Morgunblaðið - 14.01.2005, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.01.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 12. TBL. 93. ÁRG. FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Vilja tilbúna fiskrétti Tilbúnir fiskréttir vinsælastir hjá ungu fólki | Daglegt líf Vilja útbúa æfinga- og keppnisbraut á Hengilssvæði | Minn staður Slóvenar með breytt lið  Á vellinum: Garcia  Appleby þokast upp „ÞETTA var eins súrrealískt og hugsast getur. Nánast eins og í bíómynd,“ segir Sigrún Dögg Kvaran sem fór ásamt ungri dóttur sinni niður að Tjörn til að gefa öndunum, en lenti í því að hópur gæsa réðst að þeim. „Ég fór í sakleysi mínu með dóttur mína, sem er eins og hálfs árs, niður að Tjörn til að gefa öndunum. Þegar við mættum með fullan poka af brauði var ljóst að fuglarnir voru ansi svangir því þeir hópuðust strax að okkur.“ Fljótlega varð allt brjálað, gæsirnar farnar að gogga í þær mæðgur, rífa í fötin þeirra og bíta í viðleitni sinni til að ná í brauðið. „Ég var með dóttur mína há- grátandi á handleggnum og var sjálf skíthrædd að berjast við þessa stóra fugla,“ segir Sigrún og tekur fram að hún hafi ekki verið sú eina sem lenti í hremm- ingum, því tilsýndar sá hún mann með tvö hágrátandi börn á handleggnum einnig vera að berja fuglana frá sér. „Og ég sá fjölskyldufólkið hreinlega flýja af vettvangi. Ég henti því öllu brauðinu í heilu lagi úr pok- anum til að losa mig við allt sem laðað gæti fuglana að, en það var hægara sagt en gert að kom- ast burt því fuglarnir voru í fimm metra radíus allt í kring- um okkur og varla hægt að fóta sig þarna. Þegar við síðan reyndum að flýja þá eltu þær okkur, líklegast í leit að meira æti,“ segir Sigrún og bendir á að gæsirnar hafi hreinlega étið allt sem dottið hafi frá fólki. „Ég var með tyggjó sem ég missti út úr mér í öllum hamaganginum og horfði á eina gæsina japla á því og kyngja af bestu lyst, auk þess sem ég sá gæsirnar éta steina.“ Í öllum látunum missti Sigrún bíllyklana sína sem hún var með í vasanum og telur að þeir hafi verið eitt af því sem gæsirnar hafi gleypt því hún fann lyklana hvergi eftir á. Hún varð því að hringja á Vöku til að fá þá til að opna bílinn, en hún var með aukalykla læsta inni í bílnum. Sigrún segist einnig hafa haft samband við föður sinn sem kom akandi til að aðstoða þær mæðg- ur. Gæsirnar voru hins vegar ekkert á því að sleppa þeim burt og gerðu sig líklegar til að elta þær inn í bílinn. „Ég var búin að heyra að Reykjavíkurborg væri hætt að gefa fuglunum og vor- kenndi öndunum og ákvað því að gera góðverk. En það fór ekki betur en þetta,“ segir Sig- rún og hlær, enda segir hún at- vikið frekar fyndið eftir á þótt ekki hafi verið gaman meðan á því stóð. Mæðgur lentu í hremmingum við Reykjavíkurtjörn Morgunblaðið/Árni Sæberg Mæðgurnar Sigrún Dögg Kvaran og Elísabet Kristín héldu sig í hæfilegri fjarlægð frá gæsunum við Reykjavíkurtjörn í gær. Gráðugar gæsirnar gleyptu bíllyklana  Gæsir háðar fæðugjöf /6 Íslendingar sjónvarpa í Skandinavíu SIGURJÓN Sighvatsson og Björn Steinbekk Kristjánsson, ásamt ís- lenskum fjárfestum, hafa tryggt dreifingu á nýrri sjónvarpsstöð, Big TV, í Skandinavíu. Stöðin mun sér- hæfa sig í framleiðslu sjónvarpsefnis fyrir aldurshópinn 12 til 25 ára. Út- sendingar hefjast í Finnlandi en áformað er að ná til 8 milljón heimila í Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og Dan- mörku fyrir árslok 2006. Sigurjón segir að Big TV muni ekki nást á Íslandi. „Ég held að ís- lenski markaðurinn sé of lítill fyrir Big TV og of þétt setinn,“ segir Sig- urjón. „Bæði Popp Tíví og Skjár einn þjóna þessum markaði mjög vel.“ 750 milljónir á 5 árum Að sögn Sigurjóns verður áhorf á Big TV ókeypis, en reksturinn bor- inn uppi af auglýsingum auk þess sem gert sé ráð fyrir kostunaraðil- um. Hann segist ekki geta sagt til um á þessu stigi hvaða íslenskir fjár- festar standi að Big TV með þeim Birni Steinbekk. Heildarkostnaður við verkefnið er áætlaður 750 millj- ónir króna á fimm árum. Fram- kvæmdastjóri Big TV verður Clas Dahlen, fyrrum yfirmaður markaðs- og sölumála EMI í Skandinavíu.  Íslendingar/10 Sigurjón Sighvatsson Björn Steinbekk Kristjánsson NORSKT fyrirtæki hefur á prjónunum að koma upp stærstu vindaflsverum í heimi undan ströndum Mæris og Raumsdals. Verður áætluð orkuframleiðsla þeirra nokkru meiri en öll fram- leiðsla Landsvirkjunar. Að fyrirtækinu, sem heitir Havgul, standa nokkrir fjár- festar og fyrirtæki, og hefur það sótt um leyfi til yfirvalda, norska vatns- og orkuráðu- neytisins, NVE, fyrir fjórum stórum vindaflsverum við Norðursjávarströnd Noregs. „Þetta verður stærra í snið- um en nokkurn getur órað fyrir,“ sagði Nils Henrik Johnson, yfirverkfræðingur hjá NVE, í viðtali við frétta- mann AFP-fréttastofunnar. Er áætluð rafmagnsfram- leiðsla veranna 1.400 mega- vött en til samanburðar má nefna, að aflið í vélum Lands- virkjunar er 1.212 megavött, 1.107 í vatnsaflstöðvum, 63 í jarðgufustöðvum og 42 í elds- neytisstöðvum. Johnson sagði, að iðnaður- inn á Mæri og í Raumsdal þyrfti á mikilli orku að halda auk þess sem nú væri mikil vinna í gangi við að nýta Orm- inn langa, næststærsta gas- svæðið við Noregsstrendur. Havgul vonast til að fá leyfi fyrir framkvæmdunum á næsta ári en það fer líka eftir því hvernig fólki á þessum slóðum muni hugnast þær. Risavaxin vindaflsver Orkuframleiðslan meiri en hjá Landsvirkjun  Meira á mbl.is/itarefni „ÞAÐ ER búið að vera alveg skelfilegt ástand í þessari viku,“ segir Anna Margrét Ólafsdóttir, leikskólastjóri Nóaborgar í Reykjavík, en um helmingur barna og starfsmanna á leikskólanum hefur verið veikur heima undanfarna daga. Alls eru 68 börn á Nóaborg og af þeim hafa yfir 30 verið veik heima að sögn Önnu. Auk þess voru fimm af 13 starfsmönnum, sem vinna á deildunum, fjarverandi vegna veikinda í gær. „Þó að þetta sé leiðinlegt þá sem betur fer veikjast allir á sama tíma.“ Orsakast af veirum Flensan er í hámarki um þessar mundir að sögn læknis á heilsugæslustöðinni í Mjódd. „Það hefur verið gríðarlega mikið um inflúensu,“ segir hann og bætir því við að einnig hafi töluvert borið á slæmri háls- bólgu auk þess sem mikið sé um kvefpestir og eitthvað hafi borið á magaveiki. Hann segir mikilvægt að fólk sem smitist af inflúensunni fari sér hægt, því annars séu miklar líkur á því að fólk geti veikst enn frekar ef það fer of geyst af stað. Aðspurður segir hann það taka u.þ.b. viku að jafna sig á flensunni, en það sé mikilvægt að fólk fari vel með sig. Hann bætir því við að gera verði greinarmun á flensu og almennri kvefpest, en báðir sjúkdómarnir orsakast af veirum. Inflúensan lýsir sér þannig að fólk veikist mjög snögglega, oftast með háum hita, beinverkjum og höfuðverkjum. Auk þess fylgi slæmt lungnakvef eða bronkítis. Hins vegar lýsa kvefpestir sér yf- irleitt með stífluðu nefi, hnerrum og sær- indum í hálsi. Flensan hefur náð hámarki  „Skelfilegt ástand“  30 börn af 68 veik  Fólk fari sér hægt Hamas íhugar vopnahlé Ramallah. AP, AFP. HAMAS-hreyfingin, herská samtök Palest- ínumanna, mun hugsanlega hætta árásum á Ísrael. Var það haft eftir einum leiðtoga þeirra en hann sagði, aldrei þessu vant, að Hamas stefndi ekki að því að tortíma Ísrael. Hassan Yousef, leiðtogi Hamas á Vest- urbakkanum, er talinn tiltölulega hófsamur og er nú beðið viðbragða annarra leiðtoga þeirra. Sagði hann, að Hamas áttaði sig á, að Palestínumenn væru orðnir þreyttir eftir fjögurra ára uppreisn. Skömmu eftir þessa yfirlýsingu létu fimm Ísraelar lífið í sjálfsmorðsárás þriggja Palest- ínumanna í Karni á Gaza-svæðinu. Kom það fram í ísraelska ríkisútvarpinu, sem sagði, að Hamas hefði með öðrum staðið að árásinni. Reuters Grímuklæddir liðsmenn Heilags stríðs, herskárra samtaka meðal Palestínumanna, við útför eins félaga síns í gær. Nú hefur Hamas-hreyfingin léð máls á að hætta árásum á Ísraela. NÝ lög um viðbrögð við hryðjuverkaógninni gengu í gildi í Póllandi í gær. Í þeim er m.a. að finna ákvæði þess efn- is að stjórnvöld megi láta skjóta niður flugvélar sem eru á valdi mannræningja. Einu gildir hvort um er að ræða farþegaflugvél eða her- flugvél. Neiti mannræningjar að lenda má skjóta vélina nið- ur. Talsmaður pólska varnar- málaráðuneytisins sagði lögin sett í ljósi reynslunnar af árás hryðjuverkamanna á Banda- ríkin. Deilumál í Þýskalandi Ekki er um þetta deilt í Pól- landi en er Horst Köhler, for- seti Þýskalands, staðfesti sams konar lög í fyrradag lét hann jafnframt í ljós þá skoð- un sína að vera kynni að þau stæðust ekki stjórnarskrána. Leyfilegt að granda flugvélum Varsjá. AP. Braut fyrir vélsleðamenn Íþróttir í dag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.