Morgunblaðið - 09.12.2004, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
!"# $% &'(
!" !
)' !"# $% &'(
#$
%
&' '
!"
!
"
"
! # $%
"
& !
!" "
! " " '$
(
)%* ' + , -
'
- ' !
!
. ""
"
/
+
" !0
1 +2 "
3 4 # " ! +
2
+
$
0
5
"
BANDARÍSK kona, efnafræðingur, er viss um, að hún
hafi afhjúpað eitt helsta leyndarmál endurreisnarmál-
aranna en um aldir hafa menn dáðst af litbrigðunum og
litunum í myndum þeirra, sem eru í senn bjartir og þó
hálfgegnsæir. Segir hún, að þeir hafi bætt út í máln-
inguna örlitlu af mjög fínmöluðu gleri.
Barbara Berrie hjá Þjóðlistasafninu í Washington hef-
ur rannsakað þrjú ítölsk málverk frá 16. öld, „Heilaga
Katrínu“ eftir Lorenzo Lotto; „Alba-Madonnuna“ eftir
Rafael og „Krist við Galíleuvatn“ eftir Tintoretto. Að því
er segir í grein í New Scientist beindi hún rafeindahríð
að málverkunum en þá gefa efnin í málningunni frá sér
röntgengeisla. Er tíðni þeirra mismunandi og allt eftir
því hver efnin eru. Í öllum verkunum fundust klasar af
kísil, súrefni, natrín, kalsín og áli, sem sagt gleri.
Glerið var að finna í lagi af hálfgegnsærri, grænni
málningu og í tveimur afbrigðum af gulri málningu, sem
allir málararnir þrír notuðu.
Er þessi uppgötvun mikilvæg fyrir listasögufræðinga
þótt raunar hafi verið vitað áður, að ítalskir málarar á
þessum tíma hafi blandað gleri út í tvo liti, gulan lit, sem
hafði að innihalda blý og tin, og annan djúpbláan lit. Nú
virðist ljóst, að glerið hafi verið notað í miklu fleiri liti.
Galdurinn fólst í glerinu
Undurfögur litbrigði í verkum endurreisnarmálaranna
sögð til komin vegna glersalla í málningunni
París. AFP.
„Alba-Madonna“ Rafaels var rannsökuð.
ÁSTANDIÐ í Darfur-héraði í Súdan
hefur ekkert batnað og þar blasir
ekki annað við en algert stjórnleysi.
Kemur þetta fram í nýrri skýrslu,
sem kynnt var í öryggisráði Samein-
uðu þjóðanna í fyrradag. Sendiherra
Bandaríkjanna hjá samtökunum
segir, að allir deiluaðilar eigi sök á
því hvernig komið er.
Í skýrslunni, sem Kofi Annan,
framkvæmdastjóri SÞ, kynnti, segir,
að stjórnvöld í Súdan hafi ekki gert
neitt í því að afvopna sveitir araba,
sem farið hafa með morðum, ránum
og nauðgunum um héraðið en áætlað
er, að óöldin þar hafi kostað um
70.000 manns lífið og hrakið um tvær
milljónir manna frá heimilum sínum.
John Danforth, sendiherra
Bandaríkjanna hjá SÞ, sagði, að all-
ar tilraunir til að koma á friði í Darf-
ur hefðu farið út um þúfur. „Upp-
reisnarmenn í héraðinu, stjórnvöld
og vopnaðar sveitir, sem þau styðja,
bera ábyrgð á þessum hörmungum.
Það vantar ekki, að hver samning-
urinn á fætur öðrum sé undirritaður
en augljóslega ekki með það í huga
að standa við hann,“ sagði Danforth.
Kieran Prendergast, einn nánasti
samstarfsmaður Annans, sagði á
fundi með öryggisráðinu, að Súdan-
stjórn hefði ekkert gert til að af-
vopna Janjaweed-sveitirnar, sem
sakaðar eru um að stunda þjóðern-
ishreinsanir í Darfur, en bætti við, að
uppreisnarmenn blökkumanna í hér-
aðinu ættu líka stóra sök á ofbeldinu.
Alger upp-
lausn blasir
við í Darfur
Allir deiluaðilar sakaðir um að bera
nokkra ábyrgð á hörmungunum
Sameinuðu þjóðunum. AFP.
SEGJA má, að Ítalir bíði þess með
öndina í hálsinum, að kveðinn verði
upp dómur í spillingarmáli, sem rek-
ið hefur verið gegn Silvio Berlusconi,
forsætisráðherra Ítalíu. Er hans að
vænta í dag.
Verjendur Berlusconis segja, að
verði hann fundinn sekur, muni það
„breyta gangi ítalskrar sögu“ og
ljóst er, að allt annað en alger sýknu-
dómur getur valdið stjórnarkreppu
og uppnámi í stjórnmálum landsins.
Saksóknarar krefjast þess, að
Berlusconi verði dæmdur í átta ára
fangelsi fyrir að bera mútur á dóm-
ara og fá þá til að koma í veg fyrir
sölu á matvælasamsteypu til keppi-
nautar hans árið 1985. Segist
Berlusconi saklaus af því og segir
málið runnið undan rifjum vinstri-
sinnaðra dómara. Nokkrir sam-
starfsmenn hans hafa þó áður fengið
þunga dóma í þessu sama máli.
Úthýst í ESB?
Verði Berlusconi fundinn sekur,
verður hann um leið fyrstur for-
sætisráðherra í Evrópusambands-
ríki til að fá á sig dóm og ekki er víst,
að hann verði mjög velkominn hjá
öðrum leiðtogum sambandsins eftir
það.
Áður en Berlusconi, ríkasti maður
á Ítalíu, varð forsætisráðherra var
hann fundinn sekur í þremur málum
og dæmdur í sex ára fangelsi fyrir
mútur, svik og ólöglega fjármögnun
stjórnmálaflokks. Eftir margar
áfrýjanir var það niðurstaðan, að
sakirnar væru fyrndar.
Dæmt í spill-
ingarmálum
Verður Berlusconi fundinn sekur?
Róm. AFP.
ÍBÚI í Accra, höfuðborg Ghana,
hlýðir á kosningaútvarp í gær en
fólk beið þá niðurstöðu talningar
vegna forsetakosninga sem farið
höfðu fram í landinu yfir daginn.
John Kufour, núverandi forseti,
sækist eftir endurkjöri og fyrstu
tölur bentu til að hann hefði forskot
á helsta keppinaut sinn, John Atta
Mills. Að minnsta kosti þrír hafa
beðið bana í ofbeldi er tengist kosn-
ingunum.
AP
Úrslita beðið í Ghana
ALLS týndu 282 menn lífi við að
reyna að flýja Tékkóslóvakíu undir
stjórn kommúnista á árunum 1948 til
1989, að því er tékkneskur sagn-
fræðingur segir.
Sagnfræðingurinn, sem heitir
Martin Pulec, vinnur hjá stofnun
sem tékknesk stjórnvöld settu á
stofn til að rannsaka og skrá glæpi
kommúnistastjórnarinnar.
Pulec sagði í samtali við dagblaðið
Lidove Noviny að síðustu fórnar-
lömbin hefðu verið par frá Austur-
Þýskalandi, sem hefði drukknað við
að reyna að synda yfir Dóná til Ung-
verjalands 24. september 1989, inn-
an við tveimur mánuðum áður en
kommúnisminn féll.
Níutíu af fórnarlömbunum voru
útlendingar, flestir Pólverjar, en
einnig Frakki og Marokkóbúi – lík-
lega ferðamenn sem vildu skoða
„járntjaldið“ en voru taldir vera
flóttamenn. 145 fórnarlambanna
voru skotin og 96 fengu raflost af
víggirðingum. 16 frömdu sjálfsmorð
rétt áður en landamæraverðir náðu
þeim.
Tékkóslóvakía
í tíð kommúnista
282 týndu
lífi á flótta
Prag. AP.
♦♦♦