Morgunblaðið - 04.02.2005, Side 50
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
ROP!
AF HVERJU SENDIRÐU
MÉR ALDREI BLÓM?
VEGNA ÞESS AÐ ÉG ER
EKKI HRIFINN AF ÞÉR BLÓMUNUM VÆRI SAMA
ÉG FINN ENGAN TIL ÞESS AÐ
PASSA KALVIN Í KVÖLD.
HVAÐ GETUM VIÐ GERT?
VIÐ VERÐUM EKKERT ÞAÐ
LENGI Í BURTU. GETUR
KALVIN EKKI VERIÐ EINN
HEIMA Í SMÁ STUND?
Í ALVÖRUNNI,
HVAÐ GETUM
VIÐ GERT?
Svínið mitt
© DARGAUD
VIÐ GULLI OG RÚNAR
ÆTLUM AÐ FARA INN Í
MÖMMULEIK Á MEÐAN
ÞIÐ ERUÐ ÚTI
EKKI
TRUFLA
OKKUR
ÉG LEIK
FAÐIRINN
HVAÐ EIGUM
VIÐ AÐ LÁTA
YKKUR Í FRIÐI
LENGI?
Í TVO KLUKKUTÍMA.
SÍÐAN ÞARF GULLI
AÐ FARA HEIM
ÞAU VILJA EKKI LÁTA
TRUFLA SIG Í TVO
KLUKKUTÍMA ÞVÍ ÞAU
ERU AÐ FARA Í
MÖMMULEIK INNI
ÆTLA
ÞAU Í
KOSSALEIK
KOSSALEIK!
Í TVO TÍMA?!
KRÚTTLEGT,
ER ÞAÐ EKKI
NEI
HEYRÐU
STRÁKUR LOKAR SIG INNI
MEÐ STELPUNNI MINNI
TIL ÞESS AÐ KYSSAST
OG ÞÉR FINNST
ÞAÐ KRÚTTLEGT!
YNDISLEGT!
MÉR LÝST
EKKI Á ÞETTA...
EKKI
TRUFLA
ÞAU
JÆJA?
ALLT Í LAGI, ÞAU ERU
Í MÖMMULEIK EN
EKKI KOSSALEIK
EÐLILEGT
AF
HVERJU
EÐLILEGT?
ÉG ÆTLA AÐ
LÍTA Á ÞETTA
SJÁLF
KOSSALEIKURINN
VAR MEIRA AÐ
MÍNU SKAPI!
Dagbók
Í dag er föstudagur 4. febrúar, 35. dagur ársins 2005
Víkverji hafði orð áþví fyrir nokkr-
um mánuðum að í
efni frá trygginga-
félaginu Sjóvá-
Almennum trygg-
ingum væri fyrri
hluti nafns fyrirtæk-
isins jafnan ekki
beygður og t.d. talað
um „hagnað Sjóvá-
Almennra trygg-
inga“. Víkverji
tengdi þetta þeirri
hvimleiðu tilhneig-
ingu að sleppa því að
beygja annað nafnið
ef tvö nöfn standa
saman – og taldi ekki til eft-
irbreytni.
x x x
Nú í vikunni bar svo við að áborð Víkverja barst frétta-
tilkynning frá Sjóvá-Almennum
um að framvegis ætlaði fyrirtækið
eingöngu að nota Sjóvár-nafnið til
að kynna sig, þótt það héti áfram
formlega Sjóvá-Almennar trygg-
ingar. Fínt, hugsaði Víkverji, nú
hljóta þau að fara að beygja Sjó-
vár-nafnið. En því var ekki að
heilsa þegar lengra var lesið. Þar
er talað um „hlutverk Sjóvá“ og
forstjóri fyrirtækisins titlaður
„forstjóri Sjóvá“.
Af hverju má nafnfyrirtækisins
ekki vera Sjóvár í
eignarfalli? Treysta
forsvarsmenn Sjóvár
starfsfólkinu og við-
skiptavinunum ekki
til að beygja það
rétt? Ætla þeir
kannski að taka upp
slagorðið „Sjóvá –
tryggingafélagið sem
verður ekki beygt“?
x x x
Víkverja þóttiskrýtið að heyra
stjórnarandstöðuna
saka Geir H. Haarde fjármála-
ráðherra um „hæglæti“ af því að
hann væri ekki búinn að grípa til
málsóknar á hendur olíufélögun-
um. Svo kom ráðherrann upp í
pontu á þingi og kannaðist bara
ekki við neitt hæglæti. Víkverja
finnst að hann ætti að þakka and-
stæðingum sínum fyrir, því að
hæglæti þýðir samkvæmt orða-
bókinni „rólyndi, jafnaðargeð“.
Sennilega ætluðu þeir að saka
hann um seinlæti, sem samkvæmt
sömu bók er „seinfærni, silahátt-
ur, draugsháttur, droll“. Víkverja
finnst reyndar ekki fara á milli
mála að Geir er hæglætisnáungi,
en enginn drollari.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Tryggvagata | Víða um Reykjavíkurborg er þörf á þrifum og tiltekt og hefur
borgin á að skipa hæfum og duglegum starfsmönnum sem taka af krafti á því
sem ósnyrtilegt þykir. Þótt veggjakrot geti verið litríkt og skrautlegt og geti
jafnvel gætt suma staði dularfullri fegurð á það ekki við alls staðar. Því gerði
þessi borgarstarfsmaður árangursríka atlögu að tjáningarmáta einhvers
ungs listamanns.
Morgunblaðið/Jim Smart
Orðin útmáð
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Auðmýkið yður því undir Guðs voldugu hönd, til þess að hann á sínum
tíma upphefji yður. Varpið allri áhyggju yðar á hann, því að hann ber
umhyggju fyrir yður. (1. Pét. 5, 6. 7.)