Morgunblaðið - 30.11.2004, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 30.11.2004, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÍSLANDSBANKI hf. hefur hækk- að tilboð sitt í öll hlutabréf norska bankans BNbank (Bolig og Nær- ingsbanken ASA) í 340 norskar krónur á hlut greitt í peningum, en fyrra tilboð Íslandsbanka hljóðaði upp á 320 norskar krónur á hvern hlut. Miðað við nýja tilboðið þarf Ís- landsbanki að reiða af hendi tæp- lega 35,5 milljarða íslenskra króna fyrir bankann. Yfirverðið sem Ís- landsbanki er tilbúinn að greiða er því um 26% umfram gengi í síðustu viðskiptum áður en fyrra tilboðið var lagt fram 15. nóvember sl. „Við höfum átt í viðræðum við stærstu hluthafa og ráðgjafa stjórn- ar og stjórnenda, og það var nið- urstaða okkar að til að ná nægj- anlegu magni bréfa þyrftum við að hækka verðið sem þessu nam, sem er ríflega 6% hækkun frá fyrra verði. Við erum núna komin með 60% eignarhlut með okkar eigin bréfum og samþykktum annarra hluthafa, og erum á góðri leið í okk- ar ætlunarverki. Við teljum að þetta sé það sem þurfi til og trúum að það muni ganga vel eftir,“ segir Bjarni Ármannsson forstjóri Íslandsbanka. Vilyrði og núverandi eign Í fréttatilkynningu frá bankanum segir að ef lögð eru saman hlutabréf sem þegar eru í eigu Íslandsbanka og vilyrði sem gefin hafa verið fyr- irfram um sölu bréfa í samræmi við tilboðið, hafi Íslandsbanki nú þegar tryggt sér um 46% hlutabréfa í BNbank. Til viðbótar hafi nú hlut- hafar sem hafa yfir að ráða 14% hlut í BNbank lýst því yfir að þeir muni samþykkja tilboð Íslands- banka. Innifalin í því eru 20% sem Ís- landsbanki hafði áður gert samning um að kaupa af Sparebanken Øst (sem háð er samþykki norskra yf- irvalda), 9,8% hlutur sem Íslands- banki hafði keypt á markaði og fyrirfram vilyrði sem Íslandsbanki hafði áður fengið fyrir um 16% hlutafjár í BNbank. Áætlað tilboðstímabil er frá og með 1. desember til og með 17. des- ember nk. Íslandsbanki hækkar tilboð í BN banka 60% í höfn Tilboðstímabil vegna kaupa BN banka hefst 1. desember nk. Telja 340 norskar krónur þurfa til að ná nægjanlegu magni hlutabréfa VÁTRYGGINGAFÉLAG Íslands hf., VÍS, hefur keypt Vörð vátrygg- ingafélag hf. af félagi í meirihluta- eigu Baugs. Kaupverðið verður ekki gefið upp. VÍS tók við rekstri Varðar í gær og verður það sjálfstætt dótt- urfélag og hluti af VÍS-samstæð- unni. Finnur Ingólfsson, forstjóri VÍS, segir Vörð vera vænlegan fjárfest- ingarkost fyrir félagið. „VÍS hefur haft veika markaðshlutdeild í sjávar- útvegi en Vörður stendur þar á gömlum merg og hefur þar góða markaðsstöðu miðað við stærð fé- lagsins. Því teljum við að félögin geti átt mjög góða samleið. Í öðru lagi viljum við gera Vörð að öðruvísi vá- tryggingafélagi með annars konar vöruframboð heldur en tíðkast hjá tryggingafélögunum.“ Hann leggur áherslu á að Vörður verði áfram rek- ið sem sjálfstætt vátryggingafélag með höfuðstöðvar á Akureyri. Enn ein ástæða fyrir kaupunum er áhersla VÍS á að stækka, að sögn Finns. Markaðshlutdeild VÍS af vá- tryggingamarkaði sé um 34–35% og markaðshlutdeild Varðar sé 1,5%. Hvað varðar frekari stækkun segir hann: „Við erum alltaf að líta í kring- um okkur, bæði hér heima og í lönd- unum í kringum okkur.“ Hann bend- ir á að erlend vátryggingafélög geti starfað hér á landi og að íslensku fé- lögin geti jafnframt starfað á Evr- ópska efnahagssvæðinu. Hins vegar segir hann ekkert í hendi í þeim efn- um hvað VÍS varðar. Hreinn Loftsson, stjórnarformað- ur Baugs Group, segir að mikið upp- byggingarstarf og endurskipulagn- ing hafi átt sér stað hjá Verði á því rúma ári sem Baugur hefur átt hlut að félaginu. VÍS hafi sóst eftir að kaupa félagið í síðustu viku og ákveðið hafi verið að ganga að tilboði þeirra enda hafi VÍS uppi áætlanir um að halda uppbyggingunni áfram, auk þess sem verðið hafi þótt ásætt- anlegt. „Við getum ekki verið alls staðar,“ segir Hreinn en andvirði sölunnar segir hann að verði nýtt í önnur verkefni. Baugur keypti helmingshlut í fé- laginu í gegnum Hring hf. haustið 2003 fyrir um 300 milljónir króna. En í byrjun þessa mánaðar nýttu meðeigendur Hrings í Verði sér sölurétt á hlutabréfum sínum. Baug- ur átti því orðið allt hlutafé í félag- inu. Framkvæmdastjórinn hættur Vörður hefur vaxið verulega und- anfarin misseri og einkum á árinu 2004, að því er segir í tilkynningu frá VÍS. Það hafi verið rekið með tapi á árinu 2003 og líklegt sé að tap verði á rekstrinum í ár. VÍS hefur óskað eftir tilskildu leyfi frá Fjármálaeftirlitinu vegna kaupanna á Verði. Sömuleiðis verður málið lagt fyrir Samkeppnisstofnun. Kristján B. Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Varðar, hefur látið af störfum og Ásgeir Baldurs, forstöðu- maður viðskiptaþróunar hjá VÍS, hefur tímabundið verið ráðinn fram- kvæmdastjóri Varðar. VÍS kaupir Vörð Áhrif lánaveislu bankanna er yfir- skrift morgunverðarfundar Félags viðskiptafræðinga MBA frá Háskóla Íslands, Félag MBA – HÍ, næstkom- andi fimmtudag, 2. desember. Á fundinum verður varpað ljósi á til- komu nýrra lánamöguleika á fjár- málamarkaði og áhrif þeirra á hag- vöxt, gengi, verðbólgu og skuldir heimilanna. Erindi flytja Gylfi Magn- ússon, dósent við HÍ og Edda Rós Karlsdóttir, hjá Landsbankanum. Fundurinn verður haldinn á Grand hóteli í Hvammi, og hefst hann kl. 8:15 og eru fundarlok áætluð kl. 9:30. Aðgangur með morgunverði er kr. 1500. Skráning er á mbahi@isl.is.  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is Á NÆSTUNNI                    *+ ,'- .   ,'- . % / %$!( $0*' 1.,  2# 3  4.3   3 2#  !# !+ !/# ( 5($ - 5-!$ " !   "/ %$!( 30 6     /"  2#  /#(#!  1 "-  1# 3 & .7 30 1 $809& $  :  3'  4 ( ;$ &  <) !  2/ #%$# (  #  #"    $8 0 = ( =8((( "   >#  9'"&  "" 3!(     !" *3  /!#?8 $    ;"2#  =$ >%8((( $# (2#  ;   0!                             .!8($% $8  0!                             @AB  @AB @ AB  @ AB @AB @ AB @ AB @ AB  @  AB @AB @AB @ AB  @ AB  @ AB   @ AB   @AB    @AB        1!#  -  ( =#3' ;#' (C 4 - #  0  0 0 0    0  0 0 0 0  0  0 0  0  0    0  0  0   0      0                                                    > -;D700 *=10E* ( # / #  -                            Lækkun í Kauphöllinni ● VIÐSKIPTI í Kauphöll Íslands í gær námu tæpum 12 milljörðum króna. Þar af voru viðskipti með hlutabréf fyr- ir 3,8 milljarða. Úrvalsvísitala Kaup- hallarinnar lækkaði um 1,6% og var lokagildi hennar 3.472 stig. Mest viðskipti voru með hlutabréf í Burðarási, fyrir tæplega 700 milljónir, og lækkaði gengi þeirra um 1,2%. Af félögum í úrvalsvísitölunni varð mest hækkun á bréfum í Samherja, 2,4%, en hlutabréf í Actavis lækkuðu hins vegar mest, eða um 6,5%. ESSO hækkar en Atlantsolía ekki ● OLÍUFÉLAIÐ (ESSO) tilkynnti í gær hækkun á eldsneytisverði til sam- ræmis við hækkun Skeljungs og Olís í síðustu viku. Bensínlítrinn hjá ESSO hækkaði um eina krónu og lítri af dísil- olíu um 1,50 kr., sem er sama hækk- un og hjá hinum félögunum tveimur. Hugi Hreiðarsson, markaðsstjóri Atlantsolíu, segir að hjá félaginu hafi ekki verið tekin ákvörðun um hækkun eldsneytisverðs en fylgst verði grannt með þróun mála. Á heimasíðu Olíufélagsins segir að bensínverð á heimsmarkaði hafi hækkað á milli viku 47 og 48. Meðal- verð á tonni hafi hækkað úr 419,75 Bandaríkjadölum í 437,35 dali. Þrátt fyrir styrkingu krónunnar gagnvart dalnum úr 66,74 krónum hver dalur í 65,52 krónur vegi hækkun heims- markaðsverðs á bensíni meira. ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI Aukin greiðslu- kortavelta ● INNLEND greiðslukortavelta heim- ilanna var 8,2% meiri síðastliðna tólf mánuði en á sama tímabili árið áður. Þetta er meðal þess sem fram kemur í Hagtíðindum Hagstofu Íslands. Kreditkortavelta heimilanna var 3,1% meiri á fyrstu tíu mánuðum þessa árs en á sama tímabili í fyrra. Aukningin er 3,6% ef bornir eru sam- an síðustu tólf mánuðir við sama tímabil þar á undan. Debetkortavelta var 13,1% meiri á fyrstu tíu mánuðum þessa árs en árið áður, en tólf mán- aða aukning er 12,5%. Í Hagtíðindum kemur fram að virð- isaukaskattsvelta jókst um 12,8% á fyrstu átta mánuðum þessa árs borið saman við sama tímabil í fyrra. Veltan jókst um 10,7% frá fyrra tólf mánaða tímabili. Breytingar á veltu voru misjafnar eftir atvinnugreinum. Ef litið er til tíma- bilsins janúar til ágúst varð mest aukning í samgöngum milli ára, eða 17,3%. Ef litið er til tólf mánaða tíma- bils varð hins vegar mest aukning í byggingarstarfsemi, eða 18,2%. ÞAÐ er viðbúið að stjórn SPRON muni taka breytingum eigi síðar en á næsta aðalfundi að sögn Péturs Blöndal alþingismanns og stjórn- arformanns Sparisjóðs Reykjavík- ur og nágrennis, SPRON. Pétur er fyrrverandi varaformaður stjórnar félagsins, en tók við sem stjórn- arformaður eftir að Óskar Magn- ússon hætti í stjórninni sl. föstudag að eigin ósk. Aðalfundur SPRON verður haldinn í febrúar eða mars nk. að sögn Péturs. Um 50% stofnfjár SPRON hefur skipt um eigendur undanfarnar sjö vikur eins og fram kom í Morg- unblaðinu um helgina, og má leiða líkur að því að nýir eigendur vilji fá menn inn í stjórn félagsins. Spurður að því hvort búið væri að ákveða fund með stofnfjár- festum segir Pétur að svo sé ekki. „Það er ekki búið að taka ákvörðun um það. Það er eitt- hvað sem menn munu væntan- lega ræða í stjórninni á næstu dögum,“ segir Pétur. Í dag er stjórnin þannig skipuð að Pétur Blöndal er formaður og með honum í stjórn eru Hildur Pedersen, Hildur Njarðvík, Vil- hjálmur Vilhjálmsson og Þorvarð- ur Elíasson. Varaformaður hefur ekki enn verið kjörinn. Viðbúið að stjórn SPRON breytist Pétur H. Blöndal <  F GH     A A /= ? I*J !     A A K*K 5 J "  #   A A 4/J <! "! "   A A LK?J I'M:'!    ! # ! A A

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.