Morgunblaðið - 14.01.2005, Blaðsíða 36
36 FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Jón Sigurðssonfæddist í Víði-
nesi á Kjalarnesi 12.
mars 1916. Hann
andaðist á Hjúkrun-
arheimilinu Ljós-
heimum á Selfossi
að kvöldi 6. janúar
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Sigurður Einarsson
bóndi í Seljatungu, f.
24.3. 1884, d. 10.3.
1951, ættaður frá
Holtahólum í Horna-
firði, og Sigríður
Jónsdóttir húsfreyja
og ljósmóðir, f. 4.7. 1883, d. 27.12.
1970, ættuð frá Kalastöðum á
Hvalfjarðarströnd. Foreldrar
Jóns fluttu árið 1919 frá Víðinesi
á Kjalarnesi að Seljatungu í Gaul-
verjabæjarhreppi þar sem hann
ólst upp. Jón var fjórði í aldursröð
átta systkina frá Seljatungu. Elst
var Sigríður, f. 11.4. 1912, d. 21.9.
1998, Þorsteinn, f. 21.4. 1913, d.
19.11. 1992, Sesselja Sumarrós, f.
22.4. 1915, d. 20.4. 2003, Laufey, f.
25.10. 1917, d. 30.10. 1976, Magn-
ea Kristín, f. 13.8. 1921, Guðjón, f.
26.11. 1922, og Einar Gunnar, f.
16.7. 1924.
Hinn 24. júní 1944 kvæntist Jón
Þeirra börn, Guðrún Erla, Sævar
Þór og Edda Ósk. 5) Sigríður, f.
25.1. 1956, maki Valtýr Pálsson, f.
29.2. 1952. Börn hennar Davíð
Örn og Jón Trausti. Börn hans,
Óli Haukur og Benedikta. 6) Kári,
f. 21.2. 1960, maki Kristjana
Kjartansdóttir, f. 25.1. 1961. Börn
þeirra, Kjartan, Aron og Anton
Kári. 7) Gunnar, f. 16.7. 1961,
maki Anna Fríða Björnsdóttir, f.
2.2. 1963. Börn þeirra, Bjarni
Kristinn, Árni Jón og Bryndís
Gígja. 8) Ásmundur, f. 3.12. 1967,
maki Margrét Alice Birgisdóttir,
f. 10.10. 1960. Dóttir þeirra Íris.
Dætur hennar, Anna Hlín og
Thelma Gunnarsdætur.
Jón vann ýmis störf frá unga
aldri, var m.a. átta vertíðir í Vest-
mannaeyjum í landvinnslu hjá Ár-
sæli Sveinssyni útgerðarmanni
þar. Hann var starfsmaður við
bílaviðgerðir og fleira hjá Bif-
reiðastöð Steindórs í Reykjavík
og vann á bílaverkstæði Kaup-
félags Árnesinga á Selfossi frá
1949. 15. júní 1956 fór hann til
starfa hjá sýslumannsembættinu í
Árnessýslu við sjúkraflutninga og
lögreglustörf og tók í framhaldi
af því við embætti bifreiðaeftir-
litsmanns fyrir Suðurland. Jón
starfaði sem bifreiðaeftirlitsmað-
ur til sjötugsaldurs, 1986. Eftir
það var hann um hríð starfsmaður
hjá Set hf. á Selfossi.
Jón verður jarðsunginn frá Sel-
fosskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
Sigríði Guðmunds-
dóttur, f. 12.2. 1923,
frá Hurðarbaki, dótt-
ur hjónanna Þuríðar
Árnadóttur, f. 4.8.
1896, d. 15.5. 1985, og
Guðmundar Kristins
Gíslasonar, f. 9.12.
1890, d. 20.10. 1954.
Jón og Sigríður
bjuggu nokkur ár að
Seljavegi 33 í Reykja-
vík og fluttu árið
1954 að Austurvegi
31 á Selfossi, í hús
sem Jón byggði í fé-
lagi við Þorstein
bróður sinn. Jón og Sigríður eign-
uðust níu börn, það fyrsta, dreng-
ur, lést í fæðingu. 1) Guðmundur
Kristinn, f. 14.9. 1946, maki Krist-
ín Lára Ólafsdóttir, f. 4.6. 1946.
Börn þeirra eru Jón Birgir, Ólaf-
ur og Haukur Snær. 2) Sigurður,
f. 27.4. 1948, maki Esther Ósk-
arsdóttir, f. 12.12. 1949. Þeirra
börn, Helgi, Óskar, Sigríður Rós
og Daði Már, fósturdóttir Díana
Óskarsdóttir. 3) Þuríður, f. 15.1.
1951, maki Magnús Óskarsson, f.
29.11. 1948. Börn þeirra, Jón Arn-
ar, Harpa Sigríður og Einar Kári.
4) Gísli Árni, f. 17.6. 1954, maki
Emilía Björk Gränz, f. 23.3. 1956.
Á kveðjustund bregðum við ljósi á
vegferð þess sem sem kvaddur er og
þau samskipti sem við höfum átt. Þá
kemur einnig fram hvað hefur verið
gefið og hvað þegið í þeim samskipt-
um. Allt er vistað í sjóði minning-
anna. Einnig sjáum við myndir frá
fyrri tíma og staðnæmumst við atvik
og ýmis atriði á vegferð kynslóðanna,
hvernig hver maður ber með sér vöxt
og viðgang forfeðra sinna. Eiginleik-
ar og einkenni birtast og hægt er að
finna samhljóm í eigindum, athöfnum
og samskiptum fólks. Við flytjum
með okkur arf kynslóðanna og erum
hluti af hinum mikla vefnaði lífsins
sem ofinn hefur verið frá ómuna tíð
og er enn í vinnslu. Lífið er yndislegt
og gefandi sú stund sem lifuð er, en
það er hún sem alltaf er dýrmætust.
Hægt er að horfa til baka og líta fram
á veg en dagstundin er sá tími sem
við getum mótað.
Við kveðjum ástríkan föður, afa og
langafa eftir tæpra 89 ára vegferð
með okkur. Margt hefur á dagana
drifið og mörg er sú önn og mæða
sem mætt hefur honum og hans fólki
eins og gengur með okkur mannanna
börn.
Pabbi ólst upp í Flóanum, í Selja-
tungu og hrærðist í því samfélagi
sem þar byggðist upp. Hann var að
uppruna af hornfirskum ættum í föð-
urætt, búinn hógværð, hagleik og
miklu næmi fyrir öllu sem lifði og
hafði í fyrrirúmi áherslur lífsins –
vildi öllu vel. Í móðurætt var hann af
Hvalfjarðarströndinni með mikinn
dugnað, festu og æðruleysi gagnvart
því sem að höndum bar.
Þessa eiginleika sína ræktaði
pabbi. Þó ekki væri skólagangan
mikil né kennslan á háu stigi voru í
sveitum menn og konur sem bjuggu
yfir kunnáttu og næmi á eiginleika
fólks og vildu leiðbeina ungum manni
sem var augsýnilega búinn eiginleik-
um og færni hagleiksmannsins. Þeir
sáu efni í þúsundþjalasmið í strákn-
um frá Seljatungu sem hann og varð
og nýttist honum vel í lífinu. Hann
dáði líka alla þá sem höfðu slíka færni
til smíða eða sköpunar. Þolinmæði og
natni voru honum ofarlega í huga
sem og heiðarleiki, staðfesta og eft-
irfylgni þess sem sagt var.
Hvert verkefni varð honum ögrun
að leysa, alveg eins og íþróttamanni
er keppnin. Það var sama hvert verk-
efnið var, vindmylla á hlaðinu í Selja-
tungu til rafmagnsframleiðslu, brotið
drif í mjólkurbíl, eftirlitskerfi með
skráningu bifreiða eða járnstigi í hús-
ið okkar hjóna. Allt var smíðað og lát-
ið falla vel að með góðri nýtingu efn-
isins.
Pabbi og mamma gengu í hjóna-
band á fallegum degi í júnímánuði
1944, krupu á gólfinu í stofunni á
Hurðarbaki og bundust tryggða-
böndum sem héldu vel á þeirra veg-
ferð um lífið. Lífsbaráttan var hörð
og samfélagið mótað af samhjálp og
virðingu fyrir lífinu og lífsbjörginni.
Eftir búsetu í nokkur ár í Reykjavík
fluttu þau á Selfoss þar sem mikill
uppgangur var og næg vinna í kring-
um athafnasemi Kaupfélags Árnes-
inga og Mjólkurbús Flóamanna. Þau
reistu húsið á Austurvegi 31 í félagi
við Þorstein bróður hans og Guðrúnu
Valdimarsdóttur og bjuggu fjölskyld-
urnar þar í góðu samfélagi og við
barnalán. Var húsið stundum nefnt
Bræðratunga eftir bræðrunum frá
Seljatungu. Á þessum tíma var ekki
hundrað prósenta lán í boði né pen-
ingaflóð í samfélaginu. Samt byggðu
menn sér hús og treystu sín sam-
félagslegu tryggðabönd með því að
hjálpast að við húsbyggingarnar. Það
var eðlilegt að létta undir með öðrum
og auðvitað gaman líka því þar sem
menn komu saman var líf og fjör. Oft
var glatt á hjalla í kringum steypu-
vinnu og á stundum hljóp á menn
frægt steypuæði og þeir urðu eigi
einhamir í framgöngu sinni, gengu
hreinlega berserksgang við vinnuna,
enda gekk þetta vel. Upp úr þessum
jarðvegi sprettum við afkomendurnir
og eigum samskipti við aðrar stór-
fjölskyldur undir öruggri leiðsögn
foreldranna, móður sem sinnti heim-
ilinu og hins vinnusama föður sem
dró að.
Starf pabba á bifreiðaverkstæði
Kaupfélagsins var honum kært enda
sinnti hann þar starfi sem reyndi á
útsjónarsemi og næmi við að gera
upp drif og lagfæra ýmis gangverk
sem fóru úr lagi í hinum mikla bíla-
flota sem haldið var úti í kringum
Kaupfélagið og Mjólkurbúið. Þó ekki
væri hann með prófgráður var hann
eftirsóttur á þessu sviði og þótti vænt
um mat forystumanna KÁ á hæfileik-
um hans. Nefndi hann oft Guðmund
Böðvarsson í því sambandi. Vinnan
við Bifreiðaeftirlitið var honum einn-
ig kær og sinnti hann henni af kost-
gæfni, gaf sig allan í verkið, vildi að
allt gengi vel fyrir sig. Var þá ekki
spurt um tíma því starfið hafði for-
gang, skoðun bíla, prófdómarastörf
eða meiraprófsnámskeið. Það var í
hans eðli að láta verkið ganga fyrir.
Það var gaman að fylgjast með hon-
um og Gesti Ólafssyni forstöðumanni
þegar mikið var að gera og hann kom
austur.Við starfslok sat eftir ómæld-
ur tími og var pabbi alltaf þakklátur
Þorsteini Pálssyni þáverandi dóms-
málaráðherra sem rétti hlut hans.
Pabbi hafði unun af samskiptum
við þá fjölmörgu sem færðu bíla sína
til skoðunar og naut þess að fylgjast
með mönnum sem fóru vel með bíla
sína. Það var honum kært að eiga
góðan bíl og halda honum vel við.
Hann sóttist ekki eftir nýjum bílum
en sá oft færi á að gera góðan bíl úr
því sem hann sá og ýtti þessari skoð-
un að okkur bræðrum og maður
reyndi, gerði við og klastraði en hann
fylgdist með og færði orðalaust í rétt
horf.
Við starfslok hans sem bifreiðaeft-
irlitsmanns var farið að blika fyrir
nýjungum og ljóst að starfsemin
myndi breytast, sem hún gerði. Hann
horfði yfir farinn veg sáttur með
starfið en vinnusemin var söm við sig
og eftir sjötugsaldurinn starfaði hann
við framleiðslustörf hjá Set hf. á Sel-
fossi. Dáði hann mjög þá útsjónar-
semi sem hann kynntist þar og hag-
leik eigendanna við smíði ýmissa véla
og verkfæra, sem og framganga
þeirra og drift. Það var honum kær-
komið að vinna við framleiðslu og sjá
hluti verða til. Eru þeim feðgum í Set
hf. og eigendum öllum færðar þakkir
fyrir góð samskipti við hann.
Pabbi fylgdist vel með samfélags-
málum þótt hann gæfi sig ekki að
þeim með beinni þátttöku. Hann var
einlægur sjálfstæðismaður sem vildi
frelsi einstaklingsins og þá heilbrigðu
samhjálp sem sjálfstæðisstefnan
býður upp á. Hann dáði Ólaf Thors og
Bjarna Benediktsson, sagði af þeim
sögur og hafði gjarnan mynd af Ólafi
uppi á vegg. Kunni hann vel að meta
vasklega framgöngu þessara póli-
tísku leiðtoga, sem og annarra svo
sem Ingólfs Jónssonar og síðar Dav-
íðs Oddssonar.
Barnahópurinn varð stór og svo er
og um barnabörnin og barnabarna-
börnin. Mikið var að gera í barna-
afmælum og oft stórtraffík á heim-
ilinu, borðið var hlaðið góðgæti,
frænkur og frændur komu, karlarnir
settust í stofu og ræddu samfélags-
mál með viðeigandi hávaða og skoð-
anaskiptum. Það var gaman að hlusta
á karlana rífast. Allir fengu kóka kóla
og hélt pabbi þeim sið allar götur í
jólaboðum og er það ein minninganna
sem barnabörnin eiga þegar afi Jón
kom með kók í gleri á ákveðinni
stundu í jólaboðunum. Alltaf gladdist
hann yfir nýju barni, hafði yndi af
litlum börnum og afi Jón og amma
Sigga eiga sinn sess í hugum
barnanna.
Við leiðarlok birtast myndir sem
við eigum hvert og eitt í hugskoti
okkar og svo er um alla menn. Þetta
eru verðmæti sem við getum dregið
af lærdóm og eigum að gera. Það er
nærandi að fara í sjóð minninganna.
Það er líka kært að minnast góðrar
þjónustu sem pabbi hlaut á Ljós-
heimum á Selfossi. Það var upp-
byggilegt að verða vitni að góðri og
gæskuríkri umgjörð sem hann hlaut
þar og skilningi á þörf hans fyrir út-
rás athafnaseminnar. Þar ríkir höfð-
ingsskapur og virðing fyrir mann-
legri reisn. Heilar þakkir fyrir það.
Við biðjum góðan Guð að blessa
minningu föður, tengdaföður, afa og
langafa og umvefja hann kærleik í
ríki sínu og gefa mömmu, ömmu og
langömmu styrk í sorg sinni.
Sigurður, Esther,
börn og barnabörn.
Nú er hann faðir minn, Jón Sig-
urðsson frá Seljatungu í Flóa, geng-
inn á vit forfeðra sinna. Við minn-
umst hans með hlýhug og söknuði, öll
fjölskyldan. Hann var einkar barn-
góður maður, hjartahlýr og hjálp-
samur, staðfastur og stundum þver
en afskaplega tryggur og trúr sínum.
Öll verkefni vann hann af einstakri
natni sem kalla mætti smámunasemi.
Þannig vann hann hvort sem um var
að ræða verk fyrir sjálfan sig eða
aðra. Faðir minn var ekki skólageng-
inn en handlaginn maður og hafði
mest yndi af að gera við hluti og
koma þeim í brúk aftur. Var þá sama
hvort unnið var í tré eða járn. Brotin
sleif eða ausa kom alltaf til baka betri
en ný og gúmmískórnir voru sólaðir
marga hringi. Í uppvextinum hjálp-
aði hann okkur systkinunum, einkum
strákunum, með bílaviðgerðir. Oft
var óþolinmóður unglingur á vappi
við skúrinn sem vildi komast á rúnt-
inn eða á ball, meðan „sá gamli“
dundaði sér við að smíða gorma-
pressu eða slagþvingu til viðgerð-
anna. Aldrei var kastað til höndum,
allt varð að vera vel frá gengið með
hverja skrúfu á sínum stað vel
smurða svo taka mætti í sundur síð-
ar. Nytjastefnan með sína nýtni og
sjálfsbjargarviðleitni var við lýði. Að
geta gert hlutina sjálfur, vera óháður
öðrum, var lífsmottó. Þannig var gott
verkfæri gulls ígildi. Hárklippisett
var auðvitað til á bænum og mikill
sparnaður í því að klippa alla
drengjakollana. Þá var oft grátur yfir
horfnum bítlalokkum.
Nú er kertið brunnið út og minn-
ingin um manninn lifir eftir. Blessuð
sé sú minning, megi guð varðveita
hann og styrkja eftirlifandi móður
okkar.
Kári og fjölskylda.
Það er erfitt að trúa því að afi sé
farinn. Þrátt fyrir að veikindin hafi
tekið sinn toll og ágerst með degi
hverjum trúði maður því alltaf að
hann myndi verða betri því þraut-
seigjan og þrjóskan virtist alltaf
koma honum til góða og fleyta honum
yfir hinar ótrúlegustu hindranir.
Þegar við heimsóttum afa um jólin
var hann uppábúinn og fínn þrátt fyr-
ir að vera bundinn við rúmið, og yfir
honum ákveðinn glæsileiki og virðing
sem hefur fylgt honum alla tíð.
Afi var einstakur maður og átti
engan sinn líkan þótt víða væri leitað.
Hann eyddi öllum stundum í
skúrnum á Austurveginum, en yfir
honum hvíldi ákveðin dulúð fyrir
okkur börnin. Nýtnin var einstök hjá
afa, það mátti engu henda því það
gæti nýst seinna meir. Mörgum þótti
nú nóg um dótaríið í skúrnum en fyrir
okkur frændsystkinin var þetta al-
gjör paradís. Oft langaði mann að
leika í hinum ýmsu leikjum þarna
inni en þangað vogaði maður sér ekki
inn nema að afi væri þar og gæfi
manni leyfi.
Jólaboðin á Austurveginum verða
ætíð mjög ofarlega í minningunni.
Hópurinn var svo stór að það þurfti
að borða í nokkrum lotum því það
komust ekki allir að við borðið. Við
krakkarnir lékum okkur í kjallaran-
um, gengum í kringum jólatréð og
borðuðum heimatilbúið konfekt.Það
var sérstakur viðburður þegar afi
kom upp með kassa af kók og gaf
okkur öllum litla kók í gleri sem búið
var að geyma í kjallaranum. Að fá
heila kók alveg sjálfur á þessum aldri
þótti ekkert smá fínt, það tók mig all-
an daginn að klára kókið þó svo að
margir frændur mínir hafi verið fljót-
ari. En afi varð hálfgerður Guð í mín-
um augum fyrir að tíma að gefa okk-
ur öllum kókið.
Það er erfitt að vera svona langt í
burtu á erfiðum tímum. Ég átti ynd-
islega kveðjustund með afa þegar við
vorum á Íslandi um jólin. Það var
yndislegt að sjá hvað hann lifnaði all-
ur við og ljómaði þegar hann sá börn-
in mín og hélt í hönd þeirra. Það er
minning sem ég mun geyma ofarlega
í hjartanu.
Elsku amma, við sendum þér okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur.
Guðrún Erla og fjölskylda,
Minnesota.
Afi minn er farinn, farinn upp til
guðs. Þessi ótrúlegi maður sem oft
var hægt að segja að ætti níu líf.
Því kveð ég þig, afi minn, með tári
og söknuði í hjarta, því gull af manni
varst þú.
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgrímur Pétursson.)
Elsku amma og aðstandendur.
Mínar innilegustu samúðarkveðjur,
megi styrk hönd guðs leiða okkur í
gegnum sorgina.
Edda Ósk.
Í fáum línum langar mig til að
kveðja frænda minn Jón Sigurðsson.
Nonni, eins og hann var kallaður,
var fjórða barn föðurforeldra minna.
„Hann var skaparinn mikli,“ eins og
yngsti bróðir hans komst að orði,
„skapaði smáa hluti sem stóra, ýmist
úr tré eða járni“. Hann var afar
vinnugefinn, handlaginn og hafði
snemma áhuga fyrir vélum og tækj-
um. Þeir bræður Jón og faðir minn
reistu í sameiningu tvíbýlishús á
Austurvegi 31 á Selfossi. Nonni átti
þar lóð sem hann lagði til en faðir
minn lagði fram teikningar og var
yfirsmiður við húsbygginguna. Sel-
fosshreppur var nýorðinn sjálfstætt
sveitarfélag þegar þetta var og þá
fengu húsin nöfn. Bræðratunga vildu
menn nefna hús þeirra og vísa með
því til bræðranna frá Seljatungu.
Ekki festist nafnið þó við húsið en
þarna stækkuðu fjölskyldurnar og
við börnin og frændsystkinin nutum
samvista hvert við annað sem um
stórfjölskyldu væri að ræða. Ég hygg
að faðir minn og Jón hafi verið um
margt líkir að skapgerð þó að hugur
þeirra hafi hneigst í ólíkar áttir. Báð-
ir voru þeir verkgefnir menn, annar
valdi trésmíðar en hinn járnsmíði og
vélar. Jón var áhugasamur um bíla og
vélar meðan faðir minn eignaðist sinn
fyrsta bíl er hann var kominn að
fimmtugu. En þess þurfti ekki með.
Hægt var að leita til Nonna ef á bif-
reið þurfti að halda. Hann átti forláta
drossíur og minnisstæðar eru ferðir
með honum á Þingvelli, niður í Selja-
tungu og berjaferðir í uppsveitir Ár-
nessýslu. Þó að bíltúrarnir væru mik-
ið tilhlökkunarefni gátu þeir reynt á
þolrifin því bílveiki herjaði á unga
fólkið. Plastpokar voru þá ekki við
höndina eins og nú og því gat bílstjór-
inn setið uppi með að þrífa bíl sinn
JÓN
SIGURÐSSON
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, s: 587 1960, www.mosaik.is
MOSAIK
af legsteinum
gegn staðgreiðslu
í janúar og febrúar
Sendum myndalista
15% afsláttur