Morgunblaðið - 04.02.2005, Síða 1

Morgunblaðið - 04.02.2005, Síða 1
Bílar og Íþróttir í dag STOFNAÐ 1913 33. TBL. 93. ÁRG. FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is 5 stjarna diskur Hefur aldrei verið eins mikil Emilíana | Menning Bílar | Þeyst um sveitir á BMW 3 Stærri og ennþá vandaðri Focus Íþróttir | Túnis í undan- úrslit á HM Íslendingar sannir íþróttamenn Út í heim bæklingurinn fylgir blaðinu á morgun út í heim Varð af 820 milljónum ÓHEPPINN Norður-Íri, sem vissi ekki að hann hafði dottið í lukkupottinn, varð í gær af sjö milljónum sterlingspunda, sem samsvarar 820 milljónum króna. Óþekktur Belfastbúi fékk stóra vinn- inginn þegar dregið var í lottóinu 7. ágúst í fyrra og frestur vinningshafans til að gefa sig fram rann út síðdegis í gær. Þar sem enginn lagði vinningsmiðann fram í tæka tíð verður þetta stærsti ósótti vinningurinn í tíu ára sögu breska lottós- ins. Verðlaunaféð og vextir að andvirði rúmra 18 milljóna króna eiga að renna til góðgerðarstarfsemi. Ósóttir vinningar hjá breska lottóinu námu alls 16,3 milljónum punda, eða 1,9 milljörðum króna, í fyrra. Talsmaður Camelot, fyrirtækis sem rekur lottóið, sagði að ef menn vildu vera öruggir um að fá þá vinninga sem þeim ber ættu þeir að kaupa miða á Netinu eða með farsímum því að þá væri hægt að rekja vinningsmið- ana til þeirra. JEAN-Claude Trichet, forseti Evrópska seðlabankans, hvatti í gær til aukinnar var- úðar og sagði, að hugsanlega hefði hættan á hruni á verðbréfamarkaði, jafnt innan Evr- ópusambandsins sem annars staðar, verið vanmetin. Trichet lagði áherslu á, að hann væri ekki að boða nein ótíðindi, heldur aðeins að vara við ákveðnum hættumerkjum. Sagði hann það áhyggjuefni hvað menn virtust vera til- búnir að taka mikla áhættu í verðbréfavið- skiptum. Það væri oft einkennandi fyrir vanmat á undirliggjandi áhættu. Trichet vék einnig að hækkandi fast- eignaverði í nokkrum löndum, einkum á Spáni og Írlandi og nú síðast í Frakklandi. Sagði hann, að aukið framboð á lánsfé hefði kynt undir fasteignaverðbólu, sem væri úr takti við annan efnahagslegan veruleika og gæti ekki gengið nema í takmarkaðan tíma. Reuters Jean-Claude Trichet telur blikur á lofti. Varað við áhættu á markaði Frankfurt. AFP. NELSON Mandela, fyrrverandi forseti Suður-Afríku, krafðist þess í gær að auðugar þjóðir tækju höndum saman og frelsuðu millj- ónir „þræla fátæktar“ í þróunar- löndunum. „Eins og þrælahald og kynþátta- aðskilnaður er fátækt ekki eðlileg,“ sagði Mandela í ræðu á Trafalgar- torgi í London á fundi samtaka sem beita sér fyrir því að auðugu ríkin auki aðstoðina við fátækustu þjóðirnar og létti á skuldum þeirra. Gert er ráð fyrir því að Mandela ræði við fjármálaráðherra sjö helstu iðnríkja heims í London í dag. „Plága okkar tíma“ Mandela sagði að baráttan gegn fátækt snerist um mannréttindi og réttinn til mannsæmandi lífs. Hann lýsti örbirgðinni í fátækustu lönd- unum sem „skelfilegri plágu okkar tíma“ og „félagslegu böli“ sem líkja mætti við þrælahald og kúgunina í Suður-Afríku áður en aðskilnaðar- stefnan var afnumin. „Milljónir manna í fátækustu löndum heims eru enn í prísund, ánauð og í hlekkjum. Þær eru lok- aðar inni í fangelsi fátæktar. Það er kominn tími til að frelsa þær.“ Reuters Kveðst styðja Marshall-aðstoð við Afríku NELSON Mandela með Tony Blair á skrifstofu breska forsætisráðherrans í gær. Mandela hvatti auðugustu ríki heims til að samþykkja „Marshall-aðstoð við Afríku“ sem stjórn Blairs hefur beitt sér fyrir. Hún vill að skuldir fátækustu þjóða heims verði afskrifaðar og fjárhagsaðstoðin við þróunarlönd verði aukin um helming. Krefst þess að þrælar fátæktar verði frelsaðir London. AFP. Mandela vill útrýma örbirgð VIÐBRAGÐSFLÝTIR ökumanna sem eru með lesblindu er að jafnaði 30% minni en annarra ökumanna. Þetta er niðurstaða rannsóknar dr. Hermundar Sigmundssonar, dósents við Norska tækni- og vísindaháskólann í Þránd- heimi í Noregi. Við rannsóknina lagði Hermundur próf fyrir hóp sjálfboðaliða og kannaði viðbragðshæfni þeirra undir stýri í bílhermi við mismunandi að- stæður. Í ljós kom að þeir ökumenn sem greinst höfðu með lesblindu brugðust ekki eins skjótt og hinir ökumennirnir við merkjum sem brugð- ið var upp fyrir framan þá við aksturinn. Reynd- ist munurinn á viðbragðsflýtinum allt að 0,19 sekúndur. Niðurstöðurnar eru birtar í nýjasta hefti vís- indatímaritsins Brain and Cognition og greint var frá þeim í nokkrum erlendum fréttamiðlum í gær m.a. BBC og í vefútgáfu tímaritsins New Scientist. Í frétt tímaritsins í gær eru niðurstöð- ur Hermundar bornar saman við rannsóknir á ölvunarakstri og bent er á að svo virðist sem les- blinda geti skert viðbragðshæfni ökumanna í jafnmiklum mæli eða meiri en hófleg vín- drykkja. Rannsóknar íslensks vísindamanns í Noregi getið víða um heim Lesblindir bregðast ekki eins skjótt við undir stýri og aðrir  Lesblinda dregur/11 BURÐARÁS hf. mun fá rúmlega 704 milljónir króna í arðgreiðslur vegna hlutafjáreignar sinnar í sænska verð- bréfafyrirtækinu Carnegie, sem birti ársuppgjör sitt í gær. Hagnaður fyrirtækisins á fjórða ársfjórðungi nam 157 milljónum sænskra króna, eftir skatt, sem sam- svarar tæplega 1,4 milljörðum króna, og var það rúmlega 40% yfir með- alspá og meira en 50% yfir afkomu sama tímabils árið 2003. Hagnaður ársins í heild nam 396 milljónum sænskra króna eftir skatt og samsvarar það rúmlega 3,5 millj- örðum króna. Hagnaður ársins 2003 var 211 milljónir sænskra króna og er því um 87% afkomubata að ræða. Allur hagnaður greiddur í arð Hluta afkomubatans má rekja til óinnleysts hagnaðar vegna eignar bréfa í kauphöllinni í Kaupmannahöfn en eins og fram hefur komið hefur OMX, sem rekur kauphöllina í Stokk- hólmi, gert yfirtökutilboð í hana. Stjórn Carnegie hefur lagt til að allur hagnaður ársins verði greiddur í arð til hlutahafa og verður arður því 5,93 sænskar krónur á hlut. Hlutdeild Burðaráss í arðinum verður rúmlega 704 milljónir króna en Burðarás á 20,01% hlut í Carnegie. Samkvæmt frétt í sænska við- skiptablaðinu Dagens Industri hefur Burðarás tilkynnt að félagið muni til- nefna tvo menn til setu í stjórn Carn- egie en ekki hefur verið tilkynnt hverjir þeir verða. Burðarás fær 704 milljónir í arð ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.