Morgunblaðið - 30.11.2004, Qupperneq 20
Jólin nálgast og má víða sjáþess merki. Fólk er þegarfarið að huga að jólaskreyt-ingum og í verslunum sem
sérhæfa sig í jólaskrauti er orðið
býsna jólalegt um að litast, svo
sem í Garðheimum í Mjódd.
„Það eru aðallega tvær línur
sem eru mest áberandi hjá okkur í
jólaskreytingunum í ár. Annars
vegar er það lína sem við köllum
Midas og er eins konar tilvísun í
Aladín, skreytingar sem glitrar og
stirnir á og gull- og koparlitir eru
áberandi. Hins vegar er það
Rudolf-línan, þar sem er farið
meira út í grófari efni svo sem filt-
efni“ sagði Jóhanna M. Hilm-
arsdóttir, deildarstjóri hjá Garð-
heimum, um helstu strauma og
stefnur í jólaskreytingunum í ár.
„Rauði liturinn er auðvitað alltaf
áberandi í jólakúlunum og núna er
það sérstaklega vínrauður litur,
ásamt gylltum kúlum. Svo er það
jólaskrautið úr
filtefnunum,
til dæmis
skraut til að hengja á jólatré og
þessi grófari lína í jólasveinum og
jólastyttum, sem virðist ætla að
verða vinsælt í ár. Það kemur mér
dálítið á óvart hvað mikið selst nú
af þessum grófari skreytingum,
bæði vínrauðum og kremlituðum.
Hins vegar er það oftast þannig að
fólk verður glysgjarnara þegar
nær dregur jólum og þá fer það
meira út í litskrúðugra jóla-
skraut, eins og hárautt og gull-
litað,“ sagði Jóhanna ennfremur.
Friðsælt Draumaland
Draumalandið er sérstök
deild í Garðheimum, sem er
sérstaklega tileinkuð jólunum,
og þar er áberandi friðsæl og
róandi jólastemning. Þarna
má sjá jólatré, jólasveina,
jólahús og engla, allt með inn-
byggðum fíberljósum sem skipta
hægt um lit. Anton Magnússon er
sérfræðingur Garðheima í jóla-
seríunum og sagði hann að í
Draumalandinu mætti sjá allar
nýjungar á sviði jólaskreytinga,
svo sem í fíberljósunum áð-
urnefndu. „Fíberljósin hafa þróast
verulega frá því þau komu fyrst á
markað. Fíberþráðurinn er nú
mun vandaðari og gefur meira og
fallegra ljós. Fjölbreytileikinn er
líka mun meiri, bæði í útliti hlut-
anna og í gerð ljósleiðaraþráð-
arins,“ sagði Anton. „Hér í
Draumalandinu erum við fyrst og
fremst með ljós til að skapa þægi-
lega stemningu, svona til mótvægis
við þessi skæru flenniljós sem oft
hafa tröllriðið jólaljósaskreyt-
ingum,“ sagði hann ennfremur og
bætti því við að sum ljósanna væru
ekki endilega bundin við jólin held-
ur myndu þau sóma sér vel á heim-
ilum fólks á hvaða
árstíma sem er.
En jólaljósin eru
þó vitaskuld mest
áberandi á þessum
árstíma, aðventuljós
og jólaseríur af
ýmsum gerðum, allt
frá eftirlíkingum af
kertum upp á gamla
móðinn og yfir í
fíberseríur með
breytilegum marglita ljósum. Ant-
on sagði að mikil áhersla væri lögð
á öryggi í frágangi á rafbúnaði
jólaseríanna og benti í því sam-
bandi meðal annars á útiseríur
með millistórum stungnum perum
af gerðinni Sirius Top Line, sem
hefði ótæmandi möguleika í sam-
setningu, sem hver og einn gæti
sniðið að sínum þörfum. Enn-
fremur Garden Light-útiseríur,
með stórum skrúfuðum perum og
steyptum viðurkenndum útitengli
og vönduðum útikapli. Þá nefndi
hann einnig Sirius High Line, sem
hefur hliðtengdar perur sem gera
það að verkum að fari ein pera
slokknar bara á henni, en ekki allri
seríunni með tilheyrandi veseni
sem margir þekkja. Anton sagði
High Line-ljósakerfið væri einnig
fáanlegt sem ljósanet, grýlu-
kertasería eða sem gardínusería,
sem nú nyti sívaxandi vinsælda.
JÓL | Rautt, vínrautt, gyllt og kremlitað meðal vinsælla jólalita í ár
Glysgirnin eykst er nær dregur jólum
Fallegt lítið jólaþorp upplýst með fíberljósum.
Jólakertin standa alltaf fyrir sínu. Jólatrésskraut úr filtefnum. Ljósaskraut sem gengur allt árið. Jólabörn og jólatré úr fíberljósum.Jólakúlur í rauðu og gylltu.
svg@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Jólasveinn í loðfeldi með loðhúfu.
Jólasveinn í vínrauðum
búningi með kremlitað skegg.
20 ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
Frábærar, fjörugar og fjölbreyttar
ævintýraferðir fyrir fyrirtæki
jafnt sem vinahópa.
Upplýsingar í síma 562-7700
www.travel-2.is