Morgunblaðið - 14.01.2005, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SIGURJÓN Sighvatsson og Björn Steinbekk Krist-
jánsson, ásamt íslenskum fjárfestum, hafa tryggt
dreifingu á nýrri sjónvarpsstöð, Big TV, í Skandinav-
íu. Stöðin mun sérhæfa sig í framleiðslu sjónvarps-
efnis fyrir aldurshópinn 12 til 25 ára. Útsendingar
hefjast í Finnlandi en áformað er að ná til 8 milljón
heimila í Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og Danmörku
fyrir árslok 2006. Heildarkostnaður við verkefnið er
áætlaður 750 milljónir króna á fimm árum. Fram-
kvæmdastjóri Big TV verður Clas Dahlen, fyrrum yf-
irmaður markaðs- og sölumála EMI í Skandinavíu.
Sigurjón Sighvatsson segir að Big TV muni ekki
nást á Íslandi. „Ég held að íslenski markaðurinn sé of
lítill fyrir Big TV og of þétt setinn,“ segir Sigurjón.
„Bæði Popp Tíví og Skjár einn þjóna þessum markaði
mjög vel.“
Að sögn Sigurjóns verður áhorf á Big TV ókeypis,
en reksturinn borinn uppi af auglýsingum auk þess
sem gert sé ráð fyrir kostunaraðilum. Hann segist
ekki geta sagt til um á þessu stigi hvaða íslenskir
fjárfestar standi að Big TV með þeim Birni Stein-
bekk.
Byrjað í Finnlandi
Finnland verður upphafspunktur þessarar útrásar Ís-
lendinga á sjónvarpsmarkaði. Í tilkynningu segir að
gengið hafi verið frá dreifingu Big TV til 1,2 milljóna
heimila í gegnum 8 stærstu kapalfyrirtækin á finnska
sjónvarpsmarkaðnum og að fjármögnun upphafs-
kostnaðar stöðvarinnar hafi verið tryggð. Heild-
arfjöldi heimila í Finnlandi, sem nái sjónvarpssend-
ingum, sé 2,4 milljónir. Samningurinn geri ráð fyrir
að í lok árs 2006 verði Big TV komið inn á tæplega
1,7 milljónir heimila í Finnlandi.
Enn fremur hefur verið gengið frá samkomulagi
við Canal Digital, dótturfélag símafyrirtækisins Tele-
nor í Noregi. Sá samningur mun tryggja Big TV
dreifingu inn á 500 þúsund heimili þar í landi strax í
upphafi. Til viðbótar er unnið að samningi sem trygg-
ir viðbótardreifingu í Noregi upp á 700 þúsund heim-
ili.
Í sjónvarpi, útvarpi og á Netinu
Í tilkynningunni segir að Big TV verði fyrsta sjón-
varpsstöðin í Evrópu, ef ekki heiminum, til að senda
út samtímis í sjónvarpi, á Internetinu og í útvarpi.
Samstarfssamningar við eina af tveimur stærstu
einkareknu útvarpsstöðvum Skandinavíu séu á teikni-
borðinu ásamt því að hafinn sé undirbúningur að um-
sóknum um útvarpsleyfi í þeim löndum sem Big TV
mun starfa í.
Þá segir í tilkynningunni að hugmyndafræðin sé að
þeir sem fylgjast muni með Big TV og horfi reglu-
lega, geti hvenær sem er stillt inn og notið þess sem í
boði er, hvort sem er í sjónvarps- eða útvarpstækjum
sínum og tölvum. Þessi aðferð hafi í för með sér auk-
in efnistök í framleiðslu, fjölbreyttari og víðtækari
dreifingu á Big TV, ásamt betri og skilvirkari dreif-
ingu og nýtingu auglýsinga fyrir viðskiptavini Big
TV.
Big TV mun strax í upphafi útsendinga kynna þjón-
ustu sem felst í því að áhorfendur geta hvenær sem
er keypt og sótt lög á Netið og eða tónlistar-
myndbönd. Big TV mun einnig bjóða sínum áhorf-
endum að kaupa og sækja lög beint í GSM-síma.
Segir í tilkynningunni að um 16 mánuðir hafi farið
í að vinna þetta verkefni, jafnt viðskiptaáætlun sem
og hugmynda- og aðferðafræði. „Forsvarsmenn verk-
efnisins byrjuðu að kynna hugmyndina fyrir kap-
alfyrirtækjum í Skandinavíu fyrir 12 mánuðum og
hafa stíf fundarhöld og kynningar fylgt í kjölfarið
sem nú eru að skila sér í áðurnefndum samningum.
Sú tölvutækni sem til er í dag gerir það að verkum
að rekstur og umfang sjónvarpsstöðva er ekki meira
en svo að u.þ.b. 50 manns munu starfa fyrir Big TV í
þeim fjórum löndum sem áður hafa verið nefnd.
Stöðvarnar verða fullkomlega sjálfvirkar í alla staði
og allt efni, svo sem þættir, kynningar og auglýs-
ingar, ásamt tónlistarmyndböndum, verður hýst á
tölvustýrðum útsendingarþjónum. Í raun er hægt að
hýsa allt efnið og senda út stöðina frá Íslandi og ekki
ólíklegt að hluti starfseminnar fari fram hér á landi.
Dreifing til Austur-Evrópu
Í tilkynningunni segir að samfara þeirri vinnu sem
unnin hefur verið síðustu misseri í Skandinavíu hafi
verið ákveðið að setja af stað vinnu við uppsetningu
og dreifingu á Big TV í Austur- og Suðaustur-
Evrópu. Eftir inngöngu, og undirbúning fyrir inn-
göngu landa í þeim hluta Evrópu í Evrópusambandið,
séu að opnast miklir möguleikar fyrir sjónvarp, sér-
sniðið að þörfum og áhugamálum ungs fólks.
Íslendingar í útrás
í sjónvarpsrekstri
Áformað að ný sjónvarps-
stöð fyrir aldurshópinn
12–25 ára nái til 8 milljón
heimila í Skandinavíu
fyrir árslok 2006.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýja sjónvarpsstöðin, Big TV, ætlar sér að sérhæfa sig
í sjónvarpsefni fyrir ungt fólk.
„VIÐ ræddum kosti þess og galla að
halda landsfund annaðhvort í vor eða
í haust,“ segir Stefán Jón Hafstein,
formaður framkvæmdastjórnar
Samfylkingarinnar, en tímasetning
komandi landsfundar flokksins var
rædd á framkvæmdarstjórnarfundi í
vikunni. „Eins og allir vita gæti stefnt
í formannskjör og ég sé ekki að tíma-
setning fundarins breyti einu eða
neinu fyrir þá tvo frambjóðendur
sem helst hafa verið nefndir.“
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir lýsti
því yfir í ágúst 2003 að hún stefndi að
því að bjóða sig fram til formennsku í
flokknum árið 2005. Össur Skarphéð-
insson var endurkjörinn formaður
Samfylkingarinnar á síðasta lands-
fundi flokksins sem haldinn var
haustið 2003. Hann hyggst gefa kost
á sér áfram í embætti formanns.
Rætt um 20. maí
Stefán Jón segir að skv. lögum
Samfylkingarinnar megi halda lands-
fundi bæði að vori og hausti. Lands-
fundir hafi þó ávallt verið haldnir að
hausti og því hafi verið gengið út frá
því að næsti fundur yrði einnig hald-
inn um haust.
Hann segir þó ákveðna kosti fylgja
því að halda landsfundinn í vor. Með-
al annars fylgdu því ákveðnir kostir
að „flýta formannskjörinu og klára
það,“ eins og hann orðar það, áður en
gengið yrði inn í næsta vetur, sem er
veturinn fyrir sveitarstjórnarkosn-
ingar.
Inntur eftir því hvort hann hallist
frekar að landsfundi í vor, segir
hann: „Þar til annað kemur í ljós er
tónninn frekar sá að athuga það
gaumgæfilega.“ Sú dagsetning sem
þá kæmi til greina er 20. maí. Hann
útilokar ekki að endanleg ákvörðun
verði tekin á næsta framkvæmda-
stjórnarfundi sem haldinn verður eft-
ir u.þ.b. hálfan mánuð.
Í lögum Samfylkingarinnar segir
að formaður Samfylkingarinnar skuli
kjörinn í allsherjaratkvæðagreiðslu
meðal allra skráðra félagsmanna
komi fram krafa þar um frá a.m.k.
150 flokksmönnum eigi síðar en 45
dögum fyrir boðaðan landsfund. Það
þýðir m.ö.o. að hann skuli kjörinn í
póstkosningu komi slík krafa fram.
Ella skuli formaður kjörinn á lands-
fundi til tveggja ára í senn.
Ákvæði um að varaformaður Sam-
fylkingarinnar skuli kjörinn í póst-
kosningu komi krafa þar um, var í
lögum flokksins, en var tekið út á síð-
asta landsfundi, að sögn Stefáns
Jóns. Kjör varaformanns getur því
einungis farið fram á landsfundi. Með
breytingunum var, að sögn Stefáns
Jóns, verið að gefa þeim aðila mögu-
leika, sem tapar í formannskjöri, að
bjóða sig fram til varaformanns. Sá
möguleiki væri ekki fyrir hendi ef
bæði formaður og varaformaður
væru kjörnir í póstkosningu.
Framkvæmdastjórinn
lætur af störfum
Karl Th. Birgisson, framkvæmda-
stjóri Samfylkingarinnar, hefur sagt
starfi sínu lausu frá og með nýliðnum
áramótum, en hann hóf störf sumarið
2002. Stefán Jón segir ekki búið að
finna eftirmann hans. „Við höfum
gert samkomulag um að hann vinni
það sem vinna þarf út uppsagnar-
frestinn,“ segir hann. Uppsagnar-
fresturinn er þrír mánuðir.
Karl vill sem minnst tjá sig um það
hvað hann ætli að taka sér fyrir hend-
ur. „Ég er að fara að sinna verkefni
sem mig hefur lengi langað til að
sinna,“ segir hann. „Ég ætlaði mér
aldrei að gera þetta að ævistarfi.“
Hann segir það góðan tímapunkt að
hætta núna, því flokkurinn standi vel
á allan hátt.
Fundur framkvæmdastjórnar
Samfylkingarinnar
Rætt um að
halda lands-
fund í vor
Össur Skarphéðinsson formaður,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir vara-
formaður og Einar Már Sigurðsson,
þingmaður Samfylkingarinnar.
Morgunblaðið/Golli
ANNA Kristinsdóttir,
borgarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins, vill að
skipulögð og málefnaleg
umræða fari fram meðal
flokksmanna um kosti
og galla R-listasam-
starfsins. „Við þurfum
að setjast niður og skoða
stefnu Framsóknar-
flokksins og hvað hafi
áunnist, skv. henni, á
þessum tíu árum, sem
samstarf Reykjavíkur-
listans hefur staðið yfir,“
segir hún.
Spurð hvort hún sé
með þessu að hvetja til
þess að Framsóknarflokkurinn bjóði
fram sér í næstu borgarstjórnar-
kosningum segir hún: „Mér finnst
sú umræða ekki vera tímabær.“
Fyrst og fremst eigi að meta það
hvað áunnist hafi með R-listasam-
starfinu. Sú umræða eigi ekki að
fara fram í fjölmiðl-
um eða á vefsíðum á
Netinu heldur innan
flokksins. „Síðan á að
fara með þessa um-
ræðu til kjördæmis-
sambandanna, sem
eru tvö í Reykjavík,
þ.e. í Reykjavík norð-
ur og Reykjavík suð-
ur, og þar á að taka
endanlega ákvörð-
un.“
Nokkur umræða
hefur farið fram um
samstarfið við R-
listann á vefsíðu
framsóknarfélaganna
í Reykjavík, hriflu.is, að undan-
förnu.
Gestur Kr. Gestsson, formaður
framsóknarfélagsins í Reykjavík
norður, segir þar m.a. að R-lista
samstarfið, eins og það sé í dag, sé
barn síns tíma og henti ekki Fram-
sóknarflokknum. Hann hvetur fram-
sóknarmenn í borginni til að bjóða
fram undir eigin merkjum í næstu
kosningum.
Þá segir Guðlaugur Sverrisson,
stjórnarmaður í Framsóknarfélagi
Reykjavíkur suður, m.a. að málefna-
lega sé R-listinn á hröðu undan-
haldi.
Sigrún Jónsdóttir, formaður
framsóknarfélagsins í Reykjavík
suður, segir að málefni R-listans og
skoðanir einstakra flokksmanna á
þeim hafi verið rædd á stjórnarfundi
framsóknarfélagsins í fyrradag. Sú
umræða hafi ekki leitt til neinnar
formlegrar niðurstöðu. „Við sjáum
enga ástæðu til að vera með neina
yfirlýsingu um skoðanir einstakra
flokksmanna,“ segir hún. „En það
kom fram að stjórnin ber fyllst
traust til kjörinna fulltrúa Fram-
sóknarflokksins í Reykjavík, hvort
sem um er að ræða borgarstjórn-
arfulltrúa eða alþingismenn.“
Anna Kristinsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins
Anna Kristinsdóttir
Málefnaleg umræða verði
um samstarfið við R-lista
Farið yfir
kostnað
vegna höf-
uðstöðva OR
ALFREÐ Þorsteinsson, stjórnar-
formaður Orkuveitu Reykjavíkur
(OR), hefur óskað eftir því að endur-
skoðandi OR fari yfir þá kostnaðar-
áætlun sem lá fyrir í upphafi vegna
byggingu höfuðstöðva OR og að
hann greini orsakir þeirra frávika
sem hafa orðið og skoði sérstaklega
hvort verkefnið hafi vaxið að um-
fangi eða hvort framkvæmdin hafi
orðið flóknari en ráð hafði verið fyrir
gert.
Bréf stjórnarformannsins til end-
urskoðandans var lagt fram í borg-
arráði í gær en í bókun meirihlutans
er því fagnað að farið hafi verið fram
á greinargerð um bygginguna.
Í bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins segir að þeir hafi ítrekað óskað
eftir upplýsingum og sérstakri skoð-
un vegna málsins. Í ljós hafi komið
að áætlanir hafi allt annað en haldið
og því sé nauðsynlegt að hefja tíma-
bæra skoðun á kostnaði vegna höf-
uðstöðva OR.
SUNNUDAGINN 16. janúar
eru 10 ár liðin frá því að snjó-
flóð féll á byggðina í Súðavík
með þeim afleiðingum að 14
manns fórust.
Þessara atburða verður
minnst í minningar- og bæna-
stund í Lágafellskirkju á
sunnudagskvöld kl. 20.30. Sr.
Jakob Ágúst Hjálmarsson og
sr. Karl V. Matthíasson annast
stundina. Jónas Þórir organisti
leikur á orgel og mun Jóhann
Friðgeir Valdimarsson syngja.
„Þessi samvera í kirkjunni er
til að minnast hinna látnu,
þakka fyrir líf þeirra og biðja
um styrk og von og trú á göngu
okkar um lífið,“ segir í frétta-
tilkynningu.
Minningar- og bænastund
verður einnig í Súðavíkurkirkju
á sunnudag eins og áður hefur
komið fram í Morgunblaðinu.
Minning-
arstund
í Lága-
fellskirkju