Morgunblaðið - 04.02.2005, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 57
ANNA María Karlsdóttir kvik-
myndaframleiðandi er leyndardóms-
full á svip þegar hún gengur út af
sýningu á einni af átta norrænum
kvikmyndum sem keppa um að-
alverðlaunin á Kvikmyndahátíðinni í
Gautaborg sem nú stendur yfir, en
Anna María er fulltrúi Íslands í fimm
manna dómnefnd.
„Ég get ekkert sagt um myndirnar
á þessu stigi,“ segir Anna María. Það
eina sem hún lætur uppi um dóm-
nefndarstörfin er að þau séu mjög
skemmtileg og þeim fylgi mikil
ábyrgðartilfinning.
Næstkomandi laugardag kemur í
ljós hver af kvikmyndunum hlýtur
Drekann og 100.000 sænskra króna
verðlaun, samkvæmt ákvörðun dóm-
nefndarinnar.
Gargandi snilld í leikstjórn Ara Al-
exanders og framleidd af Sigurjóni
Sighvatssyni, er ein af þeim sem
koma til greina, en þar er umfjöll-
unarefnið íslensk tónlist í þúsund ár
og verður myndin frumsýnd í dag.
Hinar myndirnar, sem keppa um
aðalverðlaunin, eru opnunarmynd
hátíðarinnar, hin sænska Kocken eft-
ir Mats Arehn, danska myndin
Brødre eftir Susanne Bier, Sandor
slash Ida frá Svíþjóð í leikstjórn
Henrik Georgsson, norska myndin
Min misunnelige frisør í leikstjórn
Annette Sjursen, sænsk-norska
myndin Vinterkyss eftir Söru John-
sen, Paha maa eða Frozen Land frá
Finnlandi í leikstjórn Aku Louhimies
og danska brúðumyndin Strings í
leikstjórn Anders Rønnow Klarlund
þar sem brúðugerð var í höndum
hins þýska Bernd Ogrodnik sem
reyndar býr á Íslandi.
Bjólfur birtist í haust
Þetta er í fyrsta skipti sem Anna
María situr í dómnefnd á alþjóðlegri
kvikmyndahátíð en hún hefur oft set-
ið hinum megin borðsins, sem kvik-
myndaframleiðandi, líkt og hún gerir
seinni hluta Gautaborgarhátíð-
arinnar að þessu sinni. En Anna
María er framleiðandi kvikmyndar-
innar Bjólfskviðu eða Beowolf and
Grendel sem Sturla Gunnarsson leik-
stýrir en myndin er í vinnslu og verð-
ur kynnt sem slík á dagskránni
„Work in Progress“ eða „Verk í
vinnslu“ á seinni hluta kvik-
myndahátíðarinnar.
Myndin var tekin upp á Íslandi í
sumar og meðal aðalleikara er hinn
sænski Stellan Skarsgård sem lík-
lega heimsækir hátíðina í Gautaborg
af þessu tilefni.
„Bjólfskviða hefur alla möguleika
til að ná góðri dreifingu og nú þegar
er búið að selja hana á kaupstefnum
til fjölda landa. En Gautaborgarhá-
tíðin er fyrsta hátíðin þar sem við
kynnum myndina betur og talað er
um hana,“ segir Anna María.
Stefnt er að frumsýningu Bjólfs-
kviðu í haust.
Anna María Karlsdóttir í Gautaborg
Morgunblaðið/Eggert
Anna María Karlsdóttir er önnum
kafin við dómnefndarstörf og kynn-
ingu á Bjólfskviðu í Gautaborg.
Gautaborg. Morgunblaðið.
steingerdur@telia.com
Dæmir myndir
og kynnir Bjólf
HANN er einhver alvanasti kvik-
myndagerðarmaður í Asíu, Tak-
eshi Kitano, stundum kallaður
Beat Takeshi. Þótt hann sé ekki
búinn að gera myndir nema í hálf-
an annan ára-
tug – Violent
Cop, Boiling
Point, Hana bi,
Kikujiro – þá
hefur hann sent
frá sér hverja
snilldina á fæt-
ur annarri,
hörku asískar
hasarmyndir,
ofurdramatísk-
ar og flottar fyrir augað. Með
Zatoichi má kannski segja að hann
hafi náð fullkomnum tökum á
sagnaformi sínu. Myndin er byggð
á japanskri myndaröð frá 8. ára-
tugnum og fjallar um blindan bar-
dagameistara, flakkara sem þefar
uppi ræningja og ribbalda, þá sem
níðast á minni máttar og kemur
þeim fyrir kattarnef – blindandi.
Hér er allt svo innilega áreynslu-
laust og öruggt; hvert sem litið er
má finna handbragð kvikmynda-
gerðarmanns sem veit upp á hár
hvað hann er að gera og gæti
hæglega gert það blindandi og
samt skilað af sér áhugaverðu
verki.
Snilldar-
verk í
blindni
KVIKMYNDIR
Myndbönd
Leikstjórn og handrit Takeshi Kitano. Að-
alhlutverk Takeshi Kitano. Japan 2003.
Myndform VHS/DVD. Bönnuð innan 16
ára.
Zatoichi
Skarphéðinn Guðmundsson
Það er óhætt að segja að MastaAce sé eldri en tvævetur íheimi hipp hoppsins. Fyrst
kvað að honum árið 1988 er hann var
meðlimur í The Juice Crew sem inni-
hélt kappa á borð við Big Daddy
Kane, Biz Markie og Craig G og átti
hann innslag í hinu sígilda „klíku“-
lagi „The Symphony“.
Masta (fæddur Duval Clear í
Brooklyn þar sem hann lifir og starf-
ar í dag) á nú að baki fimm sólóplötur
en sú fyrsta kom út 1990 (Take a
Look Around) og sú síðasta í fyrra (A
Long Hot Summer).
Masta Ace hefur einhverra hluta
vegna alltaf verið utan radarsins og
hafa margir gagnrýnendur og popp-
fræðingar lýst yfir gremju vegna
þessa, þar sem hæfileikar Ace þykja
ótvíræðir og allar breiðskífur hans
eru ávallt vel yfir meðallagi, sér-
staklega þykja tvær þær síðustu
vera afbragð. Þá þykir önnur plata
hans, Slaughtahouse (1993) m.a.
merkileg vegna þess að hún var ein
fyrsta rappplatan sem samþætti hið
harða austurstrandarapp og hið
fönklegna, grúvkennda vest-
urstrandarapp (The Game er t.a.m.
að gera svipaða hluti í dag). Þá gáfu
Ace og Eminem saman út lagið
„Hellbound“ árið 2000 en flæði
þeirra þykir svipað og Eminem hefur
í viðtölum tiltekið Masta Ace sem
áhrifavald á sig.
Uppgjör
Langur tími hefur liðið á milli
breiðskífa hin síðustu ár en þegar
platan Disposable Arts kom út árið
2001 (næst á undan A Long Hot
Summer) var Ace að koma úr sex ára
útlegð en um tíma fékk hann nóg af
bransanum og þótti honum rapp-
listin vera orðin fótum troðin af pen-
ingagráðugum, jakkafataklæddum
hákörlum. Þessar tvær síðustu plöt-
ur hans hafa enda verið eins konar
uppgjör við ferilinn og hreinskiptar
(sumir segja bitrar) vangaveltur um
eðli rappbransans og inntak. Ace
byggir þar á uppsafnaðri reynslu og
um leið og greinileg ást hans á tón-
listinni skín í gegn eru lögin um leið
viss sorgarstef.
Ace segir blaðamanni ástæðuna
fyrir langri töf A Long Hot Summer
ekki eins dramatíska og áður en
hann og félagar hans hafa und-
anfarið verið að bisa við að kom upp
hljóðveri og sú vinna dróst nokkuð
og platan þá um leið. En hvernig
kom Íslandsheimsóknin til?
„Sá sem sér um að bóka mig í
Englandi sá um þetta. Mér leist
strax vel á hugmyndina þar sem ég
hef aldrei komið þangað áður. Þann-
ig að þetta verður forvitnilegt og
gaman.“
Í ljós kemur að Masta Ace á ágæt-
is bakland í Evrópu.
„Það er merkilegt að sjá hvernig
rappformið hefur breiðst út um víða
veröld,“ segir hann. „Það er t.d. frá-
bær sena í Þýskalandi, Danmörku,
Svíþjóð og fleiri löndum.“
Blaðamaður tjáir honum að það
hafi orðið rappsprenging mikil í ís-
lensku tónlistarlífi fyrir fjórum árum
þegar rappsveitir fóru að rappa á ís-
lensku.
„Það er mjög jákvætt,“ segir hann.
„Það er einmitt það sem gerir þetta
svo spennandi. Það verður áhugavert
að kynna sér íslenska hipp hoppið.“
Það stendur ekki á svari frá hon-
um þegar hann er beðinn um að lýsa
viðhorfi sínu gagnvart rappheim-
inum í dag.
„Æ … ég vildi bara að fólk væri
kynnt betur fyrir því hvað rappið
snýst um,“ segir hann ákveðinn. „Á
sjónvarpsstöðvunum er þetta bara
kampavín, konur að hrista rassinn
sinn og „bling bling“ (heiti yfir þá
rapptísku að bera stóra hringi, háls-
keðjur og þess háttar glysvarning).
Það er svo miklu, miklu meira sem
rappið snýst um.“
Blaðamaður ber að lokum undir
Ace hvort það sé rétt að hin lofaða A
Long Hot Summer sé hans síðasta
plata.
„Já,“ segir hann blátt áfram án
þess að hika. „Þetta verður síðasta
platan sem ég mun koma að sem
Masta Ace.“
Masta Ace verður á tónleikunum
studdur rapparanum Wordsworth
sem gaf út sína fyrstu breiðskífu síð-
asta haust, Mirror Music en hann
hefur m.a. starfað með Tribe Called
Quest og Talib Kweli og Mos Def.
Íslenskt – já, takk!
Um upphitun sér svo stórskotalið
innlendra rapptónlistarmanna og
plötusnúða. Þeir eru Forgotten
Lores, Tiny úr Quarashi, Antlew/
Maximum, DJ Magic (Gísli Galdur)
og DJ B-ruff. Forgotten Lores vöktu
mikla athygli á síðustu Airwaves-
hátíð fyrir sérdeilis frábæra tónleika
en þeir eru nýkomnir frá Bandaríkj-
unum þar sem þeir spiluðu í Wash-
ington DC (en þeir fengu boð um að
spila þar efir Airwaves-hátíðina).
Tónlist | Masta Ace treður upp á NASA
Hreinskiptinn
reynslubolti
Masta Ace veitti Eminem innblástur á sínum tíma.
Rapparinn Masta Ace er borinn og barnfæddur
New York-búi og hefur verið í hipp hopp-brans-
anum í sautján ár. Hann heldur tónleika í kvöld
á NASA. Arnar Eggert Thoroddsen sló á þráð-
inn til hans og baunaði á hann spurningum.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur og
verður húsið opnað klukkan
23.00. Yngra áhugafólk á færi á
því að sjá Masta og Wordsworth
klukkan 17.00 í Smash, Kringlunni.
Það er Kronik sem stendur að tón-
leikunum í samstarfi við Bacardi
Breezer og Smash.
www.mastaace.com.
arnart@mbl.is