Morgunblaðið - 14.01.2005, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 14.01.2005, Qupperneq 40
40 FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Ólöf Björnsdóttirfæddist í Keldu- hverfi í Norður Þing- eyjarsýslu 29. ágúst 1915. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Suð- urnesja 8. janúar síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Björn Indriðason og Jónína Steinunn Jónsdóttir. Systkini Ólafar eru Helga, Unnur, Jón, Jakobína og Indriði. Ólöf var yngst þeirra systkina. Fyrstu fimm æviárin bjó hún ásamt systkinum og foreldrum í Kelduhverfi. Þaðan fluttist fjölskyldan til Siglufjarðar, þar sem Ólöf ólst upp. 19 ára göm- ul flutti hún síðan til Reykjavíkur þar sem hún lærði m.a saumaskap. Ólöf giftist 27. maí 1950 Skarp- héðni Agnarssyni, f. 26. mars 1919. Dætur þeirra eru: a) Birna, f. 29. mars 1950, son- ur hennar er Ríkarð- ur. b) Margrét, f. 28 apríl 1951, gift Þórði Ingimarssyni. Börn hennar eru Sigurður, Herdís og Ólafur Freyr. c) Jónína, f. 10. janúar 1956, gift Ólafi Viðari Gunn- arssyni, dóttir þeirra er Dagný Silva, son- ur Jónínu er Carl Jó- hann. Ólöf og Skarphéðinn bjuggu all- an sinn búskap í Keflavík. Ólöf stundaði aðallega verslunarstörf. Útför Ólafar fer fram frá Kefla- víkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku amma mín. Ég man ávallt þær stundir er ég var hjá þér og afa á Hringbrautinni. Þú varst oft að púsla við mig, Disneypúsl. Okkur fannst það svo gaman. Og spilin sem þú kenndir mér voru ófá. Þegar ég og mamma bjuggum hjá ykkur, þá varstu alltaf með hlaðborð í hádeginu. Þetta voru yndislegir tímar. En nú, elsku amma, ertu komin á betri stað. Þú varst orðin svo veik. Þú sagðir mér oft sögur úr sveitinni sem þú bjóst í þegar þú varst ung. Svo man ég líka að ég kom stundum með Hubba Bubba tyggjó og við lékum okkur að gera kúlur úr tyggjóinu. Þú bjóst á Garðvangi seinustu árin. Þú varst svo dugleg við allt. Vildir bara labba sjálf og gera allt sjálf. Þegar ég rifja upp man ég hvað þú varst söng- elsk. Þú söngst oft fyrir mig. Ég hafði gaman af því. Eitt skipti kom ég í heimsókn til þín, þá varstu orðin hálf- blind og þú vildir endilega baka fyrir mig pönnukökur. Síðan byrjar þú, tekur upp uppskriftarbókina þína. Svo er allt tilbúið og þú bara manst þetta allt. Ég held þú hafir ekki séð stafina. Þetta voru alveg einstakar pönnukökur. Stundum fór ég með þér og afa í sumarbústaðinn, það voru góðar stundir. Þú talaðir oft um það þegar þú vannst í síldinni. Þú sagðir mér oft sögur af því. En, elsku amma, nú ertu farin frá okkur og sögurnar verða því miður ekki fleiri, en þær munu geymast í hjarta mínu. Elsku afi og aðrir aðstandendur, votta ykkur samúð mína. Hvíl í friði, elsku amma mín. Þinn ömmustrákur Ólafur Freyr. Elsku amma mín. Ég mun aldrei gleyma hvað var gott að faðma þig, ég mun aldrei gleyma hve góð þú varst, ég mun aldrei gleyma hve þolinmóð þú varst, ég mun aldrei gleyma hve vel mér leið hjá þér, ég mun aldrei gleyma hve gott var að lúra hjá þér í hreinu rúm- fötunum, ég mun aldrei gleyma hvernig þú gast látið lítið eldhús verða að heilu ævintýri í augum á lít- illi stelpu, ég mun aldrei gleyma raul- inu þínu sem róaði og sefaði mig og gerir enn, ég mun aldrei gleyma hve skemmtileg þú varst, ég mun aldrei gleyma spilastundum okkar, ég mun aldrei gleyma hve endalaust þú nenntir að leika við mig, ég mun aldr- ei gleyma sögunum þínum, ég mun aldrei gleyma að ég er lambið þitt. Þakka þér fyrir allt þetta og svo miklu meira sem þú gafst mér. Ég mun aldrei gleyma þér elsku amma mín.Ég veit að þú ert á góðum stað þó hjarta mitt muni aldrei hætta að sakna þín. Þín Herdís. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Elskuleg vinkona mín, Ólöf Björns- dóttir, kvaddi þennan heim laugar- dagsmorguninn 8. janúar. Heilsu hennar hafði hrakað mikið síðustu 2 árin og var hún farin að þrá hvíldina. Ólöf var gift Skarphéðni föður- bróður mínum, og vorum við búnar að þekkjast í yfir hálfa öld. Hún var ynd- isleg kona og mjög vel lesin og fróð. Það var hægt að tala við hana um allt og hún var inni í öllum málum næst- um því fram á síðasta dag. Við vorum saman í saumaklúbb í nokkur ár í Keflavík, og þá var saumað og prjón- að í klúbbunum. Ólöf var mikil hús- móðir og frábær hannyrðakona. Elsku Ólöf, þegar ég lít til baka er ég mjög glöð að hafa átt þig sem vin- konu frá mínum unglingsárum. Ég vil þakka þér alla þá umhyggju og góð- vild sem þú sýndir mér þegar ég þurfti mest á því að halda, og ekki bara þá, heldur alla tíð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku Skarphéðinn, Birna, Gréta, Jonný og fjölskyldur. Ég votta ykkur innilega samúð mína. Guð blessi ykkur. Guðrún (Lilla). Elsku besta mamma mín, minningarnar streyma, um gæsku þína, verkin þín, þær allar mun ég geyma. Far í friði móðir mín, góður guð þig geymi, góðmennsku þinni og móðurást til mín ég aldrei gleymi. Guð blessi þig elsku mamma mín. Gréta. ÓLÖF BJÖRNSDÓTTIR Það þýðir nú lítið að ragna, því byrðar ég losnað hef við. Með dómara mínum ég fagna, hann hefur nú gefið mér frið. Mín bíða hér bjartari dagar og mikið er um að vera. En skapari minn loks lagar það sem hann lengi hefur langað að gera. Við verðum að lokum að kveðja, því mín bíða verkefni víðar. Þar mun ég upp ljósið mitt hefja, því veit ég að sjáumst við síðar. (M.K.) HJALTI ÞÓR ÍSLEIFSSON ✝ Hjalti Þór Ísleifs-son fæddist í Reykjavík 3. apríl 1974. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ mánudag- inn 27. desember síð- astliðinn og var útför hans gerð frá Kópa- vogskirkju 4. janúar. Elsku Ísleifur, Haf- dís, Sveinlaug og Hrefna, guð gefi ykkur styrk á þessari erfiðu stundu. Kveðja, Magnús og Halldór. Elsku Hjalti Þór, mánudagurinn 27. des- ember mun seint gleymast. Þann morg- un rann saman mikil sorg og mikil gleði. All- ir voru sáttir. Nú ert þú frjáls og allt erfiðið að baki, þín bíða ný verk- efni. Elsku Hjalti, takk fyrir að vera okkur góður bróðir, takk fyrir allt sem þú hefur gefið okkur. Minning þín mun lifa í hjörtum okkar. Sofnar drótt, nálgast nótt, sveipast kvöldroða himinn og sær. Allt er hljótt, hvíldu rótt. Guð er nær. Þínar systur, Sveinlaug og Hrefna Dröfn. Elsku amma mín, með þessum fáu orð- um langar mig að kveðja þig. Minning- arnar eru margar og allar góðar. Við erum á Sólvalla- götu, ég er kannski fjögurra ára. Við liggjum uppi í rúmi og þú ert að lesa fyrir mig úr 1001 nótt og ég upplifi ævintýrin. Ég sef á milli á bramboltinu og þú vaknar svo um miðja nótt við bröltið í mér, vaknar aftur snemma morguns við að ísskápurinn er opnaður og kem- ur fram og sérð mig að næla mér í rjómalögg. Stundum náði ég líka að fá mér smjör með litlu putt- unum áður en þú komst og var þá heldur hróðug. Var þá bara þvegin og svo skriðið aftur upp í rúm. Alltaf var farið í messu á sunnu- dögum í Landakoti og þar söngst þú í kirkjukórnum og ég reyndi að staulast í gegnum Grallarann með ykkur. Seinna meir lærði ég þetta allt og söng með. Fyrir jól var svo steikt laufabrauð og voru margar sögur sagðar og kveðið. Þegar þú MARGRÉT HJÁLMARSDÓTTIR ✝ Margrét Hjálm-arsdóttir fæddist á Blönduósi 30. ágúst 1918. Hún andaðist á Hjúkrunarheimilinu Víðinesi 1. janúar síðastliðinn og var henni sungin sálu- messa í Kristskirkju í Landakoti 7. jan- úar. fluttir svo í Presta- húsið gamla við Landakot og ég varð eldri kenndir þú mér dönsku því að þú varst sú eina sem kunnir dönskuna að mínu mati og talaðir hana svo fallega. Einu sinni um páska var ég hjá þér í öllu skólafrí- inu og var þá að syngja í öllum mess- um með þér og svo heima að hafa það notalegt. Við áttum okkar miðvikudaga veturinn sem Hörður var á Skjóli og þá sótti ég þig til að fara í heimsókn til hans eða þá að við skruppum í Kringluna og borð- uðum saman eitthvað óhollt og gott. Margar stundir áttum við svo saman í Furugerðinu og mikið var spjallað og skeggrætt. Á Víðinesi var gott starfsfólk sem hugsaði vel um þig. Síðasta haust langaði mig að bjóða þér heim í gæs en þú treystir þér ekki til að koma þann- ig að ég fór bara með gæsina beint úr ofninum og allt meðlæti og borðuðum við það saman hjá þér og mikið var gaman að geta glatt þig með því, þetta var svo gott. Núna ertu farin og guðs blessaði sonur hefur tekið þig til sín. En þessar fallegu minningar um þig mun ég geyma og miðla til næstu kynslóða. Þín ömmustelpa Margrét Elfa Hjálmarsdóttir. Horfin er úr okkar hópi kær vinkona og skólasystir, Erla Finnsdóttir frá Siglu- firði. Þegar vinir kveðja leita minning- arnar fram í hugann. Fyrstu ár ævinnar var vinátta hvers og eins bundin við börn á næsta nágrenni en svo fór kjarni árgangsins að ganga í smábarna- skólann hjá fröken Láru, sem vakti hjá okkur óttablandna virð- ingu, en kenndi okkur alveg ótrú- lega mikið. Þar næst tóku barna- og gagnfræðaskólinn við og á þeim árum mynduðust hin sterku bönd árgangs ’32. Það var sérstakt lán að fá að alast upp á Siglufirði í þann tíma. Nám og leikir í um- gjörð fagurra fjalla. Á vetrum þeg- ar mjallhvít fönnin huldi jörð var farið á skíðum fram á fjörð, eða upp í Hvanneyrarskál, sumir létu sér nægja að skíða niður brekk- urnar, en aðrir voru kappsamari og kepptu í stökki eða bruni. Á sumrin fengu margir að taka til hendi við síldarsöltun eða eitt og annað á plönum, en alltaf var tími til að fara í leiki, útilegu í Kamba- lágar og ótal margt annað skemmtilegt. Við stelpurnar vor- um að vísu ekki eins framtaks- samar og fyrirferðarmiklar og strákarnir, en höfðum það ekki síður skemmtilegt. Þannig liðu bernskuárin við leik og störf. En elfur tímans streymir hratt og strax eftir fermingu fór hóp- urinn að þynnast. Æ fleiri fóru á brott, fyrst til náms og svo tók við atvinna, heimili og börn. En þegar árin liðu og umsvifin urðu minni leituðu æskuminningarnar æ oftar fram í hugann. Erla var ein þeirra sem höfðu hvað mestan áhuga á að við skóla- ERLA FINNSDÓTTIR ✝ Erla Finnsdóttirfæddist á Akur- eyri 18. janúar 1932. Hún lést á Hjúkrun- arheimilinu Skjóli að morgni aðfangadags og var útför hennar gerð frá Grafarvogs- kirkju 4. janúar. og fermingarsystkinin hittumst á Siglufirði sumarið 1982 í tilefni fimmtugsafmælis okk- ar og endurnýjuðum gömul vináttubönd. Lagði hún á sig mikla vinnu og fyrirhöfn ásamt öðrum skóla- félögum heima til að sú hátíð tækist sem best. Enda voru það ógleymanlegir dagar sem við áttum þar. Þarna var endurnýjuð gömul æskuvinátta sem var það sterk, að árgangur ’32 hittist aftur á Siglu- firði árin 1987, 1992 og svo nú síð- ast árið 2002. Það sannaðist að vinátta okkar Erlu var ekki gleymd og höfðum við þó nokkuð mikið samband, þó svo að við hitt- umst ekki oft þessi ár. Við syrgð- um með henni við fráfall sonar hennar og glöddumst með henni þegar allt lék í lyndi. En Erla var sterk og lét ekki bugast þótt hún yrði fyrir ýmsum áföllum. Við gleymum ekki hversu glöð og kát hún var þegar við hittumst aftur, en mörg okkar höfðu ekki sést frá því um fermingu. En tíminn gefur engum grið og það var mikið áfall er við fréttum af veikindum henn- ar. Og alltaf mætti Erla þegar ár- gangur ’32 kom saman, hún kom jafnvel hingað suður til þess að taka þátt í myndakvöldum okkar, þó svo að heilsa hennar versnaði stöðugt. Og sumarið 2002 kom hún á há- tíðina okkar á Siglufirði, með að- stoð dætra sinna Bylgju og Báru sem sýndu henni aðdáunarverða umhyggju og ástúð. Þótt Erla væri þá komin í hjólastól tók hún þátt í öllum okkar uppákomum og naut þess að vera með í hópnum. Við kveðjum Erlu skólasystur okkar með sorg en þakklæti fyrir að hafa fengið að ganga með henni okkar bernsku- og æskuár og fylgjast með henni á lífsins vegi, þótt oft væri vík milli vina. Minningarnar lifa. F.h. árgangs ’32 frá Siglufirði Kristjana H. Guðmundsdóttir. HREFNA SIGURBJÖRG HÁKONARDÓTTIR ✝ Hrefna SigurbjörgHákonardóttir fæddist í Vík í Mýrdal 13. september 1927. Hún lést á sjúkrahús- inu á Blönduósi 14. desember síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Víkurkirkju 21. desember. og velferðar barnanna gætti, og hvar sem við bág- stadda færi hún fann, hún fúslega mein þeirra bætti. En sálin og hjartað og höndin varð þreytt og hörð var og þreyt- andi biðin, en drottni sé lof, nú er dauðastríð breytt í dýrðlega himneska friðinn. Þótt horfinn sé vinur af hérvistar braut, til heimvonar æðri vér snúum, vér samfögnum henni, að sigruð er þraut og sömu til ferðar oss búum. (Sigurbjörn Jóhannsson.) Innilegar samúðarkveðjur til barna hennar og þeirra fjölskyldna Erla og Jón Elimar. Hún sefur og hvílist, sem vakti og vann, sem vildi hið góða og þarfa, sem annarra farsæld sér ánægju fann við áreynslu skyldunnar starfa. En skyldan var margbreytt og skeiðið var langt, en skyldurækt hennar ei breyttist. Já reynslan var margbreytt og stríðið var strangt, unz starfskraftur líkamans þreyttist. Sem kona og móðir hún vakti og vann

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.