Morgunblaðið - 04.02.2005, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 04.02.2005, Blaðsíða 48
48 FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ I.O.O.F. 12  185247½  Þb. I.O.O.F. 1  185248  Gh. Í kvöld kl. 20.30 heldur Ólöf Einarsdóttir erindi „Nálarstungur og heimspekin á bak við þær“ í húsi félagsins, Ingólfsstræti 22. Á laugardag kl. 15-17 er opið hús með fræðslu og umræðum kl. 15.30 í umsjón Birgis Bjarna- sonar „Dagurinn langi“. Hugræktarnámskeið Guðspekifélagsins hefst fimmtu- daginn 10. febrúar nk. kl. 20.30. Starfsemi félagsins er öllum opin. www.gudspekifelagid.is Félagslíf Sálarrannsókna- félag Suðurnesja María Sigurðardóttir, miðill, verður með skyggnilýsingarfund sunnudaginn 6. febrúar kl. 20.30 í húsi félagsins á Víkurbraut 13, Keflavík. Húsið opnað kl. 20. Að- gangseyrir við innganginn. Allir velkomnir. Stjórnin. Fáðu úrslitin send í símann þinn EYVERJAR, félag ungra sjálfstæð- ismanna í Vestmannaeyjum, skora á heilbrigðisráðherra að bregðast strax við þeirri alvarlegu stöðu sem komin er upp á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja. Einnig skora Ey- verjar á ríkisstjórn, dómsmálaráð- herra og Alþingi að stöðva í fæðingu þær fráleitu hugmyndir að minnka löggæslu á landsbyggðinni með því að færa yfirstjórn úr byggðum landsins. „Staða landsbyggðarinnar þar á meðal Vestmannaeyja hefur verið mikið í umræðunni síðustu misseri og finnst okkur sem stjórnvöld hafi sýnt skilningsleysi á þeirri sérstöðu sem Vestmannaeyjar búa við. Meðan störfum á vegum ríkisins er fjölgað á höfuðborgarsvæðinu fækkar þeim á landsbyggðinni, flutningar þessir eru oftast réttlættir í formi hagræð- ingar. Það er ekki alltaf hagræðing fólgin í því að flytja allt á dýrustu bletti Reykjavíkurborgar, það gæti falist mikil hagræðing í því að færa stofnanir af dýrustu svæðunum, selja fasteignir og flytja starfsemi þar sem vinnuafl er stöðugra, og húsnæði ódýrara. Stjórnvöld þurfa að hafa kjark í að flytja stofnanir á landsbyggðina, það er lítið mál á tím- um þeirra tæknibyltinga sem við bú- um við í dag. Við erum hlynnt minnk- andi ríkisafskiptum og frelsi ein- staklingsins, en staðreyndin er sú að ríkið hefur verið að fjölga störfum umtalsvert hin síðari ár og flest eru þau búin til í kringum stofnanir á höfuðborgarsvæðinu, það hefur ver- ið dregið úr frelsi og möguleikum fólks að búa og flytjast út á land. Síð- ustu fréttir og hugmyndir um skerð- ingu á grunnþjónustu eins og heilsu- gæslu og löggæslu fylltu mælinn. Heilsu okkar og öryggi er ógnað og því sendum við frá okkur þessa yf- irlýsingu.“ Alvarleg staða á Heilbrigðis- stofnuninni EINHVERJIR hafa furðað sig á því að Vegagerðin sé hætt að merkja skilt- in við Lágheiði með upplýsingum um hvort hún sé fær eða ekki, en sam- kvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar eru nokkur ár síðan hætt var að nota skiltin til að gefa upplýsingar um færð. „Í dag má nálgast allar upp- lýsingar um færð annars vegar á Netinu og hins vegar í textavarpi sjón- varpsins. Þær upplýsingar eru bæði mjög áreiðanlegar og aðgengilegar,“ segir Guðmundur Ragnarsson, þjónustustjóri hjá Vegagerðinni á Sauð- árkróki. Er hann er spurður hvers vegna hætt hafi verið að festa upp upplýsingar um færð á skiltin sjálf segir Guðmundur að býsna snúið hafi verið að halda upplýsingum ávallt réttum, ekki síst þegar veður skipuðust skjótt í lofti. „Því það varð kannski ófært að kvöldi eftir að þjónustu lauk,“ segir Guð- mundur á og bendir á að reyndar séu skiltin enn notuð til að merkja upp- lýsingar um þungatakmarkanir á veginum. Ljósmynd/Sigurður Ægisson Hætt var að nota skiltin við Lágheiði til að veita upplýsingar um færð fyrir nokkrum árum, en nálgast má allar upplýsingar um færð á Netinu. Skiltin við Lágheiði Skuldbreyting námslána heimiluð UM ÁRAMÓT tóku gildi ný lög um Lánasjóð íslenskra námsmanna (LÍN), þar sem endurgreiðslubyrði námslána var lækkuð. Hlutfall tekjutengdrar afborgunar var lækkað um eitt prósentustig, úr 4,75% í 3,75%, sem þýðir lægri ár- lega endurgreiðslu til LÍN. Lán- þegum, sem tóku lán eftir árið 1992, gefst nú kostur á að skuld- breyta lánum sínum í samræmi við ný lög. Frestur til skuldbreytinga rennur út hinn 1. nóvember 2005. Frestur þessi gildir bæði um þá sem þegar eru byrjaðir að greiða af lánum sínum og hina sem enn eru á lánum. Námsmenn og endurgreiðendur eru hvattir til að hafa samband við skrifstofu Sambands íslenskra námsmanna erlendis (SÍNE) óski þeir eftir frekari upplýsingum eða aðstoð. Skoda Octavia sýnd HEKLA hf. frumsýnir Skoda Octavia um helgina. Nýi bíllinn hef- ur unnið til margra verðlauna að undanförnu og m.a. verið kjörinn 2005 í Finnlandi, Tékklandi, Serb- íu, Svartfjallalandi og Búlgaríu. Þá hlaut hann nýverið Gullna stýrið, einhver eftirsóttustu bílaverðlaun heims, auk þess sem Ítalir völdu hann fallegasta bílinn í sínum flokki. Sýningin verður opin á morgun og á sunnudag frá kl. 12–16 hjá Heklu í Reykjavík, Keflavík, Sel- fossi, Akureyri og Reyðarfirði. Ráðstefna Kvenréttinda- félags Íslands KVENRÉTTINDAFÉLAG Íslands boðar til ráðstefnu í Ráðhúsi Reykjavíkur á morgun, laugardag- inn 5. febrúar, kl. 11–14. Efni ráð- stefnunnar er hvað hafi áunnist síð- an 1975, þegar konur tóku sér frí frá störfum 24. október og hvað sé eftir. Erindi flytja: Sjöfn Ingólfsdóttir, formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, Kristín Ást- geirsdóttir sagnfræðingur, Berg- lind Rós Magnúsdóttir, jafnrétt- isfulltrúi Háskóla Íslands, og Hólmfríður Sveinsdóttir, for- stöðumaður Rannsóknarmiðstöðv- arinnar á Bifröst. Að erindaflutn- ingi loknum verða frjálsar umræður og ályktanir. Málþing um fjölmiðla og innflytjendur/ hælisleitendur FJÖLMIÐLAMIÐSTÖÐ Reykjavík- urAkademíunnar (RA) efnir til mál- þings á morgun, laugardag, um um- fjöllun fjölmiðla um innflytjendur, hælisleitendur og um málefni út- lendinga á Íslandi almennt. Mál- þingið verður haldið kl. 12–14, í fundarsal RA á fjórðu hæð JL- hússins á Hringbraut 121. Framsöguerindi á málþinginu flytja: Atli Viðar Thorstensen, verk- efnisstjóri á innanlandssviði Rauða kross Íslands, Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar og fyrrum forstjóri Útlendingastofn- unnar og Tatjana Latinovic, formað- ur Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi og stjórnarmaður í stjórn Alþjóðahússins. Auk framsöguflytjenda setjast í pallborð þau Anna G. Ólafsdóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu, og Sigurður Þór Salvarsson, upplýs- ingafulltrúi Alþjóðahússins og fyrr- um fréttamaður. Fundarstjóri og umræðuvaki verður Þorfinnur Óm- arsson, verkefnisstjóri/kennari hjá HÍ. SUS styður breytta sölu léttvíns SUS hvetur forseta Alþingis til þess að taka til umræðu frumvarp sem varðar sölu á léttu áfengi. Guðlaugur Þór Þórðarson hefur ásamt fjórtán öðrum þingmönnum Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar, Framsóknarflokks og Frjálslynda flokksins, lagt fram frumvarp um breytingu ýmissa lagaákvæða sem varða sölu áfengis og tóbaks. „Með frumvarpinu er lagt til að afnumin verði einkasala ÁTVR með áfengi sem hefur 22% vín- andastyrk eða minna. Frumvörp til laga um breytingu á einkasölu rík- isins á áfengi hafa ítrekað verið lögð fram á þingi, en ekki náð fram að ganga, iðulega vegna þess að ekki hefur verið greitt um þau atkvæði. Samband ungra sjálfstæðis- manna hefur ítrekað ályktað um að afnema beri einkaleyfi ÁTVR á sölu áfengis. Þá er jafnframt vert að benda á að samkvæmt frétt sem birtist á vef Morgunblaðsins, 2. febrúar síðastliðinn, er meirihluti þjóðarinnar, eða ríflega 59%, hlynntur sölu bjórs og léttvíns í matvöruverslunum. Því hefur formaður SUS sent forseta Alþingis erindi, þar sem skorað er á hann, að beita sér fyrir því að ofangreint frumvarp verði tekið á dagskrá Alþingis svo fljótt sem kostur er.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.