Morgunblaðið - 14.01.2005, Síða 12

Morgunblaðið - 14.01.2005, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR STOFNSTÆRÐ hörpudisks í Breiðafirði er nú aðeins 30% af stofn- stærðinni 1996 til 2000 vegna hruns stofnsins af náttúrulegum völdum. Mikil sýking er í skelinni, en stofninn hefur þó vaxið um 16% frá árinu 2003 vegna góðrar nýliðunar. Veiðar eru bannaðar og verða ekki leyfðar á næsta fiskveiðiári. Hafrannsóknastofnun boðaði til fundar í Stykkishólmi nú í vikunni þar sem starfsmenn stofnunarinnar greindu frá ástandi hörpudisks á Breiðafirði og niðurstöðum úr síðasta leiðangri sem farinn var í október sl. Á fundinn mættu einnig sérfræðing- ar frá Tilraunastöð Háskólans á Keldum, en þar hafa farið fram rann- sóknir á sýkingu skelstofnsins. Þrenns konar eftirlit Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafró, fór yfir á hvern hátt væri fylgst með þróun hörpudisksstofns- ins á Breiðafirði. Eftirlitið má flokka í þrjá meginflokka. Í fyrsta lagi ár- legir leiðangrar á Breiðafirði, þar sem stofnmælingar eru gerðar og fylgst með ástandi stofnsins. Þá er vöktun á svæðinu sem starfsmaður Hafró í Ólafsvík hefur umsjón með og svo nýjasti þátturinn er rannsókn á frumdýrasýkingu á hörpuskel. Stofnvísitalan hrundi frá árinu 1999 og er nú um 30% af meðalstofn- stærð áranna 1996–2000. Stofninn hefur stækkað um 16 % frá árinu 2003 og er það nýliðun sem ber þá aukningu uppi. Sú skel skilar sér inn í veiðistofninn á árunum 2005–2009 ef engin áföll verða á hennar leið. Hrun skelstofnsins er af völdum mikils náttúrlegs dauða á síðustu árum. Mikill dauði skeljar var á vissum svæðum í fyrra og má nefna svæði við Eyrarfjall og við Elliðaey, sem hefur verið mikilvægt veiðisvæði. En hvað er það sem orsakar þenn- an náttúrulega dauða? Við þeirri spurningu eru engin einhlít svör, því miður. Þar spila eflaust margir þætt- ir inn í og ekkert er hægt að fullyrða hvað eru orsök og hvað eru afleið- ingar. Mikil sýking Sýkingar af ýmsu tagi hafa fundist í skel. Þá hafa afræningjar eins og krossfiskur og æðarfugl áhrif á stofn- inn. Sveiflur í umhverfisþáttum, til dæmis hita, hafa áhrif. Hækkun hita getur haft áhrif á sýkingar og afrán, þó er hitinn farinn að nálgast þol- mörk skeljarinnar sem eru 14 gráð- ur. Hiti í Breiðafirði hefur hækkað um 3 gráður á síðustu árum og var í haust 12 gráður. Þá hafa miklar veið- ar valdið töluverðum óbeinum dauða. Þá hefur komið í ljós að flestir ár- gangar frá 1991–1997 voru slakir á flestum svæðum. Viðamiklar rannsóknir Árni Kristmundsson flutti mjög fróðlegt erindi um sýkingu í hörpu- disksstofninum í Breiðafirði. Hjá þeim á Keldum hafa farið fram mjög viðamiklar rannsóknir og hafa þeir magngreint sníkjudýr í skelinni. Í gangi er 10 ára áætlun og er fjár- magn tryggt í það verkefni. Í ljós hef- ur komið að miklar hnísildýrasýking- ar eru í innri líffærum skeljarinnar. Engar vísbendingar erum um bakt- eríusýkingar. Hnísildýrin fjölga sér ört og drepa frumur sem leiðir til dauða skeljarinnar. Þau sýnishorn sem vísindamennirnir hafa fengið til skoðunar eru 100% sýkt, í öllum stærðarflokkum. Það kemur í ljós að sýkingin eykst með stærð skeljarinn- ar. Það var sammerkt hjá öllum þeim vísindamönnum sem töluðu á fund- inum að erfitt er að spá um framtíð- ina og þróun hörpudisksstofnsins í Breiðafirði. Þeir voru spurðir hve- nær hugsanlega væri hægt að hefja aftur skelveiðar. Þeirri spurningu gátu þeir ekki svarað, það verður að koma í ljós. Ljósið í myrkrinu er að nýliðun er góð og stofninn hefur stækkað á síðasta ári, en hvernig honum vegnar verður framtíðin að skera úr um. Allavega liggur fyrir að skelveiðar verða ekki leyfðar á næsta fiskveiðiári. Fundarmenn lýstu þakklæti sínu fyrir góð og fróðleg erindi og þökk- uðu gestum fyrir komuna. Þeir lögðu áherslu á að ekkert yrði til sparað að fylgjast áfram með ástandi hörpu- disksins og fikra sig nær í því að komast að orsökum vandans því hér er um að ræða gífurlegt hagsmuna- mál fyrir samfélögin í Stykkishólmi og Grundarfirði. Orsakir hruns hörpu- disksstofnsins óljósar Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Hörpuskelin Vísindamenn frá Hafró og Tilraunastöð Háskólans að Keldum upplýstu fundarmenn um rannsóknir á hörpudisksstofninum á Breiðafirði. Það voru þeir Hrafnkell Eiríksson, Hlynur Pétursson, Jóhann Sigurjónsson, Árni Kristmundsson, Sigurður Helgason, Matthías Eydal og Jónas Páll Jónasson. Mikil sýking í skelstofninum á Breiðafirði Stykkishólmi. Morgunblaðið. ÚR VERINU „VIÐ erum að sjá aftur svipað mynstur og var um og eftir 1990 með hvern veturinn á fætur öðrum með mjög djúpum lægðum yfir land- inu,“ segir Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Ís- lands. Hann segir bæði djúpar og ill- skeyttar lægðir hafa verið á ferðinni síðustu vikurnar. Þetta hafi hafist í desemberbyrjun þegar margar lægðir fóru fram hjá Íslandi. „Þetta er allt annað ástand en í fyrra og hittiðfyrra þegar lægðirnar voru ekki svona djúpar og ill- skeyttar, og það voru meiri almenn hlýindi,“ segir Einar og bætir því við að núverandi ástand líkist einna helst því sem var á árunum í kring- um 1990 þegar meðalloftþrýstingur var tiltölulega lágur. Töluvert hefur borið á ofsaveðri í Noregi, Bretlandseyjum og norð- anverðri Evrópu að undanförnu. Fram kemur í vefútgáfu norska dag- blaðsins Aftenposten að veðurfræð- ingar telji þann veðurofsa sem hafi verið upp á síðkastið skýrt merki loftslagsbreytinga sem komi til með að verða viðvarandi. Veðurfræð- ingar í Noregi telja að slíkt ofsa- veður, sem herjað hefur á Noreg í vetur, verði regla fremur en und- antekning á komandi árum. Veð- urfræðingar telja ástæðuna stafa af lágþrýstisvæði suður af Íslandi sem aftur tengist hitaaukningu í Ind- landshafi. Sú hitaaukning stafi af mannavöldum með auknum út- blæstri koltvísýrings í andrúms- loftið. Einar segir háan sjávarhita hafa verið einkennandi fyrir veð- urfarið á Norður-Atlantshafi und- anfarin ár. Það hafi verið ein meg- inástæðan fyrir bæði hlýjum og afbrigðilegum vetrum í fyrra og hittiðfyrra. Hann segir sjávarhitann enn vera háan og ráði fleiri þættir þeirri veðráttu sem nú hefur verið. Einar segir meginkuldapól norð- urhvelsins hafi verið ansi nærgöng- ulan þennan veturinn. Hann hafi m.a. teygt anga sína suður til Ís- lands. „Þegar það gerist verða and- stæðurnar á milli kalda loftsins í norðri og hlýja loftsins í suðri svo miklar. Þess vegna verða lægðirnar fleiri og dýpri,“ segir Einar og bætir því við að í fyrra hafi annað verið upp á teningnum þegar kuldapóllinn var víðsfjarri, því sé ljóst að hann hafi verulega mikið að segja um veð- urfar hérlendis. „Hann er mestur í janúar og það er ekkert útlit fyrir að hann sé neitt á förum á næstunni,“ segir Einar. Hann bendir á að það séu talsverð áraskipti að því hvernig veðurfari á Íslandi er háttað, jafnt að sumri til að eða vetri, auk þess sé talsverður breytileiki í náttúrunni. Aðspurður segist Einar ekki eiga von á því að ofsaveður komi til með að aukast hérlendis og verða frekar regla en undantekning. Skoða þyrfti þessa atburði í stærra samhengi svo hægt væri að túlka þá að einhverju ráði. Meira um djúpar og ill- skeyttar lægðir yfir landinu Morgunblaðið/Alfons Lægðirnar í vetur hafa bæði verið djúpar og illskeyttar og að sögn veður- fræðings er veðráttan farin að minna á hvernig hún var í kringum 1990. TÆPLEGA fertugur maður hefur verið dæmdur í sex mánaða fangelsi og til að greiða 16,2 milljónir í sekt fyrir skattsvik. Brotin framdi hann í starfi sínu sem forsvarsmaður sex einkahlutafélaga í Reykjavík á árun- um 1997–2002. Fangelsisrefsingin er skilorðsbundin en greiði hann ekki sektina kemur átta mánaða fangelsi í stað sektarinnar. Ákæra í málinu var gefin út í ágúst 2003 og var því þá úthlutað til dóm- ara. Ekki tókst að birta manninum fyrirkall þar sem hann dvaldi erlend- is og sendi Héraðsdómur Reykjavík- ur málið aftur til ríkislögreglustjóra. Málið var sent dómnum á nýjan leik í september sl. Brot mannsins fólust aðallega í því að standa ekki skil á staðgreiðslu op- inberra gjalda sem hann hélt eftir af launum starfsmanna sinna. Maður- inn rak m.a. gistiheimili, kortaút- gáfu, minjagripagerð og ritaraþjón- ustu á þessum árum. Með skattsvikum skaut hann alls undan 8,1 milljón króna sem hann hafði haldið eftir af launum starfsmanna sinna. Í samræmi við ákvæði um lág- marksrefsingu fyrir skattsvik var hann dæmdur til að greiða tvöfalt hærri upphæð í sekt en hann sveik undan. Í niðurstöðum dómsins segir að mjög langur tími sé liðinn frá brot- unum og þótti dómara því rétt að skilorðsbinda refsinguna. Helgi Magnús Gunnarsson sótti málið f.h. ríkislögreglustjóra. Verj- andi mannsins var Pétur Guðmunds- son hrl. Guðjón St. Marteinsson kvað upp dóminn. Sveik undan skatti í rekstri sex fyrirtækja Milljón til sýnis á laugardag  Seðlar í búntum grípa augað í hvaða samhengi sem er

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.