Morgunblaðið - 30.11.2004, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 30.11.2004, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2004 41 DAGBÓK Góð þjónusta MIG langaði til að koma á fram- færi ánægju minni með þjónustu sem ég fékk hjá Og Vodafone. Ég fór í símabúðina Og Vodafone í Kringlunni í síðustu viku. Ég var í vandræðum með síma sem ég hafði fengið að gjöf en kunni ekki al- mennilega á. Þar fékk ég yndislega þjónustu frá ungum manni sem gaf sér nóg- an tíma til að leiðbeina mér. Ég spurði hann hvað hann héti og hann sagðist heita David. Hann talaði góða íslensku. Hulda viðskiptavinur. Máttlaus neytendasamtök ÞAÐ er alveg einkennilegt að eftir öll lætin kringum olíufélögin skuli ekki vera neinn þrýstingur á þau að lækka bensínið. Ég sé líka ekki betur en að verðið sé nokkurn veg- inn það sama alls staðar ennþá. Er það eðlilegt? Dollarinn hefur hrunið og olíuverðið er á hraðri niðurleið. Er þetta ekki eitthvað sem Neytendasamtökin ættu að gera allt vitlaust út af? Ég bara spyr. Einnig finnst mér alveg dæma- laus ósvífni að þrátt fyrir áður- nefnt hrun dollarans skuli t.d. Cheerios-pakkinn hafa hækkað! Ég spyr aftur, hvar eru Neyt- endurnir? Erum við kannski bara svo vön því að allt hækki, það komi ekki til greina að eitthvað lækki? Látum ekki traðka á okkur. Jónína. Brúnt skinn týndist NÚ þegar farið er að kólna, sakna ég skinns sem ég tapaði. Þetta er brúnt skinn sem ég nota sem trefil um hálsinn. Ef einhver hefur fundið skinnið þætti mér vænt um að endur- heimta það, ég hef nánari lýsingu á því. Með fyrirfram þakklæti, Stef- anía, sími 895 5707. Mosi er týndur MOSI er þriggja ára gulbrönd- óttur högni, eyrnamerktur og með ól. Hann hvarf frá heimili sínu í Fossvogi 24. nóvember og er hans sárt saknað. Ef einhver hefur séð Mosa þá vinsamlega hafið sam- band í síma 553 8543. Velvakandi Svarað í síma 569 1100 kl. 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is. Við þurfum að þekkja vel til þeirra ferða-manna sem heimsækja okkur til þess aðvið getum gert vel við þá, veitt góða þjón-ustu og látið þeim líða vel. Það eykur lík- urnar á að þeir verði ánægðir með dvölina, komi jafnvel aftur og að fleiri leggi leið sína hingað. Þetta á auðvitað við um samkynhneigða eins og aðra,“ segir Frosti Jónsson, skipuleggjandi morgunverð- arfundar og vinnustofu um móttöku samkyn- hneigðra ferðamanna sem fram fer á fimmtudaginn kl. 10 í Kornhlöðunni við Lækjarbrekku. Þar verð- ur m.a. rætt um ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæð- inu út frá sjónarhorni samkynhneigðra og þeirra þarfa sem samkynhneigðir ferðamenn hafa. Á fundinum og vinnustofunni verður m.a. rætt um spurningar eins og hvað þurfi að vera í kynn- ingarbæklingi fyrir samkynhneigða ferðamenn; spurningar og svör er varða gay Ísland. Hvað þurfi til svo skemmtistaður fyrir samkynhneigða haldist opinn og hvað samfélag samkynhneigðra þurfi að hafa í huga svo gestum líði vel. Hversu mikilvægur ferðamannahópur eru sam- kynhneigðir? „Samkynhneigðir ferðast mikið og líklega meira en flestir aðrir hópar. Fjölmörg fyrirtæki erlendis, einkum í Bandaríkjunum, gera sér grein fyrir þessu og leggja sig fram við að höfða til samkyn- hneigðra á þeirra forsendum. Miðað við þær tölur sem við höfum erlendis frá um ferðavenjur sam- kynhneigðra má ætla að til Íslands komi milli 30–40 þúsund ferðamenn á þessu ári. Þetta er fjölmennur hópur sem okkur munar um. Og þessi hópur verður jafnvel enn mikilvægari ef við lítum til þess með hliðsjón af erlendum rannsóknum að samkyn- hneigðir eru að öllu jöfnu vel settir fjárhagslega, eru líklegri til að skipta við fyrirtæki sem höfða beint til þeirra og eru reiðubúnir að greiða hátt verð fyrir góðar vörur og þjónustu.“ Hvað má bæta í þjónustu við þennan hóp? „Ég held að við getum alltaf verið að bæta okkur. Og við þurfum á því að halda að vera sífellt að bæta okkur. Ferðaþjónusta hefur vaxið jafnt og þétt á undanförnum árum og skilar miklu til þjóðfélags- ins. Fjölbreytni í ferðamennsku er líka að aukast og kröfur ferðamanna breytast en í því felast líka fjöl- mörg tækifæri. Samkynhneigðum ferðamönnum þarf að gefa gaum ekki síður en öðrum ferðamönn- um þó í fjölmörgum tilvikum séu þeir að sækjast eftir því sama, t.d. íslenskri náttúru. Samkyn- hneigðir leita hins vegar gjarnan eftir því að um- gangast sína líka og þess vegna er ekki víst að það sem hafi átt ágætlega við um aðra hópa eigi endi- lega vel við um þá.“ Ferðaþjónusta | Fundur og vinnustofa um móttöku samkynhneigðra ferðamanna Ferðast mikið og eru efnaðir  Frosti Jónsson fæddist í Reykjavík árið 1972. Hann lauk BA í sálfræði frá Háskóla Íslands og er nú við það að ljúka meistaranámi í hagvís- indum við Viðskiptahá- skólann á Bifröst. Haustleikarnir í Flórída. Norður ♠KD85 ♥G52 V/Enginn ♦KG85 ♣D7 Vestur Austur ♠G963 ♠107 ♥10 ♥K864 ♦ÁD962 ♦103 ♣K42 ♣G10653 Suður ♠Á42 ♥ÁD973 ♦74 ♣Á98 Vestur Norður Austur Suður 2 tíglar * Pass 2 hjörtu * Pass 2 spaðar Pass 3 lauf Pass Pass Dobl Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass Egyptarnir Tarek Sadek og Walid Elahmady unnu Blue Ribbon- tvímenninginn á haustleikunum í Or- lando. Sigur þeirra var öruggur, en í næstu sætum voru Levin/Weinstein, Casen/Krekorian, Meckstroth/Rodwell og Berkowitz/Cohen. Jón Baldursson og Þorlákur Jónsson voru meðal þátt- takenda og enduðu í 39. sæti, en 208 pör hófu keppnina. Spil dagsins er frá Blue Ribbon- keppninni. Fjögur hjörtu var algengur samningur í NS, oftast unninn með einum yfirslag. David Berkowitz fékk hjálplegar sagnir. Opnun vesturs sýndi þrílita hönd og 10–13 punkta. Svarið á tveimur hjörtum var leitandi og þegar AV höfðu sest að í ágætum laufbút, kom Larry Cohen til bjargar með verndardobli og þá rauk Berkowitz í hjartageimið. Vestur kom út með smáan spaða. Berkowitz tók á kónginn í borði og lagði af stað með hjartagosa. Hann átti slaginn og Berkowitz svínaði aftur í trompinu. Spilaði síðan tígli að blind- um. Vestur tók á ásinn og spilaði spaða. Það var tekið heima og tígul- gosa svínað. Svo kom hjarta á drottn- inguna, hjartaás og laufi hent úr borði. Laufásinn og síðasta hjartað sáu svo um að þvinga slag af vestri í lokin: 12 slagir og 20,5 stig af 25 mögulegum. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is JAPANSKA myndasöguhefðin Manga er viðfangsefni fyrirlesturs sem Úlfhildur Dagsdóttir heldur í kvöld á vegum Íslensk-japanska fé- lagsins, á þriðju hæð Alþjóðahússins við Hverfisgötu. Manga hefur nokkra sérstöðu inn- an myndasagna og sker sig um margt frá öðrum myndasögu- hefðum, svo sem þeim bandarísku og evrópsku. Þetta er sérstaklega áberandi hvað varðar notkun mynd- máls, en japanska myndasagan er gjarnan talin mun þróaðari í því að segja sögu í myndum. Japanska myndasagan mótaðist í samspili við vestræn áhrif, en Jap- anir voru fljótir að tileinka sér þetta form og gera það að sínu og upp úr aldamótunum þróast sjálfstæð hefð og í dag er japanski myndasöguiðn- aðurinn sá stærsti í heiminum. Það sem helst einkennir japanskar myndasögur umfram aðrar er þykktin, en sögurnar eru almennt lengri en á vesturlöndum og kemur það til af því að heilmikið pláss er tekið undir orðlausa atburðarás, eða réttara sagt, orðlaust yfirlit yfir svið, sem jafnframt því að skapa tákn- rænan bakgrunn, hægir á atburða- rásinni og gefur sögunum meiri fyll- ingu. Annað einkenni Manga er að rammarnir eru á stöðugri hreyfingu, því sjónarhornin eru iðulega mörg á hverri síðu og þegar þetta tvennt kemur saman verður frásagnar- aðferðin allólík því sem gerist í vest- rænum myndasögum. „Þessi sérstæði frásagnarmáti skapar annarskonar innlifun lesand- ans,“ segir Úlfhildur, sem kennir bókmenntafræði við Háskóla Ís- lands. „Í erindinu mun ég leggja áherslu á þetta sérstæði japönsku myndasögunnar, jafnframt því að reyna að sýna fram á fjölbreytnina, en margir álíta að allar myndasögur séu eins, bæði milli ólíkra hefða og innan þeirra.“ Japanskar teiknimyndasögur í Alþjóðahúsi Myndmál Manga-teiknimyndasagna er gjarnan litríkt og lifandi. Fyrirlesturinn hefst kl. 20.30 og er aðgangur ókeypis. Netsalan ehf. - Knarrarvogi 4, - 104 Reykjavík - Sími 517 0220 - www.netsalan.com - Opið virka daga frá 10-18 Ótrúlegt en satt! - Sérstakt tilboð á örfáum bílum Mun fjármálaráðuneytið hækka vörugjald á pallbílum? Ford F350 Lariat Lux Crew Cab 4ra dyra, Super duty, 4x4, stutt skúffa. Diesel 6.0l, V8, 325 hö. Verð 3.995.000 Dodge Ram 2500 quad cab Laramie, 4x4, stutt skúffa, Diesel 5.9l, I6, 325 hö. Verð 4.490.000 Grand Cherokee Laredo 4x4 3.7l, V6, 210 hö. Verð frá 3.990.000 Grand Cherokee Limited 4x4 5,7 l. Hemi V8, 330 hö. Verð 5.395.000 Allir bílarnir eru 2005 árgerð. Aðeins sérpantanir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.