Morgunblaðið - 04.02.2005, Síða 24

Morgunblaðið - 04.02.2005, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR AUSTURLAND Egilsstaðir | Fyrir skömmu var fjár- hagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2005 og yfirlit yfir helstu fram- kvæmdir í sveitarfélaginu kynnt. Áætlunin einkennist fyrst og fremst af mikilli uppbyggingu, fólksfjölgun, framkvæmdum og mótun nýs sveit- arfélags í kjölfar sameiningar seint á síðasta ári. Gert er ráð fyrir aukn- um tekjum sveitarfélagsins á árinu og að íbúafjöldinn í árslok verði um 3.600, en þá er fólksfjölgunin vel á sjöunda hundrað manns árin 2004 og 2005 samanlagt. Fljótsdalshérað er í dag fjölmennasta sveitarfélag á Austurlandi. Þá er Fljótsdalshérað eftir sameiningu stærsta sveitarfé- lag landsins að flatarmáli, 8.884 fer- kílómetrar. 820 milljónir í skatttekjur Fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2005 gerir ráð fyrir að heildartekjur bæjarsjóðs og stofn- ana sveitarfélagsins verði 1.508 milljónir króna. Þetta er hækkun upp á rúmar 214 milljónir á milli ára, ef miðað er við rauntölur ársins 2003 hjá sveitarfélögunum sem sam- einuðust í Fljótsdalshérað. Af heild- artekjum eru skatttekjur áætlaðar 820 milljónir króna, eða 54%, og framlag úr Jöfnunarsjóði 262 millj- ónir, eða 17%. Rekstrargjöld sam- stæðunnar án fjármagnsliða eru alls 1.400 milljónir króna og fjármagns- liðir eru samtals 130 milljónir. 620 milljónir í fjárfestingar Af einstökum málaflokkum fara mest útgjöld til fræðslu- og uppeldis- mála en þar er gert ráð fyrir út- gjöldum upp á tæpar 740 milljónir króna, sem eru tæp 53% af rekstr- argjöldum. Til æskulýðs- og íþrótta- mála er áætlað að fari tæpar 147 milljónir króna, félagsþjónustunnar um 87 milljónir og áætluð útgjöld til menningarmála eru um 41 milljón króna. Fjárfestingar ársins eru áætlaðar samtals 620 milljónir króna. Stærsta einstaka fjárfestingin er bygging nýs leikskóla við Skógarlönd á Egils- stöðum fyrir 254 milljónir. Nýbygg- ing gatna í sveitarfélaginu er áætlað að kosti tæpar 100 milljónir, en þar koma tekjur af gatnagerðargjöldum á móti. Framkvæmdir við lagningu hitaveitu eru áætlaðar um 70 millj- ónir króna og vatnsveitu 46 millj- ónir. Félagsaðstaða eldri borgara er áætlað að kosti um 40 milljónir, við- bygging við Menntaskólann á Egils- stöðum 38 milljónir og fram- kvæmdir við grunnskóla 34 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að tekin verði ný langtímalán að upphæð 285 milljónir króna til að standa straum af kostn- aði við framkvæmdir. Álagning útsvars nýtt að fullu Fasteignamat í sveitarfélaginu hækkaði um 20% á síðasta ári, sam- kvæmt ákvörðun Fasteignamats rík- isins, sem m.a. hefur þau áhrif að verðgildi fasteigna hefur aukist. Í heildina séð hefur hins vegar engin hækkun orðið á álagningarhlutfalli fasteignagjalda hjá sveitarfélaginu. Aftur á móti er fyrirhuguð lækkun á álagningarhlutfalli fasteignagjalda til fyrirtækja í 1,15%, en leyfileg há- marksálagning er 1,65%. Álagning útsvars er að fullu nýtt, eða 13,03%. Fljótsdalshérað fjárfestir fyrir rúmar 600 milljónir „ATVINNUÁSTAND á Austur- landi nú er bæði gott og vont“ segir Ólöf Guðmundsdóttir, forstöðumað- ur Svæðisvinnu- miðlunar Austur- lands. „Það eru mjög miklar framkvæmdir í gangi sem marg- ir njóta góðs af, en of margir á skrá miðað við heildarmann- fjölda á Austur- landi. Hlutfall at- vinnuleysis er þó lágt. Nú eru 130 manns skráðir, ekki er búið að sam- þykkja þá alla inn, en þeir eru samt atvinnulausir. Margir eru að fara til vinnu alveg á næstu vikum þannig að þetta er árstíðabundið eins og hefur alltaf verið og hættir ekki að vera árstíðabundið þó að þessar miklu framkvæmdir séu í gangi.“ Ólöf segir atvinnuleysi kvenna með börn vandamál. „Ég ítreka þá skoðun mína að það vantar aukna barnagæslu, hún er ófullnægjandi. Það eru göt í kerfinu og mér skilst að sveitarfélögum beri ekki lagaleg skylda til að vera með pláss fyrir ung börn fyrr en þau eru orðin tveggja ára. Það breytir því ekki að þarna ergat í kerfinu, hver á að brúa það og hvernig? Ég lít svo á að það eigi að vera réttur fólks, hvort sem það er að eiga börn eða ekki, að hafa aðgengi að vinnu- markaðnum. Ef maður lítur sér- staklega til barnafólks þá þurfa all- ir að geta unnið fyrir sér og barnafólk getur það ekki, fái það ekki barnapössun. Dagmæður eru hverfandi stétt og þetta er úrlausn- arefni sem þarf að laga hið fyrsta.“ Skilja eftir sig brotið samfélag Ólöf segir Austurbyggð, einkum þó Stöðvarfjörð veikust fyrir hvað atvinnuástand varðar. „Fáskrúðs- firðingar hafa staðið sig vel í langan tíma en mér þykir allsvakalegt að þar var sagt upp nú í haust íslensk- um konum og ráðnir í staðinn inn Pólverjar til að annast þrif í frysti- húsinu og stafar líklega af því að hægt er að borga Pólverjunum lægri laun. Síðan er Stöðvarfjörður mjög veikur fyrir, ekki síst vegna væntanlegrar lokunar Samherja á frystihúsi sínu á staðnum. Upp- sagnir á borð við þær sem þar eru yfirvofandi skilja eftir sig brotið samfélag. Þá er atvinnuástandið tæpt á Breiðdalsvík, en gengur aft- ur orðið betur á Djúpavogi. Það er búin að vera heilmikil árás á það samfélag, þegar síldarbræðslan og hluti af vinnslunni fór. Þá var nýbú- ið að leggja þar í miklar hafn- arframkvæmdir, m.a. vegna bræðsl- unnar. Í kjölfarið á þessu myndast mikið tekjutap fyrir fólkið á staðn- um. Þetta hangir allt saman og hefðbundin verkamannastörf láta verulega undan. Það fækkar stöð- ugt á landsbyggðinni og þróunin er í átt til meiri sérhæfingar. Ég tel að hluti fólks á vinnumarkaði sé ekki í takt við sjálfan vinnumarkaðinn; þarna á milli er ekki samrænt göngulag og þá koma alvarlegar brotalamir.“ Víða veikt atvinnu- ástand þrátt fyrir uppsveiflu Ólöf Guð- mundsdóttir Uppsagnir hafnar | Stöðfirðingar búast við að frystihúsi Samherja á staðnum verði lokað á næstu mán- uðum. Fyrstu uppsagnarbréfin bár- ust starfsfólki síðasta dag janúar- mánaðar. Skv. upplýsingum frá Vökli, Stéttarfélagi á Höfn, átti að tína inn uppsagnir til fólks eftir lengd uppsagnarfrests meðan verið væri að vinna í málinu, sem þýðir að þeir sem eiga hálfsárslangan upp- sagnarfrest var sagt upp fyrir síð- ustu mánaðamót. SUÐURNES Grindavík | Stefnt er að því að breyta félagsheimilinu Festi í Grindavík í hótel og opna Hótel Festi í maí á næsta ári. Í tengslum við framkvæmdina er unnið að þróun heilsuþorpsins Grindavíkur og von- ast til að heilsutengd starfsemi þar sem áhersla verður lögð á sálfræði- meðferð geti styrkt stoðir hótel- rekstrarins. Unnið hefur verið að undirbúningi byggingar hótels í Grindavík á und- anförnum árum. Grindavíkurbær er reiðubúinn að leggja fram húseign sína, félagsheimilið Festi, í þeim til- gangi. Lykilráðgjöf í Keflavík hefur unnið að þróun verkefnisins. Nú hef- ur orðið til hópur fjárfesta sem vill vinna að þessu verkefni og hefur Sig- urbjörn Dagbjartsson verið ráðinn framkvæmdastjóri. Sigurbjörn segir gert ráð fyrir að hótelið kosti um 300 milljónir og að fjármögnun gangi vel. Hann segir að í hópi fjárfesta séu útgerðarmenn í Grindavík og almennir bæjarbúar, auk annarra. Segir hann að menn telji að hótelið geti orðið mikil lyfti- stöng fyrir bæjarfélagið. Hugmyndin er að nýta hluta fé- lagsheimilisins fyrir hótel en byggja við þriggja hæða hótelálmu. Sigur- björn tekur fram að salurinn verði áfram nýttur til samkomuhalds fyrir Grindvíkinga. Í þessum fyrsta áfanga verða fjörutíu herbergi. Sálræna þættinum bætt við Á dögunum var efnt til kynning- arfundar um verkefnið í Grindavík. Þar var undirrituð yfirlýsing um samstarf um uppbyggingu heilsu- þorpsins og Hótels Festi. Sjöfn Ágústsdóttir sálfræðingur hjá Heilsuhópnum ehf., Brynjar Péturs- son nuddari og Sigurbjörn Dag- bjartsson skrifuðu undir yfirlýs- inguna ásamt Jóni Kristjánssyni heilbrigðisráðherra og Ólafi Erni Ólafssyni bæjarstjóra en þeir lýstu báðir yfir vilja sínum til að leggja verkefninu lið. Sjöfn er sjálfstætt starfandi sál- fræðingur og sérfræðingur í mark- aðsmálum á Netinu. Hún hefur ásamt tveimur öðrum sálfræðingum og Mixa hönnun og auglýsingum haft hugmyndir um að byggja upp heilsu- tengda ferðaþjónustu þar sem með- höndlun sálræna þáttarins væri bætt við þann líkamlega. Sjöfn kom fyrir tilviljun til Grindavíkur og leist svo vel á aðstæður að hún setti sig í sam- band við Ólaf Örn Ólafsson bæjar- stjóra og síðan þá sem unnið hafa að byggingu Hótels Festi. Síðan hefur hugmyndin verið þróuð áfram í sam- vinnu þeirra. Sjöfn segir að hugmyndin sé að fá tuttugu til tuttugu og fimm manna hópa erlendis frá í heilsumeðferð og á námskeið. Boðið verði upp á hefð- bundna spa-meðferð en hugmyndin sé að bæta við sálfræðilegri meðferð, ekki síst vegna álags, streitu og kuln- unar í starfi. Segir Sjöfn að mikill og vaxandi markaður sé fyrir heilsu- tengda þjónustu. Telur hún að þörf sé á þeirri þjónustu sem Heilsuhóp- urinn hyggist bjóða upp í samstarfi við Hótel Festi og sérhæfing þeirra á þessu sviði geti skapað þjónustunni vissa sérstöðu. Sigurbjörn Dagbjartsson segir að samstarfið við Heilsuhópinn og Nuddstofu Brynjars renni styrkari stoðum undir rekstur hótelsins og er ánægður með samstarfið. Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri segir að þetta sé spennandi verkefni, sérstaklega hugmyndin um heilsu- tengdu starfsemina í tengslum við hótelið. „Þetta yrði nýjung í atvinnu- lífinu hér og raunar nýjung á Ís- landi,“ segir hann. Ólafur Örn sagði þó að framkvæmdin færi eftir því hvernig fjárfestunum gengi að safna hlutafé. Heilsubærinn Grindavík Grindavík veður skilgreind sem heilsuþorp og er ætlunin að það taki fimm ár að byggja upp starfsemina. Ágæt aðstaða er til líkamsræktar í Grindavík og móttöku heilsuferða- langa, nema hvað gistiaðstöðuna vantar. Hugmyndin er að afla heilsu- þorpinu alþjóðlegra umhverfisvott- ana, svo sem Green globe. Markmiðið er að því að fram- kvæmdir geti hafist um næstu mán- aðamót og að þeim ljúki að ári þannig að unnt verði að opna Hótel Festi vorið 2006. Sigurbjörn er bjartsýnn á að það takist. Stjórnendur Bláa lónsins hafa unnið að undirbúningi byggingar heilsuhótels við Bláa lónið. Þar er nú rekið Hotel Northern Light Inn. Sig- urbjörn telur ekki að það hafi áhrif á áformin í Grindavík. Hótel Bláa lóns- ins verði mun vandaðra og dýrara hótel sem höfði til annarra hópa en Hótel Festi. Miðað er við að síðar- nefnda hótelið verði þriggja stjarna. Stefnt er að opnun heilsuhótels í húsnæði félagsheimilisins Festi í Grindavík vorið 2006 Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson Hótel Tveggja hæða húsinu á bakhlið félagsheimilisins Festi verður breytt í hótel og byggð ný hótelálma. Samstarf Jón Kristjánsson og Sigurbjörn Dagbjartsson takast í hendur eftir undirritun yfirlýsingar um samstarf. Sjöfn Ágústsdóttir er lengst til vinstri og til hægri við Sigurbjörn eru Ólafur Örn Ólafsson og Brynjar Pétursson. Ferðamenn koma í sálfræðimeð- ferð við streitu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.