Morgunblaðið - 14.01.2005, Page 20
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Þingeyingur ársins | Birgitta Haukdal,
söngkona frá Húsavík, var kosin Þing-
eyingur ársins 2004 í kosningu á vefnum
skarpur.is á Húsa-
vík. Þátttaka var
góð, að því er fram
kemur á vefnum,
og athygli vakti að
alls fengu rúm-
lega 40 aðilar at-
kvæði í kjörinu.
Úrslitin voru
harla tvísýn og að-
eins munaði einu
atkvæði á Þing-
eyingi ársins og
þremur öðrum.
Jafnmörg atkvæði í 2. sæti fengu Húsvík-
ingarnir Guðni Bragason og Gunnlaugur
Karl Hreinsson, og Bárðdælingurinn Þor-
steinn Ingvarsson.
Hvalfjörður í Staðardagskrá | Skipaður
hefur verið starfshópur í Hvalfjarð-
arstrandarhreppi til að vinna að Staðardag-
skrá 21 fyrir sveitarfélagið.
Fram kemur á vefnum hvalfjordur.is að í
júní síðastliðnum stóð hreppurinn fyrir
kynningu á Staðardagskrá 21 fyrir hrepp-
ana fjóra sunnan Skarðsheiðar í Borg-
arfirði. Mál þróuðust þannig að skipaður
var starfshópur innan Hvalfjarðarstrand-
arhrepps til að vinna að þessu verkefni fyrir
hreppinn. Í hópnum eru Jón Valgarðsson á
Miðfelli, Eyjólfur Jónsson í Hlíð og Arn-
heiður Hjörleifsdóttir á Bjarteyjarsandi 1,
en hún vinnur að Staðardagskrármálum á
landsvísu.
Einn af vegvísunum í starfinu er þátttaka
íbúa viðkomandi sveitarfélags. Því var
strax á fyrstu stigum sent kynningarbréf á
alla íbúa hreppsins, og þeim jafnframt boð-
ið að gerast þátttakendur. Nokkrir höfðu
samband og spurðust fyrir, en tveir bættust
formlega í vinnuhópinn. Það eru þau Þor-
valdur Magnússon á Kalastöðum og Kol-
brún Eiríksdóttir á Bjarteyjarsandi 2.
Mynd um trúbador | Lýður Árnason,
kvikmyndagerðarmaður og læknir á Flat-
eyri, vinnur að gerð heimildarmyndar um
líf farandsöngvarann Sigga Björns frá Flat-
eyri, að því er fram kemur í frétt á vef Bæj-
arins besta. Vann Lýður að gerð mynd-
arinnar síðastliðið sumar og fóru tökur
fram erlendis.
Vitnað er til viðtals við Sigga Björns í
ársriti Önfirðingafélagsins í Reykjavík en
þar er Siggi nefndur víðförlasti Önfirðingur
allra tíma. Hann er um þessar mundir að
flytja frá Berlín til Dresden í Þýskalandi.
Íþróttamiðstöðin áHólmavík verður tekin
formlega í notkun á morg-
un, laugardag. Mikil hátíð
verður af því tilefni á
Hólmavík.
Í Íþróttamiðstöðinni er
25 metra útisundlaug
ásamt heitum pottum,
barnalaug og gufubaði.
Byrjað var að nota hana
síðastliðið sumar. Þá er í
miðstöðinni íþróttasalur í
fullri stærð ásamt tækja-
sal og þjónustubyggingu.
Byrjað var að nota salinn í
síðasta mánuði.
Dagskráin í Íþrótta-
miðstöðinni hefst klukkan
14 á morgun. Sagt verður
frá byggingu hússins og
sóknarpresturinn blessar
bygginguna. Þá verða
heimamenn með skemmti-
atriði.
Formleg opnun
SNJÓR er víða mikill í
Þingeyjarsýslu og hefur
ekki alltaf viðrað vel að
undanförnu. Yngri kyn-
slóðin kann vel að meta
snjóinn og alltaf er gam-
an að vera úti þegar nóg
er af því skemmtilega
efni sem snjóhrúgurnar
eru. Á myndinni eru syst-
urnar á Einarsstöðum í
Reykjadal, þær Erla Ingi-
leif og Gerður Björg
Harðardætur, og virðast
ánægðar með lífið enda
vel búnar til útivistar.
Hundurinn Spori leikur
sér mikið.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Gaman í snjónum
Átjánda desember sl.var spurt um höfund
hortittavísu sem hljóðar
svo:
Mörgum hef ég sálma sungið
þó sumir þessa fari á mis.
Í hverja vísu hef ég stungið
hortitti til auðkennis.
Gunnar Karlsson bend-
ir á að vísan birtist nýlega
í Litla-Bergþór, blaði
Ungmennafélags Bisk-
upstungna. Þar er safn
Gýgjarhólsvísna, tekið
saman af Ingu Kristjáns-
dóttur frá Gýgjarhóli.
Vísan er þar eignuð
Kristjáni Guðnasyni
(1894-1972) bónda á Gýgj-
arhóli og föður Ingu.
Kristján orti þessa vísu
um reiðhestinn sinn,
Mósa:
Fár á betri færleik hér,
flesta letja árin.
Ei þarf hvetja undir mér
átján vetra klárinn.
Af hortittavísu
pebl@mbl.is
Akureyri | Það blés hressilega
um hann Birgi Aðalsteinsson hjá
Haftækni, þar sem hann stóð
uppi á þaki Einars í Nesi, báti
Hafrannsóknarstofnunar. Birgir
var að skipta um loftnet fyrir tal-
stöð bátsins og þrátt fyrir níst-
ingskulda bar hann sig manna-
lega og vann sitt verk. Brún
Birgis gæti þó farið hækkandi
því spáð er suðlægum áttum og
hlýnandi veðri nú í vikulokin.
Morgunblaðið/Kristján
Í kulda og trekki
Blönduós | Ráðgjafarfyrirtækið Mat-
gæði ehf. hefur verið stofnað á Blönduósi
og er að taka til starfa þessa dagana. Því
er ætlað að veita ráðgjöf á sviði vöruþró-
unar, rannsókna og markaðsmála hjá fyr-
irtækjum í matvælaiðnaði. Hlutverk þess
er að stuðla að þróun, frumkvöðlastarfi
og nýsköpun.
Stofnendur fyrirtækisins eru Blöndu-
óssbær sem lagði fram tvær milljónir í
hlutafé og á tæpan helming þess, Sölu-
félag Austur-Húnvetninga, Rannsóknar-
þjónustan Sýni ehf., Mjólkursamlag Hún-
vetninga, Norðurós hf., Húnakaup ehf.
og Frumherji hf. – matvælasvið.
Ráðgjafarfyrirtækið er ávöxtur stefnu-
mótunarvinnu sem fram fór á vegum
bæjarstjórnar Blönduóss fyrir tveimur
árum, að sögn Jónu Fanneyjar Friðriks-
dóttur bæjarstjóra. Þá var ákveðið að
byggja framtíðina á þeim styrk sem þar
er að finna í matvælafyrirtækjum og skil-
greina Blönduós sem bæ matvælavinnslu.
„Fyrirtækin eru með öfluga matvæla-
framleiðslu en það er brýnt að auka
þekkingu á svæðinu, ekki síst á vöruþró-
un, til þess að styðja fyrirtækin,“ segir
bæjarstjórinn.
Byrjað á heimavelli
Soffía M. Gústafsdóttir hefur verið
ráðin verkefnisstjóri og verður hún eini
starfsmaður fyrirtækisins í upphafi. Mat-
gæði setur ekki upp eigin rannsóknar-
stofu en mun eiga samstarf við rannsókn-
arstofuna Sýni og matvælasvið
Frumherja en bæði þessi fyrirtæki eru
meðal stofnenda fyrirtækisins. Jóna
Fanney segir að hugmyndin sé að byrja
frekar smátt og sjá hvernig fyrirtækinu
vegni í samstarfi við fyrirtækin á Blöndu-
ósi. Í framhaldi af því verði kannað hvort
eftirspurn sé eftir þjónustu af þessu tagi
annars staðar á landinu. „Við vonumst til
að efla þau fyrirtæki sem fyrir eru og ef
til vill að stækka ráðgjafafyrirtækið líka
með tíð og tíma,“ segir Jóna Fanney.
Soffía M. Gústafsdóttir hefur mikla
reynslu á sviði matvælaframleiðslu og
ráðgjafar. Þá hefur hún lengi starfað á
þessu sviði erlendis og aflað sér markaðs-
tengsla. Vonast Jóna Fanney til að þessi
þekking geti nýst hinu nýstofnaða fyr-
irtæki og fyrirtækjunum á Blönduósi.
Fyrir utan ráðgjafaþjónustu er stefnt
að því að Matgæði ehf. skipuleggi
fræðslunámskeið og samstarf matvæla-
fyrirtækja þar sem það á við.
Ráðgjafar-
fyrirtæki í
matvæla-
iðnaði tekur
til starfa
Karlmennska
Hellissandur | Þessar ungu vin-
konur, Ólöf og Kristín Vigdís sem
báðar eru sjö ára, voru að leika
sér í snjóskafli við grunnskólann á
Hellissandi á meðan þær voru að
bíða eftir skólarútunni. Voru þær
að fara í leikfimitíma til Ólafs-
víkur en grunnskólanemar á Hell-
issandi sækja tíma í íþróttahúsið í
Ólafsvík. Kalt hefur verið á Snæ-
fellsnesi að undanförnu en stúlk-
urnar létu það ekki á sig fá,
klæddu sig eftir veðri og undu hag
sínum vel.
Beðið eftir skólarútunni
Morgunblaðið/Alfons
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN