Morgunblaðið - 04.02.2005, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 04.02.2005, Qupperneq 52
52 FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK   Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Deildu vonum þínum og þrám með öðrum. Tjáðu þig um framtíðaráform þín. Hugsanlegt er að viðbrögð þeirra komi þér að góðum notum. Naut (20. apríl - 20. maí)  Staða himintunglanna gerir að verk- um að þú gengur vel í augun á náunganum um þessar mundir. Öll- um finnst þú frábær. Af hverju ekki að nýta sér þennan meðbyr? Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Forvitni er þér eðlislæg. Þessa dag- ana þyrstir þig í að reyna eitthvað nýtt eða fara á stað sem þú hefur aldrei komið á áður. Þú þráir örvun og ævintýri. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Á þessum árstíma er nauðsynlegt að tryggja undirstöður sínar og finna út úr því hvað aðrir eiga inni hjá þér. Hnýttu lausa enda varðandi trygg- ingar, erfðamál og sameiginlegar eignir. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú ert þér meðvitandi um áhrifin sem þú hefur á aðra. Hvernig væri að kafa dálítið ofan í þetta? Ekki beita ágiskunum í samskiptum við þína nánustu, láttu þá heyra hvað er þér mikilvægt. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Suma daga ertu frjálsleg og afslöpp- uð, aðra daga ertu upptekin af því að koma böndum á óreiðuna. Þessa stundina þráir þú röð og reglu í kringum þig. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Umbunaðu sjálfri þér með góðum fé- lagsskap og léttri afþreyingu. Vertu opin fyrir rómantík og daðri. Þig langar til þess að lyfta þér upp og hví ekki? Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú beinir sjónum þínum að fjöl- skyldu og heimili um þessar mundir og hið sama gildir um fasteignir. Þig langar til þess að bæta umhverfi þitt. Nú er rétti tíminn. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þér er fyrirmunað að halda þig heima við þessa dagana. Tempóið er hratt, sættu þig bara við það. Vertu í hringiðunni, keyptu og seldu, farðu í stutt ferðalög og mæltu þér mót við aðra. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Veltu fyrir þér hvernig þú getur farið að því að auka tekjurnar. Þú verslar mikið og kaupir fallega hluti, reyndu að fá sem mest fyrir peningana. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Nú eru fjórar plánetur í þínu merki, það fer ekki hjá því að þú laðir að þér annað fólk. Þú ert eins og ljósgeisli í myrkrinu satt að segja. Njóttu þess. Er á meðan er. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Gættu þess að fá eins mikla hvíld og slökun og þér er framast unnt. Þá væri ekki vitlaust að reyna að verja dálitlum tíma í einrúmi. Stjörnuspá Frances Drake Vatnsberi Afmælisbarn dagsins: Þú ert lífleg, skemmtileg og frumleg manneskja. Þú óttast ekki að fara yfir strikið þar sem þú lifir samkvæmt eigin reglum og sannfæringu. Þú ert orkumikil og hefur getu til þess að koma miklu til leiðar í lífinu. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 borguðu, 4 kveif, 7 látnu, 8 útlimum, 9 tunga, 11 bráðum, 13 flan- ar, 14 atvinnugrein, 15 dreyri, 17 krafts, 20 burtu, 22 heiðurinn, 23 gefa nafn, 24 bylgjan, 25 sefaði. Lóðrétt | 1 hörkufrosts, 2 ráðning, 3 klaufdýrum, 4 endaveggur, 5 sparsöm, 6 sár, 10 óskar, 12 myrkur, 13 skel, 15 renna úr æð, 16 fýla, 18 halda á lofti, 19 geði, 20 hafði upp á, 21 spil. Lausn síðustu krossgátu Lárétt | 1 tjaldferð, 8 gerpi, 9 eggja, 10 tík, 11 spara, 13 tuska, 15 fálka, 18 ógnar, 21 róm, 22 rekja, 23 eyðan, 24 banamanns. Lóðrétt | 2 jarða, 3 leita, 4 frekt, 5 regns, 6 eggs, 7 hala, 12 rok, 14 ugg, 15 fork, 16 lokka, 17 arana, 18 ómega, 19 náð- in, 20 ræna. Hallgrímskirkja | Jón Reykdal – 6 ný olíu- málverk í forkirkju. Hrafnista Hafnarfirði | Tryggvi Ingvars- son, rafvirkjameistari og heimilismaður á Hrafnistu, sýnir útsaum og málaða dúka í Menningarsalnum á fyrstu hæð. Kaffi Sólon | Sigríður Valdimarsdóttir – Snjókorn. Listasafn ASÍ | Valgerður Guðlaugsdóttir – Á skurðarborði Augans. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Birgir Snæbjörn Birgisson – verk úr tveimur myndröðum, Snertingar og Ljóshærðar starfsstéttir. Elías B. Halldórsson – Olíuljós. Verk úr einkasafni Þorvaldar Guðmunds- sonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur á neðri hæð. Listasafn Reykjanesbæjar | Kristín Gunn- laugsdóttir – …mátturinn og dýrðin, að ei- lífu … Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Maðurinn og efnið – yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveinssonar. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Þórð- ur Ben Sveinsson – Borg náttúrunnar. Bjargey Ólafsdóttir – Láttu viðkvæmt útlit mitt ekki blekkja þig. Erró – Víðáttur. Brian Griffin – Áhrifavaldar. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Hörður Ágústsson – Yfirlitssýning í Vest- ursal. Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og Pétur Örn Friðriksson – Markmið XI Samvinnu- verkefni í miðrými. Yfirlitssýning á verkum Kjarvals í Austursal. Safn | Stephan Stephensen – AirCondition. Jóhann Jóhannsson – Innsetning tengd tónverkinu Virðulegu forsetar. Á hæðunum þremur eru að auki ýmis verk úr safneign- inni, þ.á m. ný verk eftir Roni Horn, Pipilotti Rist og Karin Sander. Slunkaríki | Ívar Brynjólfsson – Bardaga- vellir. Thorvaldsen Bar | Kristín Tryggvadóttir sýnir samspil steina, ljóss og skugga. Þjóðmenningarhúsið | Bragi Ásgeirsson er myndlistarmaður mánaðarins í samstarfi Þjóðmenningarhússins og Skólavefjarins. Sýning á verkum Braga í veitingastofu og í kjallara. Listasýning Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Fyrir og eft- ir er heiti á sýningu sem opnaði 6. nóv- ember sl. Lýkur um helgina. www.ljos- myndasafnreykjavikur.is Dans Borgarleikhúsið | Íslenski dansflokkurinn kynnir verk eftir Ernu Ómarsdóttur og Emil Hrvatin. Þetta er sýning fyrir hermenn í friðargæslu, fyrir þá sem láta sig lífið varða og þá sem stendur á sama. Miðapantanir í Borgarleikhúsinu í síma 568 8000 eða midasala@borgarleikhus.is www.id.is. Söfn Veiðisafnið – Stokkseyri | Veiðisafnið í samvinnu við versl. Vesturröst í Reykjavík heldur byssusýningu 5. feb. kl. 11–18. Til sýnis verða skotvopn, m.a. byssur sem ekki tilheyra grunnsýningu safnsins og byssur úr safni Sverris Sch. Thorsteinssonar. Opið alla daga kl. 11–18 uppl. á www.hunting.is. Þjóðmenningarhúsið | Sýningaröðin Tón- listararfur Íslendinga. Kynntar eru nýjar rannsóknir á tónlistararfinum og útgáfa efnis á geisladiskum. Fyrsta sýningin fjallar um Silfurplötur Iðunnar sem Kvæða- mannafélagið Iðunn og Smekkleysa gaf ný- lega út á 4 geisladiskum ásamt veglegu riti. Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning Þjóðminjasafnsins, Þjóð verður til –menn- ing og samfélag í 1.200 ár. Opið frá kl. 11–17. Fyrirlestrar Lögberg, stofa 101 | Þorbjörg S. Gunn- laugsdóttir heldur fyrirlestur við lagadeild Háskóla Íslands um efni kandidatsritgerðar til embættisprófs í lögfræði: Nauðgun frá sjónarhorni kvennaréttar. Fyrirlesturinn fer fram kl. 12.15, í Lögbergi, stofu 101. Í rit- gerðinni er hugtakið nauðgun kannað með aðferðum kvennaréttarins. Ritgerðin er því á mörkum tveggja fræðisviða, annars veg- ar refsiréttar og hins vegar kvennaréttar. Verkfræðideild HÍ| María J. Gunnarsdóttir heldur fyrirlestur um verkefni sitt til meist- araprófs í umhverfisfræðum frá umhverf- is- og byggingarverkfræðiskori Háskóla Ís- lands. Verkefnið ber heitið: Neysluvatnsgæði og vatnsvernd. Fyrirlest- urinn fer fram 7. febrúar kl. 16.15, í stofu 157 í VR–II við Hjarðarhaga. Kynning Maður lifandi | Inga Kristjánsdóttir nemi í næringarþerapíu DET verður með ráðgjöf í vetur, kl. 12–14 á föstudögum. Námskeið Mímir – símenntun ehf | Námskeið um vesturfarana er hafið á vegum Mímis – sí- menntunar og Borgarleikhússins og stend- ur í 4 vikur. Fyrirlesarar verða: Viðar Hreinsson, Gísli Sigurðsson, Helga Ög- mundardóttir og Böðvar Guðmundsson. Skráning hjá Mími – símenntun í síma 580 1800 og á www.mimir.is. Ráðstefnur Kvenréttindafélag Íslands | Kvenréttinda- félag Íslands boðar til ráðstefnu í Ráðhúsi Reykjavíkur laugardaginn 5. febrúar, kl. 11– 14. Efni ráðstefnunnar er hvað hefur áunn- ist síðan 1975, þegar konur tóku sér frí frá störfum 24. október, og hvað er eftir? Mannfagnaður Smáralind | Idol Extra Live verður í beinni útsendingu á PoppTíví kl. 22. Svavar Örn mun taka púlsinn á keppendum baksviðs. Útivist Ferðafélagið Útivist | Myndakvöld í Húna- búð, Skeifunni 11, 7. febrúar kl. 20. Trausti Tómasson sýnir myndir úr göngu frá Siglu- firði yfir í Héðinsfjörð og Reynir Þór Sig- urðsson kynnir ferð sem farin verður á þessar slóðir. Kökuhlaðborð, aðgangseyrir er 700 kr. Mýrdalshreppur | Til stendur að merkja gönguleiðir á kort af Mýrdalshreppi, því er gönguáhugafólk í Vík í Mýrdal sem á GPS- staðsetningar af gönguleiðum beðið að kom þeim til sveitarstjóra Mýrdalshrepps. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos TVÆR myndlistarsýningar verða opnaðar á Kjarvals- stöðum í dag kl. 17. Annars vegar er þar um að ræða yfirlitssýningu á verkum Harðar Ágústssonar í Vest- ursal, en hins vegar sýn- inguna Markmið XI í mið- rými Kjarvalsstaða. Þar starfa saman myndlist- armennirnir Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og Pétur Örn Friðriksson, en Helgi er myndhöggvari febrúar- mánaðar í Hafnarborg. Á yfirlitssýningu Harðar Ágústssonar er reynt að varpa ljósi á framlag hans á sviði myndlistar, hönnunar og byggingarlistar og hvernig hinir ólíku þættir fléttast saman í einstæðu lífs- verki, þar sem enginn þeirra verður skil- inn án vitundar um hina. M.a. verða fluttir fyrirlestrar á komandi vikum og mánuðum um feril Harðar. Á sýningu Helga og Péturs, Markmið XI, vinna þeir félagar með fyrirbærið „Tækjamaníu,“ með því að smíða furðu- tæki af ýmsu tagi, mörg hver með und- arlegt notagildi, en þó virka þau flest á sinn hátt. Markmið þeirra Helga og Pét- urs virðist oftar en ekki vera ferðalag – hvort sem þar er um að ræða ferð myndbandstökuvélar niður fjallshlíð eða ferðir ýmiss konar ökutækja, sem ímyndunaraflið knýr áfram. „Við vinnum úr eldri sýningum. Við gerðum eina sýningu fyrir fimm árum síðum og svo valt hún áfram,“ segir Pétur Örn. „Við notum eldri hluti og eldri senur þannig að þetta tengist allt, en samt mjög óreglulega, það er engin harðlína sem við erum að vinna úr. Á fyrstu sýningunni vorum við t.d. með verk tengd pólitík og hálfgerða vopna- sýningu, en núna eru farartæki farin að verða meira áberandi. Þar eru bíll og beltaslípivélar í forgunni. Við erum með einn bíl sem við ætlum að endursmíða yfirbygginguna á, á meðan á sýningunni stendur. Þetta er að vissu leyti leik- völlur, við gerum bara hluti og greinum þá á meðan við gerum þá eða jafnvel eftir á frekar en að útiloka þá fyrirfram. Í rauninni, í einföldustu lýsingu, eru þetta bara hlutir og skrásetning af hlutnum og notkun á honum.“ Ferill listamanns og furðutæki á Kjarvalsstöðum Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is Tónlist 12 tónar | DJ Musician leikur kl. 17. Bar 11 | Bacon og Æla með tónleika kl. 21. NASA | Rappararnir Masta Ace og Words- worth ásamt Forgotten Lores, Tiny úr Quarashi, Antlew/Maximum, DJ Magic (Gísli Galdur) og DJ B-ruff kl. 23. Safn | Jóhann Jóhannsson – Tónlistar- innsetning. Stephan Stephansson – sýning. Salurinn | Myrkir músíkdagar: Kl. 20, Tón- list eftir Indra Rise, Kjartan Ólafsson og Patrick Koak. Kl. 22, Áshildur Haralds- dóttir flytur verk eftir Kaare Dyvik Husby og Magnús Blöndal Jóhannsson, auk Són- ötu fyrir flautu og píanó eftir Atla Heimi Sveinsson ásamt Önnu Guðnýju Guð- mundsdóttur píanóleikara. Smekkleysa Plötubúð – Humar eða frægð | Dáðdrengir kl. 17. Stúdentakjallarinn | Reggaehljómsveitin Hjálmar heldur tónleika í kvöld. Reggae- stemning og frítt inn. Skemmtanir Cafe Amsterdam | DJ. Master heldur uppi stemningunni. Cafe Catalina | Hermann Ingi jr. spilar og syngur um helgina. Cafe Victor | Idolparty á Risaskjám. Plötu- snúðurinn Mr. Metro spilar Dans og RnB tónlist. Classic Rock | Hljómsveitin Sex Volt spilar um helgina. Dalabúð | Ingimar spilar á harmonikuna á Dússabar í kvöld kl. 23. De Palace | Exos, Steini og Máney þeyta skífum á De Palace. Dillon | Andrea Jónsdóttir leikur eftirlæt- islögin á plötuspilara. Gaukur á Stöng | Rugl.is Dj Jóhann Dj Pitti á neðri hæðinni. Dj Maggi á efri hæðinni. Klúbburinn við Gullinbrú | Hljómsveitin Sólon ásamt Dúkkulísunum. Kringlukráin | Mannakornin verða með dansleik um helgina. Lundinn, Vestmannaeyjum | Hljómsveitin Tilþrif spilar um helgina. Pakkhúsið, Selfossi | Bermuda um helgina. Ráin Keflavík | Rúnar Þór leikur og syngur um helgina. VÉLSMIÐJAN Akureyri | Hljómsveitin Sixties leikur um helgina. Húsið opnað kl. 22 á föstud., frítt inn til kl. 23. Á laugardag verður húsið opnað kl. 24 fyrir aðra en matargesti, uppselt í mat. Myndlist Árbæjarsafn | Í hlutanna eðli – Stefnumót lista og minja. Gallerí 101 | Egill Sæbjörnsson – Herra Píanó & Frú Haugur. Gallerí Dvergur | Efrat Zehavi – Fireland. Gallerí Humar eða frægð! | Ásdís Sif Gunnarsdóttir sýnir vídeóverk sem hún hefur unnið að síðastliðin ár ásamt nýrri vídeóinnsetningu fyrir sýningarrýmið. Gallerí I8 | Finnur Arnar sýnir ýmis mynd- verk. Gerðuberg | Rosemarie Trockel sýnir ljós- myndir, skúlptúra, teikningar og mynd- bönd. Sigríður Salvarsdóttir í Vigur sýnir listaverk úr mannshári í Boganum, Gerðu- bergi frá 21. jan. – 13. mars. www.gerdu- berg.is. Grafíksafn Íslands | Rut Rebekka sýnir vatnslita og olíumálverk. Hafnarborg | Helgi Hjaltalín Eyjólfsson er myndhöggvari febrúarmánaðar. 1. d4 d5 2. c4 e5 3. dxe5 d4 4. Rf3 Rc6 5. Rbd2 Rge7 6. Rb3 Rf5 7. a3 Be7 8. g3 a5 9. Dd3 a4 10. Rbd2 h5 11. Bh3 g6 12. Re4 h4 13. Bf4 hxg3 14. hxg3 Rg7 15. Bg2 Hxh1+ 16. Bxh1 Bf5 17. Rfg5 Ra5 18. Df3 Re6 19. Rh7 Bxe4 20. Dxe4 c6 21. e3 Rb3 22. Hd1 Da5+ 23. Ke2 Rec5 24. Dg2 Da6 25. Kf1 Dxc4+ 26. Kg1 Dc2 27. Df3 d3 28. Bg5 Re4 29. Bxe7 Staðan kom upp í A-flokki Corus skákhátíðarinnar sem er nýlokið í sjáv- arbænum Wijk aan Zee í Hollandi. Al- exander Morozevich (2741) hafði svart gegn Ivan Sokolov (2685). 29... Rxf2! 30. Dxf2 Dxd1+ 31. Kg2 Dc2 32. Bd6 O-O-O 33. Kg1 Dxf2+ 34. Kxf2 Hh8 og hvítur gafst upp enda liðstap óumflýj- anlegt. Íslandsvinurinn Sokolov átti erf- itt uppdráttar á mótinu og lenti í neðsta sæti með 3½ vinning en Morozevich var sæti fyrir ofan með 4½ vinning. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Svartur á leik.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.