Morgunblaðið - 04.02.2005, Side 25

Morgunblaðið - 04.02.2005, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 25 MINNSTAÐUR Ísafjörður | Lagt er til að Ísafjörður verði byggður upp sem byggðakjarni fyrir Vestfirði og að gerður verði vaxtarsamningur Vestfjarða til ársins 2008. Tillögur þessar koma fram í nið- urstöðum verkefnisstjórnar um byggðaáætlun Vestfjarða sem Valgerður Sverrisdóttir iðn- aðarráðherra kynnti á fundi á Ísafirði. Í gær staðfestu einnig Valgerður og Árni M. Mathie- sen sjávarútvegsráðherra samkomulag um að leggja 20 milljónir kr. til verkefna á Ísafirði á sviði rannsóknar- og þróunar í sjávarútvegi. Samkvæmt samkomulagi ráðherranna munu iðnaðarráðuneytið og sjávarútvegsráðuneytið vinna sameiginlega að tveimur verkefnum á Ísafirði á árinu 2005. Annað er á sviði veið- arfærarannsókna en hitt varðar þorskeldi í sjókvíum. Verkefnin verða unnin undir forystu útbúa Hafrannsóknastofnunarinnar og Rann- sóknastofnunar fiskiðnaðarins á Ísafirði. Iðnaðarráðuneytið leggur 10 milljónir kr. til verkefnanna af fjárveitingu til framkvæmdar byggðaáætlunar 2002 til 2005. Sjávarútvegs- ráðuneytið mun leggja fram sömu fjárhæð. Möguleikar til vaxtar og fjölgunar Í niðurstöðum skýrslu verkefnisstjórnar um byggðaáætlun sem iðnaðarráðherra kynnti í gær kemur meðal annars fram að verkefn- isstjórnin telur að Vestfirðir eigi sér mikla möguleika til vaxtar og þróunar og aukinnar samkeppnishæfni, með þeim aukna fjölbreyti- leika og bættum lífskjörum sem því fylgir. Það er jafnframt mat verkefnisstjórnar að fyrir árið 2020 verði íbúatala Vestfjarða komin í um 8.300, sem samsvarar árlegri fjölgun íbúa um hálft prósent. Tillögum Verkefnisstjórnar er skipt í 3 flokka. Í fyrsta lagi er tillaga um uppbyggingu Ísafjarðarbæjar sem byggðakjarna fyrir Vest- firði. Í öðru lagi er lagt til að gerður verði Vaxt- arsamningur Vestfjarða er nái frá 2005 til 2008 sem byggist á nýjum aðferðum við að styrkja hagvöxt einstakra svæða. Samningurinn taki mið af sambærilegum aðferðum, sem best hafa tekist erlendis. Í þriðja lagi eru tillögur um beinar aðgerðir á einstaka sviðum. Markmið tillagnanna er fyrst og fremst, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá iðn- aðarráðuneytinu, að auka hagvöxt svæðisins, fjölga atvinnutækifærum og treysta Ísafjörð sem byggðakjarna svo hann geti enn frekar sinnt því lykilhlutverki sínu að vera miðstöð at- vinnu, menningar og þjónustu á öllum Vest- fjörðum. Fram kom á fundinum í gær að tillögur skýrslunnar eru um margt nýjung á sviði byggðamála hér á landi, ekki síst hvað varðar uppbyggingu í formi svokallaðs vaxtarsamn- ings þar sem lögð er áhersla á klasa á sviði sjávarútvegs og matvæla, mennta og rann- sókna, menningar- og ferðaþjónustu. Tillög- urnar taka mið af sambærilegum áherslum víða erlendis þar sem lögð er áhersla á að efla byggðakjarna með markaðstengdum aðgerð- um þar sem atvinnulíf ber uppi hagvöxt svæð- isins. Jafnframt taka tillögurnar mið af stefnu í byggðamálum fyrir árin 2002–2005. Fram kom að iðnaðarráðherra mun yfirfara og meta tillögur verkefnisstjórnarinnar á næst- unni og kalla eftir samstarfi við önnur ráðu- neyti, bæjaryfirvöld á Ísafirði, sveitarfélög og atvinnulíf á svæðinu og aðra. Eins árs undirbúningur Vinna við byggðaáætlun fyrir Vestfirði hófst í lok ársins 2003 þegar iðnaðar- og við- skiptaráðherra skipaði verkefnisstjórn. Í henni eru Baldur Pétursson iðnaðarráðuneyti, sem jafnframt gegndi formennsku, Kristján G. Jó- hannsson, framkvæmdastjóri á Ísafirði, Hall- dór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, Þórólfur Halldórsson, sýslumaður á Patreks- firði, og Ásdís Leifsdóttir, sveitarstjóri á Hólmavík. Starfsmenn verkefnisstjórnarinnar hafa verið þau, Aðalsteinn Óskarsson og Hrefna Magnúsdóttir, starfsmenn Atvinnu- þróunarfélags Vestfjarða, og Guðmundur Guð- mundsson frá Byggðastofnun. Starfshópur um byggðaáætlun Vestfjarða leggur til að gerður verði vaxtarsamningur til ársins 2008 Ísafjörður byggður upp sem byggðakjarni Væntingar Tillögur um byggðaáætlun Vestfjarða voru kynntar fyrir sveitarstjórnarmönnum og fleiri gestum á fundi í stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði í gær. Samhent Ráðherrarnir Valgerður Sverris- dóttir og Árni M. Mathiesen takast í hendur eftir undirritun samkomulags um eflingu rannsóknar- og þróunarstarfs á Ísafirði. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Bifröst | Máttur kvenna er heiti á rekstrarnámi fyr- ir konur í at- vinnurekstri sem Viðskiptaháskól- inn á Bifröst efn- ir til í annað sinn. Um er að ræða ellefu vikna fjar- nám sem hefst um helgina og lýkur með formlegri útskrift 24. apríl. Liðlega fjörutíu konur, flestar af austur- og suðurhluta landsins, sækja námskeiðið. „Markmiðið er að gera konur hæfari til að reka fyrirtæki sín og auka hagnað. Einnig að efla at- vinnulíf á landsbyggðinni,“ segir Auðbjörg Agnes Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri símenntunar í Viðskiptaháskólanum á Bifröst. Hún segir að ýmiss konar námskeið séu í boði fyrir konur sem hafi áhuga á að stofna fyrirtæki en vantað hafi rekstrarnám fyrir konur sem þegar eru í rekstri og sé þessu námskeiði ætlað að koma til móts við þær þarf- ir. Gleymdur hópur Námskeið með þessu heiti var fyrst haldið á síðasta ári og var þá lögð áhersla á að ná til kvenna í Norðvesturkjördæmi. Um sjötíu konur útskrifuðust og mæltist nám- ið vel fyrir, að sögn Agnesar. Nú er konum í Norðaustur-, Suður- og Suðvesturkjördæmum sérstaklega boðið en Agnes tekur fram að allir geti sótt um og verði þátttakendur af öllu landinu. „Við erum háskóli úti á landi og finnst við hafa ákveðnar skyldur til að koma til móts við þennan hóp sem hefur verið gleymdur,“ segir Agnes þegar hún er spurð um ástæður þess að áhersla er lögð á konur á landsbyggðinni. Hún segir að konur sem reka þjónustufyrir- tæki hafi orðið útundan þegar litið sé á framboð menntunarúrræða. Í upplýsingum um námskeiðið er jafn- framt vakin athygli á því þessar konur séu yfirleitt ekki í stéttar- félögum og hafi því ekki möguleika á að sækja um námsstyrki. Námskeiðið hefur veirð unnið í samvinnu við Byggðastofnun og iðn- aðar- og viðskiptaráðuneytið sem styrkja það. Á námskeiðinu er kennt bókhald, upplýsingatækni, markaðs- og sölu- mál, fjármál og áætlanagerð. Agnes segir að reynslan sýni að þátttak- endur séu með mismunandi þarfir. Sumar konurnar séu góðar í bók- haldi en vanti kannski frekar þekk- ingu á leiðum í markaðs- og sölu- málum, aðrar séu góðar í fjármálum og svo framvegis. Námssjár Viðskiptaháskólans Fjarnámið á Bifröst er aðgengi- legt. Þátttakendur geta hlustað á fyrirlestrana á Netinu þegar þeim hentar en eru ekki bundnir við ákveðinn tíma. Þeir koma tvær helg- ar til að vinna í Bifröst, núna um helgina við upphaf námsins og síðan í lok námskeiðsins. Nemendur og kennarar Við- skiptaháskólans á Bifröst vinna á námssjá skólans þar sem hvert nám- skeið hefur sitt svæði. Þar eru fyr- irlestrar frá kennurum og glærur. Verkefnaskil og endurgjöf frá kenn- urum fara einnig í gegnum námssjá- inn. Nemendur geta með þessum hætti haft vinnu sína á einum stað, yfirfarna með athugasemdum. Rekstrarnám ætlað fyrir konur í atvinnurekstri á landsbyggðinni Verði hæfari til að reka fyrirtækin Agnes Gunnarsdóttir LANDIÐ Sjálfstæ›isflokkurinn sími 515 1700 www.xd.is Með hækkandi sól Lægri skattar - aukin hagsæld Opinn stjórnmálafundur í Sjálfstæðishúsinu, Hlíðasmára 19, Kópavogi, laugardaginn 5. febrúar kl. 10.30. Frummælendur: Geir H. Haarde fjármálaráðherra og þingmennirnir Bjarni Benediktsson og Arnbjörg Sveinsdóttir. Fundarstjóri: Sigurður Borgar Guðmundsson. Allir velkomnir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.