Morgunblaðið - 14.01.2005, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2005 19
ERLENT
BRESKI kaupsýslumaðurinn Sir
Mark Thatcher játaði fyrir dómi í
Höfðaborg í Suður-Afríku í gær að
vera sekur um að hafa óafvitandi
tekið þátt í að fjármagna valdarán-
stilraun í olíuríkinu Miðbaugs-Gín-
eu í vestanverðri Afríku. Var hann
sektaður um sem svarar tæplega
32 milljónum króna og hlaut skil-
orðsbundinn fangelsisdóm.
Játningin og refsingin er í sam-
ræmi við sátt sem náðist í málinu.
Samkvæmt henni er Sir Mark, sem
er 51 árs gamall og sonur Marg-
aret Thatcher, fyrrverandi for-
sætisráðherra Bretlands, frjáls
ferða sinna og getur farið til
Bandaríkjanna þar sem fjölskylda
hans býr. Eiginkona hans er frá
Texas.
Einræðisherra Miðbaugs-Gíneu,
Teodoro Obiang Nguema, hefur
verið lengi við völd og er alræmdur
fyrir grimmd. Samtök ungliða í
Afríska þjóðarráðinu, stjórnar-
flokki Suður-Afríku, fordæmdu í
gær niðurstöðuna í máli Thatchers
og sögðu dóminn allt of vægan.
„Það að stuðla að glæpsamlegu at-
hæfi eins og að steypa löglegri rík-
isstjórn er ekki aðeins glæpur
gegn þjóðinni heldur ætti aldrei að
fyrirgefa slíkt brot,“ sagði í yfirlýs-
ingu samtakanna.
Þegar hafa nokkrir menn verið
dæmdir í fangelsi í Zimbabve og
Miðbaugs-Gíneu fyrir aðild að
valdaránstilrauninni. Er einn
þeirra Simon Mann, Breti sem var
á sínum tíma ná-
granni Thatchers
í dýru hverfi í
Höfðaborg.
Sir Mark ját-
aði að hafa greitt
leigu á þyrlu sem
málaliðar ætluðu
að nota við
valdaránið en
hann segist hafa
staðið í þeirri trú
að nota ætti þyrluna til hjálpar-
starfa. Nota átti þyrluna til að
fljúga með Severo Moto, leiðtoga
stjórnarandstæðinga í Miðbaugs-
Gíneu, sem nú er í útlegð á Spáni,
til heimalandsins eftir að Nguema
hefði verið steypt.
Mark Thatcher er að sögn BBC
talinn eiga um 60 milljónir punda
eða yfir sjö milljarða króna. Var
hann í valdatíð móðurinnar sak-
aður um að misnota aðstöðu sína í
ýmiss konar viðskiptum. Hann
erfði barónstitil eftir föður sinn,
Dennis Thatcher, sem lést 2003.
Thatcher-hjónin hlutu arfgengan
barónstitil í heiðursskyni fyrir
stjórnmálastörf Margaret Thatcher
sem missti völdin 1990 eftir að hafa
verið forsætisráðherra í samfleytt
11 ár.
Valdaránstilraunin í Miðbaugs-Gíneu
Mark Thatcher
fékk skilorðs-
bundinn dóm
Höfðaborg. AP, AFP.
Sir Mark Thatcher
FRANSKA róðrarkonan Maud
Fontenoy hyggst róa báti sínum ein
síns liðs yfir Kyrrahafið frá Perú til
Tahítí, um 8.000 km leið. Fyrir
rúmu ári varð hún fyrst kvenna til
að róa ein síns liðs yfir Atlantshafið
úr vestri til austurs.
Fontenoy hyggst nú róa sömu
leið og Thor Heyerdahl og félagar
hans sigldu á frumstæðum seglf-
leka árið 1947 til að sanna þá kenn-
ingu að sæfarar frá Suður-Ameríku
hefðu sest að á Suðurhafseyjum til
forna.
Fontenoy segist ætla að verða
fyrsti ræðarinn til að róa þessa leið
einn síns liðs og telur að róðurinn
taki um fimm mánuði.
„Ég vil safna lífsreynslu. Ég er
farin, lítil kona á litlum báti í stór-
kostlegu ævintýri,“ sagði Fontenoy
áður en hún lagði af stað frá Lima í
Perú á miðvikudagskvöld. „Ég veit
að ég þarf að glíma við fjölmörg
vandamál, illviðri og einsemd. En
ég veit líka að sigurinn verður
stærri vegna þess að þetta verður
erfitt frá byrjun.“
Varðskip landhelgisgæslunnar í
Perú fylgdi báti Fontenoy fyrsta
daginn, meðal annars vegna hættu
á að hún yrði fyrir barðinu á sjó-
ræningjum. Eftir það getur hún
ekki reitt sig á neina aðstoðarbáta
og lendi hún í vandræðum geta liðið
allt að tíu dagar þar til hún fær
hjálp.
Fontenoy reri frá Kanada til
Spánar á 117 dögum haustið 2003.
Hún lenti þá í 36 stunda illviðri og
bátnum hvolfdi þá sautján sinnum í
tíu metra háum öldum. Fontenoy er
26 ára og ólst upp í bátum. Hún var
aðeins viku gömul þegar hún fór í
fyrstu siglinguna í skútu yfir Atl-
antshafið með fjölskyldu sinni. Hún
hefur lifað í alls fimmtán ár um
borð í bátum og stundaði nám í
bréfaskóla.
„Lítil kona á litlum báti í
stórkostlegu ævintýri“
Callao. AFP, AP.
!
!" #$ #
"
# $
%
!
"
# $%
"
#&' & '(
)* +, -*.
,..
(
'
) **
*
$ *+
, ,
('
*&-'$
)($
. * *
$, *
/0
*'$+
1'$
2* -$1'$
3('$
*
, 4
5 *( 1'$
Meira á mbl.is/itarefni