Morgunblaðið - 04.02.2005, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 27
DAGLEGT LÍF
FJÖLMARGIR þurfa að ganga með gler-
augu allan daginn, aðrir þurfa einvörðungu
að nota gleraugu við lestur og eða tölvu-
vinnu og enn aðrir bera gleraugu til þess
eins að skreyta sig. Eflaust leggur fólk
mismikið upp úr útliti gleraugna sinna en
sumir halda því fram að gleraugu segi heil-
mikið um þann sem ber þau. Hvað sem líð-
ur þeim sannleik þá er vert að benda á nýj-
an möguleika fyrir þá sem langar að breyta
útliti gleraugna sinna eftir ólíkum tilefnum
án þess að þurfa að fjárfesta í nýjum
gleraugum hverju sinni. Ný gleraugnalína
frá Frakklandi sem kallast Zenka fæst nú í
versluninni Optic Reykjavík í húsi
Blindrafélagsins Hamrahlíð 17, en í því
húsi er kominn vísir að þverfaglegri þekk-
ingarmiðstöð á sviði augna og sjónar, sem
eykur þjónustuna við þá sem þess þurfa.
Zenka gleraugun eru byltingarkennd á
þann hátt, að með einföldum hætti er hægt
að skipta út hluta af umgjörðinni og fá um
leið aðra stemningu í gleraugun og útlitið.
Sjónfræðingarnir Axel Örn Ársælsson og
Davíð Sigurðsson sem eiga og reka Optic
Reykjavík, segja hugmyndina að Zenka
gleraugunum koma frá franskri konu,
Patriciu Charmoille, en hún er sjónfræð-
ingur að mennt. „Henni leiddist meðal-
mennskan í gleraugum og ákvað því að
hanna sína eigin gleraugnalínu, byggða á
einfaldri hugmynd um umgjarðir sem væru
tiltölulega látlausar en hægt væri að djassa
upp við ólík tækifæri með skreytiklemmum
úr stáli, sem eru bæði léttar og auðvelt að
festa á gleraugun. Með Zenka gleraug-
unum getur fólk því átt mörg gleraugu í
einum.“
Nýtt á tveggja mánaða fresti
Nú er hægt að velja úr 15 mismunandi
grunnformum Zenka gleraugna og hægt er
að fá umgjarðirnar í yfir 50 litum. Það
sama má segja um skreytiklemmurnar,
þær fást í margvíslegum formum og litum.
Stefnan er að kynna nýjar skreytiklemmur
á tveggja mánaða fresti og þá er tekið mið
af helstu straumum í tísku og stefnu, sem
tryggir að gleraugun halda gildi sínu og
fólk fær ekki leiða á þeim.
Sem dæmi má nefna að um síðustu jól og
áramót voru einkunnarorð Zenka „gjafir,
partý, glys og glamúr“ og þá komu skreyti-
klemmur með fallegum glitrandi steinum
sem breyttu gleraugunum að hluta til í
skartgrip, og þannig mun þetta þróast með
skemmtilegum hætti. Á teikniborðinu er
síðan að fjölga formum og útfærslum,
þannig að framtíðin fyrir gleraugnanot-
endur er spennandi.
Glitrandi steinar fyrir glysgjarna.Hvítar óreglulegar rendur. Litagleði fyrir þá líflegu.Gleraugun án skreytiklemmu.
Gleraugu sem hægt er að breyta endalaust
HÖNNUN
TVEIMUR sænskum framhalds-
skólum hefur verið bannað að lesa
fingraför nemenda í mötuneytum.
Sænska persónuverndin hefur
skipað skólunum að breyta eftir-
litskerfinu því lestur fingrafara
brjóti gegn persónuvernd-
arlögum. Í neytendatímaritinu
Råd og Rön kemur fram að fram-
haldsskólarnir í Lerum og Udde-
valla hafi sett upp eftirlitskerfi
þar sem fingraför mötuneyt-
isgesta eru lesin til að koma í veg
fyrir að utanaðkomandi borði í
mötuneytum skólanna. Skólarnir
verða nú að breyta eftirlitskerf-
unum þannig að fingraför komi
hvergi við sögu.
Morgunblaðið/Golli
Framhaldsskólarnir í Lerum og Uddevalla hafa lesið fingraför mötu-
neytisgesta til að koma í veg fyrir að utanaðkomandi borði þar.
Bannað að lesa
fingraför nemenda
SKÓLAR
GH
Gr
af
ís
k
Hö
nn
un
Fjarðargata 13-15 Hafnarfirði
565 7100
ídag
og á morgun
Ótrúlegar
verðlækkanir
á miklu úrvali
af þeirri
einstöku hönnun
sem Anas
er þekkt fyrir
Food and Fun
16-20. Febrúar
Opnunartími:
11-18:30 mán-fös
10-18 lau / 13-17 sun.
Skútuvogi 2, sími 522 9000 • www.expert.is
Samsung SGH-X450
fallegur 3 banda
sími með
hágæða skjá
mbl.is
smáauglýsingar