Morgunblaðið - 04.02.2005, Side 38

Morgunblaðið - 04.02.2005, Side 38
38 FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Halldóra Jó-hannsdóttir fæddist að Hamars- braut 9 í Hafnarfirði hinn 16. desember 1944. Hún lést á Líknardeild LSH í Kópavogi hinn 27. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar eru Steinþóra Guð- laugsdóttir, hús- freyja í Hafnarfirði, f. 15. júlí 1924, og Jóhann Lárusson múrarameistari, f. að Gröf í Grundar- firði 26. ágúst 1920. Systkini Halldóru eru: 1) Sigurður, mat- reiðslumaður og bakari, f. 18. janúar 1943, kvæntur Huldu Dóru Jóhannsdóttur bókaverði, f. 25. nóvember 1943. Þau eiga þrjú börn. 2) Elínborg, sjúkraliði í Hafnarfirði, f. 20. mars 1951, eiginmaður hennar er Oddur Helgi Oddsson húsasmíðameist- ari, f. 10. febrúar 1950. Þau eiga þrjú börn. 3) Jóhann Þórir, kaup- maður í Hafnarfirði, f. 30. júlí 1954, kvæntur Ragnheiði Þ. Kristjánsdóttur verslunarstjóra, f. 18. júlí 1958. Þau eiga fjögur börn. Halldóra giftist 22. júlí 1967 Einari Gíslasyni kennara, f. í Reykjavík 29. apríl 1946. For- eldrar Einars voru Sigríður Jónsdóttir húsfrú, f. 22. desem- ber 1925, d. í Reykjavík 5. mars 1989 og Gísli Einarsson lögfræð- ingur, f. 26. desember 1922, d. í Reykjavík 25. janúar 1992. Dætur Halldóru og Einars eru, 1) Kristín iðjuþjálfi, f. í Reykja- vík 22. maí 1967, gift Úlfi K. Grönvold myndlist- armanni, f. 3. jan- úar 1966. Börn þeirra eru, Ylfa, f. 1988, Ýmir, f. 1994, og Högni, f. 2004. 2) Brynja sjúkraliði, f. í Reykjavík 20. júlí 1970, gift Erni Almarssyni lyfja- efnafræðingi, f. 5. febrúar 1967. Börn þeirra eru, Karítas, f. 1991, Halldór Alex, f. 1994, og Bjarki, f. 2000. Brynja og fjölskylda hennar eru búsett í Boston, BNA. 3) Þóra bókari, f. í Hafnarfirði 22. apríl 1973, gift Árna H. Björgvinssyni kennara, f. 21. september 1972. Börn þeirra eru Brynjar Logi, f. 1996, og Birgitta Rún, f. 2002. Sonur Þóru og Guðna Pálssonar er Einar Orri, f. 1992. Þóra og fjölskylda eru búsett í Árósum í Danmörku. Halldóra lauk gagnfræðaprófi frá Núpi í Dýrafirði 1960 og lauk námi í gluggaútstillingum í Kaupmannahöfn 1962. Halldóra var starfsstúlka á dagheimilinu Hörðuvöllum 1977–1983. Handa- vinnuleiðbeinandi á Hrafnistu í Hafnarfirði og síðar hjá Reykja- víkurborg 1983–1987. Halldóra var handavinnuleiðbeinandi eldri borgara í Hafnarfirði frá 1987 til 2002, er hún lét af störfum sakir heilsubrests. Halldóra tók þátt í starfi Kvenfélagsins Hringsins í Hafnarfirði og sat þar í stjórn um nokkurt árabil. Útför Halldóru fer fram frá Víðistaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Halldóra tengdamamma dáin. Amma Dóra ekki lengur í símanum með glaðlegu röddina að gá að barnabörnunum sínum. Það var mjög erfitt að frétta um andlát henn- ar og að segja börnunum frá því. Mun erfiðari var sjúkdómurinn og baráttan hennar Dóru við hann. En Dóra kvartaði aldrei. Hún vildi berj- ast af krafti og horfa á björtu hlið- arnar. Hún notaði tímann sem hún hafði og gerði það sem lá best fyrir henni: Að gefa mikið og rausnarlega af orku sinni. Á skömmum tíma eftir að nýtt ár gekk í garð tók orkan að dvína hratt undan álagi krabba- meinsins, og Dóra fór frá okkur. Við söknum hennar mikið og sárt. Mér lánaðist að kynnast Dóru skömmu eftir að hafa kynnst Brynju miðdóttur hennar og Einars. Það reyndist mér alltaf mikil ánægja að spjalla við Dóru yfir kaffibolla, stundum á meðan kærastan var á vakt og oft á morgnana á háskóla- árunum mínum hér heima. Tókst um leið með okkur mikill vinskapur, og sá vinskapur var mikils virði. Svo liðu árin, og við nýja fjölskyldan fluttum af landi brott til frekara náms og starfa. Alltaf var Dóra í góðu sambandi, og hún ferðaðist oft til okkar og dvaldi hjá okkur. Við geymum margar góðar minningar um ferðir í Bandaríkjunum, en þar fannst Dóru jafnan gott að vera. Þá var gaman fyrir alla, því Dóra var rausnarleg, fjörug og afskaplega hjálpleg í alla staði. Við Brynja feng- um ómetanlega hjálp frá Dóru þegar miðsonur okkar var væntanlegur í heiminn fyrir rúmum tíu árum. Á meðan Brynja var á rúmlegu og ég að klára nám, var Dóra að létta fyrir öllu starfi á heimilinu og leit eftir elsta barninu. Hjálpsemin hennar Dóru var slík, að hún hætti ekki að stússa fyrir mann þó að hún stæði fyrir framan dauðans dyr. „Viljiði kaffi, strákar?“ var ein fyrsta spurn- ingin fyrir tengdasynina allt í lok síð- asta árs. Svo var hún að bjóða heim um jólin, þótt þróttur hennar væri mjög á undanhaldi. Dóra náði að halda upp á sextugsafmælið sitt í desember með reisn, og fékk hún síðan barnabörnin sín í heimsókn víðs vegar að yfir hátíðirnar. Þessi tími fékk sérstaka merkingu í huga okkar allra, því auðséð var hvert stefndi. Síðustu rúm tvö árin hafa ein- kennst nokkuð af baráttunni við krabbameinið. Dóra barðist af krafti og jákvæðni sem var hreint ótrúleg. Það hafa skipst á góð og slæm tíma- bil í baráttunni. Hluti meðferðarinn- ar hafði í för með sér óhjákvæmi- legar og oft hrikalegar aukaverk- anir. Dóra kveinkaði sér aldrei, því hún var ákveðin í að sigra. Ég dáðist að henni, og ég vildi að gæti hafa sagt henni það í lifanda lífi. Baráttunni er lokið. Blessuð Dóra mín, í síðasta sinn. Takk fyrir allt. Örn Almarsson. Mig langar að minnast Dóru tengdamóður með nokkrum orðum. Ég kynntist Dóru og Einari fyrir 10 árum þegar ég fór að slá mér upp með Þóru yngstu dóttur þeirra. Þau tóku mér strax opnum örmum og á stuttum tíma var ég orðinn einn af fjölskyldunni. Strax og ég kynntist Dóru sá ég að þar var á ferðinni mikil kjarnakona. Það var til dæmis gam- an að koma á heimili þeirra, sem var prýtt fallegum munum sem þau höfðu útbúið. Um tíma bjuggum við í göngufæri og þá var mikill samgang- ur á milli, því alltaf var heitt á könn- unni og tekið á móti okkur af ást og hlýju. Dóra og Einar voru mjög sam- hent hjón og eitt af því sem þau voru dugleg að gera var að ferðast, bæði innanlands og utan. Oft buðu þau okkur og krökkunum með í styttri ferðir, þar sem fellihýsið þeirra kom að góðum notum og þar áttum við notalegar stundir saman. Dóra lék á alls oddi eins og venjulega og sá um að halda uppi fjörinu. Það er sérstakur kostur að geta alltaf séð jákvæðu hliðarnar á öllu og öllum. Þennan hæfileika hafði Dóra til að bera og það var aðdáunarvert að fylgjast með henni nota hann. Það var þess vegna hægt að treysta því að ef leitað var álits hjá henni fékk maður allan hennar stuðning og að- stoð við að sjá einfalda lausn á við- fangsefninu. Dóra tókst á við veik- indi sín af einstöku æðruleysi og maður hafði á tilfinningunni að ef einhver gæti sigrast á þeim hefði það verið hún, því hún horfði alltaf fram á veginn í stað þess að líta til baka eða gefa upp vonina. Dóra var mikil handavinnukona og þar var hún svo sannarlega á heima- velli. Hún var alltaf með mörg járn í eldinum og dreif hlutina af, hvort sem var að prjóna á barnabörnin eða sauma bútasaumsteppi og dúka. Heimili okkar ber þess líka merki því það eru ófáir hlutirnir sem hún hefur gefið okkur fjölskyldunni í gegnum tíðina. Núna hefur Dóra kvatt og hennar er sárt saknað. Við sem eftir stönd- um getum yljað okkur við góðar minningar um yndislega, sterka og jákvæða konu sem ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast. Lífs- sýn Dóru hefur mótað mig og alla mína fjölskyldu og gert okkur að betri manneskjum. Blessuð sé minning hennar. Árni Björgvinsson. Hetja er látin. Elsku Dóra mín, nú er þessari baráttu lokið. Aldrei gafst þú upp heldur hélstu fast í hvern vonarneista allt til hinstu stundar. Eftir stöndum við hnípin og skilj- um ekki af hverju við fengum ekki að hafa þig lengur meðal okkar. Mig langar að þakka þér fyrir að hafa verið systir mín í 53 ár. Þakka þér fyrir að gæta mín á uppvaxtarárunum. Þakka þér fyrir öll heilræðin á unglingsárunum. Þakka þér fyrir að gæta barna minna. Þakka þér fyrir aðstoðina við saumaskapinn. Þakka þér fyrir allt föndrið. Þakka þér fyrir að vera þú. Þakka þér fyrir styrkinn og kjark- inn sem þú sýndir í baráttu þinni við þann illvíga sjúkdóm sem lagði þig að velli. Þakka þér fyrir þær fallegu minn- ingar sem þú skildir eftir handa ætt- ingjum og vinum. Þær minningar getum við nú huggað okkur við í sorginni, er við sjáum á eftir þér til austursins eilífa. Þín systir, Bogga. Elínborg. Þegar samferðamaður um lífstíð, vinur og félagi kveður vakna trega- fullar minningar og minningabrot birtast sem leiftur. Við Ingibjörg átt- um því láni að fagna að samband okkar hófst í beinu framhaldi af þeim happafeng sem Einar bróðir sótti í Hafnarfjörð. „Fallegustu stúlku á jarðríki!“ Pilturinn ungi á „Bestó“ sveif um í gleði sinni og hann dýrkaði sannarlega hana Dódó, Dóru, sem fljótlega varð eiginkona hans. Sem ungir krakkar áttum við Ingibjörg, unga parið, greiða leið að gáskafullu heimili þeirra Einars og Dóru þar sem einatt var gestkvæmt og gleðin ríkti. Litli bróðir fetaði í fótspor hins stóra og sótti einnig dömu úr Firð- inum. Það var einmitt á heimili þeirra hjóna sem festar okkar Ingi- bjargar hófust og sömuleiðis sameig- inlegt ferðalag okkar allra um lífsins æviskeið. Brátt voru áhyggjulaus æskuár að baki og búskapur og barnastand tók við. Einar og Dóra fluttu í Hafnar- fjörð og héldu þar heimili af þeim myndarskap sem allir þekkja sem þangað sóttu. Dóra og Einar sýndu mikla samheldni og ólu dætur sínar upp í góðum gildum og styrktu þær og studdu. Þau voru þeim í senn góð- ir foreldrar og góðir félagar. Listfengi Dóru og áhugi á hand- íðum leiddi hana til þeirra starfa sem hún annaðist lengstum utan heimilis og um skeið ráku þau hjónin saman glæsilega hannyrða- og handíða- verslun í Hafnarfirði. Þar naut hug- myndaauðgi Dóru sín til fulls. Það var ávallt gaman að koma í heimsókn til Einars og Dóru og þiggja kaffisopann, spjalla og heyra fréttir af nákomnum og sveitungum. Lífsgleði Dóru var slík að í minning- unni sé ég hana hvergi þreytta eða óupplagða. Brosið ljúfa og lífsglampi augnanna er það sem minningin skil- ar. Þegar börnin uxu úr grasi og barnabörnin bættust í hópinn þreyttust Dóra og Einar aldrei á því að hafa samband, heimsækja þau sem kusu að dvelja í útlöndum og þótt fjarlægðin væri ærin til barna- barna í Bandaríkjunum, þar sem Brynja miðdóttir þeirra býr, fengum við hin ætíð nákvæmar lýsingar á barnabörnum, uppátækjum þeirra, sérkennum og orðfæri. Það var öllum brugðið þegar ljóst var að Dóra þyrfti að kljást við skeinuhættan sjúkdóm en þá var það Dóra sem tók af skarið því síðastliðin tvö og hálft ár stóð hún hnarreist sem sönn hetja. Hún lét aldrei bug- ast og gaf öðrum styrk fram á síð- asta dag. Við hlið hennar stóð Einar staðfastur og síðustu vikurnar vék hann ekki fótmál frá Dóru sinni. Við Ingibjörg vorum þeirrar gæfu aðnjótandi að eiga með þeim heið- urshjónum yndislega samveru í Dan- mörku síðastliðið sumar. Þar gleymdum við veikindunum, hlógum, brugðum á leik, ferðuðumst um Sjá- land og gerðum okkar glaðan dag – alveg eins og í gamla daga. Kim Larsen hljómaði í bakgrunni og Dóra rifjaði upp dvöl sína í Köben á unglingsárum. Ég kveð Dóru mágkonu með mikl- um söknuði og votta Einari, Krist- ínu, Brynju og Þóru, Boggu, Steinu og Jóa, barnabörnum og öðrum ætt- ingjum Dóru dýpstu samúð. Þeirra missir er mikill en minning um mikla manneskju og hetju lífsbaráttunnar mun ylja þegar tíminn tekur til við að græða dýpstu sárin. Megi blessun fylgja minningu Halldóru Jóhannsdóttur. Ragnar Gíslason. Margar góðar minningar leita á hugann þegar elskuleg mágkona mín er kvödd í dag eftir baráttu við erf- iðan sjúkdóm. Dóra mágkona, eins og ég kallaði hana oftast, varð sextug 16. desem- ber sl. og þá eins og alltaf hélt hún afmælisveislu, þar sem ættingjar hennar og vinir komu saman með ræðuhöld og söng. Þannig vildi hún hafa það, margt fólk í kringum sig og þá var það hennar létta lund, hlátur og gamansemi sem skapaði þessar ógleymanlegu stundir sem við minn- umst svo vel í dag. Ég kynntist Dóru fyrir rúmum 40 árum og höfum við verið góðar vin- konur alla tíð síðan. Þegar Dóra fór til Danmerkur að- eins 16 ára gömul að læra gluggaút- stillingar, skrifaði hún mér mörg bréf og lýsti því fyrir mér hvað lífið væri skemmtilegt hjá ungri stúlku við nám og leik í stórborginni Kaup- mannahöfn. Oft höfum við talað um þennan tíma og best gátum við rifjað þetta upp fyrir þremur árum þegar við fórum 8 konur úr fjölskyldunni saman til Kaupmannahafnar. Við hjónin höfum átt ánægjulegar stundir með þeim Dóru og Einari á ferð okkar áður fyrr í Grundarfjörð, á Laugarvatn, í sumarbústað við Djúpavatn og Grímsnes og nú síðast ógleymanlega ferð til Vestmanna- eyja. Það var gaman að ferðast með þeim hjónum því þau voru mjög áhugasöm um þá staði sem við kom- um á og Einar kunni ætíð frá mörgu að segja enda vel lesinn og minnugur maður. Dóra var börnum mínum, eins og öðrum börnum í fjölskyld- unni, mjög góð. Þegar þau voru lítil saumaði og prjónaði hún föt á þau eða föndraði handa þeim leikföng. Seinna, þegar þau svo uxu úr grasi, fylgdist hún af áhuga með þeim í námi og starfi og hvatti þau í því sem þau tóku sér fyrir hendur. Það er varla með orðum hægt að lýsa því hve handavinnan hennar Dóru er falleg og stórkostleg, ég held að allir í fjölskyldunni eigi eftir hana fallega hluti, allt frá ungbarna- hosum til silfurskartgripa. Dóra og Einar eiga fallegt heimili þar sem listhneigð þeirra fær að njóta sín og margir listmunir gerðir af þeim hjónum. Nú kveð ég Dóru og þakka henni alla tryggðina í gegnum árin og bið góðan Guð að leiða hana um bjarta og blómum skrýdda sali himnaríkis. Elsku Einar, Kristín, Brynja, Þóra, Steina og Jói, megi góður Guð styrkja ykkur og aðra ástvini í sorg- inni. Hulda Dóra. Það er erfitt að ímynda sér að Dóra frænka sé dáin. Hún hefur ver- ið hluti af lífi mínu frá því ég man eft- ir mér og var mér oft á tíðum sem önnur móðir. Dóra háði langa og erfiða baráttu við illvígan sjúkdóm. Hún ætlaði að vinna sigur og þeirri baráttu lauk með sigri. Samt var það ekki sigur- inn sem við vonuðumst eftir. Við vildum annan en þann sem Páll post- uli birtir okkur í sigursöng trúarinn- ar þegar hann segir í Fyrra Korintu- bréfi: Dauðinn er uppsvelgdur í sigur. Dauði, hvar er sigur þinn? Dauði, hvar er broddur þinn? Guði séu þakkir, sem gefur oss sigurinn fyrir Drottin vorn Jesú Krist! Þrátt fyrir sorg okkar og sársauka þá er það sigur Drottins sem öllu máli skiptir. Með þessi orð í huga get ég horft ótrauður og óhræddur til framtíðar og minnst Dóru með gleði, hlýju og kærleika í hjarta. Trúin gefur okkur sigur og sigrar sárar tilfinningar. Hún gefur okkur styrk til að takast á við sorgina og fyllir huga okkar já- kvæðum minningum í stað sársauk- ans. Það voru ófáar stundirnar sem ég átti með Dóru og allar einkenndust þær af léttleika og vináttu. Persónu- leiki hennar var hreinn og beinn. Hún var ákveðin en um leið blíð og gefandi. Hún lagði skýrar línur og hjálpaði okkur smáfólkinu að fylgja þeim. Gisting hjá Dóru frænku var alltaf fyrsta val hjá mér ef foreldrar mínir brugðu sér af bæ. Ég fann mig svo innilega velkominn á heimili hennar. Þar var glatt á hjalla og mikið fjör. Það var alltaf stutt í grínið hjá Dóru og húmorinn var aldrei langt undan, jafnvel líka þegar komið var að kveðjustund. Síðasta kvöldið, sem við Hanna María áttum hjá henni á líknardeildinni, var í þessum anda. Orðin var erfitt að mæla en blikið í augum hennar sagði allt sem segja þurfti. Dóru frænku var margt til lista lagt. Allt lék í höndum hennar, mat- argerð, fatasaumur eða annars kon- ar handavinna. Handbragðið alltaf jafn fallegt og verkin vel unnin. Hún var dugleg að afla sér hugmynda, þekkingar og skoðaði handbragð fal- legra hluta hvar sem hún fór. Dóra kenndi mér þá hreinskilni að segja ætíð það sem mér bjó í brjósti. Þess vegna get ég sagt að Dóra frænka var yndisleg manneskja. Hún var í alla staði vel gerð og heil- steypt kona, sem gerði okkur ríkari sem fengum að ganga með henni lífs- götuna. Þó að hlátur hennar sé þagn- aður þá munum við hann. Orðin hennar og leiðbeiningar eru fjársjóð- ur til framtíðar. Englar Guðs hafa fengið öfluga liðskonu. Ég horfi til himins og segi mín bænar- og þakkarorð fyrir árin og stundirnar, sem Guð gaf mér með Dóru. Ég veit að hún er örugg í hans umsjá. Einari, Kristínu, Brynju, Þóru og fjölskyldunni allri óska ég blessunar Guðs og þess styrks sem trúin ein megnar að gefa okkur. Davíð Freyr Oddsson. Það var fyrir rúmum þremur ár- um að við kvenleggurinn skunduðum til Köben, amma Steina og þú Dóra mín með dætur þínar, mamma með dætur sínar, Steinu og mig, og ég með Huldu dóttur mína. Ég mun aldrei gleyma þessari ferð og þá ekki Hulda heldur, þarna var hún að kynnast ykkur öllum sem ein af full- orðnum. Hún talaði mikið um þig og hvað þú og stelpurnar væruð frá- bærar mæðgur. Kristín leiddi okkur um allt enda þrælkunnug þarna úti. Þóra með sína lúmsku brandara og svo var gert grín að öllu og öllum. Þetta var ómetanleg ferð með ykkur. Ári seinna vorum við mæðgur á leið til Reykjavíkur að hitta ykkur allar sem voruð í þessari ferð, þá varst þú nýbúin að greinast með krabbamein og mamma líka. Hulda sagði þá: „Hugsaðu þér mamma mín, það er sagt að þriðja hver kona fái krabba- mein,“ og þarna vorum við saman- komnar um kvöldið níu konur og tvær með þennan sjúkdóm. Ein- HALLDÓRA JÓHANNSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.