Morgunblaðið - 09.12.2004, Side 60
NÝDÖNSK verður með tónleika í Iðnó í
kvöld og ætlar að flytja sama efni og sveit-
in flutti með Sinfóníuhljómsveit Íslands á
þrennum tónleikum fyrir fullu Háskólabíói
í byrjun nóvember. Hljómsveitinni til full-
tingis verður strengjakvartett en tónleik-
arnir eru hluti af tónleikaröðinni „…allt
fram streymir“ á vegum Tonlist.is.
Nýdönsk er jafnframt búin að senda frá
sér plötuna og mynddiskinn Skynjun með
efni frá tónleikunum með Sinfón-
íuhljómsveitinni. Inniheldur geisladisk-
urinn níu lög. Á mynddisknum er að finna
þessi sömu níu lög auk viðtala við hljóm-
sveitarmeðlimi og upptöku frá útgáfu-
tónleikum plötunnar Hunang í Þjóðleik-
húsinu árið 1993.
Tvö ný lög
„Þetta voru níu lög í það heila og þau
eru öll á diskunum. Þetta eru tónleikarnir
í heild sinni eins og þeir komu fyrir,“ segir
Stefán Hjörleifsson, gítarleikari í Ný-
danskri, en tónleikarnir voru teknir upp
föstudaginn 5. nóvember.
Tvö ný lög er þarna að finna, „Hvað
kostar hamingjan?“ sem er eftir Ólaf
Hólm, trommara sveitarinnar, en textinn
er eftir Björn Jr. Friðbjörnsson söngvara,
sem einnig samdi hitt nýja lagið, „Söku-
dólgur óskast“. Fjórði meðlimurinn í sveit-
inni er svo Jón Ólafsson, píanóleikari og
söngvari.
Lagavalið var úthugsað. „Mörg laganna
þarna hafa ekki heyrst mikið. Þetta eru ekki
okkar útjöskuðustu smellir. Við vildum fara
þá leið að finna lög, sem hentuðu þessum
búningi. Við vildum búa til einn hljóðheim,
lausan við togstreitu sem oft myndast milli
sinfóníuhljómsveita og poppsveita,“ útskýrir
Stefán en sveitin fékk hrós fyrir að takast
það í dómum um tónleikana.
Hölluðu sér aftur í hógværð
„Okkur fannst að við þyrftum að nota
hljómsveitina fyrst við vorum með 75
manns á launaskrá. Við hölluðum okkur aft-
ur sjálfir og nutum þess að vera inni í þess-
um hljóðheimi. Við fórum í þetta með
ákveðinni hógværð af okkar hálfu og
reyndum að falla inn í hljómsveitina,“ segir
Stefán en meðlimir spiluðu eingöngu á óraf-
mögnuð hljómfæri, hann á kassagítar og
Jón á flygil. „Trommusettið er mjög lítið,
hann spilar meira og minna með burstum á
settið.“
Nýdönsk fékk Kjartan Valdemarsson og
Samúel Jón Samúelsson úr Jagúar til að út-
setja lögin fyrir sig. „Við gerðum það til að
hafa þetta aðeins djassskotið. Við höfðum
vit á því að fela öðrum þetta en okkur sjálf-
um til að fá nýtt blóð í þetta,“ segir Stefán,
sem er ánægður með útkomuna. „Þetta er
einhver samsuða sem smellpassaði.“
Stefáni fannst þetta skemmtileg lífs-
reynsla. „Þetta var mjög gaman. Það eru
ekki allir sem fá svona tækifæri, að fá svona
frábæra hljómsveit og frábæran stjórnanda,
Bernharð Wilkinson, upp í hendurnar. Þetta
er gríðarlega kostnaðarsamt verkefni að
fara í og er borin von að geti borgað sig á
eðlilegum markaðsforsendum.
Á meðan þetta er sett inn í opinbert
styrkta sinfóníuhljómsveit er þetta hægt.“
Stefán segir þetta merkan áfanga fyrir
hljómsveitina, sem hefur starfað frá árinu
1987, þótt hann búist ekki við því að það hafi
einhver ákveðin áhrif á stefnu hennar.
„Þetta er afmarkað verkefni og þannig séð
einn af hápunktunum fyrir okkur sem hljóm-
sveit. Hvað kemur næst, getur verið eitthvað
allt annað. Við erum ekkert endilega að gera
eitthvað svipað aftur,“ segir hann en Ný-
dönsk er ekki farin að huga að næsta verk-
efni. „Þessi hljómsveit á að vera til. Við vilj-
um síður gera plötur nema við höfum
eitthvað fram að færa. Næst þegar við ger-
um plötu, hvort sem það verður á næsta ári
eða eftir fimm ár, þá er það skilyrði að það
verði til nóg efni að moða úr áður en við för-
um af stað.“
Tónleikarnir í Iðnó í kvöld hefjast kl. 21 og
eru sendir út í beinni á Tonlist.is. Áður en
Nýdönsk stígur á stokk ætlar Gunnar Bjarni
Ragnarsson og hans hugarfóstur, Frogs-
planet, að leika nýtt efni.
„Við ætlum að spila öll þessi níu lög og
meira til og ætlum að kalla til fjórar stúlkur
úr Sinfóníunni. Við erum búin að minnka út-
setningarnar og laga þær að skipaninni á
tónleikunum,“ segir Stefán.
Þetta eru áttundu tónleikarnir í röðinni og
segir Stefán, sem er jafnframt fram-
kvæmdastjóri Tonlist.is, að vel hafi tekist til
með tónleikaröðina. „Það hafa frá nokkur
hundruð upp í nokkur þúsund verið að horfa
á Netinu og nánast alltaf fullt hús í Iðnó.
Þetta hefur lukkast vel og klárlega eitthvað
sem er komið til að vera.“
Vildum búa til einn hljóðheim
Tónlist | Nýdönsk gefur út plötu og mynddisk með Sinfóníutónleikunum
Nýdönsk á æfingu ásamt Sinfóníuhljómsveit
Íslands fyrir tónleikana í nóvember.
Skynjun er komin út á geisla- og mynddiski.
Nýdönsk verður með tónleika í Iðnó í kvöld,
sem verða sendir út í beinni á Tonlist.is.
ingarun@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
60 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Richard Gere Jennifer Lopez Susan Sarandon
Sýnd kl. 8.Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 12 ára.
BLANCHARD RYAN DANIEL TRAVIS
Les
Marchands
de sable
(Svefnsandur)
sýnd kl. 6.
Miðaverð 700 krónur. Allar
myndir m. enskum texta.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 og 6.10. Ísl. tal./
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. Enskt tal.
Sýnd kl. 6. Ísl tal.
Shall we Dance?
Jólamyndin 2004 Pólarhraðlestin
Jólamyndin 2004 Pólarhraðlestin
Jólamynd ársins sem kemur allri fjölskyldunni
í rétta jólaandann fyrir hátíðarnar! Gerð með
splunkunýrri, byltingarkenndri tölvutækni.
Jólamyndin 2004 Pólarhraðlestin Jólamyndin 2004 Pólarhraðlestin Jólamyndin 2004 Pólarhraðlestin
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 10.05.
Sýnd kl. 8 og 10.
ÍSLENSKA
SVEITIN
RENEE ZELLWEGER HUGH GRANT COLIN FIRTH
Sama Bridget. Glæný dagbók.
H.J. Mbl.
M.M.J. Kvikmyndir.com
"Snilldarlega tekin og einstaklega
raunveruleg...hryllilega hrollvekjandi!"
- H.L., Mbl
"Hrikalega spennandi og skelfilega átakanleg!"
- E.Á., Fréttablaðið
Sama Bridget. Glæný dagbók.
M.M.J. Kvikmyndir.com
H.J. Mbl.
Kvikmyndir.is
ÁLFABAKKI
kl. 6, 8.20 og 10.30.
SÝND Í LÚXUS VIP KL. 4, 6, 8 OG 10.
H.L. Mbl.
S.V. mbl.
GUNNAR Bjarni Ragnarsson, Jet Black Joe-liði
og höfuðlagasmiður þeirrar sveitar, hefur rekið
sveitina Frogsplanet undanfarin ár þótt lágt hafi
farið en vinnan hefur nær eingöngu farið fram inn
í hljóðveri. Sveitin, sem ásamt Gunnari hefur á að
skipa söngkonunni Karo (Karolína Helga Egg-
ertsdóttir) og gítarleikaranum Eddu (Edda
Tegeder Óskarsdóttir), tróð þó upp á liðinni
Airwaves-hátíð og mun gera svo aftur í kvöld í
Iðnó er hún hitar upp fyrir Nýdanska.
Frogsplanet vinnur nú hörðum höndum að
breiðskífunni Kill Your Idols sem kemur út á
næsta ári og fer sú vinna fram í Bandaríkjunum.
Tónlistin er sýrukennt rokk en Gunnar og Karo
hafa unnið lengi saman að tónlist en þau kynntust
við enda síðasta áratugar.
Gunnar segir að strax eftir tónleikana fljúgi
Frogsplanet út til Bandaríkjanna til að leggja
lokahönd á breiðskífuna en upptökur fara fram á
Manhattan í upptökuverinu The Shed.
„Við erum á mála hjá Wrong Records sem er
tengt Sony. Þetta er búið að vera nokkuð langt
upptökuferli en við erum að vinna þetta með upp-
tökumanninum Ron St. Germain sem hefur unnið
með t.d. Soundgarden, Tool, Creed og 311. Hann
sér um hljóðblöndun en upptökustjórnandi er
Daniel Vise. Ég sjálfur er svo meðupptökustjórn-
andi.“
Gunnar segir það frábært að vera kominn út í
alvöru græjur og það sé gaman að vinna með
reyndu fólki. Það hafi þá verið einkar gleðilegt að
fá viðbrögð frá Bandaríkjunum á sínum tíma á
það sem þau hafi verið að vinna að.
Gunnar segir að tónleikar kvöldsins verði í óraf-
mögnuðum gír en í framtíðinni verði smíðað tón-
leikaband í kringum Frogsplanet.
Tónlist | Frogsplanet lætur á sér kræla
Breiðskífa
á næsta ári
Morgunblaðið/Jim Smart
Frogsplanet vinnur nú að breiðskífu úti í Manhattan í Bandaríkjunum.
Frogsplanet spila ásamt Nýdanskri í kvöld á Iðnó.
Tónleikarnir eru liður í tónleikaröðinni Allt fram
streymir og verða sendir út beint í gegnum ton-
list.is/tonlist.com. Útsending hefst klukkan
21.00. www.frogsplanet.com
Leikkonan Liv Tyler á von á sínufyrsta barni um eða í kringum
áramótin.
Liv er 27 ára gömul, dóttir eilífð-
arrokkarans Steves Tylers, söngv-
ara Aerosmith, sem er því við það að
verða afi rokk. Hinn verðandi pabbi
er líka rokkari. Hann er Breti og
heitir Royston Langdon, úr sveitinni
Longpigs. Liv segist þess fullviss að
hún gangi með stúlku og það sem
hún segist hafa fyrir sér er sú stað-
reynd að nefið á henni hefur breikk-
að á meðgöngutímanum.
Fólk folk@mbl.is
Feðginin Liv og Steve Tyler bíða
þess nú að nýr fjölskyldumeðlimur
komi í heiminn.