Morgunblaðið - 04.02.2005, Side 58
58 FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ er svo merkilegt að ef eitthvað, sem maður
hefur beðið lengi eftir, reynist uppfylla allar
manns uppsöfnuðu væntingar og vel það, þá
gleymist um leið öll óþreyjan sem hafði verið að
naga mann. Þá er talað um að eitthvað hafi verið
biðarinnar virði. Og þetta
á við fyrstu plötu Emil-
íönu Torrini í fimm ár –
hún var sannarlega bið-
arinnar virði.
Fimm ár eru langur
tími í lífi ungrar konu,
langt þroskaskeið hjá
skapandi og umfram allt
leitandi tónlistarmanni sem hún Emilíana hefur
alltaf verið, allt síðan hún steig fyrst fram á sjón-
arsviðið sem kornung söngkona hljómsveitarinnar
Spoon. Þessi fimm ár hafa verið afdrifarík í lífi
hennar, eins og fram hefur komið í viðtölum við
hana; tími sorgar og gleði, tími mikillar og djúprar
naflaskoðunar, tími endurskoðunar, tími endur-
nýjunar. Það má greina glöggt því þótt Love in
the Time of Science hafi um margt verið merkileg
og reyndar mjög vanmetin plata þá einkenndist
hún mjög af þreifingum listamanns sem þá var
nýbúinn að stinga sér út í djúpu laug tónlistar-
heimsins. Nú er hún hins vegar svo sannarlega
búin að ná andanum, farin að synda og sveifla
sporði sínum tignarlega sem hafmeyja væri. Emil-
íana hefur aldrei verið eins mikil Emilíana – ef
þannig mætti að orði komast. Aldrei, að manni
virðist, gefið eins mikið af sjálfri sér og verið eins
vel heima í því sem hún hefur verið að gera.
Það er ekki ofsögum sagt að Emilíana vendi þar
tónlistarkvæði sínu í kross. Hvergi nema í þessari
einstöku og hreinu rödd greinir maður að hér sé á
ferð sama söngkona og sendi frá sér hina vönduðu
og sumpart ofpródúseruðu Love in the Time of
Science. Á Fisherman’s Woman er ekkert of og
reyndar ekkert van heldur – samt enginn íburður,
ekkert skrúð, heldur Emilíana berskjölduð. Alls-
nakin röddin, klædd einum fata gegnsæjum gít-
urum og einstaka píanó- og trommuslætti. Það
kallar á djörfung að koma svona nakin fram og er
hún svo sannarlega ekki að gera það fyrir frægð-
ina því seint verða lögin tólf á plötunni talin væn
til vinsælda. En skítt með það. Þau eru ekta og
þau eru hennar, með húð og hári. Reyndar nýtur
hún dyggrar aðstoðar Dan Carey, sem segja má
að sé hægri hönd hennar á plötunni, vitanlega ber-
handleggjaður. Og saman virðast þau ná með
miklum ágætum; bæði sem flytjendur og lagahöf-
undar. Töfrarnir blasa reyndar ekki við einn, tveir
og þrír, enda heldur engar sjónhverfingar á ferð;
ekkert blöff. Og það rennur ekki upp fyrir manni
fyrr en eftir einar tvær – fremur dofnar – áheyrn-
ir, en þá verður líka ei aftur snúið. Eins og með
svo margar slíkar innihaldsríkar og dugandi plöt-
ur, þá gerðist það lag fyrir lag; perlurnar komu í
ljós hver af annarri. Sú fyrsta var „Heartstopper“,
gítargrúvið og sagan af kaffiþambandi stelpunni
sem misst hefur tökin á lífinu, finnur ekki fyrir því
lengur, en skilur það samt svo miklu betur en
flestir aðrir. Svo kom „Today Has Been OK“, ein-
staklega ljúfsárt lag, bjartsýnt í allri sinni sorg og
söknuði. Minnir einna helst á „Saturday Sun“ með
Nick Drake en áhrifa hans og annarra söngva-
skálda af bresku þjóðlagrokkkynslóðinni gömlu
gætir mjög í tónlist Emilíönu og spreytir hún sig
meira að segja á hinu átakanlega fallega „Next
Time Around“ eftir Sandy Denny, af þriðju plötu
hennar The North Star Grassman and the Ravens
frá 1971, og fer mjög vel með. Annað tökulag sem
hún gerir að sínu eigin og gerir jafnvel enn betra
er „Honeymoon Child“ eftir Bill Callahan úr
Smog. Smáskífan „Sunny Road“ er trúlega það
sem næst kemst að geta talist popplag, enda gríp-
andi og létt lag með þægilegum vongóðum texta,
sem eins og flestir aðrir fá mann til að velta vöng-
um yfir hversu persónulegur hann er. Þannig
lokka þeir mann og laða hver af öðrum söngvar
sjómannskonunnar og dvelja með manni lengur,
miklu lengur en þær tæpu 40 mínútur sem platan
tekur í flutningi. Reyndar skekkir lokalagið svolít-
ið sérlega sterka heildarmynd plötunnar, hið full
Simon og Garfunkel- og hippalega „Serenade“,
sem Emilíana á ekkert í og hefði það alveg mátt
víkja fyrir einu af hennar lögum, sem hún hlýtur
að eiga uppi í erminni.
Í umsögn þessari er engin forgjöf, engin auka-
stjarna fyrst hún er íslensk og við viljum eiga
hana. Þetta er einfaldlega platan þar sem einn
okkar fremsti og áhugaverðasti tónlistarmaður
finnur sig eftir stranga en þó ekkert mjög langa
leit, finnur sína réttu fjöl í tónlistinni og lífinu.
Hafmeyjan er komin heim – þótt hún búi í útland-
inu.
Heimkoma hafmeyjunnar
TÓNLIST
Íslenskar plötur
Sólóplata Emilíönu Torrini. Emilíana syngur og leikur á
hljómborð, Dan Carey leikur á gítara, tabla og hljóm-
borð, Samuli Koskinen trommur, Julin Joseph píanó,
Pharoah S. Russell trommur. Flestir textar eftir Emil-
íönu. Flest lög eftir Emilíönu og Carey. Carey stjórnaði
upptökum. Útgefandi er Rough Trade. Dreifing 12 Tónar.
Emilíana Torrini – Fisherman’s Woman
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Skarphéðinn Guðmundsson
„Emilíana hefur aldrei verið eins mikil Emilíana,“ segir í umsögn um plötuna Fisherman’s Woman.
ERIC Clapton varð faðir í fimmta
sinn á þriðjudaginn er eiginkona
hans Melia eignaðist stúlkubarn á
spítala í Lundúnum.
Clapton, sem er 59 ára, og Melia,
sem er 29 ára, eiga fyrir saman tvær
dætur; Julie Rose, sem er þriggja
ára og Ellu Mae, sem er tveggja.
Clapton var viðstaddur fæðinguna,
sem gekk eins og í sögu, að því er
fram kemur í breskum fjölmiðlum.
Clapton á einnig hina 19 ára
gömlu Ruth með fyrrverandi unn-
ustu sinni Yvonne Kelly. Sonur hans
Conor – sem hann átti með ítölsku
leikkonunni Lory Del Santo – lést
hins vegar í hræðilegu slysi árið
1991, fjögurra ára gamall, er hann
féll út um glugga úr háhýsi í New
York-borg. Um sonarmissinn hefur
Clapton samið lögin „Tears in Heav-
en“ og „River of Tears“.
Pabbi-Clapton lék á als oddi er
hann kom fram á góðgerðartón-
leikum í Cardiff í janúar.
Faðir í
fimmta sinn
Fólk í fréttum |
Eric Clapton
Miðasala opnar kl. 15.30
ÍSLANDSBANKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.kl. 3.45 B.i. 10 ára
VIÐSKIPTAVINIR ÍSLANDSBANKA FÁ
20% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI
I I I I Í L F
20 F L F I I
SIDEWAYS
WWW.BORGARBIO.IS
Tilnefningar til
Óskarsverðlauna
þ.á.m. besta mynd,
leikstjóri og handrit
il f i r til
. . . t ,
l i tj ri rit
Óskarsverðlauna
„Fullkomlega ómissandi mynd“ S.V. MBL.
5
T.V. Kvikmyndir.is
tilnefningar til
óskarsverðlauna
þ.á.m. Besta mynd, besti
leikstjóri, besti
leikari-Leonardo Dicaprio, bestu
aukaleikarar-Cate Blanchett og
Alan Alda.
11
7
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 6. ÍSL TAL.Sýnd kl. 11. B.i. 14 ára
Áður en hún finnur frið
verður hún að heyja stríð
Svakalega flott
ævintýraspennumynd með
hinni sjóðheitu og sexý
Jennifer Garner
l fl tt
i t r
i i j it
if r r r
Fædd til að berjast þjálfuð til að drepa
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. B.i. 14 ára
MMJ kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.50
LEONARDO DiCAPRIO
Ó.H.T. Rás 2
Frá framleiðanda Training Day
Þeir
þur
fa a
ð st
and
a sa
man
til a
ð ha
lda
lífi!
Fráb
ær s
pen
nutr
yllir!
tilnefningar til
Óskarsverðlauna
þ.á.m. besta mynd, leikari
og handrit
„Ein snjallasta mynd
ársins...
Ógleymanleg...ljúf
kvikmyndaperla“
Ó.Ö.H. DV
SV Mbl.
Sýnd kl. 8 og 10.40. B.i. 14 ára
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15.
ATH! VERÐ KR. 500
Áður en hún finnur frið verður hún að heyja stríð
Fædd til að berjast þjálfuð til að drepa
Frá þeim
sem færðu
okkur X-
Men
kemur
fyrsta
stórmynd
ársins
i
f
-
f
i
Svakalega
flott
ævintýraspen
numynd með
hinni
sjóðheitu og
sexý Jennifer
Garner
Frumsýnd 11. FebrúarFrumsýnd 11. Febrúar
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16.
kl. 5.30, 8 og 10.30.
Ein vinsælasta
grínmynd allra tíma
þrjár vikur á toppnum í
USA!
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINSI I I
Frumsýning H.L. Mbl. Kvikmyndir.is