Morgunblaðið - 30.11.2004, Page 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Refum hefur fjölgaðmikið hér á landi áundanförnum ald-
arfjórðungi. Ársveiðin hef-
ur aukist með stækkun
stofnsins og komst upp í
um 5 þúsund dýr 2003.
Refir voru alfriðaðir á
Hornströndum og öðrum
friðlýstum svæðum frá 1.
júlí 1994. Þeim hefur fjölg-
að talsvert á Hornströnd-
um og er töluvert streymi
refa út úr friðlandinu.
Frjósemi dýranna hefur
ekki minnkað þrátt fyrir
mikla fjölgun í stofninum
og þykir það benda til þess
að enn sé svigrúm til auk-
innar fjölgunar.
Í refanefndinni sátu Sigríður
Auður Arnardóttir frá umhverfis-
ráðuneyti, Áki Ármann Jónsson
frá Umhverfisstofnun, Hrafnkell
Karlsson frá Bændasamtökunum,
Ívar Erlendsson frá Skotveiði-
félagi Íslands, Jónas Helgason frá
Æðarræktarfélagi Íslands, Krist-
inn Haukur Skarphéðinsson frá
Náttúrufræðistofnun Íslands,
Snorri H. Jóhannesson frá Félagi
atvinnuveiðimanna í ref og mink
og Soffía Lárusdóttir frá Sam-
bandi íslenskra sveitarfélaga.
Ríki og sveitarfélög borga
Hið opinbera hefur stutt við
refaveiðar, líkt og minkaveiðar, í
því markmiði að koma í veg fyrir
tjón af þeirra völdum. Samhliða
fjölgun refa hefur kostnaður við
refaveiðar aukist. Heildarkostnað-
ur ríkis og sveitarfélaga vegna
refaveiða 1989 var rúmlega 42
milljónir á núgildandi verðlagi.
Ríkissjóður greiddi um 20 milljón-
ir af því. Endurgreiðsluhlutfall rík-
issjóðs lækkaði úr 50% í 30% 2003.
Það ár var heildarkostnaður af
veiðunum 55 milljónir en hlutur
ríkissjóðs af því ekki nema 6,9
milljónir. Sveitarfélögin þurfa að
greiða vsk. af greiðslunum sem
lækkar raunkostnað ríkissjóðs
verulega. Samkvæmt viðmiðunar-
taxta fyrir árið 2004 eru mest
greiddar 7 þúsund kr. í verðlaun
fyrir fullorðna refi og 1.600 kr. fyr-
ir yrðlinga. Endurgreiðslur ríkis-
ins til sveitafélaga skulu nema
mest 50% af ofangreindum verð-
launum. Mörg sveitarfélög hafa
einnig greitt sérstaklega fyrir
grenjavinnslu, svo sem tímakaup
grenjaskyttu og aðstoðarmanns,
akstur auk verðlauna fyrir unnin
dýr. Önnur hafa greitt fasta þókn-
un sem miðast við umfang grenja-
vinnslunnar.
Stofnstærðarlíkan smíðað
Meirihluti nefndarinnar leggur
til að fyrirkomulag refaveiða verði
svipað næstu fimm árin og það hef-
ur verið til þessa. Gert verði stofn-
stærðarlíkan til að fá nákvæmari
upplýsingar um stærð refastofns-
ins, vanhöld, viðkomu og áhrif um-
hverfisþátta og mismunandi veiði-
álags. Staðan verði síðan metin að
fimm árum liðnum.
Grenjavinnsla verði áfram
stunduð með svipuðu sniði og hing-
að til. Vetrarveiðar verði stundað-
ar áfram en skipulag bætt þannig
að þeir sem stunda veiðar við æti
tilkynni viðkomandi sveitarstjórn
fyrirhugaðar veiðar.
Umhverfisstofnun (UST) útbúi
miðlægan gagnagrunn og skrái í
hann upplýsingar frá veiðimönn-
um um greni og tjón af völdum
refa í landbúnaði.
Deilt um friðlönd
Óbreytt fyrirkomulag verði
hvað varðar refi í friðlandinu á
Hornströndum, en að veiðar verði
efldar við jaðar friðlandsins og að
fylgst verði með viðgangi refa í
friðlandinu. UST skoði í samvinnu
við Náttúrufræðistofnun og við-
komandi sveitarfélög hvort hægt
verði að aflétta friðun refa í
ákveðnum friðlöndum, eins og
Búðarhrauni, Herdísarvík og Geit-
landi. Snorri H. Jóhannesson gerði
fyrirvara við þetta atriði og taldi
enga rannsóknarhagsmuni krefj-
ast þess að ekki væri veitt í frið-
löndum og þjóðgörðum. Þótt slík
friðun breyti litlu um heildarvið-
gang stofnsins væri hún óæskileg
fyrir sveitarfélög sem bæru ærinn
kostnað af veiðum á nærliggjandi
svæðum.
Jónas Helgason skilaði séráliti
og vill m.a. leyfa veiðar á ref í frið-
löndum og telur stórfellt umhverf-
isslys í uppsiglingu í Hornstranda-
friðlandinu. Með friðunarstefnunni
sé verið að reka uppeldisstöðvar
fyrir refi sem síðan flæði yfir á að-
liggjandi svæði. Hann vill herða
refaveiðar og að umsjón þeirra
verði færð frá veiðistjórnunarsviði
UST til sérstaks verkefnisstjóra
og -nefndar sem minkanefnd lagði
til.
Þá leggur meirihluti nefndar-
innar til að unnið verði námsefni
fyrir veiðimenn um aðferðir við
grenjavinnslu, vetrarveiði, skot-
húsveiði og líffræði refsins.
Nefndin leggur til að endur-
greiðsluhlutfall ríkissjóðs verði
50% af verðlaunum fyrir veidda
refi, samkvæmt viðmiðunartaxta
næstu 5 árin. Hinn helmingurinn
hefur verið greiddur af sveitar-
félögunum. Verðlaun vegna refa-
veiða verði undanþegin virðisauka-
skatti eða hann endurgreiddur.
Nefndin áætlaði að miðlægur
gagnagrunnur kostaði 1,5 milljón-
ir, gerð stofnlíkans 4,8 milljónir og
gerð námsefnis 0,5 milljónir.
Fréttaskýring | Refum hefur fjölgað mikið
Halda þarf ref
í skefjum
Refaveiðar verði svipaðar næstu fimm
ár meðan unnið er að nýju skipulagi
Refir hafa víða sést í byggð undanfarið.
Nefnd um áhrif refa í ís-
lenskri náttúru og veiðar
Umhverfisráðherra skipaði
nefnd hinn 15. desember 2003 til
að fjalla um áhrif refa í íslenskri
náttúru, gera tillögur um að-
gerðir til að draga úr tjóni af
völdum refa og að fjalla um við-
gang refa á vernduðum svæðum
og áhrif á lífríkið þar. Nefndin
skilaði ítarlegu áliti og tillögum
23. júní sl. Ná tillögurnar til
næstu fimm ára og er áætlaður
kostnaður vegna þeirra 30 millj-
ónir króna á næstu fimm árum.
gudni@mbl.is
STJÓRN Samtaka verslunar og
þjónustu (SVÞ) telur að það eigi
fremur að vera markmið stjórnvalda
að efla almenna verslun í landinu,
sem skilar samfélaginu eðlilegum og
almennum tekjum, en að reka toll-
frjálsa komuverslun í flugstöðvum í
beinni samkeppni við innlenda versl-
un. Því eigi að afleggja tollfrjálsa
komuverslun í Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar og á öðrum flugvöllum.
Stjórn SVÞ segir að eðlilegt væri
að einungis þeir sem búsettir séu í
útlöndum geti keypt skattfrjálsan
varning við komu til landsins líkt og
þeir geta nú gert í verslunum um
allt land. Núverandi fyrirkomulag,
sem heimili öllum sem koma til
landsins að kaupa vörur í komu-
verslun Fríhafnarinnar án virðis-
aukaskatts og annarra gjalda,
skekki samkeppnisstöðu annarra
verslana í landinu.
Þá ítrekar stjórn SVÞ þá skoðun
sína að ríkið dragi sig út úr versl-
unarrekstri í Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar og komi honum í hendur
einkaaðila. Óeðlilegt sé að ríkið taki
sér einkaleyfi á verslun með snyrti-
vörur, rafmagnstæki og aðra sér-
vöru í flugstöðinni og haldi uppi
samkeppni við einkarekna verslun
leigutaka í flugstöðinni og almenna
verslun í landinu. Það er með öllu
óviðunandi að Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar sé báðum megin borðs,
þ.e.a.s. bæði leigusali og keppinaut-
ur leigutaka.
Vilja leggja af
tollfrjálsa versl-
un á flugvöllum
ÞAR sem Sigmund Jóhannsson
teiknari er í fríi er engin mynd frá
honum birt í dag. Hann verður hins
vegar væntanlega á sínum stað í
blaðinu á morgun.
Sigmund í fríi
FUGLARNIR spóka sig á Tjörninni og þrífa í hlákunni,
sem unnið hefur hratt á ísnum síðustu daga. Sam-
kvæmt veðurspá næstu daga er ólíklegt að ísinn muni
aukast á ný, þótt eitthvað kólni í veðri. Álftir, endur og
annað fiðurfé við Tjörnina slá ekki vængjum móti
brauðmolum og öðru góðgæti af vegfarendum.
Morgunblaðið/Ómar
Fuglarnir spóka sig
FJÖLMENNINGARRÁÐ og prest-
ur innflytjenda, Toshiki Toma, skora
á stjórnvöld að skerða ekki fjárfram-
lög til Mannréttindaskrifstofu Ís-
lands (MRSÍ) frá fyrra ári.
Minnt er á að starfsemi MRSÍ
varði oft mannréttindi útlendinga og
fólks af erlendum uppruna auk þess
sem hún leggi mikilsvert framlag til
almennra mannréttindamála innan-
lands og ekki síst á alþjóðlegum vett-
vangi. Njóti MRSÍ ekki áfram fjár-
veitinga frá stjórnvöldum verði
óbreytt starf hennar ekki tryggt.
Framlag til
MRSÍ verði
ekki skert
♦♦♦