Morgunblaðið - 04.02.2005, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Um Brasilíumenn gildir almennt og yf-irleitt að skráð eða formleg nöfn eruyfirleitt ekki að vefjast fyrir þeim.Nafnarunurnar eru líka oftar en
ekki ansi langar. Íþróttahetjurnar, stjórn-
málamennirnir og allt hitt fræga fólkið er yf-
irleitt betur þekkt undir gælunöfnum. Skírnar-
og ættarnöfnin skipta hreinlega engu máli.
Tökum sem dæmi þá Ronaldo de Assis
Moreira og Carlos Alberto Libiano Christo.
Báðir sinna þeir mikilvægum hlutverkum í sam-
félagi Brasilíumanna en fáir myndu þekkja þá
ef vísað væri til þeirra með þessum nöfnum.
En það kviknar strax á perunni ef spurt er
hvort viðkomandi þekki Ronaldinho Gauco en
það er gælunafn Moreira. Hann er ofurstirni í
fótboltanum, valinn besti knattspyrnumaður
heims árið 2004 og bros hans yljar unnendum
íþróttarinnar um heim allan.
Carlos Alberto Libiano Christo er betur
þekktur sem Frei Beto. Hann er vinstrisinn-
aður kaþólskur prestur og hefur skrifað ógrynni
bóka sem spanna afar vítt svið svo vægt sé til
orða tekið. Presturinn hefur vitanlega skrifað
um guðfræði. Vísindarit hans þykja jafnan
áhugaverð en matreiðslubækurnar hans njóta
þó sennilega mestrar hylli. Þar til nýverið var
hann hátt settur aðstoðarmaður Luiz Inacio
Lula da Silva, forseta Brasilíu.
Lula en enginn „Dabbi“
Vissulega þekkja sumir nafnið en sennilega
tengja flestir ekki Edson Arantes do Nascim-
ento við manninn sem er orðinn eins konar tákn
Brasilíu – knattspyrnusnillinginn Pele.
Talandi um forsetann. Árum saman var hann
einn atorkumesti verkalýðsleiðtogi Brasilíu og
þá aðeins þekktur undir nafninu Lula sem raun-
ar þýðir „kolkrabbi“ á portúgölsku. Reyndar
var Lula aldrei skírður Lula en hann tók nafnið
upp lögformlega fyrir nokkrum árum. Enginn
þekkti hann undir öðru nafni.
Og þetta leiðir eitt í ljós varðandi Bras-
ilíumenn og nöfnin þeirra; yfirleitt er samræmið
og samkvæmnin lítil sem engin.
Þegar núverandi forseti hafði verið kjörinn
árið 2002 spurðu erlendir fréttamenn aðstoð-
arfólk hans hvernig forsetinn vildi að vísað yrði
til sín. Þeir sögðu að forsetinn kysi að til hans
yrði vísað sem Luis Silva. Nokkrir erlendir
fréttamenn ákváðu þrátt fyrir óskir undirsáta
forsetans að nota formlegt ættarnafn hans og
vísa því jafnan til hans sem Luis da Silva. Blaða-
mönnunum í Brasilíu var nákvæmlega sama.
Þeir kalla hann bara Lula áfram.
Í Brasilíu tíðkast ekki að stjórnmálaleiðtogar
gangi undir viðteknum gælunöfnunum. Þar er
enginn „Dóri“, „Dabbi“, „Ömmi“ eða „Denni“
og engin „Solla“ heldur. Gangi tiltekinn stjórn-
málamaður ekki undir verulega hugvitssamlegu
og óvenjulegu gælunafni er eitt nafn yfirleitt
látið duga. Raunar minnir þetta nokkuð á mál-
venjuna á Íslandi en í Brasilíu er þetta eilítið
flóknara því menn geta jöfnum höndum notað
skírnarnöfn eða ættarnöfn í þessu viðfangi.
Þannig vita allir að Janio er Janio Quadros,
fyrrum forseti. Og hið sama gildir um Sarney
sem er Jose Sarney, einnig fyrrum forseti.
Gælunöfnin er alls ekki bundin við fræga
fólkið. Gælunafnahefðin er afar gömul í Bras-
ilíu. Francisco er venjulega kallaður „Chico“
(borið fram sjí-kú). Raimundo er oftar en ekki
kallaður „Mundico“ (mún-djíh-kú), sem er raun-
ar oft bara stytt í „Dico“ (dji-kú), Edmar er yfir-
leitt „Edinho“ (ed-djíhn-jú) og hann Jose er bet-
ur þekktur undir nafninu „Ze“ (tseh).
Heiti pabbinn og sonurinn báðir Luiz er hinn
eldri kallaður „Luizao“ (Lú-í-tsán), sem þýðir
„Stóri Luiz“, en sonurinn er „Luiznho“ (lú-í-
tsín-jú) eða „Litli Luiz“.
Algengt er einnig að gælunöfn séu búin til úr
síðustu atkvæðum skírnarnafns. Þetta er vit-
anlega þekkt úr fleiri málum en portúgölsku.
Þannig er Celestina betur þekkt sem „Tina“ og
Aparecida verður „Cida“.
„Cida“ er viðtekið gælunafn og þess vegna
tala Brasilíumenn ekki um SIDA þegar þeir
tala um alnæmi heldur nota þeir ensku skamm-
stöfunina AIDS. SIDA er aftur á móti notuð í
spænsku tal- og ritmáli og er einnig rétta
skammstöfunin á portúgölsku.
Hljóðritun flækir málið
Nöfn í Brasilíu verða oft lítt skiljanleg vegna
þess að nokkuð algengt er að rithætti þeirra sé
breytt og stuðst við hljóðritun. Þetta getur
skapað margvíslegan vanda og misskilning.
Nefna má sem dæmi Vinicius de Moraes, sem
var skáld og diplómati en er sennilega betur
þekktur fyrir að hafa verið einn upphafsmanna
bossa nova-taktsins sem gerir brasilíska tónlist
oft svo seiðandi. Algengt er að rekast á nafn
hans í tveimur ólíkum útgáfum þ.e.a.s. Moraes
og Morais sem er nær framburðinum. Fínn
veitingastaður í hinu fræga Ipanema-hverfi í
Río (þaðan sem „stúlkan“ fræga og ónefnda var/
er) leysir málið með því að notast við báðar út-
gáfurnar á servíettum, dúkum og minjagripum
sem þar má kaupa og tengdir eru hinum goð-
sagnarkennda Vinicius de Moraes.
Og svona er þetta einnig í nútímanum.
Eduardo Martins er ritstjóri O Estado de S.
Paulo sem er eitt virtasta dagblað Brasilíu.
Hann segir frá því er forráðamenn blaðsins
reyndu eitt sinn að tryggja réttan rithátt á nöfn-
um leikara sem léku í forkunnarvinsælli sápu-
óperu í brasilíska sjónvarpinu. „Við fengum
lista frá sjónvarpsfyrirtækinu á degi hverjum
og ákváðum að nota þá. En við gáfumst fljótt
upp. Einn daginn hét leikkonan Ivette en þann
næsta Yvete. Og svona var þetta um flesta leik-
arana. Þetta gekk bara engan veginn. “
Vanderlei
Hið sama gildir um einn þekktasta knatt-
spyrnuþjálfara heims sem nú starfar hjá
spænska stórveldinu Real Madrid. Sumir skrifa
nafn hans Wanderley Luxembourgo en aðrir
Vanderlei Luxembourgo.
Þegar reynt var að fá fram hvor rithátturinn
væri hinn rétti kom í ljós að þeir voru það báðir!
Luxembourgo hafði sumsé skráð lögformlega
báða rithættina. Svo fór að Luxembourgo sætt-
ist á að nota aðeins Vanderlei sem er hljóðrit-
aður framburður skírnarnafnsins.
Og auðvitað er hann bara þekktur undir nafn-
inu Vanderlei, ekki Luxembourgo.
Frjálslega farið með nöfnin í landi Pele
Nafnahefð í Brasilíu vefst
fyrir mörgum en almenna
reglan er sú að skírnar- og
ættarnöfnin skipta oft ná-
kvæmlega engu máli.
Reuters
Ronaldo de Assis Moreira, betur þekktur sem
Ronaldinho. Hann spilar hjá Barcelona.
AP
„Með Lula til að breyta“ segir á þessum borða en myndin var tekin á dögunum í Porto Alegre í
Brasilíu. „Lula“ vísar til Luiz Inacio Lula da Silva, forseta Brasilíu. Forsetinn er jafnan kall-
aður Lula en var aldrei skírður því nafni. Hann tók það einfaldlega upp og skráði formlega
vegna þess að allir kölluðu hann Lula.
’Einn daginn hét leikkonanIvette en þann næsta Yvete‘
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti lagði áherslu á það í stefnuræðu
sinni, sem hann flutti í fyrrinótt að íslenskum tíma, að hann vildi stuðla
að veröld þar sem enginn þyrfti að una harðstjórn. Fordæmdi hann m.a.
ríkisstjórnir Sýrlands og Írans og hvatti ráðamenn í þessum löndum til
að hætta stuðningi við hryðjuverkamenn. Innanríkismál voru einnig of-
arlega í huga forsetans en hann gerði m.a. grein fyrir hugmyndum sínum
að róttækum breytingum á almannatryggingakerfi Bandaríkjanna.
Bush sagði m.a. að opinbera lífeyriskerfið, almannatryggingakerfið,
„stefndi í átt að gjaldþroti.“ Vill forsetinn að yngra fólk á vinnumarkaði
breyti nokkru af skattfé sínu í fjárfestingarreikninga svo tryggja megi
að það fái eftirlaun þegar það lætur af störfum fyrir aldurs sakir.
Lífeyriskerfið hefur hingað til verið umræðuefni sem varasamt hefur
talist fyrir stjórnmálamenn að taka upp. Ákvörðun Bush um róttækar
breytingar á kerfinu þykir því sýna að hann sé fullur sjálfstrausts við
upphaf annars kjörtímabilsins í embætti forseta.
Sumir þingmenn Demókrataflokksins púuðu hins vegar á forsetann
þegar hann ræddi þessi mál en það þykir heldur óvenjulegt við þetta
tækifæri. Sagði Harry Reid, leiðtogi demókrata í öldungadeildinni, eftir
ræðuna að áætlun Bush um einkavæðingu almannatryggingakerfisins
væri „hættuleg“, enda myndi hún auka verulega skuldir ríkissjóðs sem
þegar væru mjög miklar.
Engin tímasetning varðandi brotthvarf frá Írak
Í þeim kafla ræðunnar sem fjallaði um utanríkismál sagði Bush að
hann fagnaði nýafstöðnum kosningum í Írak og á heimastjórnarsvæðum
Palestínumanna. Sagði hann að sú stefna Bandaríkjamanna „að stuðla að
frelsi, sérstaklega í Mið-Austurlöndum,“ væri um þessar mundir í fram-
kvæmd í Írak. Forsetinn hafnaði á hinn bóginn kröfum um að Banda-
ríkjastjórn nefndi einhverjar dagsetningar um það hvenær Bandaríkja-
her hygðust búast til brottfarar frá Írak. Slíkt myndi aðeins virka
hvetjandi á skæruliða í landinu. Hann sagði þó að aukin þjálfun íraskra
öryggissveita myndi smám saman létta byrðarnar.
Bush sagðist ætla að fara fram á 350 milljóna dala stuðning frá Banda-
ríkjaþingi til þess að styðja nýja stjórn Palestínumanna. „Takmarkið að
mynda tvö lýðræðisríki, Ísrael og Palestínu, hlið við hlið í sátt og sam-
lyndi, er innan seilingar – og Bandaríkin munu aðstoða þjóðirnar að ná
þessu markmiði,“ sagði Bush.
Um önnur utanríkismál sagði forsetinn meðal annars að Bandaríkin
væru að vinna að því ásamt bandamönnum sínum í Evrópu að fá írönsk
stjórnvöld til þess að falla frá áformum um kjarnorkuvopnaframleiðslu.
Þá beindi hann orðum sínum til Sýrlendinga og þrýsti á þá að „hætta öll-
um stuðningi við hryðjuverkamenn.“
Bush gagnrýndi líka bandamenn Bandaríkjanna, S-Arabíu og Egypta-
land. Sagði hann stjórnvöld í fyrrnefnda ríkinu geta sýnt að S-Arabía
væri forysturíki í heimshlutanum með því að veita almenningi meiri hlut-
deild í ákvörðunum um eigin framtíð. „Og sú merka og stolta þjóð Egypt-
ar, sem mörkuðu leiðina í átt að friði í Mið-Austurlöndum, getur nú
markað leiðina í átt að lýðræði í Mið-Austurlöndum,“ sagði Bush.
Setur breytingar á líf-
eyriskerfinu á oddinn
Reuters
George W. Bush Bandaríkjaforseti í ræðupúltinu í þinginu í fyrra-
kvöld. Að baki honum standa Dick Cheney varaforseti og Dennis
Hastert, þingforseti fulltrúadeildarinnar.
Washington. AFP.PAUL Volcker, sem fór fyrir nefnd sem rann-
sakaði ásakanir um spillingu í tengslum við ol-
íusölu Íraka á valdatíma Saddams Husseins,
segir óyggjandi sannanir
fyrir því að reglur Samein-
uðu þjóðanna hafi verið
brotnar og að Benon Sevan,
yfirmaður olíusöluáætlun-
arinnar, hafi verið óhæfur
til starfsins vegna „alvar-
legra hagsmunaárekstra“.
Volcker birti skýrslu
nefndarinnar í gærkvöldi og
segir þar að framganga
Sevans í starfinu hafi verið
„siðferðislega ósæmileg“ og grafið „alvarlega
undan heiðarleika Sameinuðu Þjóðanna“. Sev-
an er sagður hafa þegið „miklar fjárhæðir“ en
þó ekki sakaður um mútuþægni. Í skýrslunni er
einnig bent á ýmsa alvarlega galla á eftirliti
með framkvæmd áætlunarinnar.
Sérstök skýrsla verður einnig unnin um þátt
Kofi Annans, framkvæmdastjóra SÞ, og sonar
hans Kojo en hann vann hjá fyrirtæki sem
tengdist olíusölunni á árunum 1996 til 2003.
Málið tengist olíusölu Íraka samkvæmt und-
anþágum sem veittar voru frá viðskiptabanni
Sameinuðu þjóðanna til kaupa á mat og öðrum
nauðsynjum en ásakanir hafa komið fram um
spillingu og óstjórn innan SÞ í tengslum við
áætlunina.
26 féllu í Írak
Sem kunnugt er þóttu þingkosningar, sem
haldnar voru í Írak sl. sunnudag, ganga framar
vonum. Tókst skæruliðum í landinu ekki að
spilla þeim eins og þeir höfðu þó hótað að gera.
Síðustu tvo dagana hafa þeir hins vegar drepið
a.m.k. 26 í árásum en m.a. felldu þeir tólf íraska
hermenn í fyrirsát nálægt Kirkuk í fyrrakvöld.
Víða pottur
brotinn hjá
SÞ í Írak
Sameinuðu þjóðunum, Bagdad. AP, AFP.
Paul Volcker