Morgunblaðið - 09.12.2004, Síða 24
24 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
SUÐURNES
LANDIÐ
Skaginn | Í tillögu að svæð-
isskipulagi fyrir Austur-Húna-
vatnssýslu er gert ráð fyrir að
hægt verði að stofna þjóðgarð á
utanverðum Skaga. Á svæðinu er
talsvert um náttúru- og menning-
arminjar en byggð hefur átt undir
högg að sækja.
Á vegum héraðsnefndar Austur-
Húnavatnssýslu hefur í nokkur ár
verið unnið að undirbúningi svæð-
isskipulags fyrir alla sýsluna,
óháð sveitarfélagamörkum, til árs-
ins 2012. Skipulagið verður aug-
lýst á næstunni og þá gefst íbúum
kostur á að kynna sér það og
koma fram með athugasemdir.
Guðrún Jónsdóttir arkitekt er
ráðgjafi við vinnuna og er tillagan
um þjóðgarð frá henni komin.
Gæti styrkt byggðina
Guðrún segir að á Skaganum
séu mörg svæði á náttúruminja-
skrá og einnig mikilsverðar menn-
ingarminjar. Nefnir hún Kálfs-
hamarsvík og Rifsnes. Báðir
þessir staðir eru á náttúruminja-
skrá og þar eru auk þess menn-
ingarminjar sem tengjast útgerð
til forna. Þá nefnir hún fjölda
vatna og Hafnir á Skaga. Þá er
Króksbjarg á vestanverðum skag-
anum. Austurhluti Skagans telst
til Sveitarfélagsins Skagafjarðar
og þar er einnig vötn á Skaga-
heiði sem og Ketubjörg við
Skagafjörð. Guðrún segir að tölu-
vert dýralíf sé á Skaga, meðal
annars fuglar og fiskar. Guðrún
gerir ráð fyrir að þjóðgarðs-
mörkin verði við Hofsá, sem er
nokkru fyrir norðan Skagaströnd.
Byggð á Skaganum hefur átt
undir högg að sækja, sérstaklega
að austanverðu. Þar hefur hefð-
bundinn búskapur að mestu lagst
af. Að vestanverðu eru öflug bú.
Guðrún segir að þjóðgarðar dragi
að fólk, það sýni tölur frá þeim
þjóðgörðum sem fyrir eru í land-
inu. Aukinn ferðamannastraumur
gæti styrkt búsetu á svæðinu.
Nefnir hún að íbúum í nágrenni
annarra þjóðgarða hafi ekki fækk-
að. Jafnframt væru menn að lýsa
vilja sínum til að stjórna landnýt-
ingu og láta náttúruna njóta sín.
Hún telur að fólkið sem þarna
býr nú þurfi ekki að vera hrætt
við að missa völdin á sínu nánasta
umhverfi. Þjóðgarði yrði ekki
komið á nema með samkomulagi
við heimamenn og þá yrði tekið
tillit til þarfa þeirra. Nefnir hún
að þarna sé nú stundaður búskap-
ur og veiðar og svo verði áfram.
Valgarður Hilmarsson, oddviti
héraðsnefndar, telur þjóðgarðs-
hugmyndina áhugaverða. Stofnun
hans gæti gert svæðið aðgengi-
legra fyrir ferðafólk. Hann segir
að þótt land sé tekið frá á svæð-
isskipulagi sé öll vinnan við stofn-
un þjóðgarðs eftir og það ætti al-
veg eftir að koma í ljós hvort
menn væru tilbúnir að fara út í
hana.
Guðrún hefur kynnt þjóðgarðs-
hugmyndina fyrir Skagfirðingum
og er málið til umfjöllunar í
þeirra röðum. Fram kemur í bók-
un skipulags- og bygging-
arnefndar Skagafjarðar að nefnd-
in hefði ekki uppi áform um
þjóðgarð á Skaga í tillögum sínum
að aðalskipulagi en væri reiðubúin
að taka upp viðræður við Austur-
Húnvetninga um málið. Eftir er
að ræða málið í sveitarstjórn
Skagafjarðar.
Eyðidalir og iðnaður
Í tillögum að svæðisskipulagi
Austur-Húnavatnssýslu er gert
ráð fyrir að nokkrir eyðidalir
muni njóta þjóðminja- og um-
hverfisverndar, þannig að jarð-
vegi verði ekki raskað nema að
undangengnum rannsóknum. Dal-
irnir eru allir utan fyrirhugað
þjóðgarðs, en Hallárdalur er
skammt sunnan þeirra þjóðgarðs-
marka sem svæðisskipulagið gerir
ráð fyrir. Þar lagðist byggð af
fyrir einni öld. Sömu tillögur eru
gerðar um Laxárdal, Sauðadal og
Víðidalsfjall. Á tveimur síð-
arnefndu stöðunum eru forn sel.
Guðrún telur unnt að nýta þessa
dali alla meira við ferðaþjónustu,
til dæmis að skipuleggja þangað
gönguferðir.
Í svæðisskipulaginu er tekið frá
land undir iðnað við Eyjarey, mitt
á milli Skagastrandar og Blöndu-
óss. Valgarður Hilmarsson segir
að stórt iðnfyrirtæki vanti á svæð-
ið. Vilji menn geta bent á hentuga
staðsetningu ef slíkt standi til
boða. Svæðið við Eyjarey hefur
ekki verið rannsakað en Val-
garður segir að aðdýpi sé mikið
og að þar yrði hugsanlega hægt
að byggja höfn ef stóriðjufyr-
irtæki þyrfti á að halda.
Tillögur að svæðisskipulagi fyrir Austur-Húnavatnssýslu verða auglýstar í mánuðinum
Gert ráð fyrir þjóðgarði úti á Skaga
!
"# ! $#
%&
!
'
(
( )
*+
$ & $+
#
&+
*! "
*
& ,
-
(
Reykjanesbær | Gert er ráð fyrir því
að lagður verði nýr vegur frá Reykja-
nesbraut og inn í Reykjanesbæ, á
svipuðum slóðum og Flugvallarvegur
liggur nú og að um hann verði aðal að-
koman í bæinn frá flugstöðinni. Gert
er ráð fyrir lagningu þessa vegar,
sem nefndur er Borgabraut, í drögum
að fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar.
Verið er að skipuleggja nýtt flugþjón-
ustusvæði við fyrsta hringtorg veg-
arins.
Sjö aðkomur eru nú inn í Reykja-
nesbæ og þær eru misjafnlega að-
gengilegar. Núverandi stjórnendur
Reykjanesbæjar hafa viljað skýra að-
komuna og gera hann aðgengilegri
fyrir umferð ferðafólks til og frá
Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Steinþór
Jónsson, formaður umhverfis- og
skipulagsráðs bæjarins, segir að ætl-
unin sé að hafa tvær megininn-
keyrslur í Reykjanesbæ. Önnur yrði
við hús Kaffitárs, til móts við nýja
byggingahverfið í Innri-Njarðvík.
Þar hafa verið teiknuð mislæg gatna-
mót. Hin aðkoman á að vera nálægt
gamla Flugvallarveginum sem nær
frá Reykjanesbraut, fram hjá iðnað-
arsvæðinu á Iðavöllum og niður á
Njarðarbraut. Verið er að hanna veg-
inn og hafa starfsmenn Reykjanes-
bæjar og Vegagerðarinnar náð sam-
komulagi um legu hans.
Margir sterkir seglar
Í tillögu að fjárhagsáætlun Reykja-
nesbæjar fyrir næsta ár, sem var til
fyrri umræðu í bæjarstjórn í fyrra-
kvöld, er gert ráð fyrir 280 milljóna
kr. fjárveitingu til lagningar vegarins.
Borgabraut er þjóðvegur í þéttbýli og
Vegagerðin mun því greiða megin-
hluta kostnaðarins. Steinþór segir að
Vegagerðin sé sammála stefnumörk-
un bæjarins að breyta innkeyrslum í
bæinn og leggja áherslu á þessar
tvær en hafi ekki fjármagn til að ráð-
ast í framkvæmdina strax. Málið sé
mikilvægt og því vilji Reykjanesbær
annast verkið og greiða fyrir það
gegn endurgreiðslu þegar fjárveiting
fæst en búist væri við því á árunum
2006 og 2007. Náist um þetta sam-
komulag segir Steinþór að hægt verði
að bjóða framkvæmdina út fljótlega
eftir áramót þannig að verkinu gæti
lokið fyrir næsta haust.
Gert er ráð fyrir að tvöföld Reykja-
nesbraut muni í framtíðinni ná upp
fyrir þetta svæði og að þar muni þá
verða gerð mislæg gatnamót. Þangað
til verður hringtorg á Reykjanes-
brautinni. Úr því verður aðkoma að
nýju flugþjónustusvæði sem Reykja-
nesbær er að skipuleggja við Reykja-
nesbrautina, ofan iðnaðarsvæðisins á
Iðavöllum. Við Borgabraut verður
væntanlegt Hlíðahverfi á Neðra-
Nikkelsvæði, væntanlegur aðal-
íþróttaleikvangur Reykjanesbæjar
og tilheyrandi íþróttasvæði, Reykja-
neshöllin og Íþróttaakademía og síð-
an mætir Borgabraut Njarðarbraut-
inni við hringtorg við veitingastað
Kentucky Fried Chicken sem þar er
að rísa.
Steinþór telur að ný og glæsileg að-
koma til bæjarins og þeir seglar sem
við hana eru geti bætt ímynd bæj-
arins og vakið áhuga vegfarenda á því
að fara niður í bæinn á leið sinni milli
Reykjavíkur og flugstöðvarinnar.
Hann veltir jafnframt upp þeirri hug-
mynd hvort ekki væri skynsamlegt, ef
stjórnvöld færu almennt út í að taka
upp vegtolla, að innheimta þá milli
þessara tveggja meginaðkomuleiða
að Reykjanesbæ þannig að fólk gæti
valið gjaldfría leið í gegn um bæinn.
Telur hann að um það gæti skapast
sátt meðal íbúa svæðisins og ríkið
gæti fengið tekjur til að standa undir
lúkningu tvöföldunar Reykjanes-
brautar.
Samgöngumiðstöð Íslands
Á vegum Reykjanesbæjar hefur
verið unnið að skipulagi nýs flugþjón-
ustusvæðis við Reykjanesbraut, milli
væntanlegrar Borgabrautar og Aðal-
götu, samkvæmt hugmyndum Stein-
þórs sem nefnir svæðið Samgöngu-
miðstöð Íslands. Hugmyndin er að
þar verði afgreiðsla fyrir allar helstu
bílaleigur landsins, bílastæði og bíla-
geymslur fyrir flugfarþega, bókunar-
miðstöð, bensínstöð, veitingastaður
og önnur ferðaþjónusta. Svæðið er í
tveggja og hálfs kílómetra fjarlægð
frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar og
segir Steinþór að stöðugar rútuferðir
yrðu á milli.
Steinþór segir að það sé að þrengj-
ast um á flugstöðvarsvæðinu og bíla-
leigubílar og bílastæði séu nokkuð frá
aðaldyrum. Hann vísar til reynslunn-
ar víða erlendis og telur að unnt sé að
bæta þjónustuna við flugfarþega með
því að koma upp aðstöðu eins og gert
er ráð fyrir í drögum að skipulagi
svæðisins við Reykjanesbraut. Þá
segir hann að samgöngumiðstöð á
þessum stað tengi starfsemi flugvall-
arins betur við Reykjanesbæ og
myndi vafalaust stuðla að því að flug-
farþegar litu meira til þeirrar þjón-
ustu sem þar er boðið upp á.
Verið er að skipuleggja svæðið en
Steinþór segir að nokkrir rekstrarað-
ilar hafi sýnt því áhuga og séu að und-
irbúa teikningar mannvirkja og fjár-
mögnun.
Gert ráð fyrir lagningu nýs vegar í stað Flugvallarvegar í tillögu að fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar
Ný aðalaðkoma fyrir
flugstöðvarumferð
VEGURINN frá Reykjanesbraut niður í Keflavík sem í daglegu tali er
nefndur Flugvallarvegur heitir Keflavíkurvegur samkvæmt gögnum
Vegagerðarinnar. Hugmyndir eru uppi um að nefna hann Borgabraut með
vísan til vígorða Reykjanesbæjar: Bær nærri borgum.
Á Borgabraut verða fimm hringtorg og er áhugi á að nefna þau eftir
heimsborgum og segir Steinþór Jónsson að Vegagerðin hafi boðist til að
láta hanna þau í anda þeirra borga sem við þau verða tengd. Hugmyndin er
að neðsta torgið, á mótum Borgabrautar og Njarðarbrautar, heiti Reykja-
víkurtorg en hin fjögur verði tengd einhverjum fjórum heimsborgum sem
eru stórir áfangastaðir flugfarþega sem fara um Leifsstöð.
Torg með borgaheitum
!
"
#
"
!"
.& +#
$ % #