitt skýrt á um til hvers er ætlast og hvað starfs- menn geta gert þegar þeir verða varir við siðferðileg álitamál. Um helmingur fyrirtækjanna fylgir síðan reglunum eftir með þjálfun. Til að mynda gangast allir starfs- menn Texas Instruments undir átta klukkutíma þjálfun. Þar að auki hefur fyrirtækið fellt kafla um siðferðileg sjónarmið inn í öll námskeið sem það heldur. Ætlum við að byrgja brunninn? Það er auðvelt að vera vitur eftir á, þegar staðreyndir málsins liggja fyrir, t.d. í skýrslu samkeppn- isráðs. Það er líka auðvelt að benda á einstaklinga eins og borg- arstjóra og forstjóra olíufélaganna og krefjast þess að eitthvað sé gert í málinu. Mikilvægari spurn- ingar sem snerta okkur sjálf eru: Ef þeir hefðu haft siðareglur til að styðjast við, hefðu þeir getað kom- ist hjá því að festast í gildrum sið- ferðilegra álitamála? Þarft þú á því að halda að fyrirtæki þitt komi á og fylgi slíkum reglum? Hér á landi hefur fjöldi fag- félaga og samtaka samið siða- reglur sem gilda eiga um fé- lagsmenn. Það er vel. Ekki er eins áberandi að einstök íslensk fyr- irtæki hafi samið slíkar reglur, þótt starfsfólk þeirra, allt frá stjórn og forstjóra til afgreiðslu- fólks, þurfi sífellt að taka afstöðu til siðferðilegra álitamála. ’Getur einn einstak-lingur staðið upp og sett puttann á meinið? Hvaða afleiðingar hefur það í för með sér fyrir starfsmanninn innan fyrirtækisins?‘ Höfundur rekur rekstrarráðgjafa- stofuna Afl til framtíðar. á morgun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.