Morgunblaðið - 30.11.2004, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HALLDÓR Ásgrímsson forsætis-
ráðherra ítrekaði á Alþingi í gær að
engin breyting væri á stefnu ís-
lenskra stjórnvalda varðandi Írak.
Lét hann þau orð falla í umræðum
um málefni Íraks í upphafi þingfund-
ar. Tilefni umræðnanna voru um-
mæli Hjálmars Árnasonar, þing-
flokksformanns Framsóknarflokks-
ins, í sjónvarpsþættinum Silfur Egils
um helgina. Í þættinum kvaðst
Hjálmar vera opinn fyrir því að end-
urskoðað verði allt ferlið sem tengist
stuðningi Íslands við Íraksstríðið.
Guðmundur Árni Stefánsson,
þingmaður Samfylkingarinnar, hóf
umræðuna og sagði ummæli Hjálm-
ars eftirtektarverð. „Vekur það al-
veg sérstaka athygli að hér talar for-
maður þingflokks Framsóknar-
flokksins og forystumaður í hópi
þingmanna þess flokks á Alþingi.
Hann lætur þess að vísu getið í
prentmiðli í morgun, Morgun-
blaðinu, að hann tali fyrir sjálfan sig
en ekki fyrir hönd þingflokksins.
Engu að síður hljóta það að teljast
tíðindi þegar stjórnarliðar eru að
tína tölunni í þeim staðfasta stuðn-
ingi við innrásina í Írak forðum
daga.“
Halldór Ásgrímsson kom næstur í
pontu og ítrekaði, eins og áður sagði,
að engin breyting væri á stefnu ís-
lenskra stjórnvalda varðandi Írak.
„Við fögnum því að Saddam Hussein
er farinn frá. Við styðjum lýðræð-
isuppbygginguna í Írak og við styðj-
um að vinna á grundvelli samþykkt-
ar Sameinuðu þjóðanna nr. 1546 um
endurreisn í Írak. En ég held að það
sé kominn tími til að Samfylkingin
geri grein fyrir hvaða stefnu hún
hefur í sambandi við þessi mál.“
Að þeim orðum mæltum var kallað
utan úr þingsal að stefna Samfylk-
ingarinnar væri skýr í þessum mál-
um. Þá sagði ráðherra: „Er hún skýr
já? Þá spyr ég: Styður Samfylkingin
lýðræðisuppbyggingu í Írak? Styður
Samfylkingin endurreisn í Írak? Er
Samfylkingin sammála sósíaldemó-
krötum í Danmörku?“
Mörður Árnason, þingmaður
Samfylkingarinnar, sem næstur var
á mælendaskrá, gagnrýndi Halldór
m.a. fyrir að svara því ekki hvort
hann væri sammála Hjálmari Árna-
syni. „Hann [forsætisráðherra] kem-
ur upp í stólinn og segir okkur ekki
einu sinni hvort háttvirtur þingmað-
ur Hjálmar Árnason er skilinn við
flokkinn eða hvort hann er enn þá í
heitum ástartengslum við hann.“
„Gamall afturhalds-
kommatittsflokkur“
Áfram var rætt um fyrrgreind
ummæli Hjálmars og sagði Össur
Skarphéðinsson, formaður Samfylk-
ingarinnar, að Hjálmar hefði með
þeim mælt djarflega. Hann gæti
jafnframt sýnt þá afstöðu í verki með
því að styðja þingsályktunartillögu
stjórnarandstöðuflokkanna um að
Ísland verði tekið af lista hinna sjálf-
viljugu þjóða. Össur beindi síðan
orðum sínum að forsætisráðherra og
sagði það rétt að Samfylkingin væri
á móti innrásinni í Írak. „Munurinn á
forsætisráðherra Íslands á annan
bóginn og forsætisráðherra Dana á
hinn bóginn er sá að forsætisráð-
herra Dana hleypur ekki á flótta
undan umræðunni eins og hæstvirt-
ur forsætisráðherra, Halldór Ás-
grímsson.“
Davíð Oddsson utanríkisráðherra
kom næstur í pontu og sagði að
hvergi í heiminum ætti sér stað um-
ræða af þessu tagi nema hér. „Að
taka landið af listanum yfir staðfast-
ar þjóðir sem landið var á áður en til
stríðsins kom – það fer engin svona
vitleysisumræða fram nema hér. Og
háttvirtur þingmaður Hjálmar
Árnason var í þætti þar sem var yf-
irgengilega vitleysisleg umræða.
Hann sýndi mikið þrek að vera í
þættinum jafnlengi og hann var og
talaði manna skynsamlegast í þætt-
inum. Ég tel að allt of mikið sé úr
orðum hans gert þó að hann segi í
þætti af þessu tagi að hann geti
skoðað alla hluti og alla þætti. Hvað
er að því að þingmaður lýsi slíku yf-
ir?
Ég tek bara dæmi af sjálfum mér.
Ég fór á Landspítalann og það var
skorið úr mér krabbamein og ég
þurfti að samþykkja það fyrir fram
áður en það var gert. Það var ekki
nákvæmlega vitað hvað út úr því
mundi koma. Hvað myndu menn
segja uppi á Landspítala ef ég kæmi
þangað til að taka til baka samþykki
mitt fyrir uppskurði? Það yrði bara
litið á mig sem hvert annað fífl vegna
þessarar umræðu. Vitanlega dettur
engum þetta í hug nema Samfylk-
ingunni að fara þessa leið. Og þegar
menn tala um að þarna hafi einhverj-
ir menn skrökvað. Það er algerlega
ljóst að leyniþjónusta Breta og
Bandaríkjamanna voru ekki með
nægilega markvissar og skynsam-
legar skýringar og upplýsingar. En
búið er að rannsaka það í báðum
ríkjunum með lýðræðislegum hætti
og viðurkennt bæði af stjórn og
stjórnarandstöðu að hvorug ríkis-
stjórnin laug nokkru til og við
byggðum auðvitað á því. Við vildum
að krabbameinið Saddam Hussein
yrði skorið í burtu og síðan hæfist
endurhæfing. Það eru allir með end-
urhæfingunni í Írak nema Samfylk-
ingin á Íslandi. Norðmenn sem ekki
voru með standa núna með því sem
er að gerast í Írak. En Samfylkingin
er eins og gamall afturhaldskomma-
tittsflokkur og ætlar sér aldrei að
verða stór og getur þess vegna ekki
stutt verðugt verkefni eins og þetta.“
Höfuðpaurarnir sjái að sér
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, blandaði sér einnig í um-
ræðuna og sagði: „Það er spurning
hvort sómi Alþingis er fólginn í því
að ræða þetta alvarlega mál á þeim
nótum sem hér er gert og með
myndlíkingum af því tagi sem not-
aðar eru.“ Hann sagði þetta mál tví-
þætt. Annars vegar snerist það um
það hvernig það hefði gerst að Ísland
hefði birst á lista hinna vígfúsu þjóða
og hins vegar snerist það um það
sem væri að gerast í Írak. „Auðvitað
væri það fagnaðarefni ef stjórnar-
sinnar væru að byrja að sjá að sér í
þessu máli, eins og kannski mátti
ætla af háttvirtum þingmanni
Hjálmari Árnasyni í nefndum sjón-
varpsþætti – hafi hann verið með
fullri meðvitund sem við hljótum að
gera ráð fyrir. Það kemur samt fyrir
lítið á meðan höfuðpaurarnir tveir
sem einir hafa borið ábyrgð á þessu
allan tímann, Halldór Ásgrímsson og
Davíð Oddsson, sjá ekki að sér.“
Þegar hér var komið sögu kom
Guðmundur Árni Stefánsson aftur í
pontu og sagði m.a.: „Ef það að opna
hér umræðu um Írak og tilurð Íraks-
innrásarinnar hinn 20. mars þýðir að
ég verði hér uppnefndur afturhalds-
kommatittur, kratinn úr Hafnarfirði,
verður svo að vera. Það breytir ekki
hinu að ég mun halda áfram að halda
á lofti þessari umræðu hvort sem
mönnum líkar það betur eða verr. Ef
menn kjósa að fara í gamla kalda-
stríðshaminn um komma, krata og
íhald og allt það hér verður það líka
svo að vera.“
Fjallaði þingmaðurinn síðan aftur
um Íraksmálið og sagði: „Það veit
hver einasti maður og það er búið að
staðfesta hér mörgum sinnum að
Samfylkingin styður vitaskuld Sam-
einuðu þjóðirnar í uppbyggingu í
Írak. Það gefur augaleið, landið er í
rjúkandi rúst eftir þau átök sem þar
hafa farið fram og vitaskuld er það
skylda okkar allra að freista þess að
byggja þar upp með viti bornum
hætti.“
Hælkrókur Hjálmars
Hjálmar Árnason var næstur í
pontu og spurði m.a. hvert hlutverk
stjórnmálamanna væri. „Er það ekki
hlutverk okkar allra sem höfum gef-
ið okkur í stjórnmál að vilja skoða
mál og fara yfir þau? Erum við ekki
stöðugt að gera það, í hverju einasta
máli? Ég tel, og hef sagt það, ekkert
óeðlilegt fyrir okkur að skoða að-
draganda þessa máls. Ákveðnar for-
sendur komu fram sem síðar reynast
ekki réttar. Á þeim tíma sem þær
komu fram trúðu menn því að slíkar
forsendur væru réttar.“
Guðjón A. Kristjánsson, formaður
Frjálslynda flokksins, sagði að sífellt
fleiri rök bentu til þess að ákvörð-
unin um stuðning Íslendinga við
Íraksstríðið hefði verið tekin af for-
mönnum stjórnarflokkanna. Hann
benti á að Hjálmar hefði sagt að eng-
ar samþykktir hefðu verið gerðar
um aðildina að Íraksstríðinu. „Er
hann þar með annar þingmaður
flokksins sem staðfestir það. Krist-
inn H. Gunnarsson hefur staðfest
það áður, og fékk frekar bágt fyrir.“
Halldór Ásgrímsson sagði undir
lok umræðunnar að Samfylkingin
tönnlaðist stöðugt á því að það ætti
að„taka okkur af einhverjum lista,“
eins og hann orðaði það. Síðan sagði
hann: „Hvað þýðir það að taka sig af
þeim lista? Það þýðir að láta af
stuðningi við uppbygginguna í
Írak[…]. Vita ekki þingmenn Sam-
fylkingarinnar að innrásin er löngu
búin? Ef við tækjum þá ákvörðun
núna værum við að taka til baka
stuðning okkar við uppbygginguna í
Írak.“
Halldór beindi einnig orðum sín-
um að Guðmundi Árna: „Háttvirtur
þingmaður Guðmundur Árni Stef-
ánsson sagði að flokkurinn styddi
ályktun 1546 frá Sameinuðu þjóðun-
um sem gerir ráð fyrir viðveru liðs-
ins í Írak, liði Bandaríkjanna, Breta
og Dana. Á þá að skilja það svo að
Samfylkingin styðji lýðræðisupp-
bygginguna í Írak og veru hersins í
Írak? Það lá fyrir þegar ríkisstjórnin
tók afstöðu til þessa máls á sínum
tíma að við lofuðum því að styðja að
uppbyggingu í Írak.“
Davíð Oddsson tók síðastur til
máls í þessum umræðum. Beindi
hann þar einnig orðum sínum að
Guðmundi Árna: „Það eru merkileg
tíðindi sem maður gat lesið út úr orð-
um háttvirts þingmanns Guðmundar
Árna Stefánssonar, að Alþýðuflokk-
urinn gamli sé aftur kominn með
töluverð ítök í Samfylkingunni og
styðji núna veru hersins í Írak. Það
hefur maður ekki getað skilið á um-
ræðunum að undanförnu.“ Sagði
Davíð merkilegt að þetta hefði náðst
fram í þessari umræðu. „Og ég
þakka háttvirtum þingmanni Hjálm-
ari Árnasyni þennan laglega hæl-
krók til að fá þessa niðurstöðu fram.“
Snörp orðaskipti á þingi um
ummæli Hjálmars Árnasonar
Til snarpra orðaskipta
kom milli stjórnar og
stjórnarandstæðinga á
Alþingi í gær, er rædd
voru ummæli Hjálmars
Árnasonar, þingflokks-
formanns Fram-
sóknarflokksins, um
málefni Íraks, í fjöl-
miðlum um helgina.
Morgunblaðið/Kristinn
Ummæli Hjálmars Árnasonar, þingflokksformanns Framsóknarflokksins,
urðu tilefni snarprar umræðu um málefni Íraks á Alþingi í gær. Hér er
hann ásamt Steingrími J. Sigfússyni, þingmanni Vinstri grænna.
BANKAR og sparisjóðir veittu fast-
eignaveðtryggð lán til 4.930 ein-
staklinga á tímabilinu frá 23. ágúst
sl. til loka október. Var heildar-
fjárhæð lánanna 55,3 milljarðar kr.
Kemur þetta fram í skriflegu svari
Valgerðar Sverrisdóttur við-
skiptaráðherra við fyrirspurn Jó-
hönnu Sigurðardóttur, þingmanns
Samfylkingarinnar. Í svarinu segir
að ekki liggi fyrir upplýsingar um
skiptingu þessara lána annars vegar
til fasteignakaupa og hins vegar til
endurfjármögnunar.
Í svarinu segir einnig að yfirdrátt-
arlán heimila í bönkum og sparisjóð-
um landsins hafi numið 56 millj-
örðum kr. hinn 31. desember 2003 en
nær 61 milljarði kr. hinn 30. sept-
ember sl.
Sýni aðhald á næstu árum
Í fyrirspurninni spyr þingmað-
urinn hvort ráðherra telji að mikil út-
lán banka og sparisjóða ógni stöð-
ugleika í efnahagslífinu og hvort
bregðast þurfi við til að sporna við
þenslu. Um það segir í svari ráð-
herra: „Ný lán banka og sparisjóða
til fasteignakaupa eru mikil framför
á íslenskum lánamarkaði. Ekki ligg-
ur fyrir á þessu stigi hvort almennt
sé um ný lán eða endurfjármögnun
er að ræða en búast má við að lánin
örvi bæði eftirspurn eftir húsnæði og
einkaneyslu í einhverjum mæli. Það
er því ekki hægt að segja til um það
nú hvort þessi útlán ógni stöðugleika
og hvort ástæða sé til að bregðast
við. Hins vegar hefur útlánavöxtur
innlánsstofnana almennt verið um-
talsverður allt frá árslokum 2002 og
var t.d. 12 mánaða aukning útlána á
fyrri hluta þessa árs yfir 30%. Þessi
þróun útlánaaukningar, sem og
þensla á fasteignamarkaði, staða
kjaraviðræðna og stóriðjufram-
kvæmdir, gerir það að verkum að
mikilvægt er að ríkisstjórn og Seðla-
banki sýni aðhald í ríkisfjármálum og
peningamálastefnu á næstu árum.“
4.930 einstak-
lingar fengu
55,3 milljarða
að láni
FJÁRHAGSVANDA sjúkrahússins
Vogs má rekja til þess að stofnunin
hefur veitt sjúklingum þjónustu um-
fram það sem gert er ráð fyrir í
þjónustusamningi ríkisins og sjúkra-
hússins, að sögn Jóns Kristjáns-
sonar heilbrigðisráðherra.
„Vafalaust er þessi aukna þjón-
usta sem þeir hafa veitt til komin
vegna þarfar en við þurfum að fara
yfir það hvernig við mætum þessari
þörf,“ segir ráðherra, sem vill ræða
málin við forsvarsmenn Vogs.
„Ég tel auðvitað að ef um ein-
hverjar breytingar á samningnum
er að ræða þá þurfi menn að setjast
yfir það. Og við þurfum líka að meta
það okkar megin hvaða þjónustu við
viljum kaupa af þeim og hvaða þjón-
usta er fáanleg annars staðar fyrir
þessa hópa.“
Beðið eftir úttekt á
meðferðarúrræðum
Í þjónustusamningi beggja aðila
er skilgreind þjónusta sem ríki
kaupir af Vogi. Að sögn ráðherra
hafa báðir aðilar staðið við samning-
inn og eina breytingin sem gerð hef-
ur verið á honum sé að ráðuneytið
viðurkenni nú lyfjakostnað vegna
ópíumfíklameðferðar sem fer vax-
andi.
„Síðan hafa þeir veitt meiri þjón-
ustu heldur en samningurinn gerir
ráð fyrir. Hallarekstur hefur farið
vaxandi hjá þeim út af því,“ segir
ráðherra og segir að aukinn halla-
rekstur megi einnig rekja til þess að
möguleikar til eigin fjármögnunar
hafi farið minnkandi. Að sögn ráð-
herra er nú beðið álits nefndar sem
falið var að gera heildstæða úttekt á
meðferðarúrræðum og hvernig með-
ferðarmálum sé best fyrir komið.
Niðurstöðu sé að vænta innan tíðar.
Hefur veitt
þjónustu um-
fram samning