Morgunblaðið - 30.11.2004, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 30.11.2004, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2004 21 DAGLEGT LÍF Foreldrar standa sig almenntmjög vel í að kenna börn-um sínum að gefa sig ekki á tal við ókunnuga og þiggja hvorki bílfar né heimboð af þeim að mati Vigdísar Erlendsdóttur sálfræðings, forstöðumanns Barnahúss. Atvikið sem gerðist í síðustu viku þar sem 9 ára gömul stúlka var numin á brott í bíl sé al- gjört undantekningartilfelli. Vigdís hefur verið forstöðumað- ur Barnahúss í 6 ár og segir hún að mál af þessu tagi séu afar fátíð. „Börn sem koma í Barnahús hafa flest orðið fyrir kynferðisofbeldi, oft á tíðum í sínu nánasta um- hverfi. Þau fá sérstaka fræðslu um hvernig forðast beri að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi þar og hvernig bregðast skuli við ef þau verða fyrir slíku. En mér hefur sýnst að þessi börn hafi yfirleitt kunnað þá ófrá- víkjanlegu reglu að gefa sig ekki að ókunnugum. Allt frá mjög ung- um börnum, segir hún. „Foreldrar vara börn sín almennt við ókunnugum. “ Vigdís segir tilvikið í síðustu viku hafi verið mjög sérstakt og stúlkunni talin trú um að móðir hennar lægi alvarlega slösuð á spítala. Þrátt fyrir að þessi stúlka hafi vel vitað af þessari megin- reglu voru aðstæður ófyrirsjáan- legar vegna þess að hún var blekkt. Þegar börn eru nörruð með svo alvarlegum blekkingum sé úr vöndu að ráða. Það sé hins vegar mjög einfalt að kenna börnum þá reglu að varast ókunnuga og leggja þarf áherslu á að reglan sé ófrávíkjanleg. „Það er ekki flókn- ara að vara börn við að gefa sig að ókunnugum en að vara þau al- mennt við hættum. Þetta er ein- faldlega bannað. Ef börnin spyrja hvers vegna er svarið einnig einfalt: Ókunnugir geta verið hættulegir. Ástæða er til að minna börnin reglulega á það langt fram eftir aldri.“ Börn eiga aldrei að gefa sig að ókunnugum  UPPELDI Morgunblaðið/Kristján Ef börn spyrja hvers vegna ekki megi tala við ókunnuga er svarið einfalt, segir Vigdís Erlendsdóttir sálfræðingur: Ókunnugir geta verið hættulegir. Of mikið hreinlætivið fæðingu get-ur seinkað þroska ónæmiskerfis barnsins því bakteríur sem flytjast frá móður til barns við fæðinguna geta varið það gegn of- næmi. Niðurstöður nýrr- ar sænskrar rannsóknar sem greint er frá í Dag- ens Nyheter benda til þessa. Áður er þekkt að fá- tækt, mörg systkini og landbúnaðarumhverfi geti verndað gegn ofnæmi því þetta eru breytur sem auka líkur á náttúrulegri bakt- eríuflóru í þörmunum. Sú bakt- eríuflóra er nauðsynleg þroska ónæmiskerfisins því vanþroskað ónæmiskerfi kallar á viðbrögð við hættulausum efnum eins og frjó- kornum eða dýrahári. Börn sem tekin eru með keis- araskurði hafa oft vanþroskaða þar- maflóru þar sem þau komast ekki í snertingu við bakteríur úr leggöng- um móður eða þörmum. Það getur tekið upp undir ár fyrir þarmaflóru barna sem tekin eru með keisara- skurði að ná sama þroska og barna sem fæðast um leggöng. Vísindamenn við Sahlgrenska sjúkrahúsið í Gautaborg fylgdu 46 börnum frá fæðingu og tóku bakt- eríusýni úr þörmum. Hjá þeim sem höfðu ákveðnar bakteríur, af tegund svokallaðra stafylokokka, í þörmum þegar þriggja daga gömul, fjölgaði svokölluðum T-frumum verulega til fjögurra mánaða aldurs, en þær geta verið mælikvarði á hversu þroskað ónæmiskerfið er. Þessi börn sýndu engin ofnæmis- viðbrögð við birkifrjói en þau sem ekki höfðu bakteríurnar í þörmun- um sýndu ofnæmisviðbrögð. Þegar börnin 46 verða þriggja ára, munu vísindamennirnir bera saman tíðni ofnæmis hjá báðum hópum.  HEILSA Bakteríur sem flytjast frá móður til barns við fæðingu geta varið það gegn ofnæmi. Of mikið hreinlæti í fæðingu varasamt? SÉRSTAKT samband getur myndast milli hunda og eigenda þeirra og það nær langt út fyrir það að þeir búi í sama húsi. Þessir ánægðu og hamingjusömu fer- fættu vinir veita okkur stöðugt skilyrðislausa væntumþykju, vin- áttu og tryggð og nokkuð sem ekki er mörgum efst í huga – betri heilsu. Áreynslulaus eiginleiki þeirra að gleðja okkur minnkar hjá okkur tilfinningu fyrir streitu og áhyggjum og ekki nóg með það því með þessu geta þeir komið í veg fyrir streitusjúkdóma svo sem hjartaáföll. Dr. Joseph Mercola og Laina Krisik halda þessu fram á vefsíð- unni mercola.com. Þar kemur einnig fram að hundar eru í aukn- um mæli notaðir inni á sjúkra- húsum og á elli- og hjúkrunar- heimilum og sem fylgdarhundar fatlaðra. Hundaeign hefur jákvæð áhrif á bæði líkamlega og andlega heilsu eldri borgara samkvæmt Journal of American Geriatrics Society. Hundar geta lengt líf mannsins  GÆLUDÝR Morgunblaðið/Ásdís Talið er að hundar geti stuðlað að betri heilsu eigenda sinna. Aukin orka og vellí›an, sjaldnar kvef Fjölbreytt virkni í einum skammti. „Ég vinn mikla álagsvinnu sem orsakar streitu. Ég hef nota› Angelicu í flrjú ár me› rá›lög›um hléum og mér finnst Angelica vera bæ›i orkugefandi, kví›astillandi og ég fæ sjaldnar kvef. Mér finnst ég einnig finna gó› áhrif á meltinguna.“ Helga G. Gu›mundsdóttir tölvu- og kerfisfræ›ingur Reykjavík www.sagamedica.is Íslenskt náttúruafl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.