Morgunblaðið - 30.11.2004, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 30.11.2004, Qupperneq 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. VALGERÐUR Sverrisdóttir iðn- aðarráðherra átti í gærmorgun fund með starfsfólki Kísiliðjunnar ásamt Sveini Þorgrímssyni, skrif- stofustjóra í iðnaðarráðuneytinu. Hún flutti ítarlegt yfirlit um hvernig mál verksmiðjunnar hafa þróast og hvernig leit að fjár- festum fyrir kísilduftverksmiðju hefur gengið, en eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær eru litlar líkur taldar á að fjármögnun tak- ist. Valgerður sagðist ekki vilja gefa upp alla von. Á meðan óvissa væri um aðkomu kjölfestufjárfesta væri framtíð kísilduftverksmiðj- unnar hins vegar í mikilli hættu. Fram hjá því væri ekki litið að eig- endur undirbúningsfélagsins, Al- lied EFA, væru búnir að fjárfesta fyrir hundruð milljóna króna í verkefninu og útreikningar Landsbankans sýndu 25–28% arð- semi eiginfjár verksmiðjunnar. „Í ljósi þessa, og án frekari skýringa, verður að telja ólíklegt að Allied EFA hætti við fjárfestingu í verk- efninu á síðustu stundu og geri verðmæti þau sem þar felast, þar með talið í einkaleyfi og fleiru, að engu,“ sagði Valgerður við starfsmenn Kís- iliðjunnar. Iðnaðar- ráðherra sagði við Morgun- blaðið að það hefði verið mik- ilvægt að koma skilaboðum á framfæri til starfsmanna, þannig að þeir átt- uðu sig á bakgrunni málsins. Upp- lýsti hún að um tíma hefði útlitið verið bjart, nýir aðilar hefðu verið tilbúnir með hlutafé, m.a. Skútu- staðahreppur og innlendir fjár- festar. Valgerður sagði að það hlytu aðrar ástæður að liggja að baki því að fjármagn fengist ekki, aðrar en þær að 5 milljónir evra, um 400 milljónir króna, hefði vantað upp á til að verkefnið gengi upp. Minnti Valgerður á að ekki væri búið að taka endanlega ákvörðun um kís- ilduftverksmiðjuna. Enn hlyti að vera smá von en það væri ekki hennar hlutverk að afskrifa dæmið. Iðnaðarráðherra fundaði með starfsfólki Kísiliðjunnar Vill ekki gefa upp alla von um verksmiðju Mývatnssveit. Morgunblaðið. Valgerður Sverrisdóttir SIGBJÖRN Gunnarsson, s stjóri í Skútustaðahreppi, ómögulegt að gera sér gre því á þessu stigi hversu mi tekjutap sveitarfélagsins v kjölfar þess að starfsemi K unnar verður hætt. „Ég he að reyna að meta þetta og ekki ólíklegt að sveitarféla verði af 25–30% tekna sinn sagði Sigbjörn. Íbúar í Skútustaðahrepp um 440 talsins, þannig að e hverjum tíu missir nú atvin „Það er auðvitað gríðarleg hlutfall,“ sagði hann. Hann sveitarfélagið stöndugt, þa skuldlítið og hefði ávallt g boðið íbúum sínum góða þj meiri og betri en sveitarfé sambærilegri stærð. Nefnd leikskóla, grunnskóla, tónl skóla, skíðasvæði, golfvöll laug og ýmislegt fleira sem væri. „Ástæðan er einföld, hann. „Hér hefur verið got vinnuástand, fólk hefur ve góðar tekjur og því stendu arfélagið vel miðað við það gerist og gengur hjá samb legum sveitarfélögum.“ Sigbjörn sagði að vissule hefði legið alllengi fyrir að iliðjunni yrði lokað um þes aðamót, það átti ekki að ko óvart, en nú væri stundin k „Þó að menn hafi vitað að Sveitarfé tapað 25– Síðasti vinnudagur flestrastarfsmanna Kísiliðjunn-ar í Mývatnssveit er í dag,en rekstri hennar verður hætt nú um mánaðamót eftir tæp- lega 40 ára starfsemi, en félagið var stofnað 13. ágúst 1966. Slökkt var á ofni verksmiðjunnar í gær- morgun, bílar renndu í hlað, sóttu síðustu brettin af kísilgúr og brenndu í burt. „Þetta var nú hálf- einkennilegt, skrýtið að fylgjast með þessu eftir öll þessi ár,“ sagði Þorbergur Ásvaldsson sem hóf störf við verksmiðjuna árið 1970. „Ég held að fólk hafi ekki gert sér grein fyrir hvað þetta er í raun mikið áfall, núna þegar að þessu kemur. Það hefur auðvitað legið fyrir að verksmiðjunni yrði lokað núna 1. desember og allir búnir að fá uppsagnarbréfið, en nú er þetta búið,“ sagði Agnes Einarsdóttir, aðaltrúnaðarmaður í Kísiliðjunni. 30 manns standa uppi atvinnulausir Starfsmenn Kísiliðjunnar eru 46 talsins. „Ég veit að 16 eru búnir að fá aðra vinnu, þar af 3 hér í Mý- vatnssveit en aðrir annars staðar og 30 standa uppi atvinnulausir,“ sagði Agnes. Hún býr í Baldurs- heimi, flutti í sveitina árið 1977 og hefur starfað hjá verksmiðjunni í 16 ár við pökkun. Hún er ein þeirra sem fengið hafa aðra atvinnu, við ferðaþjónustu hjá Sel hótel Mý- vatni. „Það var ótrúlegt að mæta í vinnuna og fylgjast með því þegar slökkt var á ofninum. Ætli menn fari svo ekki bara heim og haldi að þeir séu í fríi, en vakni svo upp við að svo er ekki,“ sagði Agnes. Hún sagði þetta erfitt fyrir marga, starfsaldur flestra væri langur, margir hefðu starfað hjá verk- smiðjunni í þrjá áratugi eða lengur. „Þetta er góður vinnustaður fyrir þá sem geta unnið vaktavinnu,“ sagði hún. Hún sagði að nokkrir hefðu flutt í burt, ýmist til Akur- eyrar eða suður á bóginn og þá væru dæmi um menn sem sæktu vinnu til Húsavíkur. „Það er ekki ólíklegt að fleiri muni fara, það virðist allt vera í óvissu með kísil- duftverksmiðjuna sem átti að koma hér í stað Kísiliðjunnar,“ sagði Agnes. „Ég get ekki séð að fólk verði hér lengi á atvinnuleys- isbótum, það hlýtur að leita sér að annarri vinnu, þannig að þá fækkar fólki í sveitarfélaginu og það hefur alltaf sín áhrif,“ Hún sagði erfitt að setja sig í spor þess fólks sem nú kveður vinnustað sinn, flest eftir áratuga störf. „Ég veit ekki hvernig fólki líður, en veit að þetta er erfitt.“ Sótt um hér og þar en engin svör fengið enn Þorbergur Ásvaldsson flutti í Mývatnssveit úr Reykjadal til að vinna í Kísiliðjunni, kom 1. maí 1970. „É nú verið í hér, nú við að verksmið verið stjóri,“ hann. sagðist eiga eig staðnum, leigt hú af Kísiliðjunni, en hún á á tug húseigna í Reykjahlíð. „O er sagt að við megum vera félagið þarf að nota húsin, hafa ekki verið boðin þau til k ég held að sé einhver óvissa andi það hvað verður um Hvað við tæki nú þegar verk unni verður lokað, sagði Þorb að hann myndi taka það fram yfir jól. „Ég er ekki bú fá vinnu, hef sótt um hér og þ ekki fengið nein svör,“ sagð bergur, en hann hefur einkum um störf utan sveitar, „maður ir austur á land, þar er líf e um húsnæði,“ sagði hann og ráð fyrir að reyna að fá vinn byggðist á einhverju úthaldi, ig að hann gæti enn haldið he Mývatnssveit. „Ég vil eiga hér.“ Hann sagði tímann í K Starfsemi Kísiliðjunnar í Mývatnssveit verður hætt Fólk gerir sér fy grein fyrir áfa Morgunblaðið/ Iðnaðarráðherra fundar með starfsfólki Kísiliðjunnar í gær. Agnes Einarsdóttir Sigfríður Steingrímsdóttir Þorbergur Ásvaldsson MISMUNUN EFTIR SJÚKDÓMI? Samtök áhugafólks um áfengis- ogvímuefnavandann, SÁÁ, munudraga úr þjónustu á sjúkrahúsinu Vogi eftir áramót nema til komi aukin fjárframlög. Áfram verður staðið við þann þjónustusamning, sem er í gildi milli heilbrigðisráðuneytisins og SÁÁ, en dregið verður úr ýmissi þjónustu, sem stendur utan þess samnings. Þar á meðal er ráðgjafavakt, bráðaþjónusta sem veitt hefur verið við göngudeild og innlögnum verður fækkað. Dregið verð- ur úr viðhaldsmeðferð fyrir ópíumfíkla og nýir sjúklingar munu ekki fá þá meðferð. Í samtali við Morgunblaðið í síðustu viku sagði Þórarinn Tyrfingsson, yfir- læknir á Vogi, að þessi viðbótarþjón- usta hefði komið til m.a. vegna þess að Landspítalinn hefði dregið úr sinni bráðaþjónustu. Jafnframt hefðu komið fram ný vandamál, þ.e. morfínfíknin, og ný lyf við henni, sem væru dýr. Í máli Þórarins kom fram að margoft hefði verið farið fram á breytingar á þjón- ustusamningnum til samræmis við þessa breyttu þjónustu, en það hefði ekki skilað árangri. Það virðist hæpinn sparnaður að skera niður t.d. bráðaþjónustu á Land- spítala ef það leiðir bara til þess að vandamálin færast yfir á Vog, sem er einkarekin stofnun. Með sama hætti er ljóst að ef ekki fást fjármunir til að standa undir nauðsynlegri þjónustu á Vogi, munu mikið veikir vímuefnaneyt- endur í vaxandi mæli leita til Landspít- alans og annarra sjúkrastofnana, sem ríkið rekur, með tilheyrandi kostnaði. Hér virðast menn því aðeins ýta kostn- aðinum til og frá í heilbrigðiskerfinu. Ástæða er til að beina sjónum að við- haldsmeðferðinni fyrir ópíumfíkla, sem starfrækt hefur verið á Vogi – utan þjónustusamnings. Eins og Þórarinn Tyrfingsson bendir á, hafa komið ný lyf sem geta haldið fíkninni í skefjum. Í Morgunblaðinu í gær birtist viðtal við fíkil, sem notið hefur þessarar með- ferðar, og fyrir vikið náð sér upp úr gegndarlausri fíkniefnaneyzlu og orðið á ný nýtur þjóðfélagsþegn, sem stundar vinnu og greiðir sína skatta. Engu að síður leggur ríkisvaldið ekk- ert til lyfjameðferðarinnar, sem hann þarf á að halda til að lifa eðlilegu lífi. Talsmenn SÁÁ hafa bent á að þetta þýði að fólki sé mismunað eftir sjúk- dómum. „Það sem við erum að gera með viðhaldsmeðferð er að halda sjúkdómn- um í skefjum með lyfjum, nákvæmlega eins og gert er fyrir fólk með sykursýki eða háan blóðþrýsting og aðra sjúk- dóma. Samt vill Tryggingastofnun ekki niðurgreiða þessi lyf af því að stofnunin ber ekki sömu virðingu fyrir þessum sjúkdómum og öðrum,“ segir Sverrir Jónsson, læknir á Vogi, í blaðinu í gær. Hvaða rök eru fyrir því að taka ekki þátt í kostnaði við lyfjameðferð langt leiddra ópíumfíkla? Það má færa rök fyrir því að einhvers staðar verði að láta staðar numið og hætta að láta ríkið borga fyrir allar nýjungar í læknavís- indum; að það verði að velja og hafna. En það gengur ekki að mismuna fólki eftir því hvaða sjúkdóm það á við að stríða. Það er ekki hægt að nota þau rök að fíkniefnaneytendur hafi kallað veikindi sín yfir sig með neyzlunni. Svo mörg önnur veikindi eru afleiðing gjörða okkar; hraðaksturs, reykinga, rangs mataræðis – en samt tekur sam- félagið þátt í kostnaðinum við meðferð og lækningu. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra hefur nú lýst því yfir að ríkið muni tímabundið leggja fé til þessarar með- ferðar; um sjö milljónir á þessu ári, sem er um þriðjungur af því sem meðferðin á Vogi kostar nú, og svipaða upphæð á næsta ári. Málefni SÁÁ eru til skoðunar í heilbrigðisráðuneytinu, að sögn ráð- herra. Óskandi er að viðunandi lausn finnist á fjármögnun þeirrar heilbrigð- isþjónustu, sem samtökin reka. Þau hafa bjargað ótal mannslífum og vinna gífurlega mikilvægt starf, sem á skilið allan þann stuðning, sem það getur fengið. SAMVINNA Í GEÐHEILBRIGÐISMÁLUM Því hefur verið spáð að árið 2020 verðiþunglyndi næstalgengasti og næst- dýrasti sjúkdómur í heimi á eftir hjarta- sjúkdómum. Héðinn Unnsteinsson, ráð- gjafi hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO), hefur unnið að því að efla sam- starf milli ríkis og borgaralegra samtaka geðsjúkra og segir að það geti skipt sköpum fyrir þróunina í geðheilbrigðis- málum. Héðinn var hvatamaður að verkefninu Geðrækt, sem hafist var handa við árið 2000 og hlaut fyrr á þessu ári viðurkenn- ingu frá WHO og Alþjóðageðheilbrigðis- samtökunum. Fyrir um ári var hann ráð- inn ráðgjafi á geðheilbrigðissviði Evrópuskrifstofu WHO og hefur meðal annars unnið að því að skipuleggja heil- brigðisráðherraráðstefnu 52 landa í Evrópu og Mið-Asíu um geðheilbrigðis- mál, sem haldin verður í Helsinki í jan- úar, og tekið þátt í að skrifa yfirlýsingu, sem gert er ráð fyrir að ráðherrarnir sendi frá sér. Héðinn lýsir því í viðtali við Morgun- blaðið í gær að hann hafi aðra nálgun en aðrir, sem vinni með sér hjá WHO, enda sé hann fyrrverandi sjúklingur, en starfsfélagarnir flestir geðlæknar. Með- al annars hafi hann komið því til leiðar að borgaraleg samtök hafi haft meiri að- gang að stefnumótun stofnunarinnar en ella hefði orðið. Ástandið í geðheilbrigðismálum er misslæmt í þeim löndum, sem taka þátt í ráðstefnunni, og verður sjónum einkum beint að 25 ríkjum Austur-Evrópu og Mið-Asíu þar sem ástandið er verst. Það verður æ algengara að samtök sjúklinga og aðstandenda þeirra láti að sér kveða og hafi áhrif á meðferð sjúk- dóma af ýmsum toga í heilbrigðiskerf- inu. Skýtur því skökku við að ekki skuli meira gert af því í geðheilbrigðiskerfinu. Héðinn segir að það sé grundvallaratriði að fólkið sjálft móti stefnuna eigi hún að virka: „Málefnið er eitt, bætt heilbrigði og bætt þjónusta við geðsjúka, en oft skemmum við fyrir okkur með því að deila um hvernig á að fara að þessu,“ segir Héðinn og bætir við: „Oft finnst grasrótarsamtökunum að heilbrigðis- ráðuneytin séu nánast einráð um hvert eigi að stefna í geðheilbrigðismálum, þau vilja meiri áhrif, fá að vera meira með. Það gengur ekki að allt sé ákveðið og skipulagt í ráðuneytunum og svo komi skipanirnar bara að ofan. Að mínu mati er lykilatriðið samvinna á jafnaðar- grundvelli milli þessara tveggja aðila og mitt hlutverk núna hjá WHO er einmitt að efla hana.“ Héðinn hefur unnið mikið starf með Geðræktarverkefninu og það er ánægju- legt að sjá hann vinna hugmyndum sín- um um samskipti stofnana og samtaka notenda þeirra og aðstandenda brautar- gengi á vettvangi WHO og áherslu á geð- heilsu, en ekki geðsjúkdóma. Ekki er hægt að leggja of mikla áherslu á mikil- vægi þess að uppræta fordóma gegn geðröskunum og geðsjúkum og ber að ýta undir alla viðleitni til að lækna slíka sjúkdóma og draga úr tíðni þeirra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.