Morgunblaðið - 09.12.2004, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 09.12.2004, Qupperneq 28
28 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF T ehús finnast ekki mörg hér á landi en hin glysgjarna Ingibjörg Grét- arsdóttir gerði sér lítið fyrir og opnaði testofuna og verslunina Frú fiðrildi um síðustu helgi í Ing- ólfsstræti 8 þar sem Kokka var áður til húsa. „Ég þurfti að fá útrás fyrir skreytiþörf mína og rómantík og hér er allt eftir mínum bjarta og bleika hugsunarhætti, bæði innanstokksmunir og vörurnar sem ég er með til sölu.“ Ingibjörg segir hugmyndina hafa kviknað í Danmörku þar sem hún hefur búið undanfarin þrjú ár. „Þar fór ég reglulega á mjög notalegt og rómantískt tehús sem heitir TEA TIME. Þar sátum við vinkonurnar ósjaldan og létum fara vel um okkur í reykleysinu en ég er ein af þeim sem njóta þess ekki að sitja í reykmekki eða reykingalykt á kaffihúsum. Testofan mín er því algerlega reyklaus og loftið hér alltaf hreint og ferskt.“ Danir rómantískari en Íslendingar Rómantíkin er sannarlega í hávegum höfð hjá Frú fiðrildi, þar sem logar á tugum kerta og hver einasti hlutur er hlýlegur og andrúms- loftið líkast því að ganga inn í ævintýri. Ingi- björg segist alla tíð hafa notið þess að gera fal- legt í kringum sig en hún hafi líka borið með sér heim áhrif frá Danmörku. „Lífssýnin og hvernig heimilin þar eru innréttuð er svo miklu rómantískara en hér á Íslandi. Hér eru allir svo uppteknir af hönnun, sem er auðvitað hið besta mál en stundum verður það svolítið kuldalegt,“ segir Ingibjörg sem keypti bollana, könnurnar og húsgögnin sem prýða tehúsið hennar á antikmörkuðum í Danmörku. Sætt sítrónusmjör frá Bretunum Gjafavörurnar sem hún er með til sölu í búð- inni koma líka flestar frá Danaveldi og þar má meðal annars finna ullarsokka með ísaum- uðum pallíettum, litríka gamaldags lampa, bleik glös, skálar, kertastjaka og allskonar dúllerí fleira. Gestir hjá Frú fiðrildi geta valið úr fleiri en einni tegund af tei til að dreypa á og eins geta þeir sem vilja fengið kaffi. Meðlætið er nýbak- aðar skonsur sem hún lætur sérbaka fyrir sig og best af öllu að smyrja þær með sætu sítr- ónusmjöri sem er handunnið og kemur frá Bretlandi. Kökur og annað góðgæti er einnig á boðstólum fyrir þá sem vilja. Ingibjörg leggur mikið upp úr persónulegri þjónustu og vill því hafa testofuna smáa í sniðum svo hún geti sjálf séð um að dekra við sína gesti. Spákona, brúðuleikhús og föndur Skreytiþörf hennar hefur einnig fengið út- rás í gegnum tíðina í innpökkun og hún býður sérstaklega upp á slíka þjónustu á testofunni. „Þetta hugsa ég ekki eingöngu fyrir þá sem versla hjá mér heldur getur fólk líka komið með gjafir sem keyptar eru annars staðar og látið mig pakka þeim inn. Ég hef líka séð um að skreyta sali fyrir veislur og sú þjónusta er öll- um opin.“ Hjá Frú fiðrildi verður líka spákona reglu- lega og einnig ætlar hún að bjóða upp á föndur, brúðuleikhús og upplestur fyrir börn á sér- stökum fjölskyldudögum. En hvaðan kemur nafnið Frú fiðrildi? „Ég er sjálf svo mikið fiðrildi og ég elska líka fiðrildi.“  TESTOFA | Rómantík, spákonur, innpökkun, gjafavara og kertaljós hjá Frú fiðrildi Þurfti útrás fyrir skreyti- þörf og rómantík Nammigott og hverskonar dúllerí er að finna á testofunni góðu. Morgunblaðið/KristinnIngibjörg Grétarsdóttir sem stundum er kennd við bleikt. Alsæl á testofunni sinni sem heitir Frú fiðrildi. Ekki amalegt að setjast niður hjá Frú fiðrildi við milda lýsingu með dásamlegt te í fögrum bolla, sérbakaða skonsu og sætt sítrónusmjör. Í desember verður afgreiðslutími hjá Frú fiðrildi sá sami og í verslunum á Lauga- veginum en annars er hann eftirfarandi: Þriðjud.–föstud. kl. 12:00–18:00 og á laug- ardögum kl. 12:00–17:00. Sími: 551-5155. khk@mbl.is JÓLAKORT, poppvélar, gestabækur, krem, skærahulstur, málverk og skartgripir var meðal þess sem konur í leikfimi hjá JSB, Jazzballettskóla Báru, komu með á aðventuhátíð skólans um síðustu helgi. Þetta er í annað sinn sem konunum var boðið að koma með það sem þær eru að fást við á hátíðina og sýna gestum. Konurnar tóku lagið með Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og ein kon- an tók til í geymslunni hjá sér og seldi þeim sem vildu fatnað. Gíslína Krist- jánsdóttir fór til Jótlands fyrir tveimur árum og lærði kúnstbród- erí og hún saum- ar nú út ótrúlega fallega nytja- hluti eins og hulstur fyrir skæri og poka fyrir ávexti. Hún segist sauma út á hverjum degi og það sé ekkert eins afslappandi. Morgunblaðið/ÞÖK Harpa María Gunnlaugs- dóttir hefur smíðað skart úr silfri í mörg ár en er ný- farin að búa til kertastjaka úr vír. Úr víraflækju býr hún til nokkurskonar hreiður fyrir sprittkerti og svo skreytir hún víra sem standa útúr hreiðrinu með perlum eða steinum. Harpa selur muni sína í Listaselinu á Skólavörðustíg en það reka sex konur sem vinna með ólík efni. Harpa hannar allt sjálf sem hún smíðar eða vinnur og fyrir jólin saumar hún töskur og býr til jólakort. Þegar faðir Filippíu Þóru Guð- brandsdóttur, Guðbrandur Magn- ússon, lést fyrir tíu árum hóf hún að búa til kort í minningu hans en af honum hafði hún lært skraut- ritun. Á fyrsta kortið sem hún gerði ritaði hún Faðir vorið á lat- ínu. Nú gerir hún kort fyrir allar kirkjulegar athafnir og einnig fyrir önnur tækifæri. Á sum kortin vatnslitar hún og draum- urinn er að geta unnið við skrautritunina.  AÐVENTA Handlagnar konur í leikfimi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.