Morgunblaðið - 09.12.2004, Page 22

Morgunblaðið - 09.12.2004, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Hafnarfjörður | Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir næsta ár var samþykkt á fundi bæjarstjórn- ar á þriðjudagskvöld og gerir hún ráð fyrir jákvæðri rekstrarafkomu um 632 milljónir króna. Minnihluti sjálfstæðismanna segir rekstrar- niðurstöðu óviðunandi og að bæj- arstjórn sé að setja Íslandsmet í hækkunum á fjölskyldur í bænum. Í bókun meirihluta Samfylking- ar í bæjarstjórn kemur fram að með hagræðingu og vel skipu- lagðri og öflugri uppbyggingu nýrra íbúðarbyggða og þéttingu byggðar, hafi Hafnarfjarðarbæ tekist að treysta og efla stöðu bæj- arfélagsins og sækja fram á öllum sviðum. Gert er ráð fyrir því að rekstrarafkoma fyrir fjármagns- liði á samstæðureikningi sjóða og stofnana bæjarins verði jákvæð um 632 milljónir kr., sem er 150 milljóna kr. betri afkoma en út- komuspá ársins 2004 gerði ráð fyr- ir. Meirihlutinn segir að „[s]tór- felld uppbygging og bætt þjónusta í grunnskóla- og leikskólamálum og fjölskyldumálum yfir höfuð, aukin áhersla á æskulýðs-, íþrótta- og forvarnarmál, bætt upplýsinga- miðlun, íbúalýðræði og samráð í skipulags- og framkvæmdamálum hafa verið lykiláherslur í stefnu Hafnarfjarðarbæjar á kjörtíma- bilinu“. Minnihluti sjálfstæðismanna bendir á að með tillögu um 10% hækkun leikskólagjalda nú sé Samfylkingin hugsanlega að setja Íslandsmet í útgjaldahækkun á hafnfirskar fjölskyldur enda séu t.d. hækkanir á leikskólagjöldum vart undir 30% á sl. þremur árum. Benda sjálfstæðismenn á að í fjár- hagsáætluninni felist 35% gjald- skrárhækkun á hverja klukku- stund í heilsdagsskóla úr, 150 kr. í 200 kr., og lágmarksgjald hækki úr 2.250 kr. í 5.200 kr., eða um 125%. „Þá er lagt til að hádegisverður í grunnskólum hækki um 14% úr kr. 220 í kr. 250 hver máltíð. Leik- skólagjöld hækka um 10% með ákvörðun um að sérstaklega sé greitt fyrir morgun- og síðdegis- hressingu í leikskólum, alls kr. 2.800 á mánuði.“ Sjálfstæðismenn segja það sér- kennilegt að hækka gjaldskrá heilsdagsskóla, hádegisverð í grunnskólum bæjarins og morg- un- og síðdegishressingu um tugi milljóna króna en hreykja sér sér- staklega af framlagi vegna íþrótta- iðkunar barna. „Þarna er einfald- lega verið að gjaldtaka alla foreldra um mun hærri fjárhæðir á ári hverju en sú endurgreiðsla sem lögð er til vegna þátttöku barna yngri en 10 ára í íþróttum,“ segir í bókun sjálfstæðismanna. Tekist á um fjárhagsáætlun 2005 Batnandi afkoma eða Íslandsmet í hækkunum? HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ AKUREYRI Miðbærinn | Nú er unnið í því að mála dráttarbátinn Magna, sem var fyrsta stálskipið sem var smíðað hér á landi. Búið er að mála bátinn að neðan og byrjað á stýrishúsinu. Framtíð Magna er ekki á hreinu, vél- in er biluð og þarf að taka hana úr og hugsanlega skipta um. Sú hugmynd hefur komið upp að setja fyrstu vetn- isvélina sem hönnuð er fyrir skip í þennan fornfræga dráttarbát, en það hefur ekki verið hugsað af neinni al- vöru, að sögn Jóns Björns Skúlason- ar hjá Íslenskri nýorku. Morgunblaðið/Sverrir Vetnisvél í Magna? ÁSBJÖRN Björgvinsson, formaður Ferðamálasamtaka Norðurlands eystra, gerði nýlegar tölur Hagstof- unnar um gistináttatölur frá Norð- urlandi að umtalsefni á aðalfundi samtakanna í vikunni. Ásbjörn sagði tölurnar gefa til kynna að Norður- land, eitt landsvæða, hefði misst spón úr aski sínum, þ.e. að orðið hefði nokkur fækkun gistinátta á milli ára. „Miðað við tilfinningu fjöl- margra aðila sem starfa í ferðaþjón- ustu á Norðurlandi er eitthvað bogið við samantekt Hagstofunnar eða þá að gististaðir á Norðurlandi skila einfaldlega ekki inn gögnum um fjölda gistinátta til Hagstofunnar.“ Ásbjörn sagði að þeir sem störf- uðu í ferðaþjónustu á Norðurlandi hlytu að líta það mjög alvarlegum augum ef greinin skilaði ekki inn fullnægjandi eða réttum gögnum í þessu sambandi. „Gistináttafjöldinn er eitt af því fáa sem hægt er að bera saman á milli ára til að fá fram upp- lýsingar um dvöl og fjölda ferða- manna á svæðinu. Samdráttur í gisti- nóttum ætti að benda til almennrar fækkunar á ferðamönnum á Norður- landi en svo er ekki,“ sagði Ásbjörn. Hann sagði óumdeilt að aukning hefði orðið á ýmsum sviðum ferða- þjónustunnar á Norðurlandi og nefndi m.a. að 23% aukning hefði orðið hjá hvalaskoðunarfyrirtækjum á Húsavík í ár. „Ef ástæður þessarar „fækkunar“ eru ófullnægjandi skil á upplýsing- um eða hugsanlega „svört“ atvinnu- starfsemi, verður að bregðast við með viðeigandi hætti. Svört atvinnu- starfsemi innan greinarinnar er al- gjörlega óásættanleg og gerir ekkert annað en að skaða ferðaþjónustuna. Það verður ekkert mark tekið á þessari atvinnugrein ef við förum ekki sjálf að taka okkur alvarlega og standa með eðlilegum hætti að rekstri okkar fyrirtækja, skila inn réttum tölum, gögnum og gjöldum.“ Ásbjörn sagði að stofnun Mark- aðsskrifstofu Norðurlands á síðasta ári hefði verið mikið framfaraspor en um er að ræða samstarfsverkefni Ferðamálasamtaka Norðurlands eystra og vestra. Hann sagði það jafnframt leið inn í bjarta framtíð ef áform um enn víðtækara samstarf og samvinnu innan ferðaþjónustugrein- arinnar á Norðurlandi næði fram að ganga. Markaðsskrifstofa Norður- lands hefði nú þegar náð að skapa sér orðspor sem eftir væri tekið. Á aðalfundi Ferðamálasamtaka Norðurlands eystra var Sveinn Jónsson í Kálfskinni í Dalvíkur- byggð heiðraður fyrir ómetanlegt starf fyrir ferðaþjónustuna á Norð- urlandi. Aðalfundur Ferðamálasamtaka Norðurlands eystra Svört atvinnustarfsemi í greininni óásættanleg Eitthvað bogið við tölur um gistinætur á Norðurlandi Morgunblaðið/Kristján Viðurkenning Sveinn Jónsson í Kálfskinni t.h. Ásbjörn Björgvinsson og Gísli Sigurgeirsson sem fræddi fundarmenn um atorkusemi Sveins. Reykjavík | Sveitir Rimaskóla komu, sáu og sigruðu á hinu árlega jólaskákmóti grunnskóla í Reykja- vík sem haldið var sl. sunnudag. Sveitir Rimaskóla unnu bæði í drengja- og stúlknaflokki, og vann A-sveit skólans, sem er núverandi norðurlandameistari barnaskóla- sveita, allar sínar skákir og fékk 20 vinninga af 20 mögulegum. Stúlknasveitin varð í 2. sæti á mótinu með 13 vinninga og varð um leið sigurvegari í stúlknaflokki. Sveitir Rimaskóla vörðu þessa titla frá því árið 2003 og státar skólinn af ótrúlegum fjölda efnilegra skák- manna. Í þessum sigursælu sveitum Rimaskóla eru Hjörvar Steinn Grétarsson, Júlía Rós Hafþórs- dóttir, Júlía Guðmundsdóttir, Elísa- bet Ragnarsdóttir, Sverrir Ásbjörnsson, Ingibjörg Ásbjörns- dóttir, Hörður Aron Hauksson og Hrund Hauksdóttir. Rimaskóli sigursæll í skákinni ÁKVEÐIÐ hefur verið að bora nýja 1.300–1.600 metra djúpa vinnsluholu á Hjalteyri og er stefnt að því að hefja framkvæmdir í næstu viku, að sögn Franz Árnasonar, forstjóra Norðurorku. Jarðborinn Sleipnir er kominn norður en þessa dagana er verið að reyna koma lífi í vinnsluholu á Laugalandi á Þelamörk, sem talið er að hafi stíflast vegna hruns í hol- unni. Í kjölfarið verður borinn flutt- ur á Hjalteyri en Franz sagði að ástæðan fyrir borun þar væri fyrst og fremst til að auka öryggi. „Þetta er í fyrsta skipti sem við er- um að bora holu sem við þurfum ekki nauðsynlega á að halda, nema þá til öryggis. Hitaveitan hefur fram að þessu verið í þeirri stöðu að þurfa að leita að vatni og bora holur sem hafa strax verið teknar í full not.“ 250 tonn af vatni á klst. Franz sagði að vinnsluholan sem fyrir er á Hjalteyri, geti gefið um 250 tonn af 87 gráðu heitu vatni á klukkustund en nýjan holan verður boruð um 50 metrum frá henni. Holan á Laugalandi á Þelamörk, sem er um 1.720 metra djúp, var fyrst boruð upp úr 1990 en gaf þá ekki neitt. Fyrir fjórum árum var farið aftur í holuna og borað á ská út úr henni og gaf það góða raun, að sögn Franz. „Þá gaf holan okkur 60– 70 tonn á klukkustund af 104 gráðu heitu vatni, sem er langheitasta vatnið sem við höfum fengið á svæð- inu. Fljótlega eftir að holan var virkjuð fór vatnsmagnið að minnka og á endanum virðist hún alveg hafa lokast vegna hruns.“ Ný vinnsluhola boruð á Hjalteyri Morgunblaðið/Kristján Starfsmenn Jarðborana við vinnu sína á Laugalandi á Þelamörk. Nemar sýna lokaverkefni | Sýn- ing á verkum útskriftarnema á hönn- unar-, textíl- og listnámskjörsviði í Verkmenntaskólanum á Akureyri verður opnuð í Deiglunni á föstudag, 10. desember kl. 17. Sýningin verður opin á laugardag og sunnudag frá kl. 14–18. Nemendur sýna margvísleg verk unnin í ólíkan efnivið og er hér um að ræða lokaverkefni þeirra í skólanum. Leiðbeinandi og kennari þeirra er Guðmundur Ármann Sigurjónsson en nemendurnir sem sýna eru Elín Heiða Ólafsdóttir, Guðrún Ásta Þrastardóttir, Margeir Sigurðarson, Sandra Parviainen, Tinna Björk Gunnarsdóttir og Þóra Guðrún Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.