Morgunblaðið - 14.01.2005, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.01.2005, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT UPPREISNARMENN í Aceh-hér- aði í Indónesíu óskuðu í gær eftir friðarviðræðum við stjórn landsins til að tryggja hjálparstarf í héraðinu vegna náttúruhamfaranna annan dag jóla. Uppreisnarmennirnir neituðu ásökunum stjórnarinnar um að þeir hefðu skotið á starfsmenn hjálpar- stofnana í Aceh og reynt að ræna þeim. Þeir sögðust standa við vopnahlésyfirlýsingu sem þeir gáfu út daginn eftir hamfarirnar. Stjórn Indónesíu hefur gefið er- lendum hjálparstarfsmönnum og fréttamönnum í Aceh fyrirmæli um að skrá sig, gera grein fyrir fyr- irhuguðum ferðum sínum og ferðast aðeins undir vernd hermanna í Aceh. Stjórnin segir þetta nauðsyn- legt vegna hættunnar á árásum uppreisnarmanna sem berjast fyrir sjálfstæði héraðsins. Stjórnin kvaðst í gær hafa ákveð- ið að senda þúsundir hermanna til að aðstoða við hjálparstarfið í Aceh til viðbótar þeim sem fyrir eru í hér- aðinu. Gert er ráð fyrir því að alls verði nær 50.000 indónesískir her- menn í Aceh. Talsmaður hersins neitaði því að hermönnunum yrði beitt í barátt- unni gegn uppreisnarmönnum. Bandaríkin krefjast skýringa Hermenn frá Ástralíu, Japan, Malasíu, Singapúr og Bandaríkjun- um hafa tekið þátt í hjálparstarfinu í Aceh og Indónesíustjórn hefur sagt að þeir þurfi að fara þaðan inn- an þriggja mánaða. Bandaríkjastjórn krafðist í gær skýringa á fyrirmælum Indónesíu- stjórnar eftir að bandaríska flug- móðurskipið Abraham Lincoln, sem notað hefur verið við hjálparstarfið, þurfti að fara út úr landhelginni, en áður hafði stjórnin mótmælt æfing- arflugi bandarískra véla frá skipinu. Bandarískir landgönguliðar, sem flutt hafa hjálpargögn til fórnar- lamba hamfaranna, hafa einnig þurft að fara um borð í skip sín vegna kvartana Indónesíustjórnar. Yfirvöld skýrðu frá því í gær að tala látinna hefði hækkað í 110.229 í Indónesíu og 12.132 til viðbótar væri saknað. Tala látinna á öllum hamfarasvæðunum er komin í 163.338. Uppreisnarmenn í Aceh vilja friðarviðræður Banda Aceh. AFP. LÆKNAR á hamfarasvæðinu í Aceh-héraði á indónesísku eyjunni Súmötru sögðu í gær að hættan á kólerufaraldri minnkaði með degi hverjum þar sem sífellt fleiri fórnarlömb hamfaranna fengju hreint drykkjarvatn. Þeir sögðu hins vegar að hættan á malaríu- eða beinbrunasóttarfaraldi hefði stóraukist. Þeir óttast að um 100.000 manns á hamfarasvæð- unum við Indlandshaf deyi af völdum malaríu á næstu mánuðum verði ekki gerðar nægar ráðstafanir til að hefta útbreiðslu sjúkdóms- ins. Fjölskylda, sem missti heimili sitt í hamför- unum, er hér í tjaldi í Banda Aceh, höfuðstað Aceh-héraðs, eftir úrhellisrigningu. AP Stóraukin hætta á malaríufaraldri HARRY Bretaprins, yngri sonur Karls Bretaprins og Díönu heitinnar prinsessu, hefur beðist afsökunar á því að hafa klætt sig í nasistabúning en götublaðið The Sun birti í gær forsíðumynd af Harry þar sem hann sést bera hakakross um handlegg- inn, líkt og nasistar gerðu á sínum tíma. Myndin af Harry vakti sterk viðbrögð í gær, ekki síst hjá sam- tökum gyðinga í Bretlandi. Myndin af Harry var tekin í 22 ára afmælisveislu hjá vini hans um síð- ustu helgi en öllum gestunum 250 hafði verið uppálagt að mæta í grímubúningi. Harry, sem er tvítug- ur, sést einnig halda á vindlingi og drykkjarföngum á myndinni en í stríðsfyrirsögn The Sun segir: „Nas- istinn Harry“. Eldri bróðir hans, Vilhjálmur krónprins, var einnig í veislunni en mætti í ljónsbúningi, að því er fram kom í The Sun. Breska konungsfjölskyldan hefur þegar sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að Harry harmi atburð- inn, hann geri sér grein fyrir því að það hafi verið illa til fundið hjá hon- um að velja einmitt þennan grímu- búning. „Á ekki erindi til Sandhurst“ Stjórn samtaka gyðinga í Bretlandi sagðist fagna afsökunarbeiðni Harrys. „Þessi framkoma var smekklaus, einkum þar sem minn- ingardagur um helförina er skammt undan [27. janúar] og þar mun kon- ungsfjölskyldan leika stórt hlut- verk,“ sagði í yfirlýsingu samtak- anna. Jeff Barak, aðstoðarritstjóri blaðsins Jewish Chronicle, sagði myndina hins vegar vekja sér „við- bjóð“. Sagði hann í viðtali á Sky- sjónvarpsstöðinni að „svona nokkuð gerði maður einfaldlega ekki“, það væri ekki fyndið að íklæðast nas- istabúningi og að Harry hefði gert „slæm mistök“. Hafa ýmsir álitsgjafar lýst þessari uppákomu sem áfalli fyrir ímynd prinsins en hann hafði raunar þegar getið sér orð sem óstýrilátt ung- menni. Er ekki langt síðan sagt var frá því að Harry hefði lent í handa- lögmálum við ljósmyndara fyrir utan næturklúbb í London. Harry, sem er þriðji í röðinni til að erfa konungstign í Bretlandi, á eftir föður sínum, Karli, og bróður, Vil- hjálmi, hefur lýst áhuga á því að þjóna í breska hernum. Hefur verið gert ráð fyrir því að hann hæfi nám við hinn virta herskóla, Sandhurst- akademíuna nú í haust. En Doug Henderson, þingmaður fyrir Verka- mannaflokkinn og fyrrverandi ráð- herra í málefnum breska hersins, sagði í gær að Harry ætti að leggja þessi áform til hliðar. „Eftir þessar uppljóstranir þá tel ég ekki að þessi ungi maður eigi erindi til Sand- hurst,“ sagði hann. Dicky Arbiter, fyrrverandi tals- maður bresku konungsfjölskyld- unnar, sagði að skrifleg afsök- unarbeiðni væri ekki nóg. „Ef hann vill að komið verði fram við hann sem fullorðinn mann þá verður hann líka að haga sér sem fullorðinn mað- ur og hann þarf að biðjast afsökunar í eigin persónu,“ sagði hann. Arbiter harmaði það einnig, að svo virtist sem Karl Bretaprins beitti syni sína, einkum Harry, ekki nægi- lega miklum aga. „Hann hefur enga stjórn [á syni sínum],“ bætti hann við. „Nasistinn Harry“ sagði fyrirsögn á forsíðu The Sun í gær. Uppljóstr- anir blaðsins ollu mikilli hneykslan. Karl Bretaprins „hefur enga stjórn á syni sínum“ Harry Bretaprins biðst afsökunar á því að hafa mætt í nasistabúningi í veislu London. AFP. ILL meðferð bandarískra hermanna á íröskum föngum í Abu Ghraib-fang- elsinu í útjaðri Bagdad og aðstæður fanga í Guantanamo-búðunum á Kúbu hafa skaðað orðspor Bandaríkj- anna sem forysturíkis á sviði mann- réttindamála. Þetta er skoðun mann- réttindasamtakanna Human Rights Watch en árskýrsla þeirra var kynnt í gær. Human Rights Watch segir Banda- ríkin ekki lengur geta haldið því á lofti, að þau beiti sér fyrir mannrétt- indum í heiminum, ef þau síðan sjálf standa fyrir því að mannréttindi séu brotin á fólki. „Þegar stjórn ríkis sem er jafn valda- og áhrifamikið og Bandaríkin gengur vísvitandi gegn mannréttindalögum og reynir að rétt- læta það framferði sitt, þá grefur það undan gildi laganna sjálfra og sendir öðrum skilaboð um að ganga fram með sama hætti,“ segir í skýrslunni. Teljast vart verndarar mannrétt- inda lengur Mannréttinda- samtök gagnrýna Bandaríkjastjórn Washington. AP. KAUPSÝSLUMAÐURINN Sergei Bagapsh hefur verið kosinn forseti uppreisnarhéraðsins Abkhaziu í Georgíu. Hlaut hann rúm 90% atkvæða í kosn- ingum á miðviku- dag. Bagapsh vill náið samstarf við Rússland. Rúss- ar hafa mikil áhrif í héraðinu og hafa stutt þar hreyfingu sjálf- stæðissinna. Ekkert ríki hefur þó enn viðurkennt sjálfstæði héraðs- ins. Upprunalega studdu Rússar ann- an frambjóðanda, Raul Khadjimba, fyrrverandi KGB-foringja og félaga Vladímír Pútíns Rússlandsforseta. En Bagapsh vann óvæntan sigur á Khadjimba og Rússum tókst að fá þá til að samþykkja að Khadjimba yrði varaforseti ef Bagapsh ynni. Kosið í Abkhaziu Bagapsh sigraði Sukhumi í Georgíu. AFP. Sergei Bagapsh ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.