Morgunblaðið - 09.12.2004, Page 46

Morgunblaðið - 09.12.2004, Page 46
46 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR var úr nöfnum lukkupottsins í síð- ustu viku en góð þátttaka var í leikn- um. Elfa Björk Hjálmarsdóttir vann lukkupottinn og er hún hér með gjafabréf fyrir ferðinni í höndunum. GESTIR sem gerðu vefsíðu Morg- unblaðsins, mbl.is, að upphafssíðu sinni áttu þess kost að skrá nafn sitt í lukkupott þar sem mögulegt var að vinna ferð til Bandaríkjanna. Dregið Morgunblaðið/Sverrir Vann ferð til Bandaríkjanna STJÓRNENDUR Tækniháskóla Ís- lands hafa sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu sem Stefanía Katrín Karlsdóttir, rektor skólans, skrifar undir: „Frumvarp til laga um afnám laga nr. 52/2002 um Tækniháskóla Ís- lands hefur verið lagt fram á Alþingi. Í greinargerð frumvarpsins sem fjárlagaskrifstofa fjármálaráðuneyt- isins gerir við frumvarpið segir, m.a.: „Tækniháskóli Íslands hefur verið rekinn með halla frá því að hann var stofnaður um mitt ár 2002 og nam uppsafnaður halli 127 m.kr. í árslok 2003. Í kostnaðarumsögn þessari er gert ráð fyrir að hallinn verði á bilinu 110–125 m.kr. um mitt ár 2005 og að hann færist ekki yfir á nýjan skóla.“ Eins og fram kom í ræðu mennta- málaráðherra á Alþingi 7. desember sl., þegar hún mælti fyrir frumvarp- inu, þá lagði hún áherslu á að upp- safnaður halli skólans er tilkominn vegna gamla Tækniskólans og er það vegna halla, biðlauna og óhagstæðs húsnæðis sem Tækniháskólinn tók yfir við stofnun hans. Stjórnendur Tækniháskóla Ís- lands vilja taka fram að þegar Tækniháskólinn var stofnaður um mitt ár 2002, tók hann við öllum skuldbindingum Tækniskólans, þar með talið miklum rekstrarhalla, óhagstæðu húsnæði og biðlauna- kostnaði starfsmanna. Uppsafnaður halli Tækniskólans hefur ekki enn verið greiddur að fullu. Stjórnendur Tækniháskólans hafa lagt mikla vinnu í það að snúa rekstri skólans við og hefur það tekist mjög vel. Að teknu tilliti til fyrri skuldbindinga hefur Tækniháskólinn verið rekinn hallalaus frá stofnun hans og gera áætlanir ráð fyrir jákvæðri rekstr- arniðurstöðu árið 2004.“ Hallinn vegna gamla Tækniskólans FÉLAGAR í Samtökum íslenskra barna- og unglingabókahöfunda skora á „stjórnvöld og aðra gæfu- smiði þessa lands að standa við skuld- bindingar sínar, virða grundvallarvið- horf flestra Íslendinga og fremja ekki órétt eða standa í stríðsrekstri í nafni þeirra,“ segir m.a. í ályktun sem bor- ist hefur Morgunblaðinu. Undir hana skrifa 30 rithöfundar. Í ályktuninni segir að stríðsátök ríkja og innan ríkja magnist með hverjum áratug og nýjar aðferðir valdi því að allt að 90% fórnarlamba stríða séu óbreyttir borgarar en ekki hermenn. „Samkvæmt tölum frá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna hafa yfir 2 milljónir barna verið drepnar í styrjöldum síðasta áratug, 4-5 millj- ónir hafa örkumlast og 12 milljónir barna misst heimili sín,“ segir þar m.a. Einnig segir að kynslóðir vaxi upp við varanlegt stríðsástand, yfir 300 þúsund börn séu notuð sem her- menn og þau oft misnotuð kynferð- islega. „Íslendingar hafa, eins og 192 aðr- ar þjóðir, skrifað undir og staðfest Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna frá 1989. Barnasáttmálinn er einstakt plagg í sögu mannréttindalöggjafar og kveður á um heilaga skyldu manna til að vernda börn og um rétt allra barna til mannsæmandi lífs og upp- eldisskilyrða sem stuðla að farsælum þroska þeirra,“ segir einnig. Íslendingar standi ekki í stríðsrekstri helgin ❊ kemur í dag! helgin er skemmtilegt vikublað sem berst landsmönnum í póstkassann í dag í blaðinu eru frábær tilboð auglýsenda ásamt tillögum að afþreyingu helgarinnar helginni er dreift í 100 þúsund eintökum um land allt helg in V I K U L E G A fim m tu d a g u r 0 9 1 2 0 4 ljósm ynd B rink P i a f o g í s l e n s k a þ j ó ð i n v i ð t ö l • k r o s s g á t a • d a g s k r á h e l g a r i n n a r • a f þ r e y i n g • s k e m m t u n ❊ góða helg i Leiksýningin um Edith Piaf í Þjóðleikhúsinu hefur slegið í gegn og þá ekki síst stórleikur Brynhildur Guðjónsdóttur. „Hún var merkileg manneskja og mikill listamaður,“ segir leikkonan en út er kominn geisladiskur með söng hennar í þessari sýningu sem hálf þjóðin hefur séð. Brynhildur er í viðtali á bls. 8. Lyfja Lágmúla og Lyfja Smáratorgi Opið 8-24 alla daga auglýsingapantanir í síma 569 1111 V I K U L E G A BÆJARMÁLAFÉLAG Frjálslynda flokksins á Húsavík ítrekar fyrri ályktun sína frá því 15. sept. sl. þar sem félagið skoraði á stjórnvöld að bregðast þegar við þeim alvarlega vanda sem blasti við Mývatnssveit, þegar starfsemi Kísiliðjunnar legð- ist af. Í ályktun segir: „Fyrirsjáanlegt er, að það hafi alvarlegar afleið- ingar á atvinnu- og byggðaþróun um alla Suður-Þingeyjarsýslu og má sem dæmi um það nefna að Mánafoss er hættur strandsigl- ingum frá Húsavík. Bæjarmálafélag Frjálslynda flokksins lýsir vonbrigðum með ótrúlegt sinnuleysi og tómlæti stjórnvalda í þessu máli.“ Bregðast þarf við vandanum KASJA Blasik sem slasaðist þeg- ar bifreið var ekið á hana í Sand- gerði 29. nóvember sl. er fisk- vinnslukona hjá Ný-fiski í Sandgerði. Í viðtali við hana í gær var ranglega farið með nafn fyr- irtækisins. Beðist er velvirðingar á því. Galdra-Loftur eftir Jón Ásgeirsson Á baksíðu blaðsins í gær var rangt farið með höfund forleiks að Galdra-Lofti sem er á dagskrá tón- leika Sinfóníuhljómsveitar Íslands í kvöld. Höfundurinn er Jón Ásgeirs- son. Beðist er velvirðingar á þessu. LEIÐRÉTT Vinnur hjá Ný-fiski HEIMDALLUR harmar ákvörðun stjórnvalda um 7% gjaldhækkun á sterku víni og tóbaki. Í ályktun frá Heimdalli segir ennfremur: „Það skýtur skökku við að í kjöl- far fyrirhugaðra tekjuskattalækk- ana grípi stjórnvöld til þess ráðs að hækka neysluskatta í stað sparnaðar í ríkisrekstrinum. Áfengisskattar á Íslandi eru þeir hæstu í heiminum og eiga rætur sín- ar að rekja til áfengisstefnu sem lagður var grundvöllur að fyrir 69 árum síðan þegar áfengisbanni var aflétt að hluta. Nágrannar okkar á Norðurlönd- unum hafa verið að lækka álögur sínar á áfengi. Þannig lækkuðu Dan- ir áfengisgjöld í október 2003 um 45%. Finnar lækkuðu áfengisskatt um 33% og Svíar stefna á 30–40% lækkun. Það er undarlegt að á með- an nágrannaþjóðir okkar stefna að lækkun áfengisgjalda halda íslensk stjórnvöld áfram að hækka álögur sínar. Þannig var áfengisskattur á sterku víni hækkaður um 15% árið 2002 og nú aftur um 7%. Neyslustýringarskattar á borð við áfengis- og tóbaksskatt byggjast á forsjárhyggju ríkisins gagnvart þegnum sínum. Ríkið á ekki að ákveða neyslu einstaklinga með skattlagningu heldur eiga þeir sjálf- ir að hafa frelsi til að ákvarða eigin neyslu.“ Harmar hækkun gjalda á áfengi Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.