Morgunblaðið - 14.01.2005, Page 35

Morgunblaðið - 14.01.2005, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2005 35 MINNINGAR ✝ Inga JónasínaPálmadóttir fæddist á Húsavík 19. júlí 1955. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 8. janúar síðastliðinn. Foreldr- ar hennar eru Sigfús Pálmi Jónasson frá Helgastöðum í Reykjadal, f. 23. júlí 1918 og Kristjana Hrefna Ingólfsdóttir frá Grímsstöðum á Fjöllum, f. 13. nóv- ember 1914, d. 10. mars 1994. Inga var yngst fimm systkina en hin eru: Snjólfur Hörður, f. 13. febrúar 1938. Sonur hans og Lilju Þor- bergsdóttur, f. 19. september 1940, er Pálmar Þór. Snjólfur Hörður var giftur Helgu Haralds- dóttur, f. 7. júlí 1937, börn þeirra eru Björg og Haraldur, þau slitu samvistum; Hreiðar, f. 5. nóvem- ber 1940, giftur Evu Sigurðar- dóttur, sonur þeirra er Pálmi Rafn; Magnús, f. 14. apríl 1943, börn hans og Maríu Lilju Hall- dórsdóttur, f. 27. desember 1944 eru: Eyrún, Særún, Oddbjörn og Arnrún, þau slitu samvistum. Brynja María, f. 31. ágúst 1947, gift Kára Sigurðs- syni, börn þeirra eru Rut, Gríma Eik og Röðull Reyr. Inga Jónasína giftist sumarið 1973 Guðmundi Svans- syni, f. 10. október 1953, þau bjuggu á Akureyri. Börn þeirra eru: Ingólfur Freyr, f. 1. febrúar 1973, kvæntur Her- dísi Margréti Ívars- dóttur, börn þeirra eru Indiana Líf, Alexandra Sól og Ísabella Örk; Sunna, f. 29. mars 1975, dóttir hennar er Ragnheið- ur Inga. Inga Jónasína og Guð- mundur slitu samvistum árið 1981. Inga Jónasína giftist 21. júní 1986 Guðmundi L. Blöndal frá Siglufirði, f. 6. ágúst 1954. Bjuggu þau á Akureyri, fyrst í Keilusíðu en fluttu fljótlega í Vestursíðu 2a og hafa búið þar síðan. Þau eiga dæturnar Hrefnu Fönn, f. 14. október 1987 og Hlín, f. 19. mars 1991. Útför Ingu Jónasínu fer fram frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku mamma. Þegar þú veiktist fyrst, fyrir bráðum tveimur árum síðan, vissum við öll innst í hjarta okkar að svona gæti farið og að við þyrftum að kveðja þig eins og við gerum nú. En þú varst svo sterk og ákveðin í því að þetta mundi ganga vel að við gleymdum öllum áhyggjum. Þú varst alltaf svo jákvæð og ákveðin í að takast á við þetta verkefni eins vel og þú mögulega gætir og það gerðir þú svo sannarlega. Vonin, já- kvæðnin og þakklætið fyrir það sem þú áttir var þinn styrkur í gegnum þetta allt, og það veitti okkur líka styrk. Við systkinin erum svo þakklát fyrir allt sem þú hefur kennt okkur og börnunum okkar öll þessi ár sem við fengum að vera með þér og þú varst enn þá að kenna okkur allt fram til þess síðasta með ótrúlegum krafti þínum, æðruleysi og vilja. Við þökkum fyrir það. Við erum svo þakklát fyrir allar þær óteljandi stundir sem við áttum saman heima í eldhúsi, að baka, eða þegar þú varst að hjálpa okkur með heimanámið. Þegar þú kenndir okk- ur bænirnar okkar, eða gafst okkur plástur þegar við áttum bágt. Stundum skriðum við líka upp í rúm til þín og pabba og kúrðum öll sam- an. Það var best, takk fyrir það, mamma. Öll ferðalögin sem við fórum í, bæði þessi styttri eins og út í sveit til Madda eða til Brynju og Kára á Húsavík eru eins og ævintýri, þá eru líka ógleymanlegar samverustund- irnar á heitum sólarströndum og heimsóknin til Bandaríkjanna rétt áður en þú veiktist. Þú varst Sunnu líka ómetanlegur styrkur þegar þú varst viðstödd fæðingu Ingu litlu, þú lést ekkert setja þig úr jafnvægi. Alltaf eins og klettur. Þér fannst líka alltaf svo gott að vera úti í náttúrunni og þær voru ófáar útilegurnar, gönguferðirnar, og skíðaferðirnar sem við fórum í saman. Þú kenndir okkur að bera virðingu fyrir náttúrunni og njóta hennar í öllum veðrum. Við þökkum þér fyrir það, mamma. Þú gafst okkur alltaf svo mikið frelsi til að vera við sjálf, líka til að misstíga okkur og gera mistök en þú varst alltaf til staðar til að hjálpa okkur þegar við höfðum hrasað og þurftum huggun eða leiðsögn. Takk fyrir það. Það leit allt svo vel út um jólin hjá þér úti í Svíþjóð, Hrefna og Hlín voru hjá þér og pabba sem er hinn kletturinn okkar. En svo komu fréttirnar, það var ekki langur tími eftir. Það var erfitt, en það var samt svo gott að fá að tala við þig, hitta þig og fylgja þér síðasta spölinn, það hjálpar okkur að muna hvað þú varst alltaf falleg og hlý. Við viljum öll vera eins og þú, mamma, bara pínulítið ef við getum. Við vitum hvað þú varst stolt af okkur, en mamma, við erum líka svo stolt af þér. Þú varst alltaf svo ljúf og blíð. Þú reiddist okkur aldrei og fannst alltaf léttu hliðarnar á öllu. Það var þín leið og nú er hún okkar, við þökkum fyrir það. Við lofum að varðveita allt sem þú hefur kennt okkur. Við lofum að taka það með okkur út í lífið sem nú tekur við án þín og við lofum að kenna börnunum okkar allt sem þú hefur kennt okk- ur. Nú tökumst við á við lífið sem fram undan er jafn ákveðin og trú- föst og þú varst allan tímann. Þetta stutta ljóð skrifaðir þú í dagbókina þína 14. september 2003 þegar þú varst í einni af mörgum meðferðum. Takk fyrir það, mamma. Greinin sveiflast djúpt í vindinum, þrösturinn heldur sér fast. Hann stenst álagið – Ingólfur Freyr, Sunna, Hrefna Fönn og Hlín. Í dag kveðjum við mæta konu sem látin er langt um aldur fram. Mág- kona mín, Inga Jónasína Pálmadótt- ir, andaðist á Landspítalanum við Hringbraut laugardagskvöldið 8. janúar, tæpum sólarhring eftir erfitt sjúkraflug frá Karolinska sjúkra- húsinu í Stokkhólmi. Veit ég að það var fjölskyldu Ingu kært að fá að vera hjá henni síðustu stundirnar og fá að kveðja hana. Inga greindist með krabbamein fyrir einu og hálfu ári og varð það öllum mikið áfall. Tókst hún á við sjúkdóminn af mikilli einurð og höfðu allir óbilandi trú á bata. En annað áfall dundi yfir ári síðar, með- ferðin hafði ekki borið árangur. Ákveðið var að skipta um bein- mergsfrumur og var Brynja systir hennar valin sem beinmergsgjafi. Í lok október á síðasta ári halda þær systur ásamt Maj-Britt, svilkonu Ingu, út til Stokkhólms þar sem að- gerðin fór fram. Dvaldist Inga þar til í byrjun nýs árs er hinn stóri dómur var kveðinn upp og hún flutt heim á Landspítalann með sjúkra- flugi. Margs er að minnast og margt ber að þakka. Tvær myndir af Ingu koma oftast upp í hugann og út frá þeim raðast önnur minningarbrot. Átta ára kotroskin stelpa í buxum, peysu og í gúmmístígvélum með stríðnisglampa í bogadregnum aug- um og spékopp í kinn. Svipurinn gaf í skyn að hún vissi ýmislegt. Inga hafði fylgst grannt með Brynju syst- ur sinni í þau skipti sem hún heim- sótti hana í Laugaskóla en þar kynntumst við Brynja. Hin myndin af Ingu mágkonu minni er þar sem hún stendur eilítið hokin í bláum gallastakk með hand- töskuna, farsímann og bíður fyrir utan „Lansann“ eftir að verða sótt til að geta verið með okkur, þó ekki væri nema stutta stund. Þetta voru þær ljúfustu ferðir sem ég hef um ævina farið. Við hjónin vinnum bæði vaktavinnu, því áttum við auðvelt með að njóta samverunnar með Ingu, hvort það voru búðarferðir, heimsóknir, sólbað í garðinum eða bara að vera til. Í Pálmholti, heimili tengdafor- eldra minna, þeirra Pálma og Hrefnu, var mér strax vel tekið. Mér var ljóst að uppeldi systkinanna í Pálmholti og allur heimilisbragur var mjög áþekkur því sem ég ólst upp við en tvennt kom mér á óvart, öll húsgögnin á heimilinu voru smíð- uð af yngsta bróðurnum á bænum og hitt hve mikið var til af ljósmynd- um af fjölskyldunni. Við bústörf og dvölina í sveitinni var grunnurinn lagður að kynnum okkar Ingu, sam- bandi sem varði á meðan hún lifði og aldrei bar skugga þar á, er ég henni ákaflega þakklátur fyrir það. Vin- áttuböndin styrktust með árunum, öðru fremur vegna þess hvað syst- urnar voru nánar og á margan hátt líkar. Haustið 1966 flytjum við Brynja til Húsavíkur og ári síðar flytur Inga með foreldrum sínum til Ak- ureyrar. Inga giftist Guðmundi Svanssyni og eignuðust þau tvö börn, Ingólf Frey og Sunnu. Á næstu árum átt- um við góða samveru með fjölskyld- unni heima og að heiman. Kaflaskil verða í lífi Ingu er þau Guðmundur slíta samvistum. Inga átti því láni að fagna að kynnast Guðmundi L. Blöndal, eftirlifandi eiginmanni sín- um, sem reyndist henni og börnum hennar vel. Guðmundur varð vinur okkar fjölskyldunnar. Sorgin barði að dyrum í upphafi sambúðar þeirra er þau misstu sitt fyrsta barn, stúlku, daginn sem hún fæddist. Eignuðust þau seinna tvær stúlkur, Hrefnu Fönn og Hlín sem komu eins og englar inn í líf þeirra og okk- ar allra. Fengum við að njóta sam- veru þeirra systra um tíma í mörg sumur er þær fengu að dvelja hjá Brynju frænku og Kára á Húsavík. Margar sögur og setningar eru í minnum hafðar af dvöl systra og samveru við öll systkinin í gegnum tíðina. Guðmundur og Inga voru á margan hátt ólík, hann vel fullorðinn með fastmótaðar skoðanir og hafði ekki verið í sambúð en Inga fráskilin með tvö börn. Það var aðdáunarvert að fylgjast með því hvernig þeim bar gæfa til að þroskast saman og bæta hvort annað. Margt áttu þau sam- eiginlegt s.s. útiveru, veiði, skíðaiðk- un, ferðalög hvort sem var utan eða innanlands. Samtaka voru þau í upp- eldi barnanna og að breyta og bæta heimili sitt. Áttu þau orðið mjög fal- legt heimili sem verið var að end- urnýja á síðustu árum og nú síðast garð og aðkomu. Inga var mörgum kostum gædd, hún var greind, skapgóð, traust, nægjusöm, hafði góðan smekk, var skemmtileg með gott skopskyn og man ég bara eftir skemmtilegum minningum tengdum henni Ingu. Undravert var hverju Inga fékk áorkað, hún vann ekki verk sín með látum. Inga var útivinnandi við verslunarstörf og um tíma við sína eigin verslun sem hún rak ásamt vinkonu sinni, en lengst af sem klin- ikdama. Inga var frá unga aldri og fram á síðustu ár með börn, fyrst okkar stelpur síðan sín eigin börn, þá barnabörnin og einnig passaði hún börn annarra. Inga annaðist aldraða foreldra sína af sérstakri al- úð og þolinmæði með dyggri aðstoð eiginmanns og barna. Eru þeim öll- um færðar þakkir fyrir það. Börn okkar Brynju hafa öll frá unga aldri þekkt Ingu frænku sína og fjöl- skyldu hennar og eru Ingu þakklát fyrir allt sem hún var þeim í lífinu og geyma um hana fagra minningu. Kæra vina, við kveðjum þig með sárum söknuði og með innilegri þökk fyrir allar þær stundir sem við nutum með þér, við trúðum og von- uðum að þær yrðu fleiri en það er greinilega ekki okkar að ráða. Við færum fjölskyldu Ingu og nánustu ættingjum, okkar innilegustu sam- úðarkveðjur og biðjum Guð um að styrkja ykkur í sorginni og um alla framtíð. Kári og fjölskylda. Það var okkur öllum harmafregn að heyra að Inga væri dáin. Að hún hefði tapað stríðinu við sjúkdóminn eftir að hafa unnið nokkrar orrustur af miklum hetjuskap. Inga hafði tek- ist á við sjúkdóminn af því æðruleysi og jákvæðni sem einkenndi hana alla tíð og þegar við hugsum til baka um þann tíma sem við áttum með Ingu sjáum við hvernig henni tókst oft á tíðum að gera gott úr hlutunum með þessari óbilandi jákvæðni sinni. Allt myndi reddast … ganga vel … ekki vera neitt mál og jafnvel bara betra svona – og auðvitað var ekki hægt annað en að vera sammála henni. Inga var glaðlynd og hafði svo sannarlega gaman af lífinu og elsk- aði náttúruna. Við minnumst hennar þar sem hún tekur á móti okkur létt- klædd á veröndinni í Vestursíðunni; sólbrún af norðlenskri sól, kapp- klæddrar með heitt kakó í tjald- vagninum; tilbúin í næsta spil við stelpurnar, útitekinnar og stællegr- ar með sólgleraugun á skíðum í Hlíðarfjalli. Alltaf jafngaman og aldrei virtist hún njóta sín betur en með fjölskylduna í kringum sig. Aldrei var heldur neitt mál að bæta nokkrum utanaðkomandi í hópinn. Hún Perla fékk nokkrum sinnum að reyna gestrisni fjölskyldunnar í Vestursíðunni og síðast er Inga kom í heimsókn í Rjúpnahæðina virtist sú gamla enn eiga henni nokkuð að þakka. Marta dvaldi einnig hjá frænkum sínum fyrir norðan af og til og minnist hún sérstaklega hlýj- unnar sem Inga virtist eiga auðvelt með að sýna. Ekkert þótti henni Ingu sjálfsagðara en að láta vekja sig um miðja nótt ef lítil stelpa átti erfitt með að sofa og ráð átti hún undir rifi hverju við hvers kyns vandamálum. Inga var glæsileg kona og þegar Marta var lítil var hún þess fullviss að hún Inga hefði sigrað í fegurð- arsamkeppni en af því að Inga var eins og hún var myndi hún aldrei segja frá því. Það sannfærði Mörtu endanlega að Inga gaf sér tíma til þess að sitja með þeim Hrefnu heilt kvöld til að horfa á Ungfrú Ísland og gat sér þar að auki rétt til um úrslit- in! Þessar hugleiðingar og margar fleiri fara allar í sjóð minninganna um góða vinkonu. Guðmundur og Inga voru alltaf samstíga og til marks um það eru þau jafnan nefnd bæði saman og því verður eflaust erfitt að breyta og vandfyllt verður skarðið sem nú er komið í þéttan hóp fjölskyldunnar. Elsku Guðmundur, Hrefna, Hlín, Sunna, Ingólfur og fjölskyldur, megi fallegar minningar um góða konu ylja ykkur í framtíðinni og Guð veita ykkur styrk í sorginni. Lárus, Soffía, Erna Kristín, Marta Guðrún og Brynja Rut. Elsku vinkona mín, við höfum þekkst í 25 ár og það er margs að minnast frá þeim árum en nú er ég með hugann við dagana sem ég var hjá þér í Svíþjóð fyrir jólin. Ég hugsa um gönguferð í skóg- inum, þeir voru fallegir skógarstíg- arnir sem við þræddum en víða höfðu trjágreinar brotnað undan snjóþunga. Þegar við komum heim í Ronaldshús varst þú þreytt í fót- unum svo ég nuddaði á þér iljarnar og þú lást með olíubornar tásurnar upp í loft og fékkst þér kríu, á með- an ég sat með prjónana og Andrea Bocelli söng fyrir okkur eins og hon- um einum er lagið. Það var ekki jólastressið á okkur þá. Himininn var heiður og blár þennan fallega dag en það var frost og jörðin hvít af snjó og við biðum með tilhlökkun eftir vorinu. Elsku vinkona, ég trúi að vorið sé komið hjá þér nú þegar og þó það sé kalt núna þá mun vora hjá okkur hinum líka. Elsku Guðmundur, Ingólfur, Her- dís, Sunna, Hrefna, Hlín, ömmudúll- urnar og Pálmi afi, við Tryggvi sendum ykkur innilegar samúðar- kveðjur og biðjum þess að Guð gefi ykkur styrk í þessari miklu sorg. Inga Ing. Mér finnst ég knúin til að skrifa nokkur kveðjuorð til þín Inga mín. Vissulega brá mér síðasta sumar er ég frétti að þú værir að berjast við krabbamein. Síðasta sunnudag fékk ég svo hringingu frá föður mínum sem færði mér þær slæmu fréttir að þú hefðir orðið að láta í minni pok- ann fyrir þessum vágesti sem leggur allt of marga að velli. Þegar jóla- ljósin slokknuðu hvert af öðru í kring um okkur, slokknaði líka ljósið þitt. Ósjálfrátt reikar hugurinn nokkra áratugi aftur í tímann, þar sem við erum litlar og áhyggjulausar stelpur í sveitinni okkar, æskuvinkonur og aðeins einn bær skildi okkur að. Þar dönsuðum við um mela og móa, að ég tali nú ekki um allar tjarnirnar og vötnin þar sem við lékum okkur saman á skautum. Það tók okkur ekki svo langan tíma að hlaupa á milli bæjanna og þá nutum við lífs- ins, alveg áhyggjulausar um heims- ins vandamál. Ég man eftir því þeg- ar ég heimsótti þig einu sinni sem oftar og þú hafðir verið lasin, varst alveg rammhás og sagðist vera með rödd eins og Louis Armstrong, þetta fannst mér afar merkilegt, því ég vissi varla hver hann var. Eftir þetta tengdi ég þig oft við hann. Við vorum ekki mörg í gamla bekknum okkar í barnaskólanum, við stelpurnar aðeins þrjár og u.þ.b. helmingi fleiri strákar, og kannski vorum við nánari þess vegna. Mér finnst alltaf að við höfum verið ferm- ingarsystur, en í raun var það ekki þannig, því þú fluttir til Akureyrar stuttu fyrir ferminguna, og mikið saknaði ég þín þegar þú fórst. Því miður rofnaði sambandið á milli okkar á unglingsárunum, en við vissum þó alltaf hvor af annarri og glöddumst í hvert sinn sem við hitt- umst á förnum vegi. En nú er komið að kveðjustund Inga mín. Megi algóður Guð veita fjölskyldu þinni allri styrk í sorginni. Hvíl þú í friði. Aðalheiður frá Hólkoti. Elsku Inga mín. Mig langar til að þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Við kynntumst gegnum sam- eiginlega vinkonu okkar fyrir 14 ár- um þegar við stofnuðum sauma- klúbbinn sem aldrei hefur fengið nafn. Gleðin og bjartsýnin voru ríkjandi í fari þínu. Við stofnuðum saman Handíð fullar bjartsýni, stað- ráðnar í því að garn og bútar væri það sem vantaði á hvert heimili og ætluðum okkur að verða gamlar saman bak við búðarborðið. Hand- íðarárið okkar var mjög skemmti- legur tími, undirbúningurinn og ferðin suður til að kaupa inn vörur, nóttin sem við gistum hjá Eik frænku þinni. Þá vorum við svo spenntar að við gátum ekki sofið en spjölluðum saman næstum alla nótt- ina. Einnig voru námskeiðin sem við héldum í búðinni afskaplega skemmtileg. Við höfðum allavega gaman af þessu ævintýri. Ég, Inga, Drífa, og Sía, höfum saknað þín sárt úr saumaklúbbnum, en þú munt allt- af eiga stað í huga okkar. Elsku Inga mín við gleymum þér aldrei. Ég bið góðan guð að gæta þín. Sofðu rótt góða vinkona. Jesús er mér í minni, mig á hans vald ég gef, hvort ég er úti eða inni, eins þá ég vaki og sef. Hann er mín hjálp og hreysti, hann er mitt rétta líf, honum af hjarta eg treysti, hann mýkir dauðans kíf. (Hallgrímur Pétursson.) Elsku Guðmundur, Pálmi, Ingólf- ur, Herdís, Sunna, Hrefna, Hlín, og ömmustelpurnar fjórar. Ég, Krist- inn og fjölskylda vottum ykkur okk- ar dýpstu samúð. Guð veri með ykk- ur. Edda. INGA JÓNASÍNA PÁLMADÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.