Morgunblaðið - 30.11.2004, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 30.11.2004, Qupperneq 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Richard Gere Jennifer Lopez Susan Sarandon Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. Shall we Dance? SETH GREEN MATTHEW LILLARD DAX SHEPARD KRINGLAN Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. B.i. 12 ára. Frá leikstjóra Mr Deeds kemur gamanmynd sem fær þig til að missa það algjörlega. Fór beint á toppinn í USA Kops frábær sænsk grínmynd sýnd kl. 6. Ísl. texti. Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 12 ára. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. B.i. 12 ára. Engar tæknibrellur og raunverulegir hákarlar gera OPEN WATER að mögnuðustu spennumynd síðari ára! Engar tæknibrellur og raunverulegir hákarlar gera OPEN WATER að mögnuðustu spennumynd síðari ára! "Snilldarþriller! Skuggalega hrollvekjandi!" - Variety "Nístir inn að beini!" - Elle "Upplifun! Meiriháttar!" - Leonard Maltin ill ill ! l ll j i! - ri ty í i i i i! - ll lif ! i i ! - r lti "Snilldarþriller! Skuggalega hrollvekjandi!" - Variety "Nístir inn að beini!" - Elle "Upplifun! Meiriháttar!" - Leonard Maltin i ll lti BLANCHARD RYAN DANIEL TRAVIS BLANCHARD RYAN DANIEL TRAVIS Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.15. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.10. Vivement Dimanche (Loksins sunndagur) sýnd kl. 6. Le Poulpe (Kolkrabbinn) kl. 8. Miðaverð 700 krónur. Keyptu þér passa sem gildir á allar 8 myndirnar á 2200 krónur. Allar myndir m. enskum texta. IGORE hefur þrátt fyrir ungan aldur náð að mynda sér vissa sérstöðu í ís- lensku hipp- hoppi. Þessi fjög- urra manna sveit, skipuð tveimur stelpum og tveim- ur strákum um og rétt innan við tví- tugsaldurinn, hef- ur aflað sér töluverðra vinsælda með- al yngra fólks og þeirra sem hlusta ekki endilega á hipp-hopp allajafnan heldur popptónlist almennt. Nokkrar ástæður eru fyrir því. Hipp-hoppið sem Igore hefur fram að færa er mun léttara, poppaðra og sumpartinn að- gengilegra en gerist hér í íslensku hipp-hoppi. Margt gerir svo texta Kristínar Ýrar frábrugðna öðrum ís- lenskum rapptextum. Í fyrsta lagi eru þeir ortnir af konu – sem eru ennþá sorglega fáar í íslensku hipp-hoppi – og fyrir vikið eru áherslur allt aðrar, sjónarhornið annað eins og gefur að skilja. Það eitt gerir þá áhugaverða, eins og t.d. til að velta vöngum yfir því að á meðan strákarnir hafi hingað til rappað flestir um almenn stærilæti – hver er búinn að buffa hvern og hver verður buffaður næst, hver er fífl og hver er flón, hver þeirra er reffilegastur og hvernig þeir ætla sér að rappa alla í ræsið sem bjóða þeim birginn – þá yrkir Kristín Ýr um sam- skipti kynjanna, ástina, daðrið og djammið, þessi sígilda viðfangsefni dægurlagatextanna, á sinn hátt með hæfilegum skammti af hipp-hopp- vísunum. Þetta ferst henni reyndar misvel úr hendi. Stundum er ansi erf- itt að átta sig á hvað hún er að fara eins og t.d. þar sem íslensku- meðferðin verður hvað bjöguðust í örvæntingarfullri viðleitni til að finna rétta endarímið. En það má hún samt eiga að hún yrkir oftast á íslensku og kemst víða ansi skemmtilega að orði, eins og í skondnum skotum sínum á hégómagjarna stráka og stelpur í „Kókómalt“. Þá sýnir hún á sér nær- gætnari og persónulegri hlið í „Komdu nær“ sem hún gerir ágæt- lega. Þau rappa jöfnum höndum, Friðrik og Kristín, og ef eitthvað þá kemur Kristín betur út, trúlega fyrir þær sakir að sem rappari þá er hún með meiri sérstöðu, hefur mjög töff rödd sem gefur Igore karakter. Þá syngur Rakel vel þegar til hennar kasta kem- ur, sérstaklega í „Komdu nær“ og „How Long Will I Wait“. Hvað tónlistina varðar þá er gam- an að heyra þau notast við „alvöru“ hljóðfæri í hipp-hoppið, en krafturinn hefði að ósekju mátt vera meiri, bass- inn feitari, takturinn þéttari. Friðrik sýnir það að hann kann ýmislegt fyrir sér þegar að lagaútsetningum kemur en það er samt spurning hvort út- koman hefði ekki verið meira spenn- andi ef hann hefði treyst öðrum fyrir því að landa lögunum, t.d. Sölva Blön- dal eða Sadjei, sem gerði svo skrambi góða hluti á Illgresi skyttnanna. Lagasmíðar eru upp og ofan, sumt fremur takmarkaðar æfingar eins og t.d. upphafs og lokalagið, en Friðrik er þó greinilega ansi naskur á að finna grípandi laglínur eins og hann sýndi strax í fyrsta smellnum, „Hverju hef ég að tapa“, sem er í nýrri og betri útgáfu á plötunni (þar sem betur fer er búið að fjarlægja hina skelfilega vitlausu setningu: „Hvað“ hef ég að tapa). Það sýnir hann einnig í rokkaranum Quarashi- skotna „Rhythm & Blues“ og gletti- lega góðri ballöðu „How Long Will I Wait“, sem minnir á gott Air-lag. Þótt margt megi finna hér að þá geta þau yfir höfuð vel við unað krakkarnir í Igore. Strax á fyrstu plötu hafa þau skapað sér sérstöðu, hafa fram að færa eitthvað annað en það sem aðrir eru að gera í íslensku hipp-hoppi hér á landi, sem er vel því fjölbreytni er af hinum góða. Auðvit- að er líka þörf fyrir poppað hipp- hopp, létt og grípandi íslenskt hipp- popp, sem flest lögin á 9 líf og eru. Íslenskt hipp-popp Igore hefur skapað sér vissa sérstöðu innan íslensks hipp-hopps með fyrstu plötu sinni, segir gagnrýnandi m.a. Skarphéðinn Guðmundsson TÓNLIST Íslenskar plötur Í Igore eru Kristín Ýr Bjarnadóttir rapp, Friðrik Fannar Thorlacius rapp, forritun, Rakel Magnúsdóttir söngur, Daníel Örn Jóhannesson scratch. Með þeim leika Arnar Ingi Viðarsson trommur og slag- verk, Birgir Örn Árnason bassi, Jónas Elí Bjarnason rafgítar & hljómborð, Ingi Ein- ar Jóhannesson rafgítar, Jón Jósep Snæ- björnsson söngur, Dóra Steinunn Ár- mannsdóttir söngur, Halla Dröfn Jónsdóttir söngur, Pétur Örn Gunnarsson söngur. Flest lög eftir Friðrik Fannar og flestir textar eftir Kristínu Ýri. Friðrik Fannar stjórnaði upptökum. Útgefandi Skífan. Igore – 9 líf  HLJÓMSVEITINNI Ske hefur ver- ið boðið að koma fram á tónlistar- hátíðinni SXSW, sem fram fer í Austin í Texas í mars á næsta ári. South by Southwest hefur undan- farin ár haft á sér orð fyrir að vera ein skemmtilegasta og metnaðar- fyllsta tónlistar- og kvikmyndahá- tíð sem haldin er. Síðustu tvö ár hefur Singapore Sling tekið þátt í hátíðinni við ágætar viðtökur. Átta laga útgáfa af Life, Death, Happiness & Stuff, frumraun sveit- arinnar, var gefin út hjá útibúi Smekkleysu í Bretlandi í sept- ember. „Lagið Stuff hefur meðal annars náð eyrum hins vinsæla út- varpsmanns Steve Lamaq á Radio 1 en einnig komist í snúning hjá Virg- in og 6 Music útvarpsstöðvunum. Diskurinn verður gefinn út víðar snemma á næsta ári en þegar er kominn áhugi frá dreifingarfyrir- tækjum í Bandaríkjunum, Kanada, Ítalíu, Belgíu og Hollandi,“ segir í tilkynningu frá Smekkleysu. Ske sendi frá sér sína aðra plötu hérlendis nýverið sem kallast Feel- ings Are Great. Stefnt er að setja hana í alþjóðlega dreifingu hjá Smekkleysa/Bad Taste SM í Bret- landi í apríl á næsta ári, en smá- skífa af disknum verður gefin út í febrúar. Ske boðið að taka þátt www.sxsw.com www.ske.is Tónlist | Tónlistarhátíðin SXSW í Texas Morgunblaðið/Þorkell Hljómsveitin Ske er skipuð Guðmundi Steingrímssyni, Hrannari Ingimarssyni, Eiríki Þórleifssyni, Frank Hall, Kjartani Guðnasyni, Ragnheiði Gröndal og Jóni Oddi Guðmundssyni. JULIA Roberts og eiginmaður hennar, kvikmyndatökumaðurinn Danny Moder, eignuðust tvíbura síðasta sunnudag, dreng og stúlku. Hafa börnin fengið nöfnin Hazel Patricia og Phinnaeus Walter. Þau fæddust rúmum mánuði fyrir tím- ann en að sögn talsmanns Roberts líður móður og börnum vel. Reuters Julia Roberts kom fram í þætti Opruh Winfrey í síðasta mánuði og sýndi þá á sér óléttubumbuna. Julia Roberts eignast tvíbura

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.